Dagblaðið - 29.01.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979.
5
EKKERTINNANLANDS-
FLUG VAR UM HELGINA
— og skæruhernaði beitt þessa viku
Verkfall hjá
flugmönnum
Flugfélagsins:
l -
Verkfall Félags íslenzkra atvinnu-
flugmanna hófst kl. 19 á laugardags-
,kvöld og því lauk kl. 8.00 i morgun,
þ.e.a.s. fyrstu lotu þess.
Innanlandsflug lá því alveg niðri
um helgina hjá Flugfélagi Islands en
millilandaflugi hefur verið haldið uppi
af Arnarflugi. Þó voru felldar niður
tvær fraktferðir til Kaupmannahafnar
og London.
Flug verður með eðlilegum hætti i
dag en á þriðjudag hefst nokkurs
konar skæruhernaður Fí. Þann dag
verður ekkert flogið til Vestfjarða. Á
miðvikudag verða felldar niður ferðir
til Kaupmannahafnar og Glasgow og í
innanlandsflugi falla niður ferðir til
Hornafjarðar og Vestmannaeyja. Á
fimmtudag verður ekki farin kvöld-
ferðin til London og flug til Egilsstaða
og Norðfjarðar verður fellt niður. Á
föstudag liggur allt millilandaflug niðri
á B-727 og ekki verður flogið til Akur-
eyrar, Sauðárkróks og Húsavíkur. Á
laugardag verður allt flug eðlilegt fram
til kl. 19.00 en þá hefst verkfall og
liggur þá niðri allt flug á vegum Flug-
félags Islands fram til kl. 8.00 á þriðju
dagsmorgun. Kristján Egilsson hjá
FÍA sagði i samtali við DB í gær, að
frekari aðgerðir hefðu ekki verið
ákveðnar en menn vonuðust til að
samkomulag næðist sem allra fyrst,
þannig að ekki þyrfti að grípa til frek-
ari aðgerða. Kristján sagði að alger
samstaða hefði verið innan félagsin.s
um þessar aðgerðir.
- GAJ
Fjöldi fólks notaði góða veðrið i gærdag tii
að heimsækja Sædýrasafnið við Hafnar-
fjörð. Þar virðast dýrin una sér hið bezta
þrátt fyrir efasemdir sumra dýraverndunar-
manna, jafnt dýr úr hitabeitinu sem og þau,
sem koma úr köidum höfútn. Háhyrning-
arnir voru að visu í einhverju letikasti,
þegar ijósmyndara Dagblaðsins bar að
garði, en sæljónin „léku við hvurn sinn
fingur”. Á meðan tóku ljónin ungu hraust-
lega til matar síns og hámuðu í sig sunnu-
dags„steikina”. Ekki var annað að sjá en
selunum líkaði lífið hið bezta, þrátt fyrir að
kalt væri í veðri.
ÐB-myndir Hörður.
KAMPAKÁTIR SELIR OG HÁ-
HYRNINGAR í LETIKASTI
Teg. 10 (Reimaðir)
Litir: Brúnt eða Natur leður
Stœrðir: Nr. 35—46
Verðkr. 14.495.-
Skóverzlun Póstsendum Kirkjustræti 8
Þorðar Paturssonar víð Austurvöii — sími 1418i