Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.12.1978, Qupperneq 6

Dagblaðið - 23.12.1978, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1978. ALGJÖR NYJUNG EINS AUÐVELT OG VATN KRANA HEILDSÖLUBIRGÐIR fllllÉM llF Simi 82655 Dregið úr framkvæmdum á Grundartanga: Ríkið veit ekki hvað sparnaður verður mikill — könnuð af staða erlendra hluthafa og lánadrottna Ríkisstjórnin hcfur samþykkt. að tillögu iðnaðarráðuneytisins. að fara þess á leit að framkvæmdum við siðari ofn Járnblendiverksmiðjunnar verði frestað á þann hátt að síðari ofninn fari ekki í gang fyrr en í marz til júni 1981 í stað september 1980. Hins veg- ar var samþykkt að heimila kaup á síðari ofninum. DB skýrði nýlega frá þvi að verð á járnblendi væri á hraðri uppleið og hillti brátt undir upphaflegar afkomuspár verksmiðjunnar. I fréttatilkynningu frá ráðuneytinu um þetta mál segir m.a. að ráðuneytinu hafi þótt eðlilegt að kanna hvort rétt væri að fresta fram kvæmdum við 2. áfanga út frá hag- rænum forsendum, svo og í Ijósi sam- dráttar i heildarfjárfestingu í landinu, semstefnterað. Þá er þess jafnframt farið á leit við stjóm Járnblendifélagsins að látið verði reyna á samninga við hlutaðeig- andi erlenda hluthafa, lánveitendur og orkuseljendur svo ráðuneytinu verði sem fyrst unnt að taka frekari ákvarðanir í málinu. Félagið átti samningsbundinn rétt til að kaupa annan ofn. svipaðan hinum fyrri. enda er verksmiðjan hugsuð sem hagkvæm rekstrareining með tveim ofnum. En ofnstærð og skilmálar um kaupin voru háð samþykki rikisstjórnarinnar. Sem fyrr segir er þetta m.a. gert i Ijósi samdráttar í heildarfjárfestingu í landinu sem stefnt er að. Db hafði samband við iðnaðarr.neytið til að grennslast fyrir um hversu miklar upphæðir ríkið hygðist spara sér á næsta ári með þessu móti, en engar ákveðnar tölur lágu fyrir um það. Þá náði blaðið ekki tali af framkvænida- stjóra Járnblendifélagsins i gær, eftir að ráðuneytið hafði bent- á, að félagið mundi sennilega sjálft freista þess að reikna það út. -G.S. VORUM AÐ FÁ ÚRVAL 1=^ ROKK-REYKJAVÍK SNYRTISTOLAl”™ " LIFNARm HUSGAGNAVERZLUN REYKJAVIKUR Símai TILVALIN JÓLAGJÖF PÓSTSENDUM Efnir til dansleiks á 2. í jólum Tónlistarklúbburinn Rokk-Reykjavik hefur verið endurlífgaður í tilrauna skyni. Hann gengst fyrir dansleik á annan jóladag í veitingahúsinu Ártúni. Þar leikur hljómsveitin Tivolí fyrir dansi. Starfsemi Rokk Reykjavik hefur legið niðri siðan i sumar vegna húsnæðis- leysis. Lengst af fékk félagið inni í Tjamarbúð með dansleikina og tónlist- arkvöld. Nú hefur Sigursæll Magnús- son, sá er rak Tjarnarbúð á sínuni tima. opnað veitingahúsið Ártún á Ártúns- höfða og er meiningin að reyna að halda dansleiki þar. Þór Ottesen, sá sem hefur verið potturinn og pannan í starfsemi Rokk Reykjavik frá stofnun, sagði i samtali við DB að ef dansleikurinn á annan i jólum tækist vel væri þar með kominn viss grundvöllur að frekara starfi. Ef svo fer bætist þar með einn staður i Reykjavík við, þar sem boðið er upp á rokkhljómsveitir. Ekki veitir af slíku. Allir félagsmenn Rokk Rcykjavikur eru boðnir velkomnir á dansleikinn á annan. ÁT ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR söng kona Tivoli og Ljósanna i bænum. DB- mynd Ragnar Th. Minolta Ijósmyndavélar Kærkomnar jólagiaflr BETRA SEINT EN ALDREI... Skólavörðustfg 41 — Sfmi 202S5 Brotizt inn íSölunefndina I nótt var brotizt inn i Sölunefnd varnarliðseigna við Grensásveg. Farið var inn um hurð á jarðhæð og hún brotin Þjófurinn eða þjófamir komust siðan upp og brutu dyrakarm inn í verzlunina. Þar gripu þeir með sér allmörg armbandsúr, kvikmyndavél og sjónauka. Ekki var Ijóst í morgun er rannsóknarlögreglan var á staðnum og tók fingraför, hvort meira hafði verið tekið. JH. FFSÍ ítrekar Fundur Farmanna- og fiskimanna- sambands tslands, haldinn 20. desember 1978, samþykkti að beina þeirri áskorun til allra sambandsfélaga að þau beiti sér t'yrir þvi við félagsmenn sína, að þeir láti ekki skrá sig á báta fyrr en fiskverð liggurfyrir.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.