Dagblaðið - 29.01.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 29.01.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979. I 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Valsmenn komnir í efsta sæti eftir nauman sigur á KR-ingum Leikur Vals og KR i úrvaisdeildinni i gærkvöldi bar öil einkenni úrslitaleiks og er þá nánast sama hvort um fyrstu mín- útur leiksins eöa þær siðustu var að ræða. Spennan og taugaóstyrkurinn réði miklu og svo miklu i KR-liðinu að þeir náðu aldrei að sýna það sem i þeim hVr. Reyndar var sigur Vals liklega sigur sterkari varnar auk þess sem Tim Dwyer átti mjög góðan leik og hirti ótrúlega mörg fráköst bæði i vörn og sókn. KR-ingar náðu fjögurra stiga forskoti áður en Valsmenn komust á blað en stigin létu standa á sér í byrjun leiksins og var það einkum vegna þess að lang- skot beggja liða brugðust að mestu og báðum liðum gekk erfiðlega að komast í gegnum varnirandstæðinganna. Mikið var einnig um mistök og til dæmis er það ekki á hverjum degi, sem bæði John Hudson og Jón Sigurðsson fé- lagamir úr KR missa boltann til and- stæðinga beint af fingrum sér. Það gerðist þó í leiknum í gær með nokkurra minútna millibili i fyrri hálfleiknum. Jón Sigurðsson var einnig svo óheppinn að fá á sig þrjár villur fljótlega i leiknum og ' mátti því gæta sin mjög en tókst að forð- Eyja-Þór vann Akureyrar-Þór Þór, Vestmannaeyjum, skauzt að hiið KR og Ármanns i efsta sæti 2. deildar með sigri á Þór, Akureyri, í Iþrótta- skemmunni á Akureyri á laugardag, 22- 20. Þórarar, eins og ávallt er sagt i Eyj- um, höfðu undirtökin lengst af, sterkari aðilinn og sanngjarn sigur. Það var jafnræði með liðunum framan af en undir lok fyrri hálfleiks seig Þór, Eyjum, framúr og hafði yfir í leikhléi, 13-10. Sá munur hélzt lengst af í síðari hálfleik en þó munaði litlu að Þór, Akureyri, tækist að jafna. Náði að minnka muninn I eitt mark en missti mann fyrir að mótmæla dómum. Það reyndist Akureyrarliðinu dýrkeypt því Þór missti 4 leikmenn út af fyrir að mót-1 mæla dómum. Þá fór Arnar Guðlaugs- son illa að ráði sínu, skaut allt of mikið. Sigurður Sigurðsson og Arnar Guð- laugsson skoruðu mest fyrir Akureyrar liðið. 6 mörk hvor, Sigtryggur Guðlaugs- son 3 mörk, Andrés Bridde skoraði mest fyrir Eyjamenn. 6 mörk, Hannes Leifs- son og Ásmundur Friðriksson 4 mörk hvor. Þeir Árni Tómasson og Gunnar Kjartansson dæmdu — ráku 8 leikmenn Þórs Akureyri út af, 2 Eyjamenn. - St.A. I ast fimmtu villuna þar til nokkrar sek- úndur voru eftir og úrslit leiksins I raun ráðin. Valsliðið, sem að þessu sinni lék án Þóris Magnússonar hafði yfirhöndina i lok fyrri hálfleiks 42 stig gegn 37. Þegar rúmar níu mínútur voru eftir af síðari hálfleik tók Ólafur Thorlacius liðs- stjóri þeirra leikhlé en þá var staðan 63—60 Val í vil. Virtust KR-ingar vera að sækja í sig veðrið og tæplega tveim minútum síðar náðu þeir yfirhöndinni — i fyrsta skipti síðan um miðjan fyrri hálfleik. Gunnar Jóakimsson skaut utan af kanti og staðan var 67—66 fyrir KR. Eftir laglegt stökkskot Ríkarðs er staðan orðin 70—67 fyrir Val og Torfi Magnússon bætir enn um betur 72—67. Eftir mikinn darraðardans þar sem þeir koma mest við sögu á stigatöflunni Rík- arður og Hudson er staðan orðin 77—75 og aðeins tæpar þrjár mínútur til loka. Staðan