Dagblaðið - 05.12.1978, Qupperneq 2
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1978.
Verzlun við Hafnarf jörð:
STIKLAÐ Á STÓRU í VERZL-
UNARSÖGU BÆJARINS
Hafnarfjarðar er fyrst getið i Flóka-
þætti í Landnámu. Þar segir að þegar
Hrafna-Flóka „beit ei fyrir Reykjanes”
leitaði hann skjóls í Hafnarfirði, og sú
saga mun oft hafa endurtekið sig síðar.
Hafnarfjörður varð snemma eftirsóttur
verzlunarstaður vegna þess að hin
erlendu skip töldu sig öruggari þar en á
flestum öðrum stöðum suð-vestanlands.
Frá 1413—1677 er verzlunarstaður á
Hvaleyrargranda. En síðan gerist það,
að sjór gengur svo mjög á grandann, að
1677 er verzlunarstaðurinn færður yfir í
tún hjáleigunnar frá Görðum í Akur-
gerði þar sem núna er Sívertsenhúsið.
Þar stendur einokunarverzlunin fram
til 1787 en þá er verzlunin gefin frjáls.
Árið 1794 er Bjarni Sívertsen í Kaup-
mannahöfn og fær verzlunarleyfi við
Hafnarfjörð hjá konungi og 6500 ríkis-
dala lán að auki til að koma undir sig
fótunum.
Bjarni var smiður góður og
dverghagur og hafði notað tímann
erlendis til að kynna sér skipasmiðar.
Hann kemur nú heim með skip hlaðið
vörum og byrjar verzlun sina. Hann
smíðar nú fleytu sem var 8 1/2 mersedes-
lest að stærð (um 17 tonn). Þetta skip
gerir hann út á fiskveiðar og er hanh
með fyrstu mönnum sem gera út þilskip.
1 fyrstu býr hann I gömlu verzlunar-
húsunum sem fyrir voru en 1805 eða
1806 er hann búinn að koma sér upp
húsi og það hús stendur enn og er elzta
hús Hafnarfjarðar, Sívertsenhúsið.
Bjarni rekur þessa verzlun sína með
miklum ágætum fram til 1833 en þá
deyr hann. Þá var þetta fyrirtæki Bjarna
orðið svo mikið að vöxtum, að það tók 6
ár að gera upp búið.
Við verzlun Bjama tekur árið 1834
stórefnaður kaupmaður, Knudtzon að
Árið 1821 flyzt til Hafnarfjarðar
maður að nafni Linnet og gerist þar
verzlunarstjóri. Verzlun hans stóð þar
sem núna er skrifstofuhús það sem
Loftur Bjarnason byggði, beint á móti
Sparisjóðnum. Linnet þessi rekur þessa
verzlun til dauðadags 1836 og þá tekur
við sonur hans Adolf Linnet, síðan
Jörgen Hansen tengdasonur Linnets.
Hann rekur verzlunina til 1911 en 1914
tekur Ferdinand Hansen við henni og
rekur hana upp frá því.
Það var ekki sízt andspyrna sr. Árna
Helgasonar sem olli því að verzlunar-
staðurinn breiddist ekki meira út.
Byggðin mátti helzt ekki færast suður
fyrir læk.
Verzlun Einars Þorgilssonar. Hús þetta elzta fyrirtæki bæjarins sem starfar enn.
var byggt árið 1907. Þetta mun vera DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Árið 1884 setur Matthias Jónsson
upp verzlun á Hamarholtsmöl. Hafði
hann sótt fast að fá að setja upp verzlun
þarna en það var ekki auðsótt þar sem
þetta var kirkjujörð og andstaða var
gegn því að leyfa byggð fyrir sunnan
læk. Þau hús sem Matthías reisti standa
enn að Strandgötu 50, þ.e. rétt við
íþróttahúsið nýja. Þessi verzlun Matthí-
asar gekk þó ekki sem skyldi og hann fór
fljótlega á hausinn. Við verzluninni
tekur þá Þorsteinn Egilsson. Hann var
hygginn maður og alltaf þegar verzlunin
stóð höllum fæti seldi hann hana en
gerðist i þess stað starfsmaður nýja eig-
andans. Svo keypti hann verzlunina
jafnharðan aftur þegar syrti I álinn hjá
nýja eigandanum.
nafni, og rekur verzlunina fram til 1896.
Knudtzonzhús er pakkhúsið þar sem nú
er minjasafn Hafnarfjarðar.
Strax eftir aö Bjarni er setztur að í
Hafnarfirði koma fleiri verzlunarmenn
til sögunnar.
Þannig er Flensborgarverzlunin
komin upp um aldamótin 1800. Hún er
rekin óskipulega fram til 1873 en þá er
Knudtzon að kaupa upp megnið af
verzlunarfyrirtækjum i bænum. Á milli
1800 og 1810 er komin upp Norborgar-
verzlun rétt við hliðina á verzlun Bjarna
Sívertsen, en Bjarni var svo frjálslyndur,
að hann vildi að menn hefðu frelsi til að
segja upp verzlun jafnvel þótt það væri
alveg við hliðina á honum. Þessi verzlun
var á vegum ýmissa manna. Fyrst var
hún kölluð Rangersverzlun, síðan
Tomsensverzlun og loks er það maður
að nafni Christensen sem verzlar i þessu
húsi. Hann verzlar fram til 1884 og þá
tekur Knud Zimpsen tengdasonur hans
við.
Einar var líka með mikla útgerð og
árið 1904 kaupir hann ásamt nokkrum
öðrum aðilum togarann Coot sem var
fyrsti íslenzki togarinn. Þessi togari
strandaði í des. 1908. Þá líða sjö ár þar
til togari kemur aftur í bæinn en 1915
voru keyptir tveir togarar, Ýmir og
Víðir.
Upp úr þessu tók svo innlend togara-
útgerð frá Hafnarfirði að vaxa hröðum
skrefum. Skipastóllinn eykst jafnt
og þétt og i sambandi við alla
þessa útgerð hefur myndazt i landi ýmiss
koanr starfsemi sem er í beinum tengsl-
um við útgerðina. Hafa þessi fyrirtæki
tvenns konar þýðingu. Veita útgerðinni
nauðsynlega þjónustu og fjölda manns
atvinnu. Er þarna um að ræða skipa-
smíðastöðvar, dráttarbraut, vélsmiðjur,
netavinnustofur og hraðfrystihús svo
eitthvaðsénefnt.
Þegar hér er komið sögu, er saga
verzlunarinnar öll orðin það margþætt
og nær okkur i tíma en svo, að hún verði
rakin hér nánar.
-GAJ
Mamartjöröur séður frá sjó. A myndinni
má m.a. sjá Sivertsenhúslð og Flygenrings-
búsUyngra.
Þetta var aðalverzlunin í Firðinum
þangað til um aldamótin að Einar Þor-
gilsson fer að verzla í Flensborg. Hann
flytur síðan og reisir sitt verzlunarhús
sem stendur enn að Strandgötu 49. Það
er nú elzta fyrirtækið I Firðinum.
HÚSGÖGMN
FYMR UNGA FÓUOÐ
ÚLFAR GUÐJÓNSS0N
REYKJAVÍKURVEGI78 - SÍMI54499
HAFNARFIRÐI