Dagblaðið - 23.12.1978, Side 13

Dagblaðið - 23.12.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1978. 13 Eins nauð er annars brauð Hérna í henni Ameríku hrærumst við í auðvaldsskipulagi eins og ykkur er vonandi kunnugt. Gróðasjónarmið- ið er það afl, sem fær fólk til að leggja fé i atvinnutæki, framleiða vörur og stunda verzlun. Af skapast atvinna og tekjur og allir eru kátir og ánægðir! Ég veit ekki, hvort þið heima á Fróni skiljið þetta öllsömul, því siðast er ég vissi til. trúði stór hluti þjóðarinnar, að álagning á vöru væri þjófnaður. Og ekki veit ég. hvort þeirri trú verður hróflað í bili. fyrst þið eruð búin að fá Marxista fyrir viðskiptamálaráðherra! En jafnvel hér í Barbaríinu þykir ekki sama, hvernig farið er að þvi að hug hann Jón Sker (íslenzkað nafn), maður ekki fertugur, sem búinn er að komast yfir fyrstu milljónina ($) og er nú að huga að þeirri annarri. 1 Flórída eru næstum allir aðfluttir, og hafði Jón komið frá Seattle í Washington riki fyrir einum 18 árum. Hann var svo að segja ómenntaður og vann hann fyrst i stað á bensinstöðvum en greip í önnur störf eftir þvi sem hann fann þau. Hann gifti sig ungur og vann konan úti fyrstu árin. Þau voru dugleg að vinna og reglusöm og lögðu peninga í bankabók i hverri viku. Jón var búinn að ákveða með sjálf- um sér, að hann ætlaði að verða milli og kvenfólk. Rauðsokkur hér vestra eru ævar út af þessu og hafa krafizt þess, að þessu verði breytt. Jæja, nú var fæddur stormur, Donna, og stefndi hún beint á Miami! Jón fann einhvern veginn á sér, að hér var komið hið gullna tækifæri. Hann lagðist undir feld, ef svo má að orði komast, og braut um það heilann, hvað fólk myndi hclzt vanta, eftir að hvirfilbylur væri búinn að umturna byggð þess. Og hann kom með svarið ÍS!! Hvirfilbyljum fylgja jafnan flóð, rafmagnsleysi, vatnsleysi (drykkjar) og önnur hörmung. Jón ályktaði, að græða peninga. Það eru mörg mis- munandi stig af peningagræðgi og hefi ég ckki pláss til að tala um þau öll hér. En fínast og eðlast þykir það. þcgar sá gráðugi getur grætt án þess, að allt of mikið beri á græðginni. Líkja má þessu við át; menn geta verið svangir. cn þeir geta tekið til matarsíns kurteis- lega og dulið svengd sína. því þeir kunna borðsiði. Aðrir geta ekki haft stjórn á sér; þeir rífa i sig matinn eins og grimmir úlfar og kæra sig kollótta þótt aðrir borðgestir fái ekkert. Margar sögur má heyra hér um það, hvernig þessi eða hinn hafi rifið sig upp úr sárustu fátækt og komizt til auðs og kannske valda. Mér dettui i og var aldrei i neinum vafa um að slíkt myndi takast. Hann sagðist alltaf hafa vitað, að tækifærið myndi koma, sem þoka myndi honum áleiðis á braut vel gengni og velsældar. Og tækifærið kom fimmta árið, sem hann dældi bensíni. Þá voru komnir um $2.000.00 i bankabókina. Þetta var i september, en þá er einna mest hættan á hvirfilbyljum við Karabiska hafið. Veðurstofan fylgist mjög vel með hverjum stormi sem myndast og varar fólk við. ef útlit er fyrir, að bylur gangi á land upp. Stormarnir eru skirðir kvennanöfnuni og er það ekki að undra. þvi þeir eru óútreiknanlegir og duttlungafullir eins blokkar-is niyndi verða i eftirspurn bæði til að kæla rafmagnslausa ísskápa