Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 36
Þjálfarinn enn á sjúkrahúsi eftir slys í Hollywood Verður hugsanlega að hætta þjálfunarstörfum hér Bandarískur þjálfari körfuknatt- leiksdeildar Ármanns liggur enn i Landakotsspítala eftir augnmeiðsl er hann hlaut í ryskingum, sem urðu í veitingahúsinu Hollywood sl. sunnudag. 1 gær var talið líklegt að hann fengi að fara heim af sjúkrahúsi á aðfangadag, en aðgerð á auga hans gæti orðið að biða I 1—2 mánuði. Biðtíminn eftir aðgerðinni ræður því hvort aðgerðin verður gerð hér eða í heimalandi hans. Að sögn Guðmundar Hermanns- sonar yfirlögregluþjðns rannsóknar- deildar hjá lögreglustjóra kom til ryskinga á skemmtistaðnum. Að þeim áttu hlut par eitt og tveir bandariskir körfuknattleiksmenn, sá er meiddist og annar sem starfar í Borgarnesi. Málið er að sögn komið til Rannsóknarlögreglu ríkisins, en þar var ekki unnt að afla upplýsinga um það í gær. Því er ekki ljóst hvað ná- kvæmlega skeði. Stúlkan mun hafa verið komin hálfgrátandi fram i for- stofu á tal við dyraverði, er hún fór aftur í salinn og kastaði glasi að bandaríkjamanninum. Lenti það í auga hans. Lögregla var kvödd á staðinn og síðan var tekin skýrsla af öllum fjór- menningum á lögreglustöð. .Aðþvi Stewart Johnson. búnu var farið með hinn meidda í slysavarðstofu og var hann þangað kominn 1 klsúog 11 mín.eftir að kall- barst. Á lögreglustöðinni virtust meiðsli hans ekki alvarleg. Annað kom síðar á daginn, þvi blætt hafði í augnbotninn og einhver flís var i auga mannsins. Bandaríkjamaðurinn, Stewart Johnson, sér nú aðeins í móðu með særða auganu. Ekki er vitað hver áhrif slyssins eða aðgerðar, sem verður að bíða, geta orðið t.d. á fjarlægðarskyni augans. -ASt. / Annatíma lokið Það var orðið áliðið í gær þegar jólasveinninn hafði lokið innkaupunum. Flestum pökkum var hann búinn aö dreifa en eitthvað kemur annað kvöld. Hann var hvíldinni feginn á bekk i Austurstræti og studdi sig við galdrastafinn sinn. -DB-mynd: Bj. Bj. VERÐJÖFNUNARGJALDH) STRANDAÐI í TÍMAHRAKI Hækkun verðjöfnunargjaldsins á rafmagni strandaði á Alþingi i gærdag þegar ekki var unnt að taka málið fyrir i efri deild vegna þingslita. 1 neðri deild var meira samkomulag um hækkun en áður og samþykkt breytingartillaga frá Hjörleifi Guttormssyni iðnaðarráð- herra með 23 samhljóða atkvæðum, 15 sátu hjá og tveir voru fjarstaddir. 1 tillögu ráðherra segir að verð- jöfnunargjaldinu skuli varið til að bæta fjárhag Rafmagnsveitna rikisins og Orkubús Vestfjarða. Hækkun gjaldsins um 6% skuli varið til að ná fram verðjöfnun á töxtum til heimilis- notkunar og iðnaðar hjá þessum aðilum. Rafmagnsveiturnar skuli fá 80% af tekjum af gjaldinu en Orkubú Vestfjarða 20%. Ellert B. Schram (S) var með nokkuð svipaða tillögu sem kom ekki til atkvæða. Frumvarpið var siðan samþykkt í deildinni með 20:13 at- kvæðum en komst ekki á dagskrá efri deildar. Er helzt búizt við að rikis- stjórnin gefi út bráðabirgðalög i þing- hléi, svo að gjaldið falli ekki niður. HH dagur til )óla Sá jólasveinn sem segir okkur að aðeins