Dagblaðið - 29.01.1979, Síða 10

Dagblaðið - 29.01.1979, Síða 10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979. Úl9«fandk DagbMM M. Framkv«mdas1J6ri: Svainn R. Eyjólffsaon. Rlts1|6ri: J6nas Kristjánsson. Fréttastjóri: J6n Bkrgir Pétursson. Ritstjómarfultrúb Haukur Hslgason. Skrtfstofustjóri ritstjómar J6hannas ReykdaL iþróttihr: Halur Sfmonarson. Aðstoðarfrétta«06rar At> Stainarsson og ómar ValdL marsson. Mennkigarmél: Aðabtalnn IngóHsson. Handrit: Ásgrim'ur Pálsson. Blaðamann: Anna Bjamason, Asgair Tömasson, Bragl Bigurðsaon, D6ra Btafánsdóttk, Glssur Sigurða- son, Gunnlaugur A. Jönsson, Haiur HaNsson, Haigl Pétursson, J6nas Haraldsson, ótatfur Gairsson, ólafur J6nsson. Httnnun: Guðjón H. Pélsson. Ljósmyndlr Aml Pál Jöhinnsson, BjamlaHur BjamlaHsson, Httrður Vllhjélmsson, Ragnar Th. Slgurðs- son, Svainn Pormóðsson. Skrtfstofustjóri: ólafur EyjóHsson. Gjaldkari: Þjáinn ÞoriaHsson. Sttkistjóri: Ingvar Svainsson. DraHlng- arstjórí: Már E.M. HaMdórsson. Ritstjóm Sfðumúla 12. Afgraiðsla, áskriftadaHd, auglýslngar og skrtfstofu r Þverhotti 11. Aðalskni blaðsins ar 27022 (10 Ifnur). Askrift 2500 kr. á mánuðl innanlands. í lausasðlu 125 kr. ekitakið. Satnkig og umbrot Dagblaðið hf. Sfðumóla 12. Mynda- og pltttugarð: HHmlr hf. Sföumúla 12. Prenfun: Arvakur hf. SkaHunni 10. Eðlileg þróunarsaga Klofningur Samtaka sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi í tvenn samtök var óhjákvæmilegur. Áhugamál Suðurnesja- manna og Innnesjamanna í samstarfi sveitarstjórna eru svo ólík, að þau verða bezt meðhöndluð sitt í hvoru lagi. Á báðum stöðum hafa undanfarin ár verið starfræktar samstarfsnefndir sveitarfélaga. Skiptingin milli þeirra var sunnan Straums, það er að segja annars vegar í Suðurnes og hins vegar í Reykjavíkursvæðið. Reykjavík er aðili að samstarfsnefnd sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Að því leyti ná samstarfsnefnd- irnar tvær sameiginlega yfir stærra svæði en heildarsam- tökunum í Reykjaneskjördæmi var ætlað að ná yfir. Skýringin er sú, að Reykjavík er þungamiðjan í sam- starfshugleiðingum á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavík er aðilinn, sem getur lagt fram kjarna í hitaveitu, vatns- veitu, rafveitu, brunavörnum, sorpeyðingu og ýmsu öðru, sem dæmin sýna. Höfuðverkefni samstarfsnefndarinnar á höfuðborgar- svæðinu hafa verið á sviði skipulagsmála. Það er aug- ljóst, að sveitarfélög, sem hafa runnið saman í eitt þétt- býli, verða að hafa samræmi í skipulagi byggðarinnar. Þetta samstarf hefur gengið mjög vel, enda móta$ af gagnkvæmri tillitssemi þátttakenda. Enn betur hefur Suðurnésjamönnum gengið í sinni samstarfsnefnd, þar sem kraftaverk hafa verið unnin, þótt árangurinn sé ekki alltaf formlega tengdur nefndinni. Sveitarfélögin á Suðurnesjum reka í sameiningu sjúkrahús og heilsugæzlustöð. Þau eiga fjölbrautaskóla og hitaveitu í sameiningu. Þau reka brunavarnir og sorp- eyðingu saman. Þetta samstarf hefur mótazt á ótrúlega skömmum tíma. Eftir allt, sem á undan er gengið, er það nánast forms- atriði að breyta samstarfsnefnd Suðurnesjamanna í formlegt Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, svo sem nú hefur verið gert. Gera má þó ráð fyrir, að hér eftir aukist samstarfið hraðar en áður. Þannig hefur samstarf Suðurnesjamanna annars vegar og Innnesjamanna hins vegar vaxið úr grasi á