Dagblaðið - 20.10.1978, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978.
9
Atlantshafsbandalagið ráðgerir að
koma upp herstöð við Stornoway á
Hebrideseyjum vestur af Norður-
Skotlandi, sem gæti komið í stað
stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Að jtessu eru leiddar likur í grein
er birtist í tímaritinu New Statesman
hinn 13. október siðastliöinn.
Höfundur er blaðamaöurinn Brian
Wilson. Vitnar hann meðal annars til
John Erickson prófessors við
Háskólann i Edinborg, sem einnig
starfar við rannsóknardeild vamar-
mála við sama skóla.
Greinin birtist i New Statesman
undir safnheitinu „Notes on Politics
and Power” og fer hér á eftir í beinni
þýðingu.
Fyrirsögnin er: Ný Nato herstöð á
Skotlandi.
„Er varnarmálaráðuneytið að
ráðgera að setja upp herstöð fyrir
Atlantshafsbandalagið við Stornoway
á Hebrideseyjum. Opinberlega heitir
þetta að ráðuneytið óski eftir heimild
til að skipuleggja stækkun herflug-
vallar við Stornoway, til að hann geti
orðið fullnægjandi varavöllur ef til
styrjaldarástands kæmi.
Óopinberlega er talið, að þarna eigi
að byggja upp herstöð fyrir Atlants-
hafsbandalagið sem gæti komið í stað
eftirlitsstöðvarinnar við Keflavík á
Islandi.
Stjórnmálaleg ógnun gegn Atlants-
hafsbandalaginu er mun minni nú á
Íslandi en var árið 1974 þegar þáver-
andi vinstri stjórn var í óða önn að
vinna að samningum um brottflutning
herliðs Atlantshafsbandalagsins i
áföngum. Nýja vinstri stjórnin á
íslandi stefnir einungis að endurmati á
varnarmálastefnunni. Þrátt fyrir þetta
verður að telja herfræðilegar
röksemdir fyrir því, að rétt sé að flytja
stöð Atlantshafsbandalagsins frá
Keflavík, mjög sterkar.
John Erickson prófessor við
Edinborgarháskóla sem einnig starfar
við varnarmálarannsóknarstofnunina
við sama skóla segir: „Ef Norður-
Skotland væri ekki þar sem það er yrði
hreinlega að koma þvi upp. Frá
sjónarmiði herstjórnaraðila eru
stöðvarnar þar ómissandi.”
John Erickson prófessor segist sjá
það fyrir, að eftirlitsflug af því taginu,
sem stundað sé frá Keflavíkurflugvelli
muni tapa gildi sínu jafnhliða
aukningu eftirlitsflugs með lang-
fleygum flugvélum (starfsemin á
Keflavíkurflugvelli er nefnd „Mid-
range eftirlitsflug, þ.e. nokkurs konar
flug af meðallengd). Aftur á móti telur
prófessorinn að eftirlitsflug á minni
svæðum muni aukast. Þess vegna
muni þýðing Norður-Skotlands aukast
hvað þetta varðar, vegna þess að þar
sé sá staður, sem næstur er því
hafsvæði þar sem sovézk skip og flug-
vélar koma út á Norður-Atlantshafið
og jafnhliða kæmi til greina að setja
upp herstöð.
Hebrideseyjaráðið hefur hafnað því
að veita samþykki sitt fyrir að varnar-
málaráðuneytið hefji áætlanagerð um
stækkun herflugvallarins við Storno-
way. Nýlega hefur ráðinu aftur á móti
borizt bréf frá áðurnefndu ráðuneyti.
Þar er ráðinu álasað þunglega fyrir að
tefja með háttalagi sínu mjög mikil-
vægt verkefni. „Allir tafir á fram-
kvæmd þessa verkefnis mundu valda
okkur miklum áhyggjum,” segja þeir
varnarmálaráðuneytismenn. „Áætl-
anir okkar varðandi þetta mál eru
þegar komnar vel á rekspöl,” sögðu
— herfræðileg rök mæla með flutningi
til Hebrideseyja þó nýja vinstri
stjórnin sé lítil ógnun, segir f brezka
tímaritinu New Statesman
þeir ennfremur i bréfinu.” New Statesman hinn 13. þessa
Þannig hljóðar greinin i tímaritinu mánaðar.
Óveður
á Mallorka
Einn maður fórst og nokkrir
slösuðust í gífurlegum stormi sem
gekk yfir Mallorka i gær. Siglingar
á milli meginlands Spánar og
eyjarinnar féllu niður um nokkurn
tima. Vegir lokuðust vegna flóða
og vitað er að ávaxtaakrar
skemmdust mjög mikið.
REUTER
Kennarinn
varákafií
heróínsmyglinu
Fimmtugur belgískur kennari
var handtekinn á flugvellinum
með 27 kíló af heróíni, sem hann
ætlaði að smygla til Brussel. Hefði
verið hægt að selja heróinið á jafn-
virði tólf milljarða á svörtum
markaði. Kennarinn hefur viður-
kennt að hafa stundað smygl á
heróíni í kílóatugum.
Flyturherínn af Vellinum
tl! Skotlands?
Erlendar
fréttir
Washin^ton:
Fundaðmeð
lan Smith eftir
loftárásir á
skæruliða
íZambíu
Brezkir og bandarískir embættismenn
munu i dag halda áfram viðræðum við
lan Smith forsætisráðherra Ródesíu og
kanna möguleika á fundi allra deiluaðila
í Ródesíudeilunni. Fundahöld í dag
voru að sögn ákveðin áður en vitað var
um árásir Ródesiuhers á stöðvar
skæruliða innan landamæra nágranna-
ríkisins Zambiu.
Þá gerðu flugvélar frá Ródesíu
fjörutíu og fimm mínútna loftárás á
skæruliðabúðirnar og að sögn sjónar-
votta féllu mjög margir. Að sumra sögn
allt að fimm hundruð manns.
Nkomo, einn höfuðleiðtogi skæruliða,
sagði það ekki rétt sem forsvarsmenn
Ródesíuhers segðu, að þarna hefði verið
um að ræða höfuðstöðvar skæruliða.
Þeir sem fallið hefðu fyrir kúlum
Ródesíuhers hefðu verið börn og
unglingar og jafnvel blindir sjúklingar.
Utanríkisráðuneytiö í Washington
hefur harðlega fordæmt loftárásirnar og
segir að þær geri ekkert annað en aö
auka á vandann 1 þessum heimshluta. t
yftrlýsingu ráðuneytisins er Itrekað að
nauðsynlegt sé að fmna lausn á
deilunum 1 Ródeslu hið allra fyrsta.
oklíarspararþérmörg sporin í framtíðinni
Við tökum okkur upp með allt okkar hafurtask úr
húsi Hótels Esju á næstu helgi og höfnum í Toll-
húsinu við Tryggvagötu. Gengið erinn í vesturenda
hússins.
greiðsla flugfylgibréfa. Þú getur innleyst fraktbréfið
og lagt það í toll í sama húsi ásamt öðrum innflutn-
ingsskjölum.
Ekki skaðar heldur að gjaldeyrisbankarnir eru í aö-
eins nokkurra skrefa fjarlægð.
Þar verða því farmsöluskrifstofur okkar og af-
Athugaðu að símanúmer Flugfraktar verður nú hið
sama og aðalskrifstofu Flugleiða.
FLUGLEIÐIR Sgjfrakt
Tollhúsinu v/Tryggvagötu sími 27800