sé einn dagur tii jóla er Askasleikir, foringi jólasveinanna. Askasleikir kom með þá bræður sina til byggða á dögunum eins og frægt er orðið. Þcir komu siðan fram er kveikt var á Oslóarjóla- trénu eins og þeir hafa gert undan- farin ár. Askasleikir er orðin fræg útvarpsstjarna tftir að hann vann verðlaunasamkeppni þar á laugar- daginn fyrir háifum mánuði í þætt- inum í vikulokin. „Hvað ég vil í jólagjöf? Nú, en góða flösku af lýsi,” sagði Aska- sleikir. Vinir hans kalla hann Ketil. DB-mynd Bj. Bj. Smáauglýsingar DB um jólin Auglýsingadeild Dagblaðsins (smáauglýsingamóttaka) verður opin sem hér segir um jólahelgina: Þorláksmessa 23. desember — opið kl. 9—12. Aðfangadagur, jóladagur og annar í jólum — lokað. Starfsfólk auglýsingadeildar sendir viðskiptavinum og landsmönnum öllum óskir um GLEÐILEG JÓL frjálst, nháð dagblað LAUGARDAGUR 23. DES. 1978. Jólakveðja úr 40% hita íNígeríu „Viljið þið á Dagblaðinu ekki koma jólakveðju til fólksins okkar heima. Við urðum of seinir með kveðju í útvarpið,” sagði fjarlæg rödd í síma ritstjórnarinn- ar, svo fjarlæg að hún hefði eins getað komið frá tunglinu, þar sem jólasveinn- inn er stundum sagður búa. Röddin reyndist vera Ómars Sveins- sonar, loftskeytamanns á Hvalvíkinni, sem nú liggur í höfn í Port Harcourt í Nígeríu. „Það er þokkalegasta veður, fjörutíu stiga hiti,” sagði Ómar. Tveir mánuðir eru síðan Hvalvíkin fór frá Hornafirði til Nígeríu meðskreið- arfarm. Skipið hefur legið við akkeri á ytri höfninni í Port Harcourt í fimm vikur en lestun er nýlega hafin. „Það er ekki hægt að segja að hér sé unnið hratt,” sagði loftskeytamaðurinn. Hann bað fyrir kærar jóla- og nýárs- kveðjur frá skipshöfninni á Hvalvík til ættingja, vina og vandamanna hér heima. DB kemur kveðjunni hér með á framfæri. -ÓV. Enginn „brennu- vargur” laus — kveikti í til að dylja fjárdrátt „Okkur þótti rétt að slá á þann orðróm, sem gengur um, að brennuvargur hafi verið valdur að bruna sem varð í Bergiðjunni, vinnustofu Kleppsspítalans, aðfaranótt 2. þessa mánaðar,” sagði Arnar Guðmundsson hjá Rannsóknarlögreglu í viðtali við DB. Tvitugur piltur, búsettur í Kópavogi, hefur játað við yfirheyrslur að vera valdur að bruna þeim, sem í Bergiðjunni varð. Hafi hann með því ætlað að eyðileggja þar bókhaldsgögn sem bera með sér verulegan fjárdrátt, sem hann er valdur að, en hann er starfsmaður Bergiðjunnar. Fjárdráttarmálið er á rannsóknarstigi. Ekkert hefur komið fram, sem bendir til þess að þessi maður eða annar hafi verið valdur að nokkrum eldsvoðum, sem orðið hafa að undanförnu i Reykja- vik. -BS. Tóiffá heiðurslaun Alþingi samþykkti i gær að veita eftir- töldum tólf listamönnum heiðurslaun, milljón á mann, á næsta ári. Ásmundi Sveinssyni, Finni Jónssyni, Guðmundi Daníelssyni, Guðmundi G. Hagalin, Halldóri Laxness, Indriða G. Þorsteinssyni, Kristmanni Guðmunds- syni, Maríu Markan, Snorra Hjartar- syni, Tómasi Guðmundssyni, Vali Gíslasyni og Þorvaldi Skúlasyni. -HH. /í<&’Það\x Ky KauplðVx ? TÖLVUR OG TÖLVUÚR BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.