Dagblaðið - 09.01.1979, Side 13

Dagblaðið - 09.01.1979, Side 13
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1979. 13 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Segja ekki f rá Víkingsmálinu Það hefur vakið athygli Íslendinga i Sviþjóð að sænsku blöðin hafa ekkert fjallað um dóm aganefndar alþjóðahandknattleikssambandsins gegn Vikingi, þar sem Vikingum var vikið úr Evrópukeppninni vegna þess að tvær rúður brotnuðu i Ystad nóttina eftir leik Ystad og Vikings 16. desember sl. Ekkert blaðanna — utan eitt, sem segir frá málinu 1 tveimur linum — sér ástæðu til að geta um hinn stranga dóm, hinn strang- asta, sem um getur i handknattleik, sem Svíinn Curt Wadmark, formaður aganefndar, stóð að og tók upp hjá sjálfum sér að kæra og dæma Vikinga. Ken Read sviptur brun-sigrinum Kanadiski brunmeistarinn Ken Read, sem varð fyrstur i bruni heimsbikarsins i Morzine i Frakklandi á laugardag, var 1 gær sviptur sigri sinum, þar sem keppnisbúningur hans samræmdist ekki reglum al- þjóðaskiðasambandsins. Félagi hans frá Kanada, Dave Murrey, sem varð í 14. sæti i keppninni, var einnig af sömu ástæðu dæmdur úr leik. Prófun á rannsóknarstofú leiddi í ljós að búningar þessara keppenda veittu minni vindmótstöðu en leyfi- legt er samkvæmt reglum FIS eftir þvi, sem Franco Kasper, einn af stjórnarmönnum FIS, skýrði frá i Cras-Montana i Sviss i gær. Röð keppenda var breytt eftir þessa ákvörðun FIS og Steve Podborski, Kanada, útnefndur sigurvegari i brunkeppninni á laugardag. Ken Read missti 25 stig og hefur þvi ekki lendur for- ustu i brunkeppni heimsbikarsins. Peter Múller, Sviss, er efstur með 42 stig. Read hefur 40 stig og Herbert Plank, Stalíu, 35 stig. Podborski er i fjórða sæti með 28 stig. Moser komin í efsta sætið „Ég er hissa en mjög ánægð — og þessi sigur er þýðingarmeiri fyrir mig en þegar ég vann i Furano i Japan 1977,” sagði Regina Sackl, 19 ára austurrisk stúlka, eftir að hún sigraði f svigi heimsbikarsins i Les Gets i Frakklandi i gær. Regina Sackl, sem nú keppir sjötta ár sitt í heims- bikarnum, vann þarna sinn annan sigur i keppni heimsbikarsins. 1 öðru sæti varð Perrione Pelan, Frakklandi, sem var talin sigurstranglegust fyrir keppnina, og i þriðja sæti varð Anna-Maria Moser, Austurríki. „Ég er afar ánægð með að ná þriðja sæti og hljóta 15 stig í svigkeppni — en hins vegar hef ég áhyggjur af því hve litið ég fæ af stigum i stórsvigi. Venjulega hef ég ekki átt í erfiðieikum með það,” sagði Anna- María eftir keppnina. Svigið er hennar veikasta grein en í gær var hún þó með beztan tíma eftir fyrri um- ferðina. í síðari umferðinni gekk henni ekki eins vel þó þriðja sætið væri í höfn. Við það komst hún í efsta sætið í stigakeppni heims- bikarsins — náði Mariu-Theresu Nadig, Sviss, að stigum. Báðar hafa 90 stig. 1 þriðja sæti er Hanni Wenzel, Lichtenstein, með 81 stig. Perrinc Pelen hefur 51 stig, Christa Kinshofer, Vestur-Þýzkalandi, 50 stig. Regina Sackl 47 stig og Claudia