nátt- úrlegan hátt. Það hefur ekki gerzt með lagasetningu að ofan. Samstarfið fæddist og óx af þörfum heimamanna. Staða hinna eldri Samtaka sveitarfélaga í Reykjanes- kjördæmi hefur orðið tæp við þessar breytingar. Þessi samtök, sem áður fyrr voru mjög virk, eru nú orðin næsta verkefnalítil. Fastir starfsmenn eru ekki lengur neinir. Þessi samtök hafa enn það verkefni að kjósa fræðslu- ráð Reykjanesumdæmis á fjögurra ára fresti. Svo virðist sem Suðurnesjamenn hafi ekki áhuga á að slíta sam- starfinu á þessu sviði, enda ríkir almenn ánægja með hina sameiginlegu fræðsluskrifstofu alls kjördæmisins. Samtök sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi munu því ekki verða lögð niður að sinni, hvað seni síðar kann að verða. Það getur líka vel verið, að fyrr eða síðar komi í ljós einhver ný þörf á samstarfsvettvangi Suðurnesja- og Innnesjamanna. Þróunin, sem hér hefur verið lýst, sýnir, að oft getur verið heppilegt að ofskipuleggja ekki fyrirfram, heldur leyfa atburðarásinni að mótast eftir náttúrlegum þörfum hverju sinni. f Bandaríkin: Vill halda áfram i lögreglunni eftir kynskiptin Getur lögreglumaður, sem hefur skipt um kyn og gerzt kona, haldið áfram í sínu fyrra starfi eins og ekkert hafi í skorizt? Svo telur Bonnie sem reyndar hét áður Ormus Davenport. Hann hafði verið í lögregluliði Washingtonborgar i átta ár þegar hann tók sér leyfi án launa í febrúar á fyrra ári og gekkst undir kynskiptaað- gerðina. Nú vill Bonnie halda áfram fyrra starfi en að sjálfsögðu sem kven- maður. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem kynskiptingur sækir um stöðu í lögregluliði höfuðborgar Bandarikj- anna og eru yfirmenn þar því í nokkr- um vanda. Hvað sem því líður og hvert sem kyn Bonniar telst nú eru reglurnar þær að hún verður að gangast undir sérstakt hæfnispróf. Gildir þar það sama um hana og aðra lögreglumenn sem verið hafa frá starfi í nokkurn tíma. Prófin eru bæði andlegs og líkamlegs eðlis og segist hún vona hið bezta um niðurstöðurnar. Bonnie, sem er 35 ára gömul, segir að kynskiptaaðgerðin hafi tekizt vel. „Mér er ekkert að vanbúnaði að hefja aftur lögreglustörfin en á þeim hef ég mikinn áhuga og hef alltaf haft,” sagöi Bonnie í viðtali við bandaríska dag- blaðið Washington Post. Þær prófanir sem hún hefur gengið undir eru eins og áður sagði sambæri- Vi Um hagkvæmni dilka- kjötsframleiðslu Á stundum má heyra raddir sem fullyrða að tsland sé gott landbúnaðar- land. Framleiðni sé hér sambærileg eða meiri í landbúnaði en i nálægum löndum og fleira I þessum dúr. Það getur verið fróðlegt að fara ör- litið ofan í saumana á þessum fullyrð- ingum, einkum um framleiðnina, og kanna hvort þær séu jafneinhlítar og látið er. t leiðinni er rétt að kanna nánar hina rómuðu hagkvæmni ís- lenskrar dilkakjötsframleiðslu. Með stoð I skýrslu um niðurstöður búreikninga frá Búreikningastofu landbúnaðarins hefur verið reiknað út að framleiðslan á meðalfjárbúi með 355 kindur sé um 6,9 tonn af dilka- kjöti á ári (sjá t.d. skýrsluna Þróun sauðfjárræktar, Rannsóknaráð rikis- ins 1976, bls. 47). í skýrslu Rannsóknaráðs er þess og getið að framleiðsla meðalsauðfjárbús á Nýja-Sjálandi með 1650 kindur sé 16,8 tonn afkjötiáári. Einn maður — 75 þúsund kjúklingar Framleiðsla á kjúklingum í verk- smiðjubúi i Bandarikjunum og raunar víðar er komin á það stig fyrir nokkuí