Dagblaðið - 29.01.1979, Qupperneq 30
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1979.
Dauðinn á IMíl
AGATHA CHRISTKS
PtJtR USHHOV' UH{ BIRKIN • 10K CHILIS
BITTl DiVK - MU fARROW - I0N NNCH
OUVUKKSIY ' LS.JOHAR
GfORGt KEHHfflí - ÁNOdi LANSSURY
SIMON MocCDiíKINDAU • DAVID HIYtH
MJ66H SMÍIH • 1ACK WARDLN
.ttuuonii DUIHONIHtNllI
Frábær ný ensk stórmynd, byggð á sögu
eftir Agatha Christie. Sýnd við metað-
sókn viða um heim núna.
Leikstjóri: John Guillermin
Islenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýndkl. 3,6og9.
Hækkað verð.
salur
Convoy
Spennandi og skemmtileg ný ensk-
bandarisk Panavision-litmynd, með Kris
Kristofferson, Ali MacGraw — Leik-
stjóri: Sam Peckinpah.
Íslenzkur texti.
Sýndkl. 3.05,5.40,8.30 og 10.50.
salur
Chaplin Revue
Tvær af hinum snilldarlegu stuttu
myndum Chaplins sýndar saman:
AXLIÐ BYSSURNAR og PÍLA
GRfMURINN
Sýnd kl. 3.15, 5.10,7.10,9.10 og 11.10.
—■■ salwr D
Liðhlaupinn
Spennandi og afar vel gerð ensk litmynd
með Glenda Jackson og Oliver Reed.
Leikstjóri Michel Apdet.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 3.10,5.05,7.05,9.05 og 11.05.
Dagbók kvenlæknis
(Docteur Francoise Galland)
Framúrskarandi frönsk úrvalskvikmynd
meðdönskum texta.
Leikstjóri: Jean-Louis Bertuccelli
Aðalhlutverkið leikur Annie Girardot er
var verðlaunuð sem bezta leikkona
Frakklands 1977 fyrir leik sinn í mynd-
inni.
Sýnd kl. 5,7 og9.
Sýnd kl. 5,7 og9.
An EMI Films ptesentation
A Lewience Gocdon pioduction
RYAN O’NEAL
BRUCE DERN
ISABELLE ADJANI
ökuþórinn
Afar spennandi og viðburðahröð ný
ensk-bandarisk litmynd.
Leikstjóri WALTER HILL
Islenzkur texti.
Bönnuðinnan 14ára.
Hækkað verð.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
AUSTLIRBÆJARBlÓ: Forhertir stríðskappar
(Unglorious Bastards), aðalhlutverk BoSvenson, Peter
Hooten, kl. 5, 7 og 9. lslenzkur texti. Bönnuö innan ■
14 ára.
BÆJARBlÓ: Ókindin 2 kl. 9.
GAMLA BÍÓ:Sjáauglýsingu.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HAFNARFJARÐARBtÓ: Himnaríki má biða kl. 9.
Íslenzkur texti.
HÁSKÓLABtÓ: Grease, aðalhlutverk Olivia New-
ton-John og John Travolta kl. 5 og 9. íslenzkur texti
Hækkað verð.
LAUGARÁSBÍÓ:: Ein meðöllu kl. 5,7,9 og 11.
NÝJA BÍÓ: Silent Movie kl. 5,7 og 9.
REGNBOGINN: Sjá auglýsingu.
STJÖRNUBÍÓ: Fórnin kl. 5 og 9. íslenzkur texti,
Harry og Walter gerast bankaræningjar kl. 7 og 11. is-
lenzkur texti. Endursýnd.
TÓNABÍÓ: Doc Halliday, leikstjóri Frank Perry,
aöalhlutverk: Stacy Keach, Fay Dunaway kl. 5, 7 og
9. Bönnuö innan 16 ára. íslenzkur texti.
ALÞÝÐU-
LEIKHCSIÐ
Við borgum ekki
við borgum ekki
í Lindarbæ
í kvöld kl. 20.30.
Uppselt
Miðvikudag kl. 20.30,
föstudag kl. 20.30.
Miðasala I Lindarbæ kl. 17—19
alla daga — 17—20.30 sýningar-
daga.
ENDURSKIIMS-
MÉRKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
Utvarp
Sjónvarp
Útvarp síðdegis í dag og íkvöld:
Mánudagar eru unglingadagar
» nf>i/ai*ninii Lögunga folksinsogÁ
I UIYCII plllU tíundatímanumeruallirádagskráídag
Vinsælasta lagið í Lögum unga fólksins i síðustu viku var Eina ósk með Björgvini
Halldórssyni. Hvaða lag skyldi verða vinsælast i kvöld?
