Dagblaðið - 29.11.1978, Side 6

Dagblaðið - 29.11.1978, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978. Kolombía: Óttastað25 haf i farizt með Dakotavél Fregnir hafa borizt um að flak kolombískrar flugvélar, sem saknað hefur verið í viku, hafi fundizt i fjöllunum nærri landamaerum Venezúela. Óttazt er að þeir tuttugu og fimm, sem um borð voru hafi allir farizt. Hjálparsveitir frá báðum löndunum niunu nú reyna að komast að flaki vélarinnar.. Allt samband rofnaði við flugvélina sem er af DC—3 gerð fáum minútum áður en hún átti að lenda. Sikiley: Leiðtoga stungid inn Trúarleiðtogi einn á Sikiley hefur verið ákærður fyrir fjárkúgun, nauðgun og svik. Upp komst um manninn er tveir bandarískir meðlimir trúfélags hans kærðu hann. Alsír: Forsetinn aðhressast Þær frcgnir bcrast frá Alsír að Houri Boumedicnne forscti landsins sé að komast aftur til meðvitundar eftir niargra daga rænuleysi. Læknar hans telja að næstu klukkustundirnar ntuni ráða úrslitum um heilsu hans. Forsetinn er sagður haldinn sjaldgæfum blóðsjúk- dónti og lifrarveiki. Hann er 51 árs að aldri. Þriggja manna ráð æðstu manna hers og rikisstjórnar fer nieð æðstu völd í landinu. Guyana: BÖRNIN UPPFRÆDD UM KOMMÚNISMA —einn f élaga trúf lokksins ákærður fyrir morðið á Leo Ryan öldungadeildarþing manni og f jórum f élögum hans Svo virðist sem Jim Jones, trúar- leiðtoginn sem leiddi fólk sitt til hópsjálfsmorða í búðunum í Guyana fyrir níu dögum, hafi stefnt að þvi að ala það upp í kommúnisma. 1 lestrar- kennslubókum, sem voru á ensku, voru setningar og orð sem notuð eru i áróðursritum fyrir kommúnisma. Einnig hafa fundizt stilabækur þar sem skrifaðar eru niður með barnshöndum tilvitnanir i kommúnísk fræði. Ef af skriftinni má ráða þá hafa þarna verið bækur 10 til II ára gamalla barna en aðrar skólabækur sem fundust og tilheyrt hafa yngri börnum voru með efni, sem almennara er að sé í kennslubókunt. Jim Jones leiðtogi trúflokksins og einn hinna 909 sem virðast hafa framið sjálfsmorð hafði mjög snúizt til kommúnisma og hafði gert tilraun til að komast með fólk sitt til Sovétríkjanna. Hafði hann rætt við sendimenn Sovétstjórnarinnar í Georgetown en þeir hafa ekki haft neinn sjáanlegan áhuga. Einn í hópnum, Larry Leyton að nafni, hefur verið ákærður fyrir að hafa drepið Leo Ryan öldungadeildar- þingmanninn bandaríska og fjóra fylgd armenn hans. Þeir vru skotnir er þeir voru að fara frá Guyana eftir að hafa kynnt sér starfsemi trúflokksins og virðist það hafa verið upphaf sjálfs- morðanna. Larrt Levton, einn félaganna I trúflokki Jim Jones, er leiddur á brott frá dómhúsinu I Georgetown I Guyana eftir að hafa vi-rið ákærður fyrir að drepa Leo Ryan öldungadeildarþingmann og fjórar fvlgdarmenn hans. Auk þess særði hann þrjá aðra. Réttarhöld yfir honum munu hefjast 15. janúarnæstkomandi. Amin biður um hjálp gegn innrás ldi Amin, forseti Uganda hefur snúið sér til Sameinuðu þjóðanna og samtaka Ameríkuríkjanna með beiðni um aðstoð vegna innrásar Tanzaníuhers inn i landið. Ráðamenn í Tanzaniu segja. aftur á móti að ásakanir Amins um innrás séu aðeins venjulegar lygar af hans hálfu og ekkert mark á þeim takandi. Heimildir i Nairobi í Kenya og Kampala greina frá því að her Tanzaniu hafi farið inn fyrir landamæri Uganda vestur af Viktoriuvatni. Ekki er Ijóst hve langt hefur verið sótt né hvc her Tanzaniu er öflugur á þessum slóðum. Nixon: ÉG HINDRAÐI RANNSÓKNí WATERGATE —sagði f orsetinn fyrrverandi í f ranska sjónvarpinu Margt hefði farið öðruvísi í heims- málunum og innanlandsmálunum i Bandarikjunum ef Nixon hefði ekki neyðzt til að segja af sér vegna Water- gatemálsins. Það telur i það minnsta hinn fyrrverandi forseti Bandarikjanna en Nixon viðurkenndi þó að hann mætti sjálfum sér um kenna nðsvnfór. Sem dæmi um mál. sem öðru visi hefði farið ef hann hcfði verið áfram við völd nefndi Nixon að llklega hefðu kommúnistar ekki náð völdum Víet- nam. öldungadeildin hefði afgreitt orku- sparnaðar frumvarp hans og það því orðið fyrr á ferðinni en það varð. Þetta kom fram meðal annars I sjónvarpsviðtali Nixons fyrrum forseta í franska sjónvarpinu I gær. Hann er þar i einkaheimsókn og er þetta i fyrsta skipti sem Nixon kemur fram I beinni sjón- varpsútsendingu eftir að hann hrökklaðist úr forsetastóli. Afgreiðsla I.akers á Victorlustöðinni lætur litið yfir sér við hlið sjálfsala og ruslatunna. Menn með bakpoka og nesti koma og kaupa sér miða og stiga síðan samdægurs eða daginn eftir upp i vél. -DB-mynd JH. Fluglest Lakers: 771 Ameríku fyrír JL ||^||||#l — enda er skrifstofu- JI/IIOIIIIII kostnaðurinn lítill Hún lætur lítið yfir sér söluskrif- stofa fluglestar Lakers I London. Laker selur þarna miða sina í Victoriu járnbrautarstöðinni og er þarna við hliðina á súkkulaðisjálfsölum og rusla- tunnum. Væntanlegir farþegar fara i biðröð og kaupa sér miða til New York eða Los Angeles fyrir viðráðanlegt verð. Flugfreyjur selja miðana og allt gengur fljótt fyrir sig. Síðan er bara að koma sér út á flugvöll og fara til Ameríku. Laker flýgur daglega til New York og Los Angeles og kostar 59 pund að fara til New York eða 36 þúsund krónur og 84 pund að fara til Los Angeles eða 52 þúsund krónur. Þetta verður að teljast vel sloppið. Fluglest Lakers er rekin með gróða, að þvi er fréttir herma, enda er yfir- bygging félagsins litil. Félagið hefur valdið miklum glundroða i fargjalda- málum flugfélaga sem fljúga yfir Norður-Atlantshaf, sem ekki sér fyrir endann á. Farþegar I vélum Lakers geta keypt sér viðurgerning á leiðinni yfir hafið eða haft með sér nesti. Laker notar breiðþotur af gerðinni C 10 I flutninga sina, en það eru vélar af sömu gerð og hin væntanlea breiðþota Flugleiða, sem tekin verður i notkun snemma næsta árs. JH.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.