Dagblaðið - 20.10.1978, Page 24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978.
Rufus Reid bassaleikarí og Eddie Gladen trommuleikarí reyndust þegar þeir
„hitnuðu” vera prýðisgöðir hljöðfæraleikarar. Myndin er tekin i miðju trommu-
sölöi Gladens.
Frá upphafi tönleikanna. Hljöðfæraleikararnir koma sér fyrír og Dexter Gordon veifar saxanum
sinum til áheyrenda. DB-myndir Árni Páll.
og trymbillinn Eddie Gladen fóru á
kostum og hlutu að launum lang-
vinnt lófatak hrifinna áheyrenda.
Sjálfur stóð Dexter Gordon fyrir sinu.
Hann riðaði reyndar dálítið á
fótunum, en ekkert til skaða, kynnti
lögin bráðskemmtilega á samblandi
ensku og dönsku og gerði að gamni
sínu. Sviðsframkoma Gordons var
bráðsmellin. Hann gekk fram og aftur
um sviðið, lagfærði hátalara, ef
honum þótti þurfa, hrasaði um
snúrur, saug uppí nefið með áherzlum
og var i alla staði hinn skemmtilegasti.
Fram að hléi blés hann eingöngu í
tenórsaxófón, en mætti að því loknu
með sópransaxann. í lokalögunum
skipti hann aftur yfir á tenórinn.
Hljómleikarnir fóru hægt af stað og
tilþrifalitið. Hljóðstjórinn átti
greinilega í erfiðleikum við að blanda
rétt, allavega vona ég að hann hafi
ekki reynt það viljandi að sprengja
hljóðhimnur áheyrenda i upphafi. En
brátt fóru hljóðfæraleikararnir að taka
við sér.
Einn af öðrum sönnuðu þeir ágæti
sitt með hressilegum og oft
bráðfyndnum tilþrifum. Dexter
Gordon lét hafa það eftir sér í viðtali
fyrir nokkru að þeir Cablis, Reid og
Gladen væru beztu ungu mennirnir
sem hann hefði haft.i hljómsveit sinni.
Þetta eru stór orð manns með áratuga
reynslu að baki í jazzheiminum. En
þremenningarnir sönnuðu orð meist-
arans svo að ekki varð um villzt. Þeir
voru sigurvegarar kvöldsins. -ÁT-
VEL HEPPNAÐIR
HUÓMLEIKAR
DEXTERS G0RD0N
OG FÉLAGA
Hljómleikar Dexters Gordon og
félaga hans tókust prýðilega. Ekki
tókst þeim að trekkja svo vel að Há-
skólabíó fylltist — þvi miður — en
hrifning þeirra, sem sáu sér fært að
leggja út tæplega fimm þúsund krónur
til að vera viðstaddir jazzviðburð, var
fölskvalaus. Meira að segja
jazzsnobbin, sem telja það í tízku að
amast við Ijósmyndurum, létu ekki á
sér kræla, — hafa sennilega ekki átt
aura.
Það sem mest kom á óvart á hljóm-
leikunum var hæfni meðspilara
Gordons. Þeir George Cablis
píanóleikari, Rufus Reid bassaleikari
Flúði Bandaríkin
vegna eituríyfjadóms
Býr nú og starfar í Kaupmannahöfn
lullóílufinji s.i(i*ao| M teMfr 0(|
Mfl r-Lm'“num‘siln JÓ(MUn GarðlfSSOn MiaíU"
lli hann vifl di>H|uvandamll i
oliMarmrnn BotlO IW
5Efí I Evrópu
Fyrirsögnin var
ekki frá greinar-
höfundi komin
1 Dagblaðinu á síðasta föstudag
ritaði Jónatan Garðarsson grein um
líf og störf jazzleikarans Dexters
Gordons. — Hún var samin sam-
kvæmt beiðni undirritaðs. Fyrir-
sögnin „Flúði Bandaríkin vegna
eiturlyfjadðms” varð aftur á móti til
'á ritstjórnarskrifstofum blaðsins án
nokkurs samráðsviðJónatan.
