Dagblaðið - 10.11.1978, Page 7

Dagblaðið - 10.11.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978. 7 Blaðamenn voru í fyrradag i ferð um Suðurland í boði Mjólkurdagsnefndar. Var [jeim m.a. sýnd ný og fullkomin nautauppeldisstöð Búnaðarfélags íslands i Þorleifskoti í Árnessýslu. Hlut- verk þessarar nýju nautauppeídisstöðvar er annars vegar að ala upp naut til notk- unar á Nautastöð Búnaðarfélags íslands og hins vegar að vera einangrunarstöð gagnvart ákveðnum sjúkdómum — aðallega gamaveiki — sem falla undir Sauðfjárveikivarnir, en af þeirra hálfu hefur verið krafizt 6 mánaða einangr- unar nautkálfa áður en þeir eru fluttir á sæðingarstöð. Sú einangrunarstöð hefur undanfarið verið að Gröf á Höfðaströnd en hún verður nú lögð niður. Á þessari uppeldisstöð eru í aðalfjósi básar fyrir 48 nautkálfa á mismunandi aldri auk sóttvarnardeildar, þar sem kálfarnir verða fyrstu vikurnar. Með þessari byggingu skapast i fyrsta sinn góð aðstaða til að fylgjast með vexti ungnautanna og ýmsum öðrum mikil- vægum atriðum. Þá verður i fyrsta sinn hægt að fylgjast með fóðumýtingu naut- kálfanna, sem er vissulega atriði i kyn- bótastarfseminni. Stefnt verður að því að taka nautkálfana á stöðina 1—3 vikna gamla. ef flutningsaðstaða leyfir. Um 20—25 kálfar af þeim sem aldir verða upp þama árlega næstu árin verða valdir á ári hverju til notkunar á Nauta- stöðinni að Hvanneyri sem nú er orðin eina sæðingarstöð landsins. Nautin eru tekin þangað rösklega árs- gömul. Úr þeim er safnað sæði sem nægir til sæðingar á um 7—8 þús. kúm. Þetta tekur venjulega eitthvað á annað ár, þannig að nautin eru orðin um 2 I '2 árs þegar sæðistöku lýkur og eru þau þá felld. Kynbótagildi nautanna er tundið með því að nota hluta af sæðinu úr hverju þeirra eins fljótt og hægt er og eru þá settar á nægilegar margar kvigur undan hverju, sem afurðaskýrslur eru haldnar yfir og skoðaðar með tilliti til byggingar. Eftir fyrsta mjólkurskeið dætra hvers nauts er svo ákvarðað hvort nautið er talið hafa næga kosti til þess að vera notað áfram. Sé svo er sæði úr þvi sent til dreifingarstöðva um landið, en ef það þykir ekki nógu mikill kynbóla- gripur er sæðinu sem safnað hefur verið saman úr því fleygt. Síðan 1974 eru allar afurðaskýrslur gerðar upp i tölvu og flýtir það mjög dómi um kynbótagildi nauta og einnig kúa. Beztu kýrnar eru notaðar sem nautsmæður. Bezlu 3—4 nautin eru notuð sem nautsfeður og ásamt öðrum góðum nautum sem kýrfeður ár hvert. Skipulegar kynbætur i nautgriparækt hefjast hér á landi með stofnun fyrstu nautgriparæktarfélaganna árið 1903. Á þessu ári er þvi þessi starfsemi 75 ára. Tilgangur félaganna hefur alla tið. framar öðru, verið að kynbæta islenzka kúakynið með tilliti til aukinnar afurða- semi. þ.e. nythæðar og mjólkurfitu. en almennt má segja. að með því að auka Mjólkurdagsnefnd og olaoamenn svipast um 1 fjósinu að Læk i Hraungeróishreppi. A myndinni er kálfur sem á aö fara f nautauppeldisstöðina i Þorleifskoti. Kynbótastarfið ífullum gangi: NÝ NAUTAUPPELDIS- STÖD TEKIN í NOTKUN mjólkurfitu vaxi einnig eggjahvituefni mjólkurinnar. Þetta er sama stefna og alls staðar hefur verið rikjandi, þar sem unnið er að kynbótum mjólkurkúa. Mjólkuriðnaðurinn Blaðamenn skoðuðu einnig Mjólkur- bú Flóamanna en móttökusvæði þess nær yfir Árnes-, Rangárvalla og V- Skaftafellssýslur. Voru þar m.a. rædd vandamál mjólkuriðnaðarins í dag og kom fram, að frumvandamál mjólkur- iðnaðarins i dag eru þrjú. í fyrsta lagi er mjólkurframleiðslan i landinu nú 20— 25% umfram innanlandsþarfir. í öðru lagi fæst mjög lágt verð fyrir útfluttar mjólkurafurðir eða 10—30% af innan- landsverði. þó með þeirri undantekningu að fyrir óðalsost fást 40—50%. 