Giordani, Ítalíu, 33 stig. Meistaramót TBR Fyrsti hluti „Mcistaramóts TBR 1979” fer fram sunnudaginn 14. janúar nk. Keppt verður i cinliðaleik; karla og kvenna I badminton f eftirtöldum flokkum: Meistaraflokki A-flokki B-flokki Mótið fer fram I húsi TBR, Gnoðarvogi 1 og hefst það kl. 14.00. Þátttaka er öllum heimil, sem orðnir eru 16 ára, eða verða þá á árínu. Þátttökugjald er kr. 2600. Þátttökutilkynningum skal skila til TBR f síðasta lagi miðvikudaginn 10. jan. nk. og skulu þátt- tökugjöld fylgja. Þeir verða I eldlínunni I kvöld I Randers — tslendingar gegn Dönum en Pólverjar leika gegn heimsmeisturum Vestur-Þjóðverja. Myndin að ofan er frá leik tslands og Póllands á laugardag. Þorbjörn Guðmundsson, lengst til hægrí, hefur reynt markskot en tókst ekki að skora að þessu sinni. Ólafur H. Jónsson er lengst til vinstri og Bjarni Guðmundsson I miðið. Þrír af máttarstólpum islenzka liðsins. Rúmar fimm minútur af leik og staðan 2—0 fyrír ísland eins og sjá má á Ijósatöflunni. DB-mynd Bjarnleifur 21 lið f meistaraflokki, karla í bikarkeppni HSÍ — Fyrsta umferð á að vera lokið fyrir 21. janúar. 13 lið í meistaraf lokki kvenna og 14 lið í 2. flokki karla „Það tilkynntu 21 lið þátttöku i bikar- keppni Handknattleikssambandsins f meistaraflokki karla — og lcikjum f fyrstu umferðinni á að vera lokið fyrir 21. janúar,” sagði Ólafur Aðalsteinn Jónsson, formaður mótanefndar HSÍ, þegar DB ræddi við hann I morgun. í fyrstu umferðinni sitja liðin úr 1. deild yfir og auk þess þrjú önnur iið, KA, Stjarnan og UBK. Einum leik er þegar lokiö í 1. umferð- inni. Vestmannaeyjaliðin Þór og Týr léku saman og urðu úrslit þau, að Týr sigraði með 19—13. Sá sigur kom tals- vert á óvart því Þór er meðal efstu liða í 2. deild en Týr í 3. deild. Aðrir leikir í 1. umferðinni eru. KR-Þór, Akureyri. UMFN-Þróttur, Reykjavik Grótta-Afturelding Akranes-Ármann og eins og áður segir á þessum leikjum að vera lokið fyrir 21. janúar. Þá verður dregið til annarrar umferðar — 16 liða leika í 2. umferð. Átta leikir. 1 bikarkeppni meistaraflokks kvenna tilkynntu 13 lið þátttöku. í fyrstu um- ferðinni sitja Fylkir, KR og Fram yfir. Einn leikur hefur þegar farið fram. I# Valur sigraði ÍR 24—10. Aðrir leikir i 1. umferð eru Stepney til DallasTornado Alex Stepney, hinn 35 ára mark- vörður Manchester United, sem lék hér á landi 1977 með stjörnuliði Bobby Charlton, hefur gert tveggja ára samning við bandaríska liðið Dallas Tornado. Hann mun halda til Texas 15. febrúar. Stepney lék á sjötta hundrað leiki með Man. Utd. Var Evrópumeistari með fé- laginu — og hefur leikið I enska lands- jliðinu. UMFG-FH Þór, Akureyri-UBK ÍBK-Vikingur Haukar-Þróttur, Reykjavík Þessum leikjum á einnig að vera lokið fyrir 21. janúar. í bikarkeppni 2. flokks karla tilkynntu 14 lið þátttöku. 