og til að kæla drykkjarföng. Hann þaut i bankann og tók út allt spariféð. leigði 15 tonna frystibil með bílstjóra, fór svo í næstu isverksmiðju og fyllti bilinn af ís og beið þess, að Donna ryddist á land ,i heimaborg hans! Hann ætlaði að hagnast á hörm- ungunum. En kerlingin hún Donna lét ekki reikna sig út. Fimmtán mílur frá ströndinni tók hún að beygja í suður og þótt Jón legðist á bæn, smaug hún niður fyrir skagann og inn í Mexikó- flóann. Söguhetjan var eyðilögð og sá fram á að hafa tapað öllu sparifénu, en Vi Bréf frá henni Ameríku: Þórir S. Gröndal þá- heyrði hann í útvarpinu, að stormurinn hefði breytt um stefnu á ný og virtist nú ætla að taka land vest- an niegin á skaganum. við Tampa og St. Petersburg. Þeir þutu af stað. Jón og bilstjórinn, með 15 tonn af ís í leit að gæfunni. Ekki lék við þá lánið. því Donna kom á land fyrir sunnan borgarsvæðið og fór þvert yfir skagann en olli litlu tjóni, þvi þar var að mestu óbyggt svæði, fen og frumskógar. Aftur á móti lentu þeir sjálfir i miklum ógöngum og lá við. að vörubilnum hvolfdi með hinn dýrmæta farm; svo mikil var veðurhæðin. Við illan leik komust þeir aftur til Miami og var Jón nú niðurbeygður maður. Donna hafði smogið gegnum greipar hans, en heima beið úrill eiginkonan, sem sendi 'honum tóninn og lét hann heyra, að betra hefði nú verið aðeiga peningana tá bókinni. Ekki veit ég, hvort einhver á æðri stöðum hefir vorkennt hetjunni okkar, þvi nú gerðist það, að útvarpið skýrði frá þvi. rétt þegar Jón ætlaði að taka á sig náðir, að Donna hefði óvænt snúið ;aftur til lands og stefndi nú beint á Jacksonville, sem er stærsta borg Flórida og situr nyrzt á skaganum Atlantshafsniegin. Nú var aftur þotið af stað. ekið i 10 tima, og komið til Jacksonville að morgni. rétt eftir að Donna hafði gert allan þann usla, sem henni var mögu- legt. Tugir manns höfðu farizt í fióð unum og allt var rafmagnslaust. Senv sagt gott. sagði Jón! Félagarnir lögðu bilnum á stórt bilastæði og settu upp skilti: ÍS TIL SÖLU. Von bráðar þusti fólk úr öllum áttum og keypti isinn af græðgi án þess að býsnast yfir hinu háa verði. Sumir prísuðu og blessuðu þá félaga fyrir framtakið. Það var þreyttur Jón, sem kom heim næsta kvöld með stóran pappa- kassa fullan af krumpuðum peninga- seðluni. Eftir talningu kom í Ijós. að $2.000.00 sparifcð var orðið að $14.000.00 og var þá búiðað grciðaall an kostnað. Fyrir hagnaöinn al isævintýrinu keypti vinurinn stóra fiskbúð í Coral Gables, sem er eitt fin asta og rikasta hvcrfi á Mianii svæðinu. Hann vann eins og þræll frá morgni til kvölds og konan sá um bók- haldið. Eftir sextán ár seldu þau svo húðina og Jón var orðinn milljóna- mæringur. Þórir S. Gröndal r Ljónaveiðar.... — ekki aldeilis Það er auðvitað alveg ófyrirgefan legt að leiða hugann að nokkru öðru í hinu alvarlega ástandi, sem nú rikir með vorri þjóð, en rúmri 6% kaup- hækkun og öðrum meiri % kaup- hækkunum sem Óli Jó kemur á fram- færi i óbeinni kauphækkun. Samt sem áður gerast aðrir, alveg háalvarlegir atburðir svo sem hér skal greint frá. Hér á Fróni eigum við ekki við ,mörg óargadýr að etja (fyrir utan verð- bólguna). Ekki erum við þeir kappar, svo sem í sumum löndum að geta stundað