Þar eð hann hefur orðið fyrir
nokkrum óþægindum frá „sönnum”
jazzunnendum sem ekkert Ijótt
mega heyra né sjá á prenti um list-
greinina, þá er yfirlýsing þessi gefin.
Ásgeir Tömasson.
Isfírzku fíokkamir
X-BAXÍ skrifar frá ísafirði:
„Eitt sinn las ég það I poppsíðu
Dagblaðsins að þið óskuðuð eftir
bréfum frá landsbyggðinni með frétt-
um af músíklífinu. Ég hef ákveðið að
verða við þeirri bón og krota nokkrar
linur.
t dag eru starfandi þrjár hljóm-
sveitir á ísafirði, BG-flokkurinn,
Líparít og Villi, Gunnar og Baldur.
Sú fjórða er í fæðingu. Tvær hljóm-
sveitir hafa verið lagðar niður á
árinu. Það eru hljómsveitirnar Ýr og
Ásgeir og félagar. Það er svipað með
félagana hans Ásgeirs og hljómsveit-
ina Hauka aö meðlimatalan er
komin á fimmta ef ekki sjötta tug. —
Ýr mun ætla að koma saman í lok
ársins og æfa prógramm undir
væntanlega breiðskífu.
BG-flokkurinn er því eina hljóm-
sveitin okkar Isfirðinga sem við
getum kallað góða um þessar
mundir. Flokkurinn flytur góða og
vandaða tónlist sem fellur flestum í
geð. 1 fremstu víglínu flokksins eru
söngvaramir Ólafur Guömundsson,
sem einnig leikur á gítar, Ingibjörg
Guðmundsdóttir og Svanfríður
Arnórsdóttir. Óhætt er að fullyrða
að þar séu á ferðinni mjög góðir og
lifandi söngvarar.
Aðrir í flokknum eru Baldur Geir-
mundsson — B.G. sjálfur — hljóm-
borðsleikari, Samúel Einarsson
bassaleikari, Karl Geirmundsson
gítarleikari og Rúnar (Þursari) Vil-
bergsson sem ber húðirnar. Allt eru
þetta vandaðir hljómlistarmenn eins
og vinsældir þeirra hvar sem er á
landinu bera með sér.
Hljómsveitina Líparit skipa sjö
manns. Stærsti ókostur þeirrar
hljómsveitar er reynsluleysi hópsins
sem enn er ekki farinn að skila sínu
hlutverki nægilega vel. Ljósasti
punkturinn við Líparít er bassaleik-
arinn. Hann sýnir oft á tíðum ágætis
tilþrif.
Villi, Gunnar og Baldur, sem eru i
„old boys” flokknum, hafa að
undanförnu verið húshljómsveit í
Gúttó okkar tsfirðinga og staðið sig
með mestu prýði. Enda eru þeir
góðir músíkantar, þótt komnir séu
vel á miðjan aldur.
Ný hljómsveit
í fæðingu
Og þá er það rúsínan í pylsuend-
anum:
Því hefur heyrzt fleygt hér á ísa-
firði að ný hljómsveit væri í fæð-
ingu. Hún mun hefja æfrngar um
miðjan október og spilamennsku um
mánaðamótin október-nóvember.
BG-FLOKKURINN — bezta hljömsveit Isfirðinga um þessar mundir, að
mati bréfritara.
Þessi nýja hljómsveit saman-
stendur af þremur liðsmönnum úr
Ýr, þeim Rafni Jónssyni trommu-
leikara, Reyni Guðmundssyni gitar-
leikara og söngvara og Erni Jónssyni
bassaleikara. Nýju mennirnir munu
vera Sven Arve gítarleikari, fyrrver-
andi Haukari, og Jóhannes Johnsen
fyrrum hljómborðaleikari i Logum
og Haukum.
Með þessu kroti mínu vona ég að
þið séuð einhverju nær en áður um
isfirzku flokkana.”
4. október 1978.