1 fyrstu umferð leika Valur-Þróttur, Rvík Haukar-Stjarnan Vikingur-KR FH-Grótta Fylkir-HK Ármann-UBK en yfir í 1. umferðinni sitja Fram og ÍR. Sama gildir um þessa leiki og í meistara- flokki karla og kvenna. Þeim á að vera lokiðfyrir 21. janúar. Þá má geta þess, sagði Ólafur Aðalsteinn, að þar sem Leiknir úr Reykjavík hefur ekki mætt með þriðja flokk sinn í karlaflokki i íslandsmótinu hefur stjórn HSÍ lagt til við mótanefnd að UMF Selfoss fái að leika i stað Leikn- is í 3. flokki karla. Mótanefnd HSÍ hefur orðið við þeirri ósk og hefur verið ákveð- ið að Selfoss taki sæti Leiknis. Heima- leikir Selfoss fara fram í íþróttahúsinu á Selfossi. Þá leiki, sem Leiknir átti að vera búin að leika mun mótanefnd setja á aftur við fyrstu hentugleika. Handbók Handknattleikssambands Íslands 1978—1979 er komin út. Sam kvæmt bókinni eru þrír leikir í Laugar- dalshöll í kvöld í íslandsmótinu. Kl. 20.00 leika Ármann og FH í 3. flokki karla, síðan Valur og Haukar í sama flokki. Kl. 21.10 leika Ármann og Stjarnan í 2. deild karla. Svíinn Björn Borg, sem sigraði þriðja árið i röð 1 Wimbiedon-keppninni i tenn- is í fyrra, var í gær tilnefndur „leikmaður ársins 1978” af sambandi atvinnutennis- leikara. Bandaríkjamaðurinn John McEnroe, sem sigraði Björn á sænska meistaramótinu og er eini tennisleikar- inn yngri en Bjöm, sem sigrað hefur Sví- ann, var kjörinn „nýliði ársins”. Teningi varpað og 195 þúsund fyrir 11 rétta í 20. leikviku getrauna þurrkaðist 3. umferð cnsku bikarkeppninnar svo til alveg út vegna snjóa og kulda. Aðeins einn leikur á seðlinum fór fram, Leicester — Norwich, en teningurinn var látinn ráða hinum 11 merkjunum. Vinningsröðin varð þá: XIX — 111 — 1XX-21X. Ensku getraúnafyrirtækin hafa þann hátt á, að falli niður 25 leikir af 56 leikj- um, sem eru á „Treble chance" seðlum þeirra, þá koma saman fimm menn undir forsæti Boots lávaröar i hótelher- bergi í Lundúnum og ákveða hvaða merki komi upp: Heimasigur — marka- laust jafntefli — marka jafntefli — útisigur. Á laugardag ákvað nefndin þessi merki við leikina, sem eru á íslenzka seðlinum: XII — XXI — 1X2 — XX2. Viku áður var nefndin reiðubúin til starfa, en „aðeins” 24 leikj- um var frestað þann laugardaginn, og þess vegna ekkert aðhafzt, og ensku blöðin skrifuðu um nauðsyn þess að nefndin yrði sett fyrr í gang, en nú er, t.d. við lOeða 15 frestaða leiki. Þetta er versta útreið, sem enska knattspyrnan hefur . fengið af hálfu veðurguðanna i 15 ár, en í ársbyrjun 1963 þurrkuðust út margar umferðir í deildakeppninni. Versta útkoman var þó fyrsta friðarveturinn, 1945—1946, er flugvélar voru notaðar til þess að varpa kolum niður á fjölmörgum stöðum á Englandi. Á næsta getraunaseðlinum hjá íslenzkum getraunum — í 21. leikviku — eru eftirtaldir leikir úr ensku deilda- keppninni. Arsenal-Nottm. Forest Aston Villa-Ipswich Bristol City-Tottenham Chelsea-Coventry Derby-Bolton Leeds-Man. City Liverpool-Birmingham Man. Utd.