var sú sama þegar 1.55 minútur voru eftir en þá tók Gunnar Gunnars- son liðsstjóri KR tima. Nú skyldi nota allt sem til væri. Leikurinn hefst aftur og Hafsteinn Hafsteinsson krækir í víti. Nær einu stigi úr þrem skotum 78—75 fyrir Val. Jón Sigurðsson KR brýzt einn í gegn og skorar. Aðeins eins stigs munur — minúta til leiksloka. KR-ingar ná knettinum eftur og drifa upp sókn. Hudson reynir körfuskot, sem fer naum- lega framhjá. Jón Sigurðsson nær knett- inum en missir hann þegar dæmt er á hann „sóp”. Rétt á eftir fær Jón fjórðu villuna og Dwyer skorar úr tveim skot- um af þrem, staðan orðin 80 gegn 77 fyrir Val og aðeins 41 sekúnda til leiks- loka. Siðustu sekúndurnar liðu án þess að skorað væri þó ekki vantaði dramatísk augnablik. Bæði Hudson og Jón Sigurðs- son urðu að yfirgefa leikvöllinn með fimm villur og lokaflautið hljómaði og Valsmenn hafa náð beztri stöðu í úrvals- deildinni. Það voru orð að sönnu, sem liðsstjór- ar liðanna beggja létu falla i viðtali við DB að loknum leiknum í gær. „Við náðum okkur aldrei á strik í kvöld og Jón SigurðssonKRbarðist að venju eins og Ijón I leiknum gegn Val f gærkvöldi. Það dugði þó ekki til að þessu sinni. Á myndinni sést er Jón hefur náð knettinum úr frá- kasti vandlega varinn af fjórum félögum sinum en Rikarður f Val horfir á. DB-mynd Bjarnleifur. þetta varð því miður ekki okkar leikur," sagði Gunnar Gunnarsson KR. „En nú standa leikar þannig eftir þrjá leiki gegn Val í úrvalsdeildinni að við höfum unnið einn en tapað tveim. Við látum þó ekki deigan siga og næst mætum við hinu toppliðinu, Njarðvíkingum, á þriðjudag- inn í næstu viku og þá verður keyrt á. fullu,” sagði Gunnar að lokum. „Þessi leikur bar öll merki úrslitaleiks og sá munur sem varð að lokum og réði úrslitum var að þvi mér finnst vegna þess að Valur hefur meiri breidd — eða jafnvel betri menn," sagði Ólafur Thor- lacius Val. „Auðvitað erum við ánægðir með að sigra en það sást bezt i kvöld að enginn leikur er öruggur i úrvalsdeild- inni.” Tim Dwyer var stigahæstur hjá Val með 30 stig. Siðan komu Rikarður með 18. Torfi 15, Kristján 14, Lárus 5 og Hafsteinn 3. Hudson var stigahæstur KR-inga með 27, Einar Bollason 15, Jón Sigurðsson 13, Garðar 13, Birgir 4, Árni 2ogGunnar2. -ÓG. Staðan í úr- valsdeildinni Urslit i úrvalsdeildinni um helgina urðu þessi: ÍR-Þór 123-90 UMFN-Þór 127-80 Valur-KR 80-77 Staðan er nú þannig: Valur KR UMFN tR Is Þór 14 10 13 9 13 14 13 13 1229—1225 20 1181—1031 18 1325—1197 18 1261-1221 10 1114—1196 11 1038—1276 14 6 4 SDGAMET NJARÐVIK- INGA í ÚRVALSDEILD sigruðu Þór f rá Akureyri með 127 stigum gegn 80 Njarðvikingar náðu hæstu stigatöiu sem skoruðu hefur verið i úrvalsdeildinni með sigri yfir Þór frá Akureyri syðra i gærdag, 127 stigum gegn 80. Njarðvík- ingar eru sem sagt við sama heygarðs- hornið, fylgja toppliðinu í deildinni fast eftir, með 18 stig. Staða Þórs er aftur á móti alvarlegri, fallið virðist blasa við Norræn samvinna íverki: DANINN PEDERSEN HEFUR SYNJAÐ ÁFRYJUN VÍKINGS Hann hefur þvflagt Svíum og Norðmönnum lið við að dæma Vfking úr Evrópukeppni bikarhafa á meðan fjarlægar þjóðir eins og Sovétmenn hafa lýst yf ir stuðningi, og Spánverjar og V-Þjóðverjar eru Víking hagstæðir Daninn Frelund Pedersen sendi í lok vikunnar atkvæði sitt til