Dagblaðið - 29.11.1978, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978.
Fóstbræður til Selfoss og Skálholts:
Tilbreyting
að syngja
ekki í hljóm-
lausum húsum
„l»að hefur ekki gerzt í minni tíð að
karlakór hafi flutt kirkjulegt prógramm.
Yfirleitt syngja karlakórar eingöngu fyrir
styrktarmeðlimi sína í hljómlausum
húsum. Það er því nýlunda að syngja I
hinum hljómmiklu kirkjum,” sagði
Jónas Ingimundarson stjórnandi karla-
kórsins Fóstbræðra. Kórinn fer á laugar-
daginn i ferð til Selfoss, þar sem hann
syngur um daginn klukkan 5, og þaðan i
Skálholt þar sem sungið er klukkan hálf-
tíu um kvöldið. Á miðvikudagskvöldið
klukkan hálfniu á siðan að syngja i Há-
teigskirkju.
DB-menn litu inn á æfingu hjá Fóst-
bræðrum i vikunni. Æfingin var haldin í
Garðakirkju á Álftanesi i vitlausu veðri.
Þrátt fyrir það var vel mætt og mikið
sungið. t hléi milli laga tókum við tali
Ara Ólafsson kórformann, Jónas kór-
stjóra og Rut L. Magnússon sem syngur
einsöng með kórnum í ferðinni.
Tlmi til að gera
eitthvað nýtt
„Kórstjóranum fannst kominn tími til
að gera eitthvað nýtt. Við höfum aldrei
áður sungið í kirkju og var ákveðið að
það skyldi verða hið nýja. Við syngjum
lika söngva sem eru nokkuð annars eðlis
en þeir sem við erum vanir. Sálmar skipa
þar mikinn sess, bæði gamlir og nýrri.
Einnig syngjum við nokkuð af jólalög-
um og öðrum lögum sem hljóma vel i
kirkjum.
Ég reikna ekki með þvi að við förum
frekar um með þetta prógramm en að
við reynum að taka eitthvað af því upp á
plötu. Núna förum við að æfa fyrir
styrktarfélagatónleikana i vor.
Það hefur lengi staðið til að við
gerðum plötu eða plötur. Við söfnum
lögum eftir efnum og ástæðum og eitt-
hvað ætti að koma út eftir að búið er að
fylla plötu,” sagði Ari Ólafsson kórfor-
maður.
Eiga enga karlakóra
Fóstbræður fóru I söngferðalag til
Færeyja I fyrravor.
Að sögn Ara heppnaðist förin í alla
staði prýöilega. Kórnum var mjög vel
tekið og tónleikar vel sóttir. „Færeying-
ar eiga gamla sönghefð sem lýsir sér í
söngvum með færeyska dansinum. Þeir
eiga einnig góða kóra en að vísu ekki
karlakóra. Ef til vill var það þess vegna
sem okkur var svona vel tekið.”
Þorlákstíðir og
Pílagrímakór
Efnisskrá Fóstbræðra í kirkjunum
BÍLAPARTASALAN
Höfum urval notaöra varahluta íýmsar
tegundir bifreióa, til dæmis:
Franskur Chrysler '71 Fiat 128 '73
Toyota Crown '67 Rambler '67
Volvo Amazon '65 Fiat 125 '73
Einnig höfum viö urval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10 — Sími 11397
Tilboð óskast
í ýmiss konar húsgögn, sem skemmdust í
flutningi.
Uppl. í sima 13655.
Verzlunin Húsmunir,
Hverfisgötu 82.
Ibúð til sölu
við Furugrund.
3ja herb. á 3. hæð, endi. 1 herb. í kjallara
ásamt WC, geymslu og þvottahúsi m.m.
íbúðin er ný og að mestu tilbúin. Hægt að
flytja inn strax. íbúðin er í sérflokki.
Óvenjufagurt útsýni. Útborgun 10 milljónir.
Uppl. í síma 15605 frá kl. 12—6 daglega.
,Látið það renna ... Þið eruð ekki að morsa,” sagði Jónas.
DB-myndir Hörður
verður samsett úr lögum sinu úr hverri
áttinni. Byrjað verður með tíðasöng Þor-
láks helga sem frumfluttur var i Skál-
holti. Þá verða sungnir tveir Passíu-
sálmar, Gefðu að móðurmálið mitt og
Víst eru Jesú kóngur klár. Að þeim lokn-
um verða sungin nokkur dæmigerð
karlakórslög, eins og Jónas orðaði það,
þá þrjár Ave Maríur, ein gregoríönsk,
önnur eftir Arcadelt og sú þriðja eftir
Karl Ó. Runólfsson. Óperunum er ekki
gleymt. Næst á efnisskránni eru Presta-
kórinn úr Töfraflautu Mozarts og Píla-
grímakórinn úr Tannhauser eftir
Wagner. Að síðustu eru svo aðventulög
eftir hina og þessa.