-QPR Middlesbro-Everton Norwich-WBA Wolves-Southampton Sunderland-C. Palace P Baltic-cup „litla heimsmeistarakeppnin” hefst í dag: Islenzka landsliðið leikur við það danska f Randers Vestur-Þjóðverjar án fimm heimsmeistara sinna. Lars Bock hættur í landsliði Handknattleikskeppnin mikla Baltic-cup — sem oft hefur verið nefnd „litla heimsmeistarakeppnin” hefst i Danmörku 1 dag. Sjaldan eða aldrei hefur keppnin staðið betur undir nafni en að þessu sinni þvi fjórar efstu þjóðirnar frá siðustu heimsmeistarakeppni, Vest- ur-Þýzkaland, Sovétríkin, Austur- Þýzkaland og Danmörk taka þátt I keppninni. Auk þess Pólland, Sviþjóð, Ísland og B-lið Danmerkur. Hér verður um stórkeppni að ræða, sem fylgzt verður með 1 handknattleiksheiminum og gifurlegur áhugi er á keppninni i Dan- mörku. Tugþúsundir aðgöngumiða þegar seldir. Þjóðunum í keppninni er skipt 1 tvo forriðla. í A-riðli leika Austur-Þjóðverj- ar, Sovétríkin, Svíþjóð og B-lið Dan- merkur. 1 B-riðli heimsmeistarar Vestur- Þjóðverja, Danir, Pólverjar og íslend- ingar. Leikir í A-riðlinum verða í Odense, Esbjerg, Velje og Nyköping — en i B- riölinum verður leikið í Randers, Árós- um, Viborg, Fredericia og Hammel. Keppni í riðlunum, þar sem allir leika við alla, lýkur á fimmtudag. Á föstudag verður fri en leikið um sætin frá 3.-6. i Kalundborg á laugardag. Á sunnudag verður úrslitaleikurinn i Bröndby-höll inni í Kaupmannahöfn og þá jafnframt leikið um neðsta sætið í keppninni. Keppnin hefst eins og áður segir í dag Þá verða fjórir leikir á dagskrá Danmörk—ísland leika kl. 18.00 í Rand ers og strax á eftir leika Vestur-Þjóðverj ar og Pólverjar á sama stað í B-riðlinum A-riðlinum verða tveir leikir í Óðinsvé- um. Kl. 18 — að íslenzkum tíma — leika Austur-Þýzkaland og Danmörk B og strax á eftir Sovétríkin og Svíþjóð. Á miðvikudag heldur keppnin áfram. Þá leika Sovétríkin og Danmörk B i Es bjerg, og Austur-Þýzkaland—Svíþjóð í Vejle. í B-riðlinum leika Danmörk og Pólland í Árósum og lsland—Vestur Þýzkaland i Viborg. Allir leikirnir hefj astásamatíma, kl. 18.30. Á fimmudag lýkur keppninni í forriðl inum. Þá leika Sovétrikin og Austur Þýzkaland i Óðinsvéum, og Svíþjóð og Danmörk B í Nyköping í A-riðli. í B-riöli leika Vestur-Þýzkaland og Danmörk í Fredericia og ísland—Pólland í Hammel. Allir leikirnir hefjast kl. 18.30. Efstu löndin i hvorum riðli leika svo til úrslita í keppninni. Liðin nr. 2 í riðlun- um leika um þriðja sætið — liðin nr, rrjú um fimmta sætið í keppninni, og neðstu liðin í riðlunum um sjöunda sætið. Landsliðsþjálfari Vestur-Þýzkalands Vlado Stenzel frá Júgóslavíu, hefur átt í erfiðleikum með lið heimsmeistaranna. Fimm af jjeim leikmönnum, sem tryggðu Vestur-Þýzkalandi heimsmeist- aratitilinn fyrir ári í Danmörku, geta ekki leikið í Baltic-cup. Það eru fyrirlið- inn Horst Spengler, sem er í leikbanni. Kurt Kluhspies, Erhard Wunderlich, Arno Ehret og Manfred Freisler. Sá síð- astnefndi skoraði ekki mark á HM í fyrra en hinir fjórir skoruðu 57 af 105 mörkum Vestur-Þýzkalands í keppninni. Án þessara manna eru ekki taldar mikl- arlíkuráað Vestur-Þýzkaland verði i Fimmefstir ogjafniríHastings Eftir níu umferðir