Dagblaðið - 29.11.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978.
7
Erlendar
fréttir
Brezkar
gleðikonur
heimta
réttindi
Brezkar gleðikonur héldu í fyrradag
þing sitt og þar kröfðust þær lögleiðingar
atvinnugreinar sinnar. Til þingsins var
einnig boðið dómurum, lögreglu-
mönnum og fleiri opinberum starfs-
mönnum. Ekki hafa borizt fregnir um
hve margir mættu til þingsins.
100.000
með
Concorde
Til þessa hafa meira en 100.000 far-
þegar flogið með Concordþotunum sem
Frakkar og Bretar framleiða og fljúga
yfir Atlantshafið. Það flug hefur staðið í
um það bil eitt ár. Búizt er við að
fljótlega hefjist áætlunarflug með
Concordþotum frá Evrópu til Kanada
og Kína.
Rúmenía:
Bætum lífskjörin —
minna til hersins
—segir Ceausescu forseti Rumeníu
ogstenduruppi íhárinu
á Moskvuvaldinu
Harka virðist aukast í samskiptum
Rúmeniu við önnur Varsjárbandalags-
lönd og i gær fóru allir sendiherrar rikj-
anna á brott frá Búkarest. Er það talið
gert i mótmælaskyni við óþægðina í
Ceausescu forseta Rúmeníu. Hann
neitar að auka fjárframlög til sameigin-
legra varna Varsjárbandalagsins og vill
heldur ekki auka sameiginlegar
hernaðarframkvæmdir rikja í bandalag-
inu.
Fyrst kom þessi ágreiningur upp á
yfirborðið á fundi leiðtoga rikjanna sem
haldinn var í Moskvu og Ceausescu
sagði frá um síðustu helgi. Undirstrikaði
forsetinn að Rúmenía væri sjálfstætt
ríki, sem ekki tæki við neinum skiplmum
frá öðrum rikjum. Á fundi með hers-
höfðingjum úr rúmenska hernum sagði
hann að her landsins mundi aldrei taka
við skipunum annars staðar frá en stjórn
landsins í Búkarest.
Rúmenía er eina ríkið í Austur-
Evrópu, sem hefur stjórnmálasamband
við ísrael og einnig hefur samband
landsins við Kína verið mun vinsam-
legra en Sovétríkin hafa gert sig ánægð
með. Svo virðist sem Ceausescu forseti
Rúmeníu sé nú að hefja mikla herferð
fyrir þeirri stefnu sinni að lífskjör í land-
inu sjálfu séu mikilvægari en aukin út-
gjöld til hermála.
Efnahagsbandalagið:
FUNDUR UM FISKINN
ENN EINUSINNI
ÚTUMÞÚFUR
Svo virðist sem fundur þeirra
ráðherra Efnahagsbandalagsins sem
fara með fiskveiðimál og haldinn var i
Brussel hafi farið út um þúfur. Að
venju munu það vera Bretar, með
John Silkin fiskimálaráðherra sinn í
fararbroddi, sem eru annarrar
skoðunar en allar aðrar þjóðir banda-
lagsins.
Eru þetta mikil vonbrigði fyrir
þjóðir eins og Dani og Vestur-
Þjóðverja, sem eru orðnar langeygðar
eftir að ákveðin stefna Efnahags-
bandalagsins verði mótuð i þessum
málum. svo hægt verði að fara að
semja sín á milli og einnig við þjóðir
utan bandalagsins.
Einnig þykja þetta tiðindi í Bret-
Iandi og Ijóst þykir að John Silkin, sem
aldrei hefur verið neinn aðdáandi
Efnahagsbandalagsins, ætlar ekki að
beygja sig fyrir tilmælum James
Callaghans um samninga. í það
minnsta virðist svo vera, að Callaghan
verði sjálfur að ganga fram fyrir
skjöldu og kveða upp úr um hvernig
fiskveiðisamninga Bretar vilja gera.
Helzta deilumálið milli Breta og
annarra þjóða Efnahagsbandalagsins
er hve stór einkalögsaga hinna fyrr-
nefndu eigi að vera við strendur Bret-
lands. Bretar vilja 50 milur, tillögur
hinna hljóða upp á 12 mílur. Einnig er
deilt um veiðikvóta og fiskvernd.
Á fundi Callaghans forsætis-
ráðherra Breta og Helmut Schmidt
kanslara VesturÞýzkalands fyrir
nokkru var talið að þeir hefðu samið
um fiskveiðimálin en svo virðist sem
það verði eitt af málum, sem æðstu
menn Efnahagsbandalagsríkjanna
muni ræða á fundi sínum í Brussel á
mánudaginn kemur.
Danmörk:
Vestur-Jótar búnir að
fá nóg af ferðamönnum
—vilja minna af hótelbyggingum meira af fjölskyldufólki sem dvelst í náttúrunni
Vietnam
flóttamenn
til V-Þýzka-
lands
Yfirvöld í Neðra-Saxlandi tilkynntu
nýlega að þau mundu taka við eitt
þúsund víetnömskum flóttamönnum
sem svo vikum skipti urðu að bíða í báti
sinum fyrir utan strönd Malasíu. Þar var
flóttamönnunum ekki heimiluð land-
ganga.
464í
dauðaklef-
umíBanda-
nkjunum
Nú sitja fimm konur og 459 karlar í
fangelsi vegna dauðadóms. Enn eru
þrjátiu og þrjú riki af fimmtíu rikjum
Bandaríkjanna, sem hafa dauðarefsingu
við vissum tegundum glæpa. Af hinum
dauðadæmdu eru 106 i Texas og 40 í
Alabama.
Sveitarfélög á Vestur-Jótlandi hafa
ákveðið að stöðva frekari fjölgun
ferðamanna yfir sumartímann.
Hvorki ibúarnir né náttúran þola
frekari fjölgun. Á ráðstefnu þar sem
komu saman ferðamálafrömuðir,
sveitarstjómarmenn og náttúruvernd-
armenn voru allir sammála um að yfir
hásumarið mætti ekki fjölga ferða-
mönnum. Aftur á móti er talið
æskilegt að lengja ferðamannatímann.
Á ráðstefnunni kom fram, að þær
raddir heyrist meira og meira meðal
íbúa Vestur-Jótlands að ferðamenn
megi ekki yfirgnæfa þá sjálfa þó svo
ekki sé mjög þéttbýlt í þessum hluta
Danmerkur.
Ekki er þó víst að svo auðvelt verði
að draga úr aukningu ferðamanna-
straumsins. Sums staðar hefur verið
staðiðþannigaðmálum aðekkierallt
gistirými notað yfir ferðamanna-
tímann og einnig hafa nokkur sveitar-
félög skipulagt stór svæði fyrir sumar-
hús sem ekki er farið að byggja enn.
Þó er talið að vegna náttúruvernd-
arsjónarmiða verði ekki aukið við
gistihúsakostinn heldur lögð frekari
áherzla á að fá þangað fjölskyldufólk
sem vill vera úti í náttúrunni en ekki
þina sem óska eftir stórum og miklum
skemmtisvæðum.
Maharishi Mahesh Yogi
KERFIÐ INNHVERF ÍHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION PROGRAMME
Fyrirlestur um innhverfa ihugun verður haldinn í kvöld
kl. 20.30 að Hverfisgötu 18. (Gegnt Þjóðleikhúsinu).
Aðferðin er auðstunduð, veitir hvíld og eykur skapandi
greind.
Síðasta námskeið fyrir áramót.
Allir velkomnir.
Islenzka ihugunarfelagið