Dagblaðið - 09.01.1979, Blaðsíða 24
Skeytamálið:
HAFNAÐISATTARBODI
RÍKISSAKSÓKNARA
—og vill láta reyna á réttmæti brottvikningarinnar f rá Pósti og síma
„Mér var boðið að Ijúka málinu
með sátt upp á hundrað þúsund króna
sekt en ég hafnaði þvi, enda vil ég að
málið fari fyrir dómstóla. Mér finnst
þetta vera veigamikil spurning um rétt
opinberra starfsmanna,” sagði fyrrv.
símritari í Reykjavík í samtali við blað-
ið i gær, en hann er sá sami og viður-
kenndi i sumar að hafa sent blaðinu
falskt skeyti um fjárhagsstuðning
norskra jafnaðarmanna við Alþýðu-
flokkinn.
Manninum var vikið úr starfi hjá
Pósti og sima um stundarsakir um leið
og Ijóst var að hann hafði sjálfur
samið skeytið og skömmu siðar var
hann látinn fara fyrir fullt og allt. „Ég
tel að uppsagnarákvæði i samningum
opinberra starfsmanna við ríkið hafi
verið túlkuð ákaflega frjálslega þegar
mér var sparkað,” sagði maðurinn í
samtalinu við DB. „Mér var sagt upp
strax og fékk aðeins hálf laun i einn
mánuð. Ég missi öll min réttindi vegna
þessa, uppsagnarfrestinn og annað. Ég
tel mig eiga inni þriggja mánaða laun
hjá ríkinu og jafnvel meira — það fer
eftir úrslitum málsins. Á þetta vil ég
láta reyna og þess vegna hafnaði ég
sáttartilboði ríkissaksóknara.”
ÓV.
Jarðborarnir Glaumur
og Narfi enn fastir:
Tjónið
nemur
milljón
ádag
— aðkallandi verkefni
á Blönduósi
Jarðborinn Narfi hefur nú verið
fastur á annan mánuð í Öngulsstaða-
hreppi og sömu sögu er að segja af jarð-
bornum Glaumi, sem hefur verið fastur
á Svalbarðseyri frá því fyrir jól. Starfs-
mönnum Orkustofnunar tókst ekki að
ná bornum upp fyrir jólaleyfi, en sam-
kvæmt upplýsingum ísleifs Jónssonar,
forstöðumanns Jarðborunardeildar,
fóru menn norður fyrir helgi og vinna
nú við losun boranna.
Sjö manns vinna við losun hvors bors,
en talið er mun erfiðara að losa um
Narfa, þar sem sjálfar borstangirnar eru
í holunni. Þessi óhöpp valda miklum
óþægindum að sögn ísleifs og fyrir utan
mikinn kostnað vegna tafa, þá er hætt
við að tæki tapist, sem eru bæði dýr og
oft er erfitt að endurnýja. Isleifur sagði
að afgreiðslufrestur væri um tveir til þrír
mánuðir á varahlutum. Hann sagði að
ekki væri ólíklegt að kostnaður vegna
þessara tafa næmi um einni milljón
króna á dag.
Næg verkefni bíða jarðboranna og
gert er ráð fyrir því að Narfi verði
sendur til Blönduóss strax og færi gefst,
en verkefni þar eru aðkallandi, þar sem
Hitavcita Blönduóss er illa sett með
vatn. Þá bíða næg verkefni fyrir báða
borana i Eyjafirði og bora verður fleiri
holur fyrir Hitaveitu Akureyrar og
einnig holur við Grenivík og Hrafnagil.
JH.
Þeir eru kankvísir ð svip, guttamir tveir, sem standa þama í „fshellinum" og gæða sér ð
dýrindis grýlukertum — sem nóg er af f þessari tfð. DB-mynd: Kristján Ingi.
Margt gerist á Isafirði:
YFIRLOGREGLUÞJONINN FLUTTUR
í LÖGREGLUUÐ REYKJAVÍKUR
Yfirlögregluþjónninn á ísafirði,
Skarphéðinn Njálsson, lét þar af störf-
um um áramótin og mun taka upp lög-
reglumannsstörf i umferðardeild lög-
reglunnar i Reykjavík. Varð þessi
breyting á með mjög skömmum fyrir-
vara en var gerð að frumkvæði og með
milligöngu dómsmálaráðherra sjálfs,
sem einnig er einn af þingmönnum
Vestfjarðakjördæmis.