1 þriðja lagi vantar afkastagetu hjá mjólkur- santlögunum til framleiðslu á ostum, þannig að hægt verði að draga úr smjör- framleiðslu. Afleiðingar þessa eru m.a. þær að nú eru gífurlegar smjörbirgðir i landinu, eða rúmlega 1400 tonn hinn I. okt. sl. Verð- mæti þessa smjörs er um 3,7 milljarðar króna. Ástæður fyrir aukinni umfram- framleiðslu mjólkur eru tvær. í fyrsta lagi rúmlega 9% aukning í mjólkurfram- leiðslunni á sl. tveimur árum og i öðru lagi rúmlega 7% samdráttur i heildar- sölu mjólkurafurða innanlands á sama tima. Það kom fram i máli þeirra Mjólkur dagsmanna. að það sem helzt væri til ráða væri að auka ostagerð eins og möeulegt væri. Voru menn bjartsýnir á að afkastageta i ostagerð ætti eftir að aukast verulega á næstu 2—4 árunt. þar sem miklar framkvæmdir eru nú i gangi hjá fjórum mjólkursamlögum, þ.e. á Fgilsstöðum, Akureyri, Hvammstanga ng i Borgarnesi. -GAJ Aukið atvinnuleysi — sérstaklega í smærri þorpum Atvinnulausum á landinu hefur fjölgað nokkuð. Um síðustu mánaða- mót voru 370 manns skráðir atvinnu- lausir á landinu en voru 159 næstu mánaðamót á undan. Fjölgunin er langmest í litlum kauptúnum með inn- an við eitt þúsund íbúa, en þar fjölgar atvinnulausum úr 61 i 187. Atvinnu- lausum í kaupstöðum hefur aftur á móti fækkað úr 181 í 98 og atvinnu- lausir í kauptúnum með yfir 1000 íbúa eru 2 en þar var enginn atvinnulaus áður. Atvinnuleysisdögum í október hefur fjölgaí i 4346 úr 4305 i sept- ember. Flestir eru atvinnulausir í Reykja- vík, eða 76, en þeir voru 42 i septeni- ber. Þar á eftir koma Sauðárkrókur með 29 atvinnulausa og Siglufjörður 28. Af litlum kauptúnum eru fleslir at- vinnulausir á Bildudal, eða 46, en 28 á Hofsósi og 24 á Skagaströnd. Atvinnuleysi er mest meðal vcrka- manna og verkakvenna, auk sjó- nianna. - JH Austurvöllur en ekki stræti Prentviilupúkinn er enn að hrekkja okkur. í blaðinu á þriðjudaginn breytti hann orðinu Austurvöllur i Austur- stræti. Þetta lét hann sig hafa í fyrír- sögn um svæði það sem á að vera autt í kringum Kópavogskirkju. Rétt er að það er eins og Austurvöllur á stærð á alla kanta. Með ntynd er siðan texti sem er einnig vitlaus. Þar segir að Mennta- skóli Kópavogs eigi að rísa þar sem nú er bensínstöð. En eins og bærilega sést á þeim myndum sem eru af skipulag- inu er þetta ekki rétt. Skólinn verður sunnar og austar í landinu. Er beðiðzt velvirðingar á þessu. - DS Litla Dollara grínið! Verðið á Lancia A112 er hálfgert grín. Þar sem það er bundið skráðu gengi Bandaríkjadollars sem hefurfallið og fallið á heimsmarkaði, þá stendur það í stað gagnvart íslenskri flotkrónu — og verð sem stendur í stað hér á landi, — það lækkar,— það höfum við lært á síðustu árum. Kaupið því Lancia A112 í dag, á morgun er það kannski of seint á þessu verði. )uem^ B3ÖRNSSON & co. BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI81530 REYKJAVÍK Lancia A112

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.