Dagblaðið - 29.01.1979, Side 19

Dagblaðið - 29.01.1979, Side 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979. 19 I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir FRAMIFJORDA SÆTI EFTIR SIGUR A ÍR! Fram sigraði ÍR 16-15 i viðureign lið- anna i 1. deild á laugardag. Þar með þokaði Fram sér upp í fjórða sæti 1. deildar en fallhættan vofir yfir ÍR. Sjötti ósigur ÍR í 1. deild og enn tapaði það með aðeins einu marki. En viðureign Fram og ÍR reis aldrei hátt — ákaflega staðnaður handknattleikur og Utt skemmtilegur að fylgjast með. Það voru miklar sveiflur i leik Fram og ÍR. ÍR-ingar byrjuðu af miklum krafti, voru fastir fyrir í vörninni og sóknarleikurinn gekk þokkalega upp. Guðjón Marteinsson var i miklu stuði, skoraði hvert markið á fætur öðru og ÍR náði öruggri forustu, 9—4. Þá voru sjö mínútur til leikhlés — en á þessum tíma féll leikur ÍR saman. Sóknarleikurinn var fálmkenndur, lítt ógnandi og Fram gekk á lagið, náði að minnka muninn i eitt mark, 10-9, raunar var níunda mark Fram furðulegt. Atli Hilmarsson skaut — flauta tímavarðar gall, greinilega áður en knötturinn hafnaði i netmöskv- unum en Ólafur Steingrímsson dómari benti á miðju. „Þarna fengum við ódýrt mark,” sagði einn áhangenda Fram og glotti. Og þetta eina mark skildi síðan i lokin. | Rétt eins og i lok fyrri hálfleiks gekk ekk ert upp i sóknarleik ÍR fyrri hluta síðari hálfleiks. ÍR skoraði ekki mark fyrstu 14 mínútur síðari hálfleiks. Gjörsamlega vonlaus sóknarleikur, japl, jaml og fuður. Framgekká lagið og á þessum 14 mínútum skoraði Fram fimm mörk — komst í 14-10. I kjölfarið fylgdi kafli þar sem Gissur Ágústsson, markvörður Fram, varði 2 viti, og Jens Einarsson einnig tvö fyrir Fram. ÍR skoraði ekki mark næstu sex minúturnar — já. ÍR skoraði aðeins eitt mark I 21 mínútu og það gerði Ólafur Tómasson er lék sinn 300. leik — og hefur ekki skorað mark i allan vetur! En síðustu níu minútur leiksins skoraði ÍR fjögur mörk en Fram aðeins eitt — staðan breyttist úr 15-11 i 16-15 og síðustu minútuna var ÍR með knöttinn en rétt einu sinni virtist enginn ■ vita hvað gera skyldi við hann og sóknin rann út í sandinn. ÍR leikur oft furðulega — aðra í markinu að vera Fram mikið ánægju- stundina leikur liðið vel, góð barátta í vörn, góð markvarzla og sóknin þokka- lega beitt. En eins og hendi sé veifað fellur leikur liösins alveg saman. Verður fálmkenndur, hreinasta rugl. Því hefur ÍR -ekki hlotið fleiri stig en raun ber vitni — og erfiður vetur framundan. Raunar má með sanni segja að Fram sé undir sömu sök selt — en Fram hefur traustari lykilleikmenn og þar skildi á milli Fram og ÍR. Þeir Gústaf Björns- son, Atli Hilmarsson og Sigurbergur Sig- steinsson eru traustir leikmenn. Þá hlýt- ur frammistaða Gissurar Ágústssonar efni og einnig góður leikur Theódórs Guðfinnssonar er gekk til liðs við Fram úr Breiðablik. Hann lék sinn beztra leik, skoraði góð mörk með hörkuskotum, var verulega ógnandi. Skoraði fjögur af sex síðustu mörkum Fram. En þegar á allt var litið var viðureign Fram og iR heldur fáum áhorfendum lítil skemmtun. Handknattleikur liðanna er langt á eftir tímanum, á næsta lítið skylt við nútíma handknattleik. Það má með sanni segja að aðeins tvö íslenzk lið leiki slíkan handknattleik í dag — Valur og Víkingur. önnur íslenzk lið eru langt á eftir og þurfa að gera mikið átak ef takast á að lyfta íslenzkum félagsliðuni aftur