Sé hægt að nefna cinhvern einn viku-
dag öðrum fremur dag unglinganna i
rikisútvarpi voru bera mánudagarnir
þann titil með rcttu. Hvorki meira né
minna en þrir sérstakir dagskrárliðir eru
þó sniðnir með þarfir „ungs fólks á öllum
aldri” fyrir augum. Þetta eru þættirnir á
tiunda timanum, Lög unga fólksins og
Popphorn Þorgeirs Ástvaldssonar.
Elvis verður
fasti punkturinn
„Það er nýbylgjurokkarinn Elvis
Costello sem verður fasti punkturinn i
Popphorninu hjá mér í dag,” sagði Þor-
geir Ástvaldsson er hann var inntur eftir
efni þáttar síns sem hefst í dag klukkan
hálffimm. — Þáttur Þorgeirs er fimmtiu
mínútna langur.
„Costello þessi sendi nýlega frá sér
plötu, Armed Forces, sem nú er í öðru
sæti vinsældalistans i enska blaðinu
Music Week,” sagði Þorgeir ennfremur.
„Jafnframt átti þessi Elvis Costello plöt-
una sem að dómi gagnrýnenda Melody
Maker var merkilegasta hljómplata síð-
asta árs — This Year’s Model hét hún.
Ég ætla að fara nokkrum orðum um
Elvis Costello," sagði Þorgeir enn-
fremur. „Hann er fyrir margra hluta
sakir merkilegur maður. Til dæmis starf-
aði hann sem tölvufræðingur áður en
hann sneri sér að rokktónlistinni. Og
þrátt fyrir alla þá frægð og virðingu sem
honum hefur hlotnazt er hann i útliti og
öllum háttum svo gjörsamlega ólíkur
poppstjörnu sem nokkur maður getur
verið.”
Einnig lög frá
Grease-tímabilinu...
Ekki kvaðst Þorgeir Ástvaldsson ætla
að leggja allan tima sinn í dag undir
Elvis Costello.
„Ég brá mér á kvikmyndina Grease
með smáfólkinu — börnum og systkina-
börnum — um helgina. Síðan hef ég
verið að hugleiða timabilið, sem myndin
greinir frá, frá tónlistarlegu sjónar-
horni,” sagði hann.
„Grease gerist á síðustu árum sjötta
áratugsins. Þaö væri nú reyndar að bera
i bakkafullan iækinn að fara að spila
tónlist úr n.yndinni sjálfri svo að þess í
stað valdi ég þann kost að leika aðra tón-
list sem er sprottin frá þessum tíma.
Þetta eru lög með hljómsveitum eins og
Sha Na Na, Darts og Showaddywaddy
ogjafnvel með John Lennon og fleirum.
Ekki ætla ég mér að gera neina tæm-
andi úttekt á þessu rokktímabili, sem
hefur haft mikil áhrif á allt músíklif
siðari tíma,” sagði Þorgeir ennfremur,
„heldur reyni ég að koma sem flestum
lögum að. Popphornið er ekki þáttur
fyrir fyrirlestra heldur tónlist.”
... og jaf nvel
eitthvað fleira
„Nú, og ef ég á einhvern tíma eftir þá
ætla ég að leita að einhverjum lítt þekkt-
um listamanni til að kynna,” bætti Þor-
geir Ástvaldsson við. „Ég hef oft haft
þann háttinn á. Einnig má búast við því
að ég skjóti einu og einu lagi að með ein-
hverjum af þeim sem troða marvaðann á
vinsældalistunum þessa dagana."
Tugir Popphorna
Þorgeir Ástvaldsson sagði í samtalinu
við DB að Popphornin i hans umsjá
væru nú farin að nálgast sjötíu. „Ég hef
ennþá mjög gaman af að setja saman
Popphornin,” sagði hann, „áhuginn
virðist aldrei ætla að renna af mér.”
Hann var að lokum spurður að þvi
hvort hlustendur hefðu eitthvert sam-
band við hann til að láta í Ijósi skoðanir
sínará þættinum.
„Nei, því miður,” svaraði Þorgeir.
„Hlustendur láta ekkert i sér heyra og
því veit ég ekkert hver staða min er i
raun og veru.”
★
Samband Ástu Ragnheiðar Jóhannes-
dóttur, umsjónarmanns Laga unga
V________________________________
fólksins, við hlustendur sina er öllu betra
en i Popphorni Þorgeirs.
„Um þessar mundir fæ ég send 150—
200 bréf vikulega," sagði Ásta Ragn-
heiður er Dagblaðið ræddi við hana um
þáttinn. „Það er nokkru betra en fyrst
eftir jólin. Bréfabunkinn minnkar alltaf
um jólaleytið en eykst siðan stöðugt.”