á skákmótinu í Hastings eru fimm skákmenn jafnir i fyrsta sæti með 6 vinninga. Eru það þfir Andersson frá Svíþjóð, Biyiasas frá Kan- ada, Csom, Ungverjalandi, Kochiev, Sovétrikjunum, og Speelman, Bretlandi. Hinir tveir fyrstnefndu hafa setið yfir. Christiansen frá Bandaríkjunum er með 5 vinninga og biðskák, siðan kemur Lein (flóttamaður frá Sovétríkjunum bú- settur í Bandaríkjunum) sem er með 5,5 vinninga og hefur setið yfir. efsta sætinu í keppninni — einkum er slæmt fyrir liðið að vera án Arno Ehret, sem hefur átt stórleiki með Hofweier í vetur. Vestur-þýzka liðið hefur ekki tapað landsleik frá því það varð heims- meistari. Þá verða Danir einnig án snjallra leik- manna. Lars Bock, sem var svo erfiður fyrir íslenzka landsliðið í landsleikjunum í Laugardalshöll i desember leikur ekki í danska landsliðinu. Hefur tilkynnt landsliðsþjálfaranum Leif Mikkelsen að hann sé hættur að leika með danska landsliðinu. Bock sagði í því tilefni: „Síðustu átta mánuðina hef ég þrisvar verið skorinn í hné og milli jóla og nýárs tók ég þá ákvörðun að leika ekki framar með danska landsliðinu.” Bock, sem leikur með Holte og var fyrirliði danska landsliðsins hér í desémber og aðal- maður, skýrði frá þessu í samtali í danska útvarpinu. Hann er aðeins 24ra ára og hefur samt leikið 80 landsleiki. Þessi ákvörðun hans — ef hann þá stendur við hana i allri framtíð — er talin mikið áfall fyrir danskan hand- knattleik. Þá verða Danir einnig án Heine Sörensen. Árósa-KFUM, en hins vegar koma sérkir leikmenn í danska liðið frá því það lék hér á landi. Þar má nefna fyrirliðann Anders-Dahl Nielsen og skotmanninn mikla Mikhael Berg. t stað þeirra Bock og Sörensen valdi Mikkelsen einn mann úr B-liðinu i A-liðið. Það er Kim Vestergaard, AGF. Per Winther, Álaborg, dró sig til baka úr B-liðinu en nýir menn þar eru Benny Nielsen, AGF og Jan Jacobsen, FRI. Islenzku landsliðsmennirnir héldu til Danmerkur i gær nema þeir Axel Axels- son, Brynjar Kvaran, Stefán Gunnars- son og Þorbjörn Jensen, sem héldu utan í morgun. Komust ekki með flugvélinni í gær vegna þrengsla. Axel er enn slæmur í baki og í gær var talið vafasamt að hann gæti leikið gegn Dönum í kvöld. Hins vegar hefur Ólafur H. Jónsson náð sér eftir flensun;, og bætizt í hóp þeirra leikmanna, sem náðu jafnteflinu við Pólverja í Laugardalshöll á sunnudag. hsim. BRISTOL ROVERS Í4. UMFERD Bristol Rovers úr 2. deildinni ensku tryggði sér rétt i fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar i gærkvöld, þegar liðið sigraði Swansea 1—0 1 Wales. Það er á leikvelli Swansea. Steve White, sem var valinn 1 lið Bristol Rovers 1 stað Paul Randall, sem nýlega var seldur til Stoke, skoraði eina mark leiksins á sjöundu minútu með hörkuskoti. Swansea, með alla gömlu Liverpool- garpana sótti mjög í leiknum, en tókst ekki ’ að skora. Markvörður Rovers, Martin Thomas, kornungur leikmaður, átti stjörnuleik — bjargaði hvað eftir annað á undraverðan hátt. 1 fjórðu um- ferð