Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 35
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
Ath; Platán fœst í FALKANU
ROLLING STONES á sviði. Þeir þóltu standa sig afbragðsvel á blindrahljóm-
leikunum þó að þeir hefðu aðeins getað æft sig í fjórar klukkustundir fyrir
hljómleikana. DB-mynd Hallgrímur Björgólfsson.
----- 0
MðNNflKORNSFRÍrT
í frétt um útkomu
nýiu Mannakornsplöt-
unnar, Brottför klukk-
an átta, sem birtist a
poppsíðunni á föstudag
slæddust nokkrar vill-
ur Þar féll til dæmis
niður nafn bassateikara
Mannakorns, Jóns
Kristins t<>rtes, sem
leikur bæöi með á plot-
unni og á dansteikjum
þeim sem fynrhugaðir
eru með Mjómsveitinni
i mai og júní. Þá var
Björn Björnsson
tvisvar í fréttinni en að
ýálfsögðu leikur aðeins
einn Björn með
Mannakorni.
Hlutaðeigendur eru
beðnir velviröingar a
þessum villum
Keith Richards hefur afplánað eiturlyfjadóm sjnn íKanada
Rolling Stones sönnuðu
enif e/ifu sinni yfirburði sína
Dóminum yfir Richards
hefur veríð áfrýjað
Keith Richards, gítarleikari
Rolling Stones, hefur afplánað
refsingu sína. í síðustu i iku lék hann
ásamt hljómsveitinni á tvennum
hljómleikum i Toronto í Kanada að
viðstöddum um fimm þúsund manns,
þar af um 1500 blindum. Óvist er
hvort Rolling Stones leika meira
saman á þessu ári.
Richards var eins og kunnugt er af
fréttum dæmdur í október
siðastliðnum fyrir að hal'a haft
heróin í fórum sínum í Kanada.
Dómurinn hljóðaði upp á sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi og
auk þess krafðist dómarinn þess að
Keith og félagar hans efndu til
hljómleika til styrktar blindu fólki i
Kanada.
Dóminum
var áfrýjað
Sækjandinn í máli Keith Richards
hefur áfrýjað þessum dómi og var
Keith tilkynnt það við komuna til
Toronto. Slík tilkynning er frum-
skilyrðið fyrir þvi að hægt sé að á-
frýja dómi i Kanaa. Keith tók þvi
vissa áhættu með þvi að láta sjá sig.
Hefði hann hins vegar ekki komið og
haldið hljómleikana hefði hann ekki
staðið við sitt og þvi orðið að taka út
refsingu sína innan fengelsis-
múranna.
Gífurlegur spenningur var meðal
aðdáenda Rolling Stones í Toronto
þegar hljómleikarnir voru haldnir.
Aðgöngumiðar, sem alla jafna kosta
um fimmtán dollara, voru komnir
upp í fjögur hundruð dollara stykkið.
Samtök blindra voru þó ekki eins
hrifn af þessu hljómleikkahaldi og
aðdáendur og töldu þá móðgun fyrir
fatlað fólk yfirleitt. Margir blindir,
sem fengu senda miða, endursendu
þá. Þeir sem á hinn bóginn létu sjásig
voru flestir mjög ánægðir með
skemmtunina sem fór vel fram að
flestu leyti.
Aðalathyglin
beindistað Richards
Á þessum blindrahljómleikum var
Keith Richards í fyrsta skipti á ferli
Rolling Stones miðpunktur hljóm-
sveitarinnar. Hingað til hefur aðalat-
hyglin fyrst og fremst beinzt að Mick
Jagger. Er Richards birtist á sviðinu
var honum fagnað innilega. Ilann var
með blað i hendinni — sennilega
skrifaða ræðu — og gekk að
hljóðnemanum.
,,Ég er mjög ánægður mcð að
vera kominn hingað til ykkar,” sagði
hann og hikaði síðan við, kastaði
blaðinu og endurtók að sér þætti
ákaflega gaman að vera kominn til
Kanada og hóf síðan upp leik sinn á-
samt upphitunarhljómsveitinni
Barbarians í laginu Before They
Make Me Run. — Keith samdi það
sjálfur á meðan hann beið dóms. Að
því loknu gekk Mick Jagger fram á
sviðið og saman fluttu þeir
æskuvinirnir lagið Prodigal Son
(Glataði sonurinn).
Hljómsveitin Barbarians, sem
kom fyrst fram á hljómleikunum, er
ný af nálinni. Ron Wood gitarleikari
Rolling Stones stofnaði hana og
leikur með henni ásamt til dæmis
Keith Richards og Stanley Clarke.
Barbarians eru nú á hljómleikaferða-
lagi og vonandi verður hægt að
greina frá þeim siðar.
Þrátt fyrir að Rolling Stones gæti
aðeins æft sig í fjórar klukkustundir
fyrir hljómleikana í Toronto þóttu
þeir standa sig vel. Það er ekki að
ófyrirsynju sem hljómsveitin er talin í
hópi klassískra rokkhljómsveita.
Hljómleikarnir teljast því að mörgu
leyti til sögulegs viðburðar í
rokksögunni. Keith Richards
afplánað dóm sinn, sem allt eins
hefði getað verið ævilangt fangelsi,
og blinda fólkið fékk dálitla til-
breytingu — eins og til var ætlazt.
-SS/ÁT-
KEITH RICHARDS I lögfræðingafylgd. Þessi mynd er frá iví I júli árið 1977. Þá var hann ákærður fyrir að hafa
haft undir höndum mikið magn af heróíni og haft í hyggju uu selja það. Richards játaði að hafa átt eilurlyfið og þar
með var felld niður kæran um að hann hefði ætlaö að selja það. — Hann var aðalstjarna hljómleikanna og var
fagnað gífurlega er hann gekk fram á sviðið.