Dagblaðið - 20.10.1978, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978
21
BEE GEES OG
STIGWOOD SITJA
NÚ FRÆGDAR-
TINDINN
Robert Stigwood hefur gert þrjár stórmyndir nú á stuttum tima og hver veit nema
hann haldi áfram á þessari braut.
fifffím
4 s z* t I i t •
Bee Gees bræðurnir Barry og Robin Gibb geta nú siglt áhyggjulaust áfram um ókomna framtið, allavega hvað snertir
QármáUn.
Þó þessir kappar sem við sjáum á
myndunum sitji hér i sófum, þá sitja þeir
líka á toppnum. Robert Stigwood og
bræðurnir Barry og Robin Gibb (Bee
Gees) hafa nú gert það svo gott í kvik-
myndaheiminum að það er eðlilegt að
þeir brosi. Robert Stigwood sem er 44
ára hefur á skömmum tima gert þrjár
toppmyndir. Það eru þær Saturday
Night Fever, Grease og nú Sgt. Pepper.
Allar þessar myndir hafa verið mjög
umtalaðar og hefur komið upp alls kyns
æði í sambandi við þær tvær fyrstu. Bee
Gees eiga einnig stóran þátt í því að
kvikmyndirnar urðu svo frægar, með
söng sínum. Hljómplötur nteð lögum úr
kvikmyndunum hafa selzt i milljónaupp-
lagi um allan heim. Bræðurnir og Stig-
wood þurfa því ekki að kvíða framtíð-
inni hvað fjármál snertir.
NV hárgreiðsla fyrir sítt hár.
HAUSTTÍZKAN:
Nakin undir vest
inu eða jakkanum
Vesti eru nijög mikið í tízku núna og
verða það áfram í vetur. Vesti má nota
við buxur, pils og kjóla. Þau eru líka
mismunandi, sum prjónuð eða saumuð,
síð eða stutt. Herravesti hafa oft orðið
vinsæl hjá kvenfólkinu, og eru þau nú
enn einu sinni komin i tízku. En ekki eru
þau notuð eins og áður, heldur er það há
tízkan að nota þau eins og þau koma
fyrir og án þess að nokkuð sé notað
innan undir.
Konan skal því nú vera nakin undir
karlmannsvesti (að sjálfsögðu má hún
vera i buxum eða hverju sem hún vill),
en ekki er lengur ætlazt til að verið sé i
skyrtum undir vestunum.
Ekki eru það bara vesti sem eru
allsráðandi í tízkunni. Jakkar eru einnig
mjög vinsælir. Það nýjasta er að konan
noti jakkann eintóman við buxur eða
pils, skyrtan eða peysan séu óþarfar.
Níaðurinn á myndinni er enginn
annar en Peter „Columbo” Falk, sem
stendur eins og illa gerður hlutur undir
regnhlifinni sinni. Falk er þama að æfa
atriði í nýrri mynd er hann leikur I um
þessar mundir, en hún nefnist The
Brink’s Job. Ætla mætti að Falk væri
að leika Charlie Chaplin, þvi ekki er
Til að punta upp á bera bringuna
innan undir jakkanum er höfð slaufa
eða slifsi. Þessi nýja kvöldtízka, en svo
er hún kölluð, gengur mikið út á
skartgripi og á að skreyta sig hátt og lágt
með alls kyns nælum og blómum. Mikið
er um að fjórar til fimm nælur sjáist i
einum jakkakraga.
Innanundir kjólum sem notaðir eru
við vinnu eða heima og kallaðir eru
hversdagskjólar á nú að nota buxur.
Vinsælustu dagkjólar í vetur verða þeir
sem bera keim af einkennisfötum. Þar
má nefna t.d. matrósakjóla m/háu mitti,
lausfallandi kjóla með berustykki, kjóla
með standkraga og þrönga kjóla með
hárri klauf á hliðinni, svo sjáist í
fæturna.
Annars má gegja að allt sé i tízku, en
samt sem áður kemur eitthvað nýtt i
hverri viku og auðvitað reyna allir að
fylgjast með.
hann ósvipaður honum þar sem hann
stendur þarna. En svo er þó ekki.
Myndin á að gerast um 1950 og fjallar
hún um Boston ræningja, og er Columbo
einn þeirra. Það má segja að hann snúi
sér ekki til hins betra eftir að vera búinn
aö leika lögregluforingja í mörgum
myndum.
Columbo gerist
óheiðarlegur
— í nýrri kvikmynd sinni