Ijónaveiðar, hvað þá héra- veiðar, eins og vinir okkar og nágrann ar Englendingar hafa gert með kurt og pí í gegnum aldirnar. En við getum þó farið á villidýraveiðar og það meira að segja i heimahúsum. Það var hér eina helgina að ég vakn- ^ aði um miðja nótt, heldur betur þyrst. Vitanlega fer maður þá t kranann og fær sér dásamlegt vatn að drekka (vatn úr krana er nokkuð sem margur útlendingur getur varla hugsaðsér, þvi þeir eiga ekki eins gott vatn og vér ís lendingar). Jæja, þegar ég kem inn i eldhúsið og kveiki ljósið. er þá ekki ein heljar stór mús að rýsla sér á eldhús- borðinu. Vissi égekki hvorri brá meir. mér eða músinni. Mikið langaði mig að reka upp hið ægilegasta öskur, en allir í fasta svefni í húsinu og ég hætti við. Það „risu á mér veiðihárin”. Hvað skyldi nú til bragðs að taka? / Alltaf þegar maður heyrir um músa- og rottuveiðar eru kústar afar mikið notaðir. Ég greip einn í snatri, en það Kjallarinn „Hvílíkar hetjur við íslendingar erum orðn- • 5? Erna V. Ingólfsdóttir er að segja af músinni að hún hljóp hið hraðasta á bak við uppþvottagrindina. Þótt ég sæi vel í gegnum grindina, liélt hún augsýnilega, að þar væri hún örugg, því að ekki hreyfði hún sig á meðan ég bjó mig undir veiðarnar. Ég leitaði að fleiri vopnum. Jú, rauðvins- tár var þarna i flösku frá kvöldinu áður. Ég fékk mér einn vænan til að styrkja taugarnar. Mér óx ásmeginn. Hvað næst? Sennilega gæti ég ekki drepið ófreskjuna með kústskafti, en kannski færi hún út um gluggann, ef rétt væri að farið. Straujám varð næst fyrir fránum augum mínum. Ég stakk því í samband, svo að músin færi ekki beint niður í borðkrókinn. Hún var alltaf á bak við uppþvottagrindina. Og nú var ég tilbúin í slaginn. Ég potaði i gluggafagið með kúst- skaftinu svo að það opnaðist í hálfa gátt. Út skyldi óargadýrið. Það hins vegar hreyfði sig ekki úr horninu. Tuska var nálæg. Ég barði í borðið. Ég gerði „ógurlegan” hávaða með kúst- skaftinu. Allt í einu tók dýrið undir sig stökk. Haldið þið kannski að það hafi farið út um gluggann? Ó nei, ó nei. Það stökk þvi sem næst alveg á mig, 'ég hoppandi hæð mína mcð kúst- skaftið. Svo hvarf ófétið sjónum. Það eru svo sem til önnur ráð, hugs- aði ég þegar ég var búin að jafna mig eftir átökin. Það er liægt að fá músa- gildru fyrir litið. Eitur, liklega fyrir enn minna (það cr að segja ef maður gæti sannað að niaður væri ekki orðinn leiður á „kallinum" og ætlaði honum eitrið). Svo cru það nú kettirn ir. En köttur þarf félagsskap, svo sem önnur dýr og til þcss að eiga kött þarf að vera heima til þess að sinna honum. Það cr lika til ein lausn enn sem við i okkar nútímaþjóðfélagi höfum fundið upp. Það er nefnilega bara svo einfalt að hringja í meindýraeyði og láta hann koma til þess að setja upp músagildru eða koma fyrir eitri. Þetta kostar auðvitað peninga (sem við eigum svo mikið a0, en það er allt í lagi. Það kemur ekki við okkar eigin pyngju, rikið borgar. Ja, hvilíkar hetjur við íslendingar crum orðnir, að geta ekki einu sinni kotnið okkar eigin músum fyrir kattar nef. Erna V. Ingólfsdóttir. Eftirmáli: Ég hef ekki séð óarga dýrið síðan. Liklega hefur það drepizt úrhræðslu. V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.