Dagblaðið - 09.01.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 09.01.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979. BIADIÐ Utgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjórí: Sveínn R. Eyjóffsson. Rrtstjóri: Jónas Kristjánsson. Fróttastjórí: Jón Birgir Pétursson. RKstjómarfuNtrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjóman Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aðstoðarfróttastjóran Atli Steinarsson og ómar Valdi- marsson. Menningarmál: Aðalsteinn IngóHsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjamoson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurfls- son, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur Hallsson, Helgi Pátursson, Jónas Haraldsson, ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, BjamleHur BjamleHsson, Hörflur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurfls- son, Sveinn Þormóflsson. Skrífstofustjórí: ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞorieHsson. Sölustjórí: Ingvar Svoinsson. Drerfing arstjórí: Már E.M. Halldórsson. Rltstjóm Siflumúta 12. Afgreiflsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverhohi 11. Aflabimi blaðsins er 27022 (10 linur). Áskríft 2500 kr. á mánufli innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakifl. Sotning og umbrot Dagblaflifl hf. Síðumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf. Siflumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skerfunni 10. Viðurlögin eru úrelt Rekstur fangelsa er mjög dýr í nútíma '/J þjóðfélagi. Sem refsing hefur fangelsun takmarkað gildi, annað en að losa þjóðfé- lagið við afbrotamenn um lengri eða skemmri tíma. Uppeldisgildi fangelsunar er örugglega verra en ekkert. Fyrrverandi dómsmálaráðherra, Ólafur Jóhannesson, fól í fyrravor svonefndri Hegningalaganefnd að endur- skoða viðurlög við afbrotum, meðal annars með það í huga að auka sektir á kostnað fangelsunar og kanna jafnframt nýjar leiðir á borð við skylduvinnu og - nám. Síðastliðinn föstudag kom fram í viðtali Dagbiaðsins við Steingrím Hermannsson dómsmálaráðherra, að hann er mjög hlynntur slíkri endurskoðun. Svipuð sjónarmið komu fram í ummælum sjö dómara, sem Dagblaðið hafði viðtal við sama dag. Þjóðfélagsþróunin hefur raskað innra samræmi viður- laga við afbrotum. Kerfið lítur venjulega þjófnaði of al- varlegum augum, en umfangsmikil fjársvik og fjárdrætti ekki nógu alvarlegum augum. Þá virðist kerfið ekki líta líkamsárásir og -meiðingar nógu alvarlegum augum í samanburði við þjófnaði. Skyldutryggingar og frjálsar tryggingar valda því, að fórnardýr þjófnaðar komast sjaldnast á kaldan klaka, en árásir valda oft örkumlun. Við erum enn á sama báti og íbúar Babýlon eftir rétt- arbót Hammúrabís. Lögin miðast fyrst og fremst við að verja eignafólk gegn smákörlum, en sinna því síður að verja almenning gegn hákörlum á yfirstéttarplani í fjár- málum. Tilgangslítið er að fylla fangelsi af smáþjófum. Þar læra þeir bara listirnar hver af öðrum og herða hver ann- an upp í að halda áfram á sömu braut. Þar fyrir utan er sennilegt, að þjóðfélagið hafi meiri kostnað af fangelsun- inni en afbrotunum. Auknar sektargreiðslur í stað fangelsunar koma ekki að gagni á þessu sviði. Afbrotamennirnir geta engar sekt- ir greitt. Á þessu sviði kemur því mjög til greina að