Dagblaðið - 09.01.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 09.01.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANUAR 1979. 5 S Skyndikönnun Almannavarna á sjúkraflutningum: Aðeins þrír sjúkrabílar í Reykjavík Almannavarnir ríkisins gerðu á flytja mætti 250 manns frá Kefla- laugardag skyndikönnun á þvi hvernig víkurflugvelli með sjúkrabifreiðum. Í r Rannsóknarlögreglumenn mótmæla LMFI: „Ætlað að grafa undan trausti rannsóknarlög- reglunnar” könnuninni kom í Ijós að flytja mætti 86 manns í skyndi með tiltækum sjúkrabifreiðum og björgunarsveitar- bifreiðum. Þá voru ekki til kallaðar sendibifreiðir, sem einnig eru tiltækar í neyðartilvikum. Samkvæmt upplýsingum Guðjóns Petersen, framkvæmdastjóra Al- mannavama rikisins, kom í Ijós i könnuninni, að aðeins eru tiltækir þrir sjúkrabílar í Reykjavík. Rauði kross- inn starfrækir alls fimm sjúkrabifreiðir fyrir Reykjavík og nágrannasveitar- félögin og þykir það fullnægjandi. En tvær bifreiðanna munu vera ógang- færar nú um þessar mundir og er því flotinn alveg i lágmarki. Fjöldi sjúkrabifreiða i Reykjavík er aðeins miðaður við daglega þjónustu, en ekki til þess að anna til fullnustu verkefnum ef stórslys verða. Auk bíl- anna i Reykjavík er einn sjúkrabíll í Hafnarfirði. Almannavarnir ríkissins halda æfingar reglulega á þriggja mánaða fresti, eða þá laugardaga sem flautur almannavama eru prófaðar. Þá er kallað til aukalið Almannavarna og ýmist hlustað á fyrirlestra eða tekið þátt íæfingum. Sjúkraflutningar i miðborg Reykjavík- ur: Tvær sjúkrabifrciðir ógangfærar og flotinn i lágmarki. Samkvæmt upplýsingum Rauða krossins hefur hjartabillinn svonefndi verið i mikilli viðgerð og unnið er við innréttingar í nýjum bil. Annars eiga alltaf að vera fjórir bílar til taks i Reykjavik og í bilanatilfellum ergripið til eldri bíls. JH Rannsóknarlögreglumenn við Rann- sóknarlögreglu ríkisins hafa harðlega mótmælt fullyrðingum í yfirlýsingu stjórnar Lögmannafélags íslands um að réttarhagsmunir sakborninga séu um of fyrir borð bornir i ákafa við upplýsingu sakamála. „Furðu sætir að slik yfirlýsing skuli koma frá stjórn Lögmannafélags íslands. Yfirlýsingin ber með sér van- þekkingu þeirra manna, er að henni hafa staðið, á þeirri breytingu réttarfarslaga, sem samþykkt var á Alþingi 1977,” segir í fréttatilkynningu frá stjórn félags rann- sóknarlögreglumanna í RLR. Segir þar einnig, að yfirlýsing stjórnar LMFÍ virðist bera það með sér, „að henni sé ætlað að grafa undan því trausti, sem RLR hefur notið hjá al- menningi frá þvi embættið var stofnað. Má þvi ætla, að aðrar hvatir liggi að baki yfirlýsingu þessari en umhyggja fyrir hagsmunum sakborninga.” Rannsóknarlögreglumennirnir mót- mæla þvi harðlega, að réttarstaða sak- aðra manna hafi verið skert af hálfu RLR síðan það embætti tók til starfa ’77 og benda á þá áherzlu, sem rannsóknar- lögreglustjóri hafi lagt á aukna menntun og þjálfun rannsóknarlögreglumanna. Þeir segja það óneitanlega vekja eftirtekt við lestur yfirlýsingar LMFÍ, að ekki sé „minnst á þá aðila, er orðið hafa fyrir tjóni vegna athafna sakamanna. Ein- hver skýring kann að vera á því og