Dagblaðið - 10.11.1978, Page 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1978.
I
Utvarp
Sjónvarp
SJÓNVARPSKVIKMYNDIN - í kvöld kl. 22,10:
Vér göngum
svo léttir i lundu
Vér göngum svo léttir 1 lundu nefnist
frönsk bíómynd frá árinu 1975 sem sjón-
varplð sýnir í kvöld klukkan 22.10.
Myndin heitir á frummáli „La meilleure
facon de marcher”. Leikstjóri er Claude
Miller og er þetta fyrsta kvikmyndin
sem hann leikstýrir.
Claude Miller fékk mjög góða dóma
fyrir þessa kvikmynd sína og vakti hún
mikla athygli. Með aðalhlutverk fara
Patrick Dewaere og Patrick Bouchitey.
Sagan gerist í sumarbúðum fyrir unga
drengi. Sumir þeirra eiga við vandamál
að stríða, og sama er að segja um
kennarana. Að sögn þýðanda er myndin
skemmtileg. Hún lýsir mannlegum
samskiptum milli drengjanna og eftirlits-
manna sumarbúðanna. Á yfirborðinu er
myndin saklaus, en undir niðri er hún
ádeila á samskipti mannanna.
Drengirnir sem eru í sumarbúðunum
eru á aldrinum 7—10 ára en eftirlits-
mennirnir um tvítugt. Eins og vera ber
gerist ýmislegt skemmtilegt á milli
þeirra. Myndin er i tæplega einn og
hálfan tíma og þýðandi er Ernir Snorra-
son.
-ELA.
Tveir leikaranna úr kvikmyndinni Vér göngum svo léttir l lundu.
V___________________________________/
t—;---------------------------------\
KASTUÓS—sjónvarp kl. 21.10:
Kastljós, þáttur um innlend málefni,
verður á dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl.
21.10. Að þessu sinni er það Helgi E.
Helgason sem er umsjónarmaður þáttar-
ins en honum til aðstoðar er Elías
Snæland Jónsson blaðamaður.
Tvö mál verða til umfjöllunar i Kast-
Ijósi í kvöld. Annað málið er útflutn-
ingur á ferskum fiski til Bandaríkjanna.
Verður fjallað um sölu og vinnslu á út-
fluttum fiski þar vestra.
Verður í því sambandi rætt við for-
svarsmenn Coldwater Seafood Corpo-
ration, og má þar nefna Þorstein Gisla-
son. Annað mál á dagskrá Kastljóss í
kvöld verður kjaramálin.
Meðal efnis 1 Kastljósi 1 kvöld er sala og vinnsla á ferskum fiski.
i sambandi við kjaramálin verður
athugað hvers sé að vænta í þeim efnum
á næstu vikum. Verður rætt við aðila
vinnumarkaðarins út af því máli. Kast-
Ijós í kvöld er klukkustundar langt.
• ELA
V
J
Föstudagur
10. nóvember
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Vlð
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blessuð skepnan” eftir
James Herriot Bryndís Víglundsdóttir les
þýðingu sína (3).
15.00 Miðdegistónleikar. Sinfóniuhljómsveitin i
Prag leikur Sinfóniu nr. 2 i B-dúr op. 4 eftir
Antonin Dvorák; Václav Neumann stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.30 Popphom: Dóra Jónsdóttir kynnir.
17.20 Sagan: „Ódisselfur snýr heim” úr safni
Alans Bouchers „Við sagnabrunninn”. Helgi
Hálfdánarson islenzkaði. Þorbjöm Sigurðsson
les.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvökisins.
19.00 Fréttir. Fréttaaukl Tilkynningar.
19.35 „Ég er fortímamaður”. Pétur Pétursson
talar við Jón Helgason prófessor i
Kaupmannahöfn.
20.00 Vivaldi, Bach og Mozart a. Konsert i A-
dúr fyrir tvær kammersveitir eftir Antonio
Vivaldi. Einleikarasveitirnar i Mílanó og
Brússel leika. Franco Fantini leikur einleik á
fiðlu og Kamiel D’Hooghe á orgel. Angelo
Ephrikian stjómar. b. Konsert i C-dúr fyrir tvö
pianó og hljómsveit eftir Johann Sebastian
Bach. Clara Haskii og Geza Anda leika með
hljómsveitinni Filharmoníu i Lundúnum;
Alceo Galliera stj. c. Homkonsert nr. 2 í Es-
dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Hermann Baumann og Concerto Amsterdam
hljómsveitin leika; Jaap Schröder stj.