leikur Bristol Rovers á heimavelli við annað hvort Charlton eða Maid- stone United. Margir leikir, sem fresta varð á laug- ardag, hafa verið settir á i kvöld. Þar má nefna Birmingham—Burnley, Bright- on—Wolves, Bristol City—Bolton, Charlton—Maidstone, Coventry—West Bromwich, Darlington—Colchester, Fulham—QPR, Hartlepools—Leeds, Middlesbrough—C. Palace, Newport— West Ham, Notts County—Reading, Orient—Bury, Preston—Derby og Wimbledon—Southampton. 1 gær var dregið til fjórðu umferðar en þar sem aðeins þremur leikjum er lokið úr þeirri þriðju segir drátturinn lítið. Þó má geta þess að ef bikarmeistarar Ips- wich sigra Carlisle á morgun leika þeir á heimavelli við annað hvort Orient eða Bury. Liverpool fær heimaleik við annað hvort Millwall eða Blackburn í 4. um- ferð ef liðið sigrar Southend úr 3. deild i Southend á morgun. Þá fær Leeds heimaleik ef liðið vinnur Hartlepool við annað hvort Coventry eða WBA svo þar stefnir í stórleik. Ef Man. Utd. vinnur Chelsea á morgun fá liðin aftur Lund- únalið í 4. umferð — annað hvort ful- ham eða QPR og leikið verður í Lund- únum. Þá má geta þess, að fá þvi var skýrt i Hamborg i gær að Kevin Keegan, enski landsliðsinnherjinn, mundi leika með HamburgerSV næsta leiktimabil. Golfsveíflan á sjónvarpsskermi! hinn vinsæli golfkennari John Nolan opnar í dag kennslu- og æfingaaðstöðu Hinn vinsæli enski golfkennari John Nolan, sem búsettur hefur verið hér á landi undanfarið, opnar 1 dag kl. 16 golf- skóla 1 nýja Fordhúsinu i Skeifunni (efstu hæð). I fyrra var Nolan einnig með golf- kennslu á sama stað og var hún mjög vel sótt af kylfingum. Nolan hefur bætt aðstöðu sina mikið frá i fyrra og munar þar mest um video- tækið sem hann hefur fengið til liðs við sig við golfkennsluna. Nú geta kylfingar komið og séð sina eigin golfsveiflu á sjónvarpsskermi og ef eitthvað þarf að lagfæra stöðvar Nolan tækið, vanda málið er rætt og siðan lagað. Ættu kylfingar því á stuttum tima að ná réttri og góðri sveiflu. Hver klst. í video-tæk- inu kostarkr. 6.200. Þó video-tækið sé kannski frekar fyrir þá sem komnir eru vel af stað í iþróttinni, er alveg nóg að gera fyrir þá sem eru að byrja eða stutt á veg komnir. ÖIl undirstöðuatriði eru kennd og síðan er hægt að æfa það á staðnum sem kennt er.Einnig geta menn komið og æft sig eingöngu. Hálftíma kennsla kostar ki 2.300 en fyrir 15 ára og yngri kostar kennslan kr. 1.000. Æfingatíminn kostar kr. 1000 og hálftimi kr. 700. Einnig er hægt að fá vikukort og kosta þau kr. 4.000. Golfkennslan og æfingaaðstaðan eru opin virka daga frá kl. 16 til 22.30 og um helgarfrákl. 9 til 18.30. Að lokum benti Nolan á að nú væri rétti tíminn að hefja æfingar svo kylfing- ar eyddu ekki þessu stutta sumri sem er hér á landi við að komast í æfingu. Kylfingar, dustið af kylfunum og drífið ykkur i golfskólann. -HBK. Utskýrt fyrtr fréttamönnum hvernig máiin ganga fyrir sig inn á skerminn. DB-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.