Dagblaðið - 20.10.1978, Page 28
-------------;
„Að gjalda keisaranum sitt...”
Gamla fólkið
fær líka sinn
„glaðning”
Meöal þeirra sem fá nýjan
„glaðning” frá skattayfirvöldum
landsins þessa dagana er margt fólk af
eldri kynslóðinni. Ein þeirra er hún
Helga Jónsdóttir, senn 83 ára gömul,
en hún hefur í meira en hálfa öld búið
í Reykjavik.
Árið 1977 voru hreinar tekjur til
skatts hjá Helgu 830.500 krónur.
Yfirvöld gerðu henni að greiða 56.954
krónur af þeirri upphæð, — og nú
telja þau rétt að bæta aðeins við skatta
gömlu konunnar, — eða 48.907
krónur til viðbótar. Helga býr að
Holtsgötu 1 ásamt dóttur sinni, og
hefur hún haft einhverjar smávægi-
legar tekjur af leigu á húsnæði auk
ellistyrksins síns. Ekki er Helga þó
búin að gjalda keisaranum sitt þvi
fasteignagjöld þurfti hún að inna af
hendi, eitthvað rétt yfir 100 þúsund
krónur.
Helga Jónsdóttir sótti i ár um niður-
fellingu eða lækkun skatta, enda ekki
miklir peningar sem henni var ætlað
að lifa af. Svar yfirvalda var neikvætt,
henni var algjörlega synjað um
lækkun hvað þá niðurfellingu.
-JBP.
Þátttakendur i maraþondanskeppni Klúbbsins æfa sig fyrir 13 tima dansinn við „dúndrandr’ diskómúsik f gærkvöld.
DB-mynd: Ragnar Th.
Sunnudagskvöldsfárið:
Maraþondansdrottning og
kóngur dansa í 13 tíma
Það er hætt við að svitinn drjúpi af
einhverjum skrokknum í Klúbbnum,
þegar dansleik lýkur þar á sunnudags-
kvöld. Sautján pör — 34 ungmenni í allt
— hafa nefnilega í hyggju að dansa þar
viðstöðulaust í þrettán klukkustundir í
maraþondanskeppni á vegum hússins.
Maraþondanskeppnin hefst á hádegi á
sunnudag og á að ljúka kl. 01 aðfaranótt
mánudags. Þá tilkynnir formaður
dómefndar, Heiðar Ástvaldsson dans-
kennari, hver hefur sigrað og verða þá
krýnd Maraþondansdrottning og
kóngur Islands 1978. Sigurvegarar verða
leystir út með bikar og blómum.
Klúbburinn verður opinn allan
daginn og er fyrirhugað að hafa sér-
stakan dansleik fyrir yngri borgara á
tímabilinu frá kl. 14—17. Vínveitingar
verða ekki að deginum. Fimmtíu
manns lýstu sig reiðubúna til
keppninnar, en rúmsins vegna varð að
skera fjölda þátttakenda nokkuð niður.
ÓV.
Hef ur Salvador ekki heyrt um deiluna um Kjarvalsstaði?
Samtök myndlistarmanna íhuga nú
enn einu sinni að sniðganga Kjarvals-
staði með sýningar á verkum sínum,
samkvæmt heimildum sem DB telur á-
reiðanlegar. Þannig virðist enn hafa
skorizt í odda með listamönnum og hús-
stjórn Kjarvalsstaða.
Þá hefur heyrzt að listgagnrýnendur
einhverra dagblaðanna hafi í huga að
sniðganga sýningar á Kjarvalsstöðum.
Ekki eru þó ennþá nein samtök um þá
afstöðu.
Annaðhvort er að Salvador Dali, lista-
maðurinn heimskunni, hefur ekkert frétt
af þessu eða þá að hann vill ekki hafa
samstöðu með listamannasamtökunum
hér.
-BS.
SKATTSTJÓRI
Alagningarseðill
vegna IV kafla bróðabirgðalaga r
Ntfn HELGA JONSDOTTIR Nalnnúmer 3917- 0A42 Fæðingardagur og 4r 14.01.96 Númar kaupgrsiðandr
Lóghaimili 1. dos. 1977 Pósutöö Svsitsrlílsg
HOLTSGATA 1
101 REYKJAVIK
REYKJAVIK
Alagning gjalda og gjalddagar
Eignartkattsauki Súrstakur tekjuskattur Súrsiakur skatlur Samtals
48.907 48.907
l.nóv. 1978 l.des. 1978 l.jan. 1979 l.feb. 1979
Gjalddasar 12.24 7 12.220 12.22Q 12.220
Stofnar til útreiknlngs eignarskattsauka og sérstaks tekjuskatts
1 Eignsrskattur skv. skattskrá 1978 án 1% álagt 2 Skattgialdstakjur skv. 9. gr. 3 lekjum ogW ska'ttg'isWstekjum 4 Frádráttur vegna tjolskyldu 1 Barnalj. 5 Stoln tyrir sérstakan tekju- skatt skv. 9. gr.