Skarphéðinn var lögreglumaður í
Keflavík áður en hann tók við yfirlög-
reglumannsstarfi á lsafirði. í Keflavík
tók Skarphéðinn á sínum tíma þátt i
handtöku Guðbjarts heitins Pálssonar
og var leystur frá störfum um stundar-
sakir á meðan rannsókn þess máls stóð
yfir.
Með ráðherrabréfi fékk hann
síðan lausn frá störfum í Keflavík um
eins árs skeið, en þrátt fyrir ráðherra-
bréfið mun hann ekki hefja störf aftur
í Keflavík, heldur í lögregluliði
Reykjavíkur.
Baldur Möller ráðuneytisstjóri sagði
i samtali við DB að setning Skarphéð-
ins i yfirlögreglumannsstarfið hefði
ekki verið framlengd. „Með sam-
komulagi við hann og í góðum sáttum
hefði orðið að ráði að hann flyttist í
Reykjavíkurlögregluna.” Baldur tók
fram að ekki væri fundið að störfum
Skarphéðins sem yfirlögregluþjóns.
DB hefur heyrt að Skarphéðinn hafi
verið mjög vel látinn af borgurum á
ísafirði og að hann hafi i starfi sínu
komið mörgu góðu til leiðar. Hins veg-
ar hafi aðrir lögreglumenn á staðnum
haft horn í siðu hans.
DB náði i Skarphéðin á heimili
hans í Keflavík. Vildi hann ekkert um
þessa breytingu ræða.
-ASt.
frfálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 9. JAN. 1979.
Hóstað
fullum
hálsi
— í hörku diskó
— Samstarfsnefnd um
reykingavarnir gefur
út hljómplötu sem
kostareins ogeinn
sígarettupakki
„Reyklaus dagur” verður 23. janúar
nk. eins og DB hefur greint frá. Sam-
starfsnefnd um reykingavarnir mun af
því tilefni gefa út plötu og verður fyrsta
upplag stærra en áður hefur þekkzt með
islenzkar plötur, eða tiu þúsund eintök.
Á plötunni verða fjögur lög, eða i
raun ekki nema tvö. Á annarri hliðinni
eru tvö lög sungin og „hóstuð”, en á
hinni eru lögin spiluð, þannig að auðvelt
er að syngja og „hósta” fullum hálsi.
Lögin eru eftir Jóhann G. Jóhannsson.
Plata þessi mun kosta sama og einn
sígarettupakki eða 565 kr. Það ætti ekki
að vefjast fyrir neinum, hvort sé betri
fjárfesting „líkkistunaglarnir” eða
hljómplatan. Platan er í fjörugum diskó-
stíl og ætti engum að leiðast meðan hún
er spiluð og allra sízt eftir að sá hinn
sami hefur ákveðið að fjölga „reyk-
lausum dögum” ævi sinnar og þá jafn-
framt þeirra sem hann umgengst. -JH.
Jólagjöf
til heild-
salanna
Mikil gleði ríkir nú meðal
innflytjenda vegna þess að nú hefur
verið aflétt skyldu til að greiða inn á
geymslufjárreikning 10% af vörulánum
erlendis frá.
Á þessa innborgunarskyldu hefur
verið litið eins og hverja aðra skatt-
lagningu, sem margir hafa talið ósann-
gjarna og naumast rökstudda. Nú er
henni sem sagt aflétt. hvort sem önnur
fjárbinding kemur i hennar stað eða
ekki. -BS.
Kviknaðiíútfrá
miðstöðvarkatli
Laust eftir kl. 8 i morgun var Slökkvi-
liðið í Reykjavík kvatt að Karlagötu 3.
Þar var eldur laus í geymsluherbergi og
var talið að kviknað hefði út frá
miðstöðvarkatli í næsta herbergi, þar
sem verið var að brenna rusli. 1
geymslunni var mikið af fatnaði sem
hefur hitnað í með þeim afleiðingum að
eldur hefur kviknað. Greiðlega gekk að
ráða niðurlögum eldsins en tjón varð
töluvert af völdum reyks. -GAJ-
/yKaupið^
TÖLVUR _
I* QG TÖLVUUI
BANKASTRÆTI8
^V!I275^