Dagblaðið - 09.01.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979.
9
■\
Álit FÍI á stuðningsaðgerðum ríkisstjórnarinnar:
„Hér ríkir óvinsamlegt and-
rúmsloft gagnvart iðnaði”
„Við erum ákanega vonsviknir, þvi
að við áttum satt að setja von á ein-
hverju stærra og meira,” sagði Davíð
Sch. Thorsteinsson, formaður Félags
islenzkra iðnrekenda á blaðamanna-
fundi sem stjórn félagsins boðaði til i
tilefni af fréttatilkynningu rikisstjórn-
arinnar um stuöningsaðgerðir handa
iðnaðinum.
Á fundinum kom fram að F.Í.I.
telur tillögur ríkisstjórnarinnar um
opinberar stuðningsaðgerðir við ís-
lenzkan iðnað vera óralangt frá þvi að
geta talizt ígildi þeirrar skertu sam-
keppnisaðstöðu, sem iðnaðurinn býr
við frá 1. janúar sl. að telja. ígildi
tollalækkana hefur því enn ekki séð
dagsins Ijós.
„Við höfum orðið fyrir tveim mjög
stórum áföllum,” sagði Davíð. „í
fyrsta lagi það að tollalækkanirnar
’skyldu koma til framkvæmda og í
öðru lagi er það hækkun skattanna,
sem er mun alvarlegra mál heldur en
hitt. Þvi var heitið að við skyldum búa
við sambærilega aðstöðu og sam-
keppnisþjóðir okkar hvað þetta varð-
ar, en ekki hefur verið staðið við það.
Við höfum aldrei beðið um annað en
að fá sömu aðstöðu og útlendingar
hafa hér.”
Iðnrekendur telja sumt í þessum
aðgerðum ríkisstjórnarinnar jákvætt,
annað neikvætt, en í heild telja þeir
aðgerðirnar mjög litlar. Iðnrekendur
segja einnig að þaö sé mjög einkenn-
andi fyrir þessa fréttatilkynningu ríkis-
stjórnarinnar að litið hafi verið
ákveðið af aðgerðum en ýmislegt sé í
athugun, þ.á m. hækkun jöfnunar-
gjalds, sem þeir telja mjög jákvæða að-
gerð.
„Það er full ástæða til að bera ugg í
brjósti yfir atvinnuöryggi þeirra 12
þús. manna sem vinna í iðnaði,” sagði
Davíð, „þvi að þessar aðgerðir eru óra-
vegu frá þvi að vega upp á móti þeim
áföllum sem iðnaðurinn hefur orðið
fyrir.” Aðspurður sagðist Davíð taka
undir þá skoðun að á Islandi ríkti
„óvinsamlegt andrúmsloft gagnvart
iðnaði”.
-GAJ
LEIÐIN FRÁ BORGARSPÍTALA
TIL KÓPAVOGS STYTT Kringlumýrarbraut
„Þetta er hugsað til þess að þeir sem
koma eftir Sléttuveginum frá Borgar-
spítalanum inn á Kringlumýrarbrautina
geti beygt til suðurs án þess að fara alla
leið að Hamrahlíð,” sagði Þór Vigfús-
son, formaður Umferðarnefndar
Reykjavíkur í samtali við DB. En á
fundi horgarráðs 2. janúar sl. var
samþykkt tillaga umferðarnefndar um
gerð u-beygju á Kringlumýrarbraut
50—100 m norðan gatnamóta við
Sléttuveg.
Upphaflega var Sléttuvegurinn lagður
þvert yfir Kringlumýrarbrautina, en það
sýndi sig síðan að vera óheppilegt vegna
hinnar miklu umferðar um Kringlumýr-
arbrautina. Því var gripið til þess ráðs að
loka fyrir umferð þarna yfir Kringlu-
mýrarbraut í vestur en það hafði þá
ókosti i för með sér að nú þurfti sá er
halda vildi i suður frá Sléttuveginum
fyrst að halda alla leið að Hamrahlíð.
Þór sagði að þessi aðgerð miöaði því að
því að stytta leiðina og jafnframt að létta
á Hamrahlíðinni. Þór sagði að þessu yrði
væntanlega komið í verk strax og veður
leyfði.
-GAJ-
Rétt ofan við strætisvagninn er ætlunin að setja u-beygjuna, sem styttir leiðina frá Borgarspitala i Kópavog. DB-mynd Bj.Bj.'
i€
MILLI
ÉUA
Sólin fer hækkandi með
hverjum deginum sem
líður og litar himininn
dýrlegum litum á milli
élja. Sólina ber þarna í
Bessastaði í vestri.
DB-mynd Ragnar.
Vaxandiskákáhugi
á Austurlandi:
Trausti
sigraði í
jólahrað-
skákmótinu
Jólahraðskákmót Austurlands
var haldið á Eskifirði 28. desember
sl. Keppendur voru 14 frá
Eskifirði, Egilsstöðum, Stöðvar-
firðiogEiðum.
Tefld var tvöföld umferð og
varð röð efstu manna þcssi:
1. Trausti Björnsson.
Eskifirði 211/2 vinn
2. Gunnar Finnsson,
Eskifirði, 21 vinn.
3. Aðalsteinn Steinþórsson,
Egilsstöðum. 20 vinn.
4. -5. Viðar Jónsson,
Stöðvarfirði og
Hákon Sófuss., Eskif. 18 vinn.
6. Hjálmar Jóelsson,
Egilsstöðum 17vinn.
7. Magnús Steinþórsson,
Egilsstöðum I4vinn.
Taflfélög á Austurlandi eru með
misjafnlega miklu lífsmarki um
þessar mundir. Norðfirðingar og
Reyðfirðingar halda reglulegar
skákæfingar. Á Egilsstöðum er
dafnandi skáklíf, og Hornfirðingar
láta ekki deigan síga. Á Eskifirði
virðist erfitt að halda uppi reglu-
legum æfingum. Helzt eru vonir
bundnar við yngri kynslóðina um
skákiðkun.
Þegar á heildina er litið i Skák-
sambandi Austurlands, er ekki á-
stæða til að örvænta um vaxandi
skákiðkun og eru mörg járn í
eldinum hjá sambandinu á árinu,
sem nú eraðbyrja.
-BS.