löngu, með þeirri sjálfvirkni í fóðrun og hirðingu sem þar er beitt, að 1 maður getur annast uppeldi 75000 kjúklinga i einu. Uppeldið tekur átta vikur. Þannig framleiðir einn maður um 450 tonn af kjöti á ári á slíkum búum. Upplýst er að það þarf um 3 kg af kjarnfóðri til að koma upp hverjum kjúklingi á verksmiðjubúunum og hver kjúklingur vegur um 1 kg. Ef við reistum 20 slík kjúklingabú á hafnarbakkanum í Reykjavík og réöum til þeirra 1 starfsmann á hvert bú, gætum við framleitt á þeim 9000 tonn af kjöti á ári, en það er jafnt heildarneyslunni á kindakjöti i landinu. Þessi örfáu kjúklingabú gætu þannig séð okkur fyrir obbanum af því kjöti sem við þurfum á að halda og við getum hreinlega lagt niður allan sauð- fjárbúskap í landinu eins og hann leggur sig. Ef við hættum við sauðféð yrðu meira en 2000 bændur atvinnulausir og myndu væntanlega flosna upp nema gripið yrði til sérstakra aðgerða. Þessar 2000 fjölskyldur svara um það bil til þess mannfjölda sem flosnaði upp í Vestmannaeyjagosinu árið 1973. Við komumst klakklaust út úr þeim vanda og ættum að geta klofið það aftur nú að gróðursetja 2000 fjölskyld- ur í nýju umhverfi og skapa þeim nýtt lifsviðurværi. Nú spyrja eflaust margir hvort hag- kvæmt geti verið að ætla sér að fram- leiða kjúklingakjöt i stað kindakjöts 1,2 millj. króna í fjárfestingu í vélum einum saman til að framleiða hey á meðalbúi. Umreiknað i fjárfestingu í vélum að baki hverri vetrarfóðraðri kind reyndist þessi tala vera 2743 kr. Ef þessi tala er hækkuð til núgildandi verðlags verður upphæðin 9600 kr. Vélarnar eru afskrifaðar á 10 árum svo að fjárfesting I vélum að baki vetr- arfóðraðri kind, þegar vextir eru ekki reiknaðir með verður um 960 kr. á ári. Um þessar mundir kostar kjarnfóður um 80 kr./kg. Það fást því 12 kg af kjarnfóðri fyrir andvirði vélanna. Samtals þarf þvi jafnvirði 28,3 kg af kjamfóðri á vetrarfóðraða kind þegar vélar, sem vissulega eru erlend aðföng, eru teknar inn i myndina. Alls þarf því a.m.k. jafnvirði 896.192x28,3 = 25362 tonna af kjarnfóðri I erlendum aðföngum handa sauðfénu í landinu. Með 25000 tonnum af kjarnfóðri má hins vegar „Ef við reistum 20 slík kjúklingabú á hafnarbakkanum i Reykjavík og réðum til þeirra einn starfsmann á hvert bú, gætum við framleitt á þeim 9000 tonn af kjöti á ári, en það er jafnt heildarneyzlunni á kindakjöti í landinu." þar sem kjúklingaframleiðsla byggi að mestu á erlendum aðföngum, nefni- lega kjarnfóðri. Þessu er til að svara að samkvæmt ofannefndri skýrslu frá Búreikninga- stofu landbúnaðarins þurfti um það bil 16,3 kg af kjarnfóðri handa hverri vetrarfóðraðri kind á meðalfjárbúi árið 1974. Um það bil 896.192 kindur voru settar á vetur haustið 1977 og má því ætla að notuð hafi verið 14600 tonn af kjarnfóðri handa sauðfé árið 1978. 1 skýrslunni Þróun sauðfjárræktar kemur fram (bls. 22) að 1974 þurfti um samkvæmt framansögðu framleiða 8300 tonn af kjúklingum eða næstum alveg upp I þarfir okkar fyrir kinda- kjöt. Hættum að trúa í blindni Hér er ekki enn farið að nefna að ef viðlegðumniðursauðfjárframleiðsluna myndi ekki lengur verða þörf fyrir út- flutningsbætur. Verðlagsárið 1975/76 voru 76% allra útflutningsbóta vegna kindakjöts, Á árinu 1979 verða það þvi um 3800 millj. sem reikna má með 'að þurfi vegna útflutningsbóta á

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.