reyna nýjar leiðir á borð við skylduvinnu og skyldunám. Öðru máli gegnir um síbrotamenn í morðum, nauðg- unum og öðrum líkamsárásum. Þá menn þarf þjóðfélag- ið að losa úr umferð á varanlegan hátt. Það gerist bezt með sem lengstri fangelsun. Hár kostnaður við fangelsun má ekki fæla frá löngum fangelsisdómum fyrir endurteknar líkamsárásir. Fangelsi eiga fyrst og fremst að vera fyrir árásarmenn, enda eru þeir ekki svo margir, að heildarkostnaðurinn þurfi að vera umtalsverður. Þriðja flokkinn skipa svo stórþjófarnir í hvítu skyrtun- um. Þeir hafa litla áhættu af fjársvikum og fjárdrætti. Kerfið hefur ekki mannafla og kunnáttu til að fást við þá. Þar að auki eru viðurlög oftast lægri en samansafn- aður verðbólgugróði af hinu illa fengna fé. Á þessu sviði þarf í mörgum tilvikum að vera unnt að hækka og jafnvel margfalda sektargreiðslur. Þar á ofan þarf í auknum mæli að vera unnt að beita fangelsun, þótt líka verði að hafa í huga, að hvítskyrtungar eiga auðvelt með að afla sér læknisvottorða um, að þeir þoli ekki fangelsisvist. Mestu máli skiptir þó, að rannsóknaraðilar og dóm- stólar fái aðstöðu til að fjalla hratt og vel um fjársvik og fjárdrætti. Við þessi embætti þarf að ráða marga endur- skoðendur og viðskiptafræðinga, sem kunna til verka. Mikilvægt er, að Hegningarlaganefnd hraði störfum sínum og taki tillit til sjónarmiða á borð við þau, sem hér hafa verið sett fram. Taiwan veröur ekki sett út í hom —fyrir því virðist haf a verið sett trygging þegar stjórnmálasamskipti Bandaríkjanna og Kína voru ákveðin Hinn fasti hópur fréttamanna sem fylgir bandarískum stórmennum, kom nýlega til Taiwan til að fylgjast með störfum þeirrar opinberu nefndar sem stjórnin í Washington sendi til að ganga frá ýmsum jnálum vegna stjórn- málaslita landanna. Sannarlega óvenjuleg vinnubrögð við stjórnmála- slit enda eru stjórnmálaslit Bandarikj- anna gagnvart Taiwan óvenjuleg og ber ekki að með sama hætti og venju- legt er i slíkum tilfellum. Tyrsta frétt- in. sem fréttamennirnir sendu frá Taiwan var sú að um það bil tíu þúsund mótmælendur fleygðu eggjum, tómötum og grjóti að sendi- nefndinni, þegar hún steig frá borði á flugvellinum við Tapei, höfuðborg landsins. En fréttamennirnir hugleiddu lika hver yrðu örlög þessarar eyjar út af ströndum Kína. Mundi herlið Peking- stjórnarinnar gera innrás eða mundi Taiwan sameinast meginlandinu aftur. Fyrir þessu eru litlar líkur, i það minnsta í bili. Her stjómar Kína er að öllum likindum nógu öflugur til sliks eða þá að her hinna svokölluðu þjóð- ernissinna á Taiwan er of öflugur. Um annars konar sameiningu verður heldur ekki að ræða á meðan Chiang Ching-Kuo forseti heldur völdum á ERLEND MÁLEFNI Gwynne Dyeer Taiwan. Hann er sonur Sjang kæ Sjekk fyrrum forseta eyjarinnar og var foringi þjóðernissinna, þegar þeir urðu að flýja af meginlandinu árið 1948. Mundi Taiwanstjórn halla sér meira að Sovétríkjunum til að fá þar þá vernd gegn Kínverjum, sem þeir teldu sér nauðsynlega. Skoðun viðstaddra fréttamanna var nær samhljóða um þetta efni. Möguleikinn fyrir Taiwan- stjórn á að beita „Rússagrýlunni” gagnvart stjórninni í Washington væri ekki lengur fyrir hendi. Sumir töldu reyndar einnig að sá möguleiki á að Taiwan snúi sér til Sovétríkjanna hafi einmitt verið hvati fyrir Kinverja að ganga formlega frá