IHF en hann á sæti i framkvæmdanefnd IHF og er einn sex manna er dæmir i Vikingsmálinu. Svar Pedersen var — rekið Vikinga úr Evrópukeppni bikar- hafa. Staðan í Víkingsmálinu er nú sú, að varaformaður IHF, Sovétmaður hefur lýst yfir stuöningi við Viking og telur að dómurinn hafi verið allt of harður. Þá hafa V-Þjóðverji og Spánverji verið Vikingum hagstæðir og líklegt að þeir dæmi Víkinga áfram. En allt eins er víst, að Víkingur verði rekinn úr Evrópukeppni bikar- hafa þar sem næsta liklegt þykir nú, að atkvæði verði jöfn — 3 á móti Víking, 3 með Viking. Þeir er dæma Vfking úr keppninni cru Pedersen, Curt Wadmark, en Vikingar hafa raunar lýst því yfir að þeir telji ekki rétt að hann dæmi, svoj og forseti Alþjóðahandknattleikssam- j bandsins — Sviinn Högberg. Ekki er vitað hvernig hann muni dæma, en ef að likum lætur mun hann styðja landa sinn, Curt Wadmark. Það eru Norðurlandaþjóðirnar þrjár — Sviþjóð, Danmörk og Noregur,sem sjá um, að eini fulltrúi Norðurlanda, sem eftir er í Evrópu- keppni í ár verði rekinn úr Evrópukeppninni! í upphafi var það Svíinn Curt Wadmark er kærði Vikinga og dæmdi síðan sjálfur ásamt Norðmanninum Carl Wang og Rúmenanum Ivan Kunst. Nú taka Danir þátt i leik Svians Curt Wadmark á meðan fjar- lægari þjóðir eins og Sovétrikin, V- Þýzkaland og Spánn eru Viking — frá íslandi — hagstæðar. Norræn sam- vinna i verki. H. Halls. liðinu nema það taki miklúm stakka- skiptum. Annars var leikurinn í gær ærið' sveiflukenndur. Heimamenn náðu fljót- lega miklu forskoti 20-6 og áttu Gunnar Þorvarðsson, sem lek afburðaleik, og Jónas Jóhannesson drýgstan þáttinn í þessum kafla. En svo breytti alit í einu til hins verra og engu var líkara en öll reyndu „Ijónin" hjá UMFN, yrðu loppin á „loppunum". Hver mistökin ráku önnur, svo að norðanmenn tóku að saxa á forskotið, án þess að beinlínis sé hægt að segja að leikur þeirra hafi verið til að státa af. Jón Indriðason, bezti maður Þórsara, minnkaði muninn niður í 9 stig, 26-17. Hilmar Hafsteinsson, greip þá til þess ráðs að „skipta um blóð”. Setti al gerlega nýtt lið á völlinn, unglingana. sem á örskammri stund juku bilið i 22 stig og var Arni Lárusson mjög góður á þeim kafla, bæði i sókn með 12 stig og einnig i vörninni, sem hann varð að gjalda með fjórum villum og þeirri fimmtu snemma í seinni hálfleik. Seinni hálfleikinn hófu heimamenn með krafti miklum en eins og i hinum fyrri hljóp allt I baklás eftir stutta stund. Hilmar kom enn með „nýja upp skrift”, blandaði hæfilega hinunt yngri og eldri, og eftir það jukust yfirburðir UMFN jafnt og þétt, svo að áhorfendur höfðu ekki annað til að gleðjast ylir en þegar Guðsteinn Ingimarsson skoraði stig nr. 124—125. Stig UMFN: Gunnar Þorvarðsson 33, Ted Bee 15, Geir Þorsteinsson, Jónas Jóhannesson, Árni Lárusson og Guð steinn Ingimarsson 14 stig hver. Stefán Bjarkason 9 ogGuðjón Þorsteinsson 7. Stig Þórs: Jón Indriðason 34. Mark Cristiansen 25, EiríkurSigurðsson 8, Al- freð Tulinius 4. Ellert Finnbogason 4. Ágúst Pálsson 3 og Sigurgeir Sveinsson 2. Dómarar voru þeir Sigurður Valur Halldórsson og Guðbrandur Sigurðsson og dæmdu mjög vel. Dómaranámskeið Knattspyrnudómaranámskeið hefst í kvöld, mánudaginn 29. janúar, kl. 20 í Fellahelli. K.D.R.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.