Dagblaðið - 23.12.1978, Page 1

Dagblaðið - 23.12.1978, Page 1
f 4. ARG. — LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1978 — 288. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022. „Draumspakur” á Húsavík spáir alhvítum jólum „Það er ekki gott að segja um jóla- veðrið, því auðvitað er aldrei hægt að vera alveg viss, en ég segi að það verði hvít jól um allt land.” Þetta er jólaveðurspáin frá Jóni Jónssyni, draumspökum manni á Húsavik, sem DB hefur áður rætt við um líkur á gosi í Kröflu. — Af hverju heldurðu að það verði hvít jól? Ertu kannske með gikt í mjöðminni eða vinstri handleggnum? „Nei, mér er sagt þetia í draumi,” sagði Jón. Hann sagðist heldur ekki eiga von á stormi um jólin eða illviðri að öðru leyti. — En hvað með Kröflu? Heldurðu að hún verði til friðs um jólahátíðina? „Það er allt í lagi með Kröflu. Ég er alltaf á sömu linu með hana, hún gýs ekki á meðan ég lifi,” sagði Jón. — Við höfum áöur rætt við hann um horfur á Kröflugosi og hefur Jón jafnan haldið fast við að honum hefði verið tjáð í draumi að engin hætta væri á Kröflu- gosi á meðan hann væri á lífi. — Það er því von allra að Jón lifi sem alira lengst, en hann verður 75 ára á næsta ári og enn við beztu heilsu. A.Bj. Það er snjóþungt á þessari mynd, sem tekin var á Húsavík fyrir um mánuði síðan. ' Eftir það tók upp snjó þar. sem víðast hvar á landinu — en draum- spakur vinur DB á Húsavik spáir þó hvitum jólum um land allt. Aftur á móti spáir veðurstofan fölgrá- umog köldum jólum. -DB-mynd: Einar ólason, Húsavtk. — en bráðabirgða- veðurspá Veður- stofunnarer FÖLGRÁ, KÖLDJÓL „Við sjáum nú ekki mjög langt fram í tímann en við reiknum meö að veðrið haldist svipað um jólin,” sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur í spjalli við DB. „Að öllum líkindum verður frost um allt land og norðaustan átt. Mér sýnist ekkert útlit fyrir að snjói meira fyrir jólin. Núna er ómögulegt að segja nokkuð um áramótin og þú mátt gjarnan láta það koma fram að þessi jólaspá er aðeins til bráðabirgða, enda er heldur of snemmt að segja nokkuð öruggt um jólaveðrið,” sagði Páll. -DS. mí * í JOUN ERU Á BAK VIÐ Linda litla Ólafsdóttir gægist inn um dyrnar og bíður spennt eftir jólunum. Hún þarf ekki að bíða lengi úr þessu.... aðfangadagur er á morgun. — Jólamynd: Jóhann Kristjánsson. MEBIAÐIB fœrir ksendum sínum og landsmönnum ölkim öskirum GLEÐILEG10L Minnum á jólahandbókina með blaðinu ígær

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.