20.45 Sjókonur fyrr og nú. Þórunn Magnús-
dóttir skólastjóri tók saman. í þessum þriðja
og siðasta þætti verður fjallað um konur, sem
stundað hafa útgerð. Rætt við Þóru Kristjáns-
dóttur útgerðarstjóra á Búöum við Fáskrúðs-
fjörð. Lesari: Guðrún Helgadóttir. '
21.30 Flaututónlist. James Galway flautuleikari
leikur þrjú verk með Konunglegu hljómsveit-
inni i Lundúnum. Stjórnandi: Charles Dutoit.
a. Konsert eftir Jacques Ibert. b. Sónata eftir •
Francois Poulenc i hljómsveitargerð Lennox
Berkeleys. c. Fantasía eftir Gabriel Fauré i
hljómsveitargerð James Galways.
22.05 Kvöldsagan: Saga Snæbjamar f Hergilsey
rituð af honum sjálfum. Ágúst Vigfússon les
(6).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Bókmenntir. Anna Ólafsdóttir Bjömsson
tekursaman þáttinn.
23.05 Kvöldstund með Sveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
Föstudagur
10. nóvember
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Karl J. Sighvatsson. Karl J. Sighvatsson
leikur af fingmm fram ásamt félögum sinum,
en þeir eru Eyþór Gunnarsson, Friðrik Karls-
son, Pálmi Gunnarsson og Pétur Hallgrims-
son. Ellen Kristjánsdóttir syngur. Stjórn upp-
töku Egill Eðvarðsson.
21.10 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Um-
sjónarmaður Helgi E. Helgason.
22.10 „Vér göngum svo léttir I lundu”- (La
meilleure facon de marcher). Frönsk bíómynd
frá árinu 1975. Leikstjóri Claude Miller. Aöal-
hlutverk Patrick Dewaere og Patrick Bouchi-
tey. Ságan gerist í sumarbúðum fyrir drengi.
Sumir þeirra eiga við vandamál aö stríöa, og
sama er aö segja um kennarana. Þýðandi
Emir Snorrason.
23.30 Dagskráriok.
Norrœn glerlist
í sýningarsölunum
opin í dag kl. 14 —19
á morgun kl. 14— 22
síöustu sýningardagar.
verið vELKOMim. NORRÆNA
HÍJSIO
Breyttur opnunartimi
OPID
KL. 9-9
Amerísku stytturnar
fró Lee Borten nýkomnar
Noeg bllastco&i a.m.k. é kvöldln
Itl()\UA\I\TIIÍ
HAFNARSTRÆTI Simi 12717
IUII riOI/ Nú er sterka ryksug80
^ nllLrlOlX ennþá sterkari...
sogorka í sérflokki
Afborgunarskilmálar. S8 rrsmc~ H H H H H
Traust þjónusta. £& H II
FYRSTA FLOKKS FRÁ MÆ HHHH B HH# %
Hátúni — Sími 24420
Ofantaldar og fleiri nýjungar auka enn hina sigildu verðleika Niifisk:
efnisgœði, markvisst byggingarlag og afbragðs fylgihkiti. Hvert smá-
atriði stuðlar að soggetu i sörflokki, fullkominni orkunýtingu, dsema-
lausri endingu og fyllsta notagildi.
Já, svona er Nilfisk: Vönduð og tœknilega ósvikin, gerð til að vinna
sitt verk fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og tilkostn-
aði; varanleg: til lengdar ódýrust.
NILFISK
IW
Súper'
/f
NÝR
SÚPER-MÓTOR:
Áður
óþekktur
sogkraftur.
NÝ
SLÖNGUFESTING:
Samboðin nýju
kraftaukandi
keiluslöngunni.
stöðugri,
liprari,
auðlosaður
f stigum.
NÝ SOGSTILLING:
Auðvolt að
tempra kraftinn.
NÝR
PAPPÍRSPOKI
MEÐ
HRAÐFESTINGU,
ennþá stœrri og þjálli.