Dagblaðið - 10.11.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978.
Kirkju-
garðs-
ijós
áleiði
ástvinanna
Ráðleggjum fólkiað
vera ífyrra lagi
Sendum í póstkröfu
hvert á land sem er
Raftækja-
verziun
Kópavogs h/f
Hamraborg 11 Kópav.
- Sími43480
íran:
Andstæð-
ingarkeis-
aransáfram
i verkfalli
K.arim Sanjabi helzti leiðtogi and-
stæðinga keisarans i Iran er væntan-
legur til landsins aftur í dag eftir að hafa
rætt við aðra lciðtoga, scnt eru útlægir.
Var fundur þessara aðila i Paris og þar
voru bæði andlegir leiðtogar ntúhameðs-
trúarmanna og pólitiskir frammámenn.
Kröfðust fundarmenn að keisarinn
segði af sér og herlög yrðu felld úr gildi í
landinu. Skorað var á andslæðinga
keisarans, að halda áfram verkfalli þar
til mynduð hefði vcrið lögleg stjórn
borgaralegra afla. Sagt var að það hátta-
lag, að beita her landsins gegn fólkinu i
landinu væri glæpur , sent að lokum
ntundi kljúfa írönsku þjóðina i tvætand-
stæðar fylkingar.
REUTER
Miðausturlönd:
ALGIORT STOPPI
SAMNINGUM MILU
ÍSRAEL 0G EGYPTA
Enn virðist allt vera stopp í friðar-
viðræðum Egypta og ísraelsmanna og
er höfuðdeilumálið hvernig ganga
skuli frá samkomulaginu varðandi
Palestínuaraba á Gazasvæðinu og
vesturbakka árinnar Jórdan. Vilja
Egyptar að búið verði svo um
hnútana, að Ijóst verði i meginatriðum
hvernig framtíð þessara landshluta og
fólks þar verði áður en samningar
verði undirritaðir. lsraelsmenn vilja
aftur á móti láta það liggja milli hluta
þar til eftir undirritun samninga og þá
jafnvel að ekki verði tekin lokaá-
kvörðun um þetta fyrr en eftir fimm
ár.
Ágreiningurinn um þessi mál kom
upp þegar Bandarikjastjórn var
einmitt að lýsa þvi yfir að hún teldi
vonir standa til þess að þessi fjögurra
vikna langi samningskafli yrði brátt á
enda runninn. Jimmy Carter Banda-
rikjaforseti sagði í gær að hann hefði
eytt hundruðum klukkustunda í að
greiða fyrir samningum milli Egypta
og israelsmanna og hann vonaði að
þjóðirnar færu að komast að lokasam-
komulagi. Sú von virðist nú hafa
brugðizt illilega.
ísraelskar heimildir i Washington
sögðu að líklega hefði höfuðástæðan
fyrir því að ísraelska rikisstjórnin féllst
ekki á siðustu samningsdrög verið sú
að Menachem Begin forsætisráðherra
var ekki viðstaddur, þegar tillögurnar
voru ræddar. Hann væri sá eini, sem
gæti kveðið harðlínumennina innan
ríkisstjórnar sinnar i kútinn.
7»
Mexíkó:
Erfingja áfengis-
auðs rænt og kraf-
izt fimm milljóna
dollara
Tilkynnt var í Mexíkóborg i gær-
kvöldi að dóttur auðugs áfengisframleið-
anda hefði verið rænt af vinstri
sinnuðum öfgamönnum. Krefjast þeir
jafnvirðist fimm milljóna bandaríkja-
dala.
Áfengisframleiðandanunt sem er
orðinn sjötíu og sex ára gamall mun
hafa brugðið mjög illa við atburð
þennan og hefur verið lagður inn á
sjúkrahús vegna hjartaáfalls að sögn en
\ læknar vildu þó ekki segja neitt unt
liðan hans eða sjúkleika í gærkvöldi.
Orðrómur er á lofti i Mexíkóborg
um að aðstandendur konunnar. sem er
þrjátiu og sex ára hafi þegar greitt
ræningjunum hina umtöluðu upphæð
það hefur þó ekki verið staðfest og i
morgun var ekki búið að sleppa henni
lausri.
Kýpur:
ALLT ERLENT
HERLIÐ
KALLAÐ HEIM
— samþykkt allsherjarþings
Utanríkisráðherra Kýpur Nicos
Rolandis lýsti yfir ánægju sinni með
samþykkt allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna um að allur erlendur her
yrði samstundis kallaður á brott frá
Kýpur. Samkvæmt samþykktinni er
gert ráð fyrir að Öryggisráð sam-
takanna geri frekari ráðstafanir til
endursameiningar eyjarinnar.
Rauf Denktash leiðtogi Kýpur
Tyrkja sagði i gær að ekki kænii tii
greina að kalla tyrkneskt herlið á brott
frá norðurhluta eyjarinnar en þar
hefur það verið síðan 1974, er Tyrkir
hernámu þann hluta Kýpur. Var það
eftir byltingartilraun griskumælandi
Kýpurbúat Sagði Denktash, að brott-
köllun herliðsins mundi aðeins þýða
að tyrkneska þjóðfélagið á Kýpur
mundi verða útmáð. Taldi hann sam-
þykkt Sameinuðu þjóðanna á engan
hátt bindandi fyrir Tyrki enda mundu
þeir ekki fara eftir henni.