97.815
Stofnar tll útreiknlngs sérstaks skatts 6 tekjur af atvinnurekstri ofia sjálfstœðri starfsemi
Skýringar
Um Innhelmtu, sbr. 12. gr.
Skattar þesslr skulu Innhelmtlr af sðmu aðllum og Innhelmta tekju-
skatt og elgnarskatt
Innhelmtu skatta skal sklpta Jafnt á fjóra gjalddaga, 1. nóv. 1978,
1. des. 1978, 1. Jan. 1979 og 1. feb. 1979,
Um dráttarvexti og Innheimtu þelrra 'skal fara eftlr ákvmðum er
gllda um Innheimtu tekjuskatts og eignarskatts, sbr. 46. gr. laga
nr. 68/1971 með siðari breytingum.
Um stofna tll útrelknfngs
Reltur 1. Stofn til álagningar elgnarskattsauka, sbr. 6. gr.. er
álagður elgnarskattur gjaldársins 1978 að frádregnu 1% áiagl.
Framh. á b IB
Helga Jónsdóttir — nær 83 ára og fær að greiða riflega af litlum tekjum.
DB-mynd R.Th.Sig.
Nýi álagningarseðillinn hennar Helgu.
Fulltrúi Búvörudeildar
SÍSum
sauðaútflutninginn:
„Býst ekki
við að sótt
verði um
útflutnings-
leyfi”
- saugirnir því
aflífaðirí
heimalandinu
„Ég býst ekk: við að sótt verði um
útflutningsleyfi fyrir sauðina úr
þessu,” sagði Skúli Ólafsson, fulltrúi í
Búvörudeild SÍS I viðtali við DB I gær
er hann var inntur eftir hvenær
sauðirnir fjórir færu héðan til íran.
Sagði hann að svo virtist sem
almenningur legðist gegn tilrauninni
og af blaðaviðtali við yfirdýralækni
hafi mátt skilja að hann væri ekki
hress yfir þessu, þótt hann hafi þó
ekki fortekið það þá.
Þá taldi Skúli tilraunina ef til vill
ekki þess virði að gera hana í trássi við
vilja almennings þar sem vafasamt
mætti teljast aö íslenzka lambakjötið
væri samkeppnisfært við það
nýsjálenzka, hvað viðvíkur verðlagi.
Nýsjálenzkir dilkar eru fluttir svo
milljónum skiptir til arabalanda nú.
-GJS.
frfálst, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR 20. OKT. 1978
Fékkraf-
geymasýru
íandlitið
Rafgeymir lögreglubíls sprakk í gær-
kvöldi er lögreglumenn hugðust veita
Volkswagen-eiganda aðstoð með því að
tengja saman rafkerfi þílanna.
Við sprenginguna spýttist sýra
rafgeymisins á tvo lögreglumenn. Fékk
annar þeirra gusurnar i andlit-sér. Brá
hann skjótt við hljóp inn á Hótel Esju,
en atburðurinn átti sér stað á bílastæði
þar fyrir utan. Tókst honum að skola
sýruna af sér en síðan var haldið i slysa-
deild og betur búið um. Komst lögreglu-
maðurinn heim til sín um kl. 3 i nótt.
Hinn lögreglumanninn sakaði ekki.
-ASt.
Veturinn
kominn á
Akureyri
Veturinn hefur þegar gert vart við sig
á Akureyri þó fyrsti vetrardagur sé,
samkvæmt almanakinu, ekki fyrr en á
morgun. t gærmorgun urðu sumir
Akureyringar að moka sig út úr húsum
sinum. Töluverður snjór hafði fallið þá
nótt. Nú ösla menn snjó á öllum götum
Akureyrar og vutrarveðrabirgði eru tíð
með áhlaupagusti úr ýmsum áttum.
-ASt.
Verkfallí
T ogaraaf greiðslunni:
Óttast að
verið sé að
leggja fyrir-
tækið niður
„Við viljum fá úr því skorið hvað sé
um að vera i fyrirtækinu, hvort verið sé
að leggja það niður. Við höfum heyrt að
Bæjarútgerðin sé að kljúfa sig út úr
fyrirtækinu og Hafskip hefur þegar hætt
viðskiptum við það. í kjölfar þess var
nokkrum mönnum sagt upp hér,” sagði
Hörður Þórðarson trúnaðarmaður
verkamanna í Togaraafgreiðslunni I
morgun er verkfall starfsmanna stóð þar
yfir. Guðmundur J. Guðmundsson vara-
formaður Dagsbrúnar, sem mættur var
á fund með starfsmönnum tók í sama
streng: „Menn sem eru búnir að vinna í
20—30 ára hjá fyrirtækinu eiga rétt á
þvi að vita hvað framundan er.”
Sigurjón Stefánsson forstjóri Togaraaf-
greiðslunnar sagði: „Þetta kom alveg
flatt upp á okkur í morgun og ég vil
ekkert segja fyrr en ég hef heyrt um
ástæður verkfailsins frá verkamönnum.”
Verkfallið stóð enn þegar DB fór í
prentun í morgun.
-GAJ—