jafn- vel sú að rikið leggur út þann kostnað til réttargæzlumanns, sem skipaður hefur verið gæzlufanga. Sá er misgert var við hins vegar, verður sjálfur að leggja fram þá háu fjárhæð er lögmaður þiggur fyrir störf sín og getur þvi ekki, oft á tíðum og af þessum sökum, notfært sér slíka að- stoð.” Þá gerir stjórn Félags RLR einnig at- hugasemd við ummæli aðstoðarmanns dómsmálaráðherra í dagblaðinu Visi þann 3. þessa mánaðar. Þar er haft eftir honum m.a.: „hefur ef til vill verið lögð of rík áherzla á að upplýsa brot og þá jafnvel á kostnað réttarstöðu sakborn- inga”. Stjórnin segir að ekki sé með fullu ljóst hvað aðstoðarmaður dómsmálaráð- herra eigi við með þessum orðum, ef rétt Q VIÐ STÆKKUM 0G BREYTUM i«|l i| Wk || | bjóöum víð flestar byggingavörur á Iml 1 I sama stað í nýinnréttudu húsnæði á 1. 1 ™ og 2. hæð, samtals 600 m2. Rannsóknarlögreglumenn og rann- sóknarlögreglustjóri (fyrír miðju) i kaffl- hléi á vinnustað: „Starfsmenn RLR vinna samkvæmt lögum. Umræður um annað eru markleysa”. DB-mynd RagnarTh. séu eftir höfð og sú sé von Félags RLR að maður í hinu háa dómsmálaráðu- neyti láti ekki eftir sér hafa svo alvarleg ummæli á opinberum vettvangi. Að lokum visar stjórnin á bug öllum ummælum um hæpin vinnubrögð við rannsókn sakamála af hálfu Rann- sóknarlögreglu rikisins og minnir á, að starfsmenn RLR vinna samkvæmt lögum. Umræður um annað eru þvi markleysa. 1 samtali við Eirík Tómasson, að- stoðarmann dómsmálaráðherra, kom fram að þessi fréttatilkynning Félags RLR var send að honum forspurðum. Eiríkur vildi taka fram að með hinum til- vitnuðu orðum eigi hann ekki við að ein-. stakir lögreglumenn, eða aðrir er unnið hafa að rannsókn opinberra mála, hafi brotið i bága við þau fyrirmæli, sem er að finna í lögum um meðferð opinberra mála. Hins vegar telur Eiríkur að til greina geti komið að þau ákvæði laganna sem snerta réttarstöðu sakbornings i opin- beru máli, verði að einhverju leyti endurskoðuð. - ÓV/JH Ritgerðasamkeppni Lions „Unglingavandamálin. Hvað getur samfélagið gert til þess að leysa þau?” er efnið í ritgerðasamkeppni, sem Lions- hreyfingin á lslandi efnir nú til. Sam- keppnin er opin öllum ungmennum á aldrinum 15 til 17ára. Fimm ritgerðir verða verðlaunaðar. Verðlaunin eru dvöl i norrænum ungl- ingabúðum i Noregi 23. júní til 15. júli i sumar. Skilafrestur er til 25. janúar og ber að senda ritgerðirnar til skrifstofu Lions- umdæmisins á íslandi, Háaleitisbraut 68, Reykjavík. Þar er einnig hægt að fá nánari upplýsingar. ÓV Komið og skoðið. — Það er hagkvœmt að verzla allt á sama stað. Útveggjasteinn Þakpappi Eldhúsinnréttingar Veggfóður Milliveggjaplötur Múrnet Plaströr & fíttings Veggstrigi Spónaplötur Rappnet Gluggaplast Gólfflísar Grindaefni Skrúfur Álpappír Veggflísar Plasteinangrun Þakrennur Garðastál Lím Glerullareinangrun Hreinlætistæki Lamir & skrár Gólfdúkur Steinullareinangrun Blöndunartæki Rafmagnsverkfæri Korkflísar Glerullarhólkar Viðarþiljur Málningarvörur Saumur Þakjárn Baðskápar Verkfæri ALLT UNDIR EINU ÞAKI BYGGINGARVORUDEILD JÓN LOFTSSON HF. HRINGBRAUT121

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.