Að sögn Ástu eru tvö hundruð bréf
nokkuð meira en i meðallagi. Komið
hefur fyrir að Lögum unga fólksins hafi
borizt hátt á fjórða hundrað óskir um
kveðjur á einni viku.
Les aðeins brot
af kveðjunum
„Það gefur augaleið að enginn tími
gefst til að lesa tvö hundruð kveðjur á
sjötiu minútum, hvað þá á fjórða
hundrað,” sagði Ásta Ragnheiður.
„Fyrir nokkru taldi ég öll þau bréf sem
mér tókst að afgreiða i einum þætti.
Þegar bezt lét tókst mér að lesa 65 kveðj-
ur.”
Ásta kvað Lögum unga fólksins aldrei
hafa verið gefinn jafnmikill timi I út-
varpsdagskránni og nú. Hér áður fyrr
var þátturinn fimmtíu minútna langur á
veturna og tíu mínútum lengri á sumrin.
Þrátt fyrir sjötíu mínútna lengd núna
berast stöðugt óskir frá unglingunum
um að lengja þáttinn enn frekar.
Talsverð vinna að
baki einum þætti
Það hlýtur að taka umsjónarmann
Laga unga fólksins nokkuð lengri tíma
en sjötiu minútur að vinna einn þátt.
„Já, þetta er anzi mikil vinna,” sagði
Ásta. „Ég þarf að opna öll bréf sem ber-
ast þættinum og lesa þau yfir. Siðan tek
ég frá þau sem ólæsileg eru og flokka hin
eftir lögum.
Nú, vinnunni er aldeilis ekki lokið þó
að kveðjurnar séu flokkaðar. Þá er eftir
að tina til allar þær plötur sem þarf að
leika. Lögin, sem beðið er um, eru
yfirleitt þau vinsælustu á hverjum tíma
og því mikið notuð í öðrum útvarpsþátt-
um. Ég þarf þvi að vera á þönum og
finna þessar plötur áður en sjálf upptak-
an hefst.”
Lög unga fólksins hafa lengst af verið
undir stjórn tveggja umsjónarmanna.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
stjórnar þættinum ein um þessar
mundir, eða síðan Rafn Ragnarsson
hætti. — Já, vel á minnzt. Vitiö þið
hverjir voru fyrstu umsjónarmenn þátt-
arins? — Nei, það er ekki von. Þeir heita
Haukur Morthens og Jónas Jónasson.
★
Þriðji og síðasti útvarpsþátturinn í
kvöld, sem sérstaklega er ætlaður ungu
fólki, er þátturinn Á tíunda tímanum.
Eins og nafnið bendir til er hann á
- tíunda tímanum eða frá klukkan 21.10
til 21.55.
Vinsælasti
útvarpsþátturinn
Þeir sem tóku þátt í Vinsældavali
Dagblaðsins og Vikunnar nú á dögunum
völdu Á tíunda tímanum vinsælasta út-
varpsþátt ársins 1978. Engum sem á
annað borð hefur lagt við hlustirnar á
tíunda timanum á mánudögum nú i
vetur þarf að koma það val á óvart. Um-
sjónarmenn þáttarins, þeir Guðmundur
Árni Stefánsson og Hjálmar Árnason,
eru með hressustu útvarpsmönnum fyrr
og síðar og setjá mál sitt fram á þann
hátt sem allir skilja.
Þá er þátturinn ákaflega fjölbreyttur
að efni. Stundum er það með ólíkindum
hversu mörgum efnisatriðum má troða
inn á litlum fjörutíu og fimm mínútum.
Án þess að hafa spurt þá Guðmund
Áma og Hjálmar að þvi fyrirfram hvaða
efni yrði i Á tíunda timanum í kvöld má
leiða getum að nokkrum hluta af efni
hans.
„Við verðum að sjálfsögðu með leyni-
gestinn,” gæti annar þeirra hafa sagt, ef
náðst hefði i þá í tæka tið til að fá fréttir
af þættinum í kvöld. „Nú, og svo
verðum við að sjálfsögðu með Topp
fimm eða Top fæv, eins og alvöruplötu-
snúðarnir myndu segja það, og svo
bjóðum við upp á ótal margt fleira sem
kemur í ljós i kvöld, þegar þið verðið
búin að koma ykkur vel fyrir framan
útvarpstækin ...”
...og ekki má gleyma þvi að ef timi
vinnst til þá lesum við úr nokkrum bréf-
um frá hlustendum,” gæti svo hinn
stjórnandinn hafa skotið inn í, svona til
að slá botninn í þessa kynningu á ungl
ingadegi rikisútvarpsins — mánudegin-
um. -ÁT
Elvis Costello og plötur hans, This
Year’s Model of Armed Forces, fá
nokkra umfjöllun I Popphorninu hjá
Þorgeiri Ástvaldssvni.
_____________________—J