upp. Þeir Björn Kristjánsson og Ólafur Steingrímsson dæmdu leikinn. Mörk ÍR skoruðu: Guðjón Marteins- son 9, Brynjólfur Markússon 2, Hafliði Halldórsson, Ársæll Hafsteinsson, Ólafur Tómasson og Sigurður Svavars- son 1 mark hver. Mörk Fram, Gústaf Björnsson 6, Theódór Guðlfinnsson 4, Atli Hilmarsson 3, Birgir Jóhannsson, Erlendur Daviðsson og Jens Einarsson I mark. H Halls. Atli Hilmarsson, Fram, fær „varmar” móttökur hjá Sigurði Gislasyni, ÍR. DB-mynd Bjarnleifur. HK NÆLDISERIDYR-, MÆTT STIG AÐ VARMA HK nældi sér í dýrmætt stig í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik er það gerði jafhtefli við Hauka, 20-20,að Varmá í gær. Dýrmætt stig en það var aðeins reynsluleysi hinna ungu leik- manna HK er kom í veg fyrir sigur. Þegar aðeins 30 sekúndur voru eftir af leiknum fékk HK knöttinn, leikmenn flýttu sér um of i sóknina. Misstu knött- inn og Hilmar Sigurgíslason var i þokka- bót rekinn út af. Haukar jöfnuðu 20-20 og þegar flauta timavarðar gall voru Haukarnir á leið upp i hraðaupphlaup og voru komnir að punktalínu! Svo nærri sigri var HK — einnig svo nærri ósigri! Jafntefli voru þvi kærkomin úrslit. HK hefur því tekið 3 stig af Haukum er nú eru aðeins svipur hjá sjón — miðað við I fyrra er Hauka vantaði aðeins herzlumuninn á að tryggja sér íslandsmeistaratign. Og HK hafði lengst af undirtökin, mest fyrir stórleik Hilmars Sigurgisla- sonar er lék aftur með eftir meiðsli. Það var jafnræði með liðunum, jafnt upp í 7- 7. En undir lok fyrri hálfleiks náði HK fjögurra marka forustu, 12-8. Þá var aðeins minúta eftir til leikhlés en á þeim tima skoruðu Haukar tvö mörk — já, reynsluleysið lætur ekki að sér hæða. HK náði þriggja marka forustu fljót- lega í síðari hálfleik, 14-11, en i kjölfarið fylgdi afleitur kafli og Haukar skoruðu fimm mörk í röð — komust I 16-14. HK náði að jafna, 17-17, og eftir það var jafnt á öllum tölum. HK komst i 20-19 með marki Stefáns Haldórssonar á 27. mínútu en Haukar jöfnuðu þegaraðeins l2sekúndurvoru eftir. HK glataði stigi, fyrst og fremst reynsluleysis. Hilmar Sigurgíslason, eini landsliðsmaður HK, lék aftur með og var liðinu mikill styrkur. Skoraði niu mörk. Haukar tóku Stefán Halldórsson úr umferð I fyrri hálfleik — og það gafst ekki vel. Losnaði um Hilmar. Haukarnir hættu því að taka Stefán úr umferð í siðari hálfleik — og við það þéttist varnarleikur Hauka. En Stefán Hall- dórsson skoraði fimm mörk, ákaflega skemmtilegur leikmaður. Friðjón Jóns- son átti sinn bezta leik með HK, með 3 mörk, Kristinn Ólafsson 2 og Jón Einarsson 1 mark. Jón Hauksson skoraði flest mörk Hauka, 4 — 1 viti. Þeir Ingimar Har- aldsson, Þórir Gíslason, Andrés Krist- jánsson og Hörður Harðarson skoruðu allir 3 mörk — Hörður 2 víti. Hörður hefur undanfarið verið I mikilli lægð og gengur erfiðlega að ná sér upp. Hann sýndi mikla dirfsku á síðustu minútunni er hann jafnaði, 20-20 — hafði ekki áður skorað nema úr vitum og skot hans verið misheppnuð. Þeir Ólafur Jóhannsson og Stefán Jónsson skoruðu I mark, Sigurður Aðalsteinsson 2. Þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Jón Hermannsson dæmdu viðureign HK og Hauka að Varmá. H Halls D KA sýndi sitt bezta og vann — sigurgegn Þór, Vestmannaeyjum KA sigraði Þór, Vestmannaeyjum, i 2. deíld íslandsmótsins i handknattleik á föstudagskvöldið, 21-19. Sanngjarn sigur og KA náði einum sínum bezta leik i 2. deild í vetur. En mögulcikar