Dagblaðið - 20.10.1978, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978.
Er mengunin vandamál?
Spuming
segir Páll Zóphóníasson bæjarstjóri
Vestmannaeyjum
Siglufjörður:
Töluvert
vandamál
„Já, mengunin er töluvert vanda-
mál hér,” sagði séra Vigfús Þór Árna-
son; varaforseti bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar er DB hafði samband við hann
nýlega, þar sem bæjarstjórn
Siglufjarðar hafði samþykkt á fundi
sínum 12. október sl. að óska eftir
viðræðum við stjórnendur Sildarverk-
smiðju ríkisins um leiðir til að koma í
veg fyrir mengun í sjó og lofti frá verk-
smiðju SR á Siglufirði.
„Verksmiðjan er 1 gangi stóran
hluta úr árinu,” sagði Vigfús. „Hér er
bæði um að ræða mengun frá
reyknum og mengun í sjó af völdum
úrgangs eða grúts frá verksmiðjunni.
Þeir í dráttarbrautinni eiga oft erfitt
með að draga upp báta vegna þess hve
grúturinn er mikill, og reykurinn frá
verksmiðjunni liggur yfir öllum
bænum og oft er erfitt að anda að sér
loftinu. Sérstaklega er ástandið slæmt í
barnaskólanum, en hann er á versta
stað i bænum. Þessi verksmiðja er
vissulega lífgjafi okkar hér en hún
hefur alveg orðið útundan í sambandi
við mengunarvarnir, og við hljótum
að gera kröfu til að úr því sé bætt. Það
er vissulega dýrt en það er tillaga
okkar í bæjarstjórninni, að öll þessi
mál verði tekin til athugunar og
eitthvað gert sem fyrst. Þar er þýð-
ingarmest að hreinsiútbúnaður verði
settur á reykháfinn því eins og á-
standið er nú er loftið hér mjög þungt
bæði utanhúss og innan.”
Bolungarvík:
í undirbúningi
að koma upp
löndunarkanti
DB hafði einnig samband við
nokkra aðra staði þar sem
loðnubræðsla er í gangi og kannaði
ástandið i mengunarmálum.
Guðmundur Kristjánsson bæjarstjóri í
Bolungarvík sagði: „Jú, það hefur
komið upp vandi hér i sambandi við
þetta. Það bar á því i sumar að grútur
komst í höfnina, en ekki ber á því
lengur. Einnig hefur komið upp smá
vandamál í sambandi við að óþrifn^ð-
ur vill berast út með bílunum sem
keyra með loðnuna. í undirbúningi er
að koma upp löndunarkanti og þá
leysist þetta vandamál. Þá verður dælt
beint upp í loðnuþrærnar og við
gerum okkur vonir um að það verði
komið í gagnið á næsta ári. Um vanda-
mál af völdum reyksins er ekki að
ræða þar sem norðaustan átt er
ríkjandi hér og reykinn leggur ekki yfir
bæinn nema tiltölulega fáa daga á
ári.”
Seyðisfjörður:
Ekki meira vanda-
mál en áður
Jóhann Sveinbjörnsson á bæjar-
skrifstofunum á Seyðisfirði hafði þetta
að segja: „Mér finnst þessi mengunar-
mál blásin dálitið upp. Ég er alinn upp
hér á staðnum og man ekki eftir öðru
en meiri og minni grút. En þegar
einhver umhverfisverndarráð vantar
eitthvað til að blása upp, þá er þetta
blásið upp. Þetta er alls ekki meira
vandamál en áður og er aðeins vanda-
mál örfárra manna."
Grindavík:
Mjög gott
ástand
Eiríkur Alexandersson, bæjarstjóri í
Grindavík sagði: „Ég álít að ástandið í
þeim efnum sé mjög gott hér. Við
erum hér við opið Atlantshafið og
hreinsun og endumýjun er því mjög
mikil. Strompurinn hér er einnig hærri
en víða annars staðar. Þá má einnig
benda á aö sama og ekkert skólp
rennur í höfnina, heldur rennur það i
sjó utan hafnargarðanna. Ástandið
hér er því alls ekki slæmt og engar
kvartanir hafa borizt.”
Vestmannaeyjar:
Reynt að hreinsa
höfnina
Páll Zóphóníasson, bæjarstjóri I
Vestmannaeyjum sagði: „Það liggur
náttúrlega I hlutarins eðli að alls
staðar þar sem þessar verksmiðjur eru
verður fólk vart við lyktina af þessu.