stjórnmálasam- skiptum við Bandarikin hið fyrsta. Að sjálfsögðu voru aðrar ástæður fyrir því að skyndilegur hraði komst á frekari samskipti Kina og Sovétrikj- anna núna eftir um það bil fimrn ára hlé, sem varð eftir að Nixon, fyrrum forseti Bandaríkjanna, fór í heimsókn til Kina. Þar má meðal annars nefna að Kínverjar sáu fram á að styrjöldin i hinu gamla Indókína var að gerast al- varleg. Sá möguleiki er meira að segja fyrir hendi að Kina dragist inn í átökin beint. þá ekki aðeins við herlið Viet nama eitt heldur einnig hina sovézku stuðningsmenn þeirra. Vegna þessa var nauðsynlegt fyrir Kinverja að semja hið skjótasta við vestræn ríki og þá fyrst og fremst við Bandarikin. Þar með mundu koma möguleikar að nýrri tækni og ýmsum fjárfestingum erlendis frá, sem Kina þarfnast svo mjög. Á það ekki sizt við Brjóta tryggingafélögin daglega hegningarlögin? — f viðskiptum sínum og tjónþola Fyrst lenda menn i árekstri, en siðan stilla tryggingafélögin þeim upp við vegg. Misnota tryggingafélögin svo aðstöðu sína, að það varði við lög? Fyrir nokkrum vikum vakti það mikla athygli, að maður nokkur var kærður — og stóð jafnvel til að hneppa hann í gæsluvarðhald — fyrir að hafa keypt hús í Reykjavík á um það bil hálfvirði, og var kæruástæðan sú, að maðurinn hefði notfært sér „bágindi” eða „einfeldni” seljandans, eða eitthvað i þá átt, til þess að kaupa eignina á vildarkjörum. Það var með öðrum orðum talið, að seljandinn hefði verið í klipu, sem kaupandinn hefði notfært sér — og grætt vel á. í verðbólguþjóðfélaginu lenda margir í klípu út af fjárskorti, en einnig veldur verðbólgan því, að menn stórtapa á að eiga útistandandi fé. Þannig er það hagstæðara að gefa eftir 25% skuldar gegn því að fá greiðslu strax en að fá fulla greiðslu með vöxt um eftir I—2 ár. Dómarar í eigin sök Þegar menn verða fyrir því óláni að lenda í árekstri á bifreiðum sínum, kemur ævinlega til kasta tryggingafé- laga um uppgjör tjónanna. Tryggingafélögin láta athuga skýrsl ur og skjöl vegna árekstranna og koma svo með úrskurð sinn um bótaskyld- una. Auðvitað eiga báðir aðilar sök í mörgurn árekstrum, en oftast er sök annars svo miklu meiri, að ósann- gjarnt er að fella skaðabótaskyldu á gagnaðilann. Þó leyfa tryggingafélögin sér stundum aðgera slíkt. Eins eru dæmi um að menn treysti ekki dómi tryggingafélaganna, þótt réttur reynist; menn þessir eru sann- færðir um að þeir sjálfir, en ekki trygg- ingafélagið, fari með rétt mál. Þeir eru þá lika með hin gömlu sannindi í huga, að „enginn er dómari í eigin sök", og þvi hljóti tryggingafélagið að hugsa meira um sína eigin buddu en buddu tjónþolans. Dæmigert er i svona deilum, að tryggingafélagið bjóði að bæta 75% tjónsins, er. tjónþolinn vilji ekki sætta sig við minna en fullar bætur. Góður „bissniss" tryggingafélaganna Tryggingafélagið situr fast við sinn keip. Leó E. Löve Það býður að borga 75%, en ekki krónu umfram það. Vilji maðurinn meira, verður hann að fara í mál, er lokasvar tryggingafélagsins. Manninum þykir þetta leitt, hann er að vonum óánægður með að eiga tækum ráðum. Hann svarar þvi til- boði tryggingafélagsins með þessum orðum: „Gott og vel. Ég tek þessi 75% og fer svo í mál vegna afgangsins, og það mál skal ég vinna, að mér heilum og lifandi.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.