KA á að komast i efstu sætin eru hverfandi. Ósigur Þórs þýðir að nú þegar hefur Eyjaliðið tapað fjórum stigum meir en Ármann og KR. Viðureign KA og Þórs var mjög jöfn fram af, jafnt á öllum tölum upp í 5-5 Þegar um 5 mínútur voru til leikhlés hafði KA eins marks forustu, 10-9, og í kjölfarið kom ágætur kafli Akureyrar- liðsins, þrjú mörk I röð og staðan I leik- hléi var 13-9. Sá munur hélzt lengst af i siðari hálf- leik. Þannig hafði KA yfir 19-15 og síðan 21-16 en Þór skoraði þrjú síðustu mörkin. Sigur KA — 21-19. Alfreð Gíslason skoraði flest mörk hjá KA, 7, Jóhann Einarsson 4, Jón Árni Rúnars- son og Sigurbjörn Gíslason skoruðu 3 mörk hvor. Hjá Þórurum skoraði Hannes Leifsson mest, 6 mörk. Ásmundur Friðriksson 4 og Andrés Bridde 3 mörk. Þeir Árni Tómasson og Gunnar Kjartansson dæmdu og voru þeim mis- lagðar hendur I því og bitnaði dómgæzl- an á KA. Þannig voru 7 leikmenn KA reknir út af — en aðeins einn Þórari, þrátt fyrir að Þórarar væru ekki síður harðir i vörn en KA. - St.A. Þróttur sigraði Leikni stórt Þróttur sigraði Leikni stórt i 2. deild Islandsmótsins í handknattleik á laugar- dag, 29-12. Leiknir hefur nú ekki hlotið stig i 2. deild, og næsta vist að með sama áframhaldi mun Leiknir ekki hljóta stig. Stjórn handknattleiksdeildar Lciknis er nú í rúst eftir miklar væringar innan félagsins i vctur. Hinir eldri leikmenn eru hættir og i tvcimur síðustu leikjum sinum hefur Leiknir teflt fram 2. flokks liði. Staðan í 2. deild Úrslit leikja i 2. dcild: Þróttur — l.ciknir 29 12 KA - Þór , Vm. 21 19 Þór, Ak., - - Þór, Vm„ 20 •22 Staóan I 2. deild er nú: Þór, Vm„ 10 5 2 3 182-189 12 KR 8 5 2 1 201-156 12 Ármann 8 5 2 1 175-153 12 Þór, Ak„ 9 5 1 3 171-159 11 Þróttur 8 4 1 3 191-168 9 KA 8 4 0 4 139-131 8 Stjarnan 6 1 0 5 120-134 2 Lciknir 8 0 0 8 109-204 0 Meistarar IS áttu í erffið- leikum með Mími í blaki fslandsmeistarar ÍS ientu i miklum erfið- leikum með neðsta liöið i 1. deild i blaki á laugardag, Mimi. Stúdentar sigruðu að visu 3-2, en Mímismenn veittu tS mun meiri mótspyrnu en von var á. Stúdentar unnu fyrstu hrinuna, 15-11, en Mimir næstu, 15-12.1 þriðju hrinu var öruggur sigur stúdenta, 15-4, en piltarnir frá Laugarvatni lögðu ekki árar i bát og sigruðu i fjórðu hrinu, 15-9 og jöfnuðu metin, 2-2. Meistarar ÍS tóku sig á í síðustu hringunni og unnu 15-7 eftir að hafa komizt í 7-0. Efsta liðið, Þróttur, lék siðan við Mími í gær og sigraði örugglega, 3-0, 15- 4, 15-13, 15-3. Þróttarar hafa nú örugga forustu í 1. deild en staðan er nú: Þróttur 10 9 1 29-9 18 Laugdælir 10 7 3 22-17 14 ÍS 8 5 3 19-14 10 UMSE 8 I 7 9-23 2 Mímir 8 0 8 8-24 0 Eyjamenn komu upp á meginlandið og léku þar í fyrsta sinn í blaki. En þeir gerðu ekki góða ferð. Á föstudags- kvöldið léku þeir við Viking I 2. deild og Víkingur vann 3-0, 15-5, 15-3, 16-14, eftir að tBV hafði komizt í 11-3 í þeirri hrinu. Á laugardag lék ÍBV við Breiðablik og sigruðu Blikarnir 3-2. Eyjamenn sigruðu I tveimur fyrstu hrinunun en Blikarnir tóku sig saman og sigruðu i þremur síðustu, úrslit urðu, 6-15, 12-15, 15-1, 15-3, 15-11. Loks léku Eyjamenn við efsta liðið I I. deild, Fram, og sigraði Fram 3 1,15-12,13-15,15-6,15 11. Þá var einn leikur í I. deild kvenna. Stúdínur sigruðu Breiðablik, 3-1, 15-9, 13-15, 15-11, 15-2 — en hrinan sem Breiðablik vann var sú fyrsta sem liðið vanní l.deildkvenna.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.