Það mætti auðvitað setja upp
hreinsiútbúnað en gallinn er sá að
allur sá hreinsiútbúnaður sem er á
markaðnum í dag krefst svo mikils
vatns, að það yrði ekkert vatn eftir til
annarra hluta. Reykháfarnir hafa
verið hækkaðir en eftir sem áður er
þetta fyrst og fremst spurning um með
hvaða hugarfari maður umber þessa
lykt. Þá er einnig verið að reyna að
hreinsa höfnina. Víðast hvar hefur
þessum málum verið þannig háttað að
holræsin hafa legið í höfnina. Núna er
verið að grafa hér þvert yfir höfnina
og verða lagðar leiðslur undir hana.
Síðan verður byggð hér dælustöð á
næsta ári sem mun dæla skólpinu
undir höfnina og norður fyrir Eiði.
Menn eru hér með vakandi augu fyrir
þessum málum, en hraðinn ræðst
náttúrlega af fjármagninu, en
hreinsun hafnarinnar hefur haft
töluverðan forgang hér. Þá er
náttúrlega sama vandamál hér eins og
annars staðar í sambandi við húsa-
sorp. Við höfum fram að þessu notað
gryfju uppi í Helgafelli og sjóinn líka,
en nú höfum við fest kaup á vél, sem á
að mala sorpið. Það hefur þó komið
upp eitthvert vandamál i sambandi við
þá vél og hefur hún ekki verið sett
upp ennþá. Selfyssingar -hafa keypt
sams konar vél og við fylgjumst vel
með hvernig til tekst hjá þeim.”
Akranes:
Ástandið
batnað mikið
Magnús Oddsson, bæjarstjóri á
Akranesi sagði: „Hér eru það einkum
tveir aðilar sem valda menguninni,
þ.e. Sementsverksmiðja rikisins og
Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akra-
ness, en báðir þessir aðilar eru að gera
ráðstafanir til úrbóta Þannig hefur
Sementsverksmiðjan sett nýjan „hatt”
ofan á strompinn til að fyrirbyggja
að reyknum slái niður með
strompinum, en áður fór allt niður i
1/3 af hæð strompsins. Einnig fá þeir
nýjar ryksiuvélar næsta sumar, þannig
að verið er að bæta þetta. Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjan er búin að taka
i notkun 43 metra háan skorstein, en
hann var áður aðeins nokkurra metra
hár. Með tilkomu hans hefur ástandiö
á neðri Skaganum batnað mikið. Það
er óhætt að segja að fullur vilji sé hjá
báðum þessum aðilum, en fjárhagur
þessara fyrirtækja er þannig að þess er
ekki að vænta að þau geti tekið stór
stökk í einu. Þó var það töluvert stórt
stökk og mikil bót að fá nýja skor-
steininn. Annað sem valdið hefur
vandræðum er fok skeljasands úr
geymslu Sementsverksmiðjunnar I
miklu roki. Hann vill fjúka dálitið yfir
bæinn og við erum að vonast til að
sementsverksmiðjan geri bót á því
máli fyrir veturinn. Þar er verið að
leita að leiðum, en þær hafa ekki
fundizt ennþá.”
Keflavfk:
Eilífðarstríð
Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri í
Keflavík sagði: „Það að olíusori hafi
fundizt í Njarðvíkurlandi litum við
mjög alvarlegum augum, því að ef
þetta er slæmt ástand þarna uppi á
Velli þá er það yfir vatnsbólunum
okkar og gæti því verið alvarlegt fyrir
okkur. önnur mengunarmál eru helzt
grúturinn í höfninni og loftmengunin
frá Fiskiðjunni sjálfri, en það mál
hefur verið ejlífðarstrið hér. Núna er
hins vegar verið að koma upp betri
tækjum þar, en þó hefur það gengið
alltof hægt. Einnig er slæmt ástandið
umhverfis verksmiðjuna sjálfa,” sagði
1 Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri í
Keflavik að lokum.
IMU A MEÐAN A
HUSGAGNAVIKUNNI STENDUR BJODUM VIÐ
DROPA
SKAPA- OG HILLUSAMSTÆÐUNA
Á SÉRSTÖKU
AFSLÁTTARVERÐI
Verslið hjá
fram-
leiðanda
Veljum
íslenskt
Veríð ve/komin í BAS NR. 16 á húsgagnavikunni og
skoðið okkar fjölbreytta húsgagnaúrval
A.GUÐMUIMDSSON HF
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuveg 4, Kópavogi — Sími 73100