Rut L. Magnússon syngur einsöng
með kórnum auk þess sem hún syngur
eitt lag ein. Haukur Guðlaugsson söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar leikur undir í
þvi lagi og sömuleiðis nokkrum öðrum.
Auk þess leikur hann eitt lag eftir Bach.
„Skálholtskirkja er eitt bezta sönghús
á landinu og við hlökkum mikið til að
syngja þar eftir að vera búnir að syngja í
húsum eins og Háskólabiói sem eru al-
gerlega hljómlaus. Ég vona bara að
þetta takist vel,” sagði Jónas.
Gaman að syngja með
Fóstbræðrum
Rut L. Magnússon sat og hlýddi á
kórfélagana æfa sig. Hún var spurð
hvernig henni þætti að syngja með
karlakór. „Það er mjög gaman. Ég hef
haft mun meira að gera með blönduðum
kórum, hef bara einu sinni áður sungið
með karlakór. öll tilbreyting er ánægju-
leg. Hljómurinn i Fóstbræðrum er mjög
góður og krafturinn gífurlegur,” sagði
Rut.
- DS
Opið bréf frá de La Grandiére:
„EG HEF TAPAÐ ORRUSTU
EN EKKISTRÍDINU GEGN...
Ari Ólafsson kórformaður: „Plata lengi
áætluð.”
Áður en Roger de La Grandiére
kvaddi land og þjóð gegn vilja sínum I
gærmorgun afhenti hann blaðamanni
Dagblaðsins „opið bréf til Islendinga”.
Óskaði de La Grandiére eftir þvi að
DB birti bréfið sem fer hér á eftir I ís-
lenzkri þýðingu:
„Ég yfirgef nú lsland — ekki af
frjálsum vilja. Ég er neyddur til þess.
Undanfarin fimm ár hef ég komið á
flesta staði á landinu og hitt mörg
ykkar.
Næstu fimm ár gæti verið útilokað
fyrir mig að snúa aftur til nokkurs
Norðurlandanna og hitta ykkur aftur.
Þessi ákvörðun er ekki tekin af
dómara. Þrátt fyrir itrekaðar óskir
mínar hef ég ekki komið fyrir rétt.
Ég mun lengi minnast hlýju og gest-
risni sjómannanna sem ég hef unnið
með, bændanna sem ég hef heimsótt
og alls fólksins sem ég hef átt viðræður
við. 1 ykkur tel ég mig hafa fundið sálu
þjóðarinnar og mynd ykkar mun ekki
gleymast í huga mínum né hjarta
mínu.
Roger de La Grandiére f frakka skrif-
stofustjóra sjávarútvegsráðuneytisins.
Frakkinn borgaði nýjan jakka á skrif-
stofustjórann og var sjálfur hinn
ánægðasti i hlýjum vctrarfrakkanum I
nepjunni hér áður en hann var fluttur
úr landi.
DB-mynd Hörður V.
Ég hef nú tapað orrustu en ég hef
ekki tapað stríðinu gegn nokkrum
embættismönnum ykkar sem þrátt
fyrir allt réttlæti stjórna landinu í
eiginhagsmunaskyni. Bandaríkjamenn
hafa átt sitt Watergate, Holland,
Japan og V-Þýzkaland sitt Lockheed-
hneyskli. Svo virðist sem ísland sé ekki
reiðubúið til að axla hneyksli og þvi er
mérvísaðúrlandi.
Þið hljótið að vita- að mér finnst ég
vera fórnarlamb sarhsæris rikra en
óheiðarlegra Bandarikjamanna, frægs
íslenzks skálks og háttsetts embættis-
manns ríkis ykkar. Dollarinn hefur
jafnan verið raunveruleg ástæða þessa
samsæris. Bandarikjamennirnir eru
verndaðir fyrir réttlæti eigin
heimalands af islenzka skálknum,
sem sjálfur er verndaður fyrir íslenzk-
um lögum af háttsetta embættismann-
inum, sem er verndaður af ríkinu sem
stjórnar íslenzku réttlæti.
Þótt Idi Amin Dada sé skrímsli eru
borgarar Uganda flestir vænstu menn.
Roger de La Grandiére.”
Jónas Ingimundarson kórstjóri: „Höfum
sungið of lengi i hljómlausum húsum.”
Rut L. Magnússon: „Ánægjuleg tilbreyt-
ing.”