Dagblaðið - 30.04.1979, Síða 2

Dagblaðið - 30.04.1979, Síða 2
Tillitsleysi við skellinöðrustráka — bflstjórar eiga ekki einir réttinn Rósa Arthúrsdóttir skrifar: Margir ungir piltar hafa í dag at- vinnu sína af að keyra skellinöðrur og þar af leiðandi eru þeir mikið i umferðinni alla virka daga. En kæruleysi og tillitsleysi bílstjóra við þá hefur oft og iðjulega skelft mig og þakka ég drengjunum á skellinöðrun- um fyrir að ekki hafa orðið fleiri slys, en bílstjórunum, vegna þess að pilt- arnir afstýra slysum vegna frekju og tillitsleysis bilstjóranna yfirleitt með því að gefa eftir frekjunni í um- ferðinni. Oft hef ég séð og heyrt skelli- nöðrustráka lýsa atvikum þar sem þeir hafa getað afstýrt slysi eða árekstri með því að keyra hreinlega út af götunni þegar bílstjórarnir beygja fyrir þá án þess að gefa stefnuljós eða troðast fram hjá þeim og ýta þeim alveg út af götunni. Bíl- stjórarnir eiga götuna. 1 einu tilviki af þessum mörgu sem ég veit um, þar sem keyrt var ádreng, kom einn bilstjóri sem stöðvaði út og athugaði skellinöðrudrenginn. Yfir- leitt keyra þeir í burtu og hafa ekkert séð eða gert. Ökumenn bila verða að athuga það að skellinöðrur eru með meira en helmingi lengri stöðvunar- vegalengd en bílar en stoppa ekki á punktinum eins og þeir virðast halda. Aðalatriðið er: skellinöðrustrákar eiga rétt i umferðinni eins og ökumenn bila. Margir hafa látið heillast af skelli- nöðrum og eyða öllum frítíma sínum i hjólin. Raddir lesenda Raddir lesenda Bilasprautunin Varmi s.f. Borgarholtsbraut 86. Sími 44250. Box 180. Kópavogi. Bílamálun. Óskum eftir aö ráöa, bílamálara og aðstoðarmenn, algert skilyröi að við- komandi hafiáhugaástarfinu. ¥T ,, , , , Upplýsingar í sima 44250. Þrjár áríðandi tilkynningar vegna Húsnæðismálalána Gjalddagi Gjalddagi D, E og F veðdeildarlána (húsnæðismálalána) er 1. maí. Hækkun grunnvaxta Frá og með 1. maí 1978 hækkuðu grunnvextir á veðdeildarlánum sem tekin voru eftir 1. júlí 1974 og bera bókstafina F. Vextir af öllum F lánum eru nú 9.75% Hækkun dráttarvaxta Dráttarvextir veðdeildarlána sem tekin voru eftir 1. júlí 1974 og bera bókstafinn F eru nú 3% fyrir hvérn mánuð og byrjaðan mánuð. W'Véödeild Landsbanka íslands DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRlL 1979. Frihöfnin á Keflavíkurflugvelli. Er Fríhöfnin okurstofnun? — selur dýrara súkkulaði en verzlanir íDublin I.esandi hringdi: Þann 18. apríl sl. keypti ég súkkulaði sem heitir Anthon Berg og er dönsk framleiðsla i frihöfninni á Keflavíkurflugvelli. Kostaði súkkulaði þetta 3,5 dollara eða 1155 íslenzkar krónur. Ég var þá að koma frá Dublin og hafði keypt þar ná- kvæmlega eins súkkulaði á 1 pund og 35 penny eða 948 íslenzkar krónur. Súkkulaðið sem ég keypti í frí- höfninni hér var því 207 krónum dýrara heldur en það sem ég keypti út úr verzlun i Dublin. Mig langar þess vegna til að spyrja hvort fríhöfnin á Keflavíkur- flugvelli sé okurstofnun. Alla veg finnst mér ekki nokkur fríhöfn geta selt varning sinn með slíkri álagningu. Sumir sjá klám í öllu — meira að segja eðlun dýra Fjölskyldufaðir skrifar: Það er furðulegt hvað sumt fólk virðist sjá klám á öllum mögulegum hlutum og leitar svo mikið að það sé klám í þvi að krabbadýr eðli sig í sjónvarpinu. Skilgreining mín er að klám sé þegar fólk lítur náttúrulega og eðlilega hluti sóðalegum augum. Það má vera aumt foreldri sem ekki þorir 'að segja barni sínu ófeimið frá því (þegar það spyr) hvað sé að gerast þegar dýr eðla sig. Það er aðeins til að ýta undir saurugt hugarfar barnsins.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.