Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. 7 Það eru fleiri en flamingóamir sem geta staðið einfœtúr — þessi var að klippa af trjánum sinum heima i garðiþegar (jósmyndarinn sá hana frá þessu sjónarhorni. DB-mynd Ragnar Th. Hátíðahöldin l.maí: Mótmælt áform- um stjórnvalda um vísitölukerfið — farmenn höfnuðu þáttöku Í 1. maí ávarpi Fulltrúaráðs verka- lýðsfélaganna í Reykjavik, BSRB og Iðnnemasambandsins er mótmælt harðlega áformum stjórnvalda um að ganga á gerða samninga um vísitölu- kerfið og skerða almenn vinnulaun á sama tíma og tekjuhæstu einstakl- ingar þjóðfélagsins fá meira en mán- aðarlaun verkamanns í kauphækkun, eins og þar segir. Lýst er yfir að gegn þessum áform- um muni alþýða manna berjast af fullum þunga, um leið og launafólk sé reiðubúið til að styðja stjórnina á braut til bættra lífskjara og félags- legrar sóknar. Þá er í ávarpinu hvatt til afnáms hernaðarbandalaga og herstöðva hér á landi. Jafnréttismál og bætt skilyrði til barnauppeldis eru ofarlega á baugi i kröfum dagsins. Aðalheiður fundarstjóri Á vegum þessara samtaka mun safnast saman á Hlemmtorgi klukkan hálftvö og gengið þaðan á Lækjar- torg, þar sem útifundur hefst klukk- an tvö. Framkvæmdastjórn Farmanna- og fiskimannasambandsins hafnaði þátttöku i hátíðahöldunum. Þá hefur DB áður greint frá að sjálfstæðis- menn í fulltrúaráðinu eiga ekki aðild að þessum hátíðahöldum. Ræðumenn verða: Grétar Þor- steinsson, formaður trésmíðafélags- ins, Jón Helgason, formaður Einingar á Akureyri, og Hafsteinn Eggertsson, formaður Iðnnemasam- bandsins. Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, formaður Sóknar, verður fundarstjóri. Lúðrasveit verkalýðsins, Lúðra- sveitin Svanur og Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts leika fyrir kröfugöngunni og á útifundinum. Lúðrasveit Laugarnesskóla leikur á lóð Stjórnarráðsins frá klukkan hálf- tvö. Leikararnir Baldvin Halldórsson og Karl Guðmundsson munu lesa úr bókinni Bréf til Láru eftir Þorberg á fundinum. Ráðherra á Akureyri Ræðumenn á Akureyri verða Karl Steinar Guðnason alþingismaður og Svavar Gestsson viðskiptaráðherra. Á Siglufirði flytur Kristján Ásgeirs- son, formaður Verkalýðsfélags Húsavikur, aðalræðuna en Signý Jóhannesdóttir flytur ávarp. Á Akra- nesi talar Einar Ögmundsson, gjald- keri ASÍ, en nokkrir flytja stutt ávörp að auki. í Hafnarfirði tala Björgvin Sigurðsson Stokkseyri, Hallgrimur Guðmundsson, formaður Hlifar, og Albert Kristinsson, form. Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. Í Eyjum flytur Jóhanna Friðriks- dóttir, formaður Snótar, ávarp en aðalræðuna flytur Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins, flytur aðalræðuna á Húsavík. Raf magn og hitaveita upp um 30% 1. maí nk. taka gildi talsverðar hækkanir á ýmiss opinberri þjónustu og verðskrá opinberra fyrirtækja, sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sinum í gærmorgun. Afgreiddar voru hækkunarbeiðnir frá fjölda opinberra fyrirtækja og ber þar hæst 30% hækkun á raforku frá Landsvirkjun og taxti margra hita- veitna víða um land hækkar á bilinu 20—30%. Áburður frá Áburðaverksmiðjunni hækkar um 52%, sement um 23%, far- gjöld strætisvagna SVR um 25%, dag- heimilagjald um 7.7% og leikskóla- gjöld um 14.3%. Fyrir liggja hækkunarbeiðnir frá fleiri fyrirtækjum á opinberum vett- vangi, eins og Pósti og síma, Raf- magnsveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Reykjavíkur og rafmagnsveitur úti á landi hafa farið fram á hækkanir. Er talið liklegt að þær hækkunarbeiðnir verði afgreiddar fyrir mánaðamótin eða núna um helgina. - HP „Býst við samþykkt,” segir Stefán Jónsson (AB): Yrði vantraust á sjávarútvegs- ráðherra — DB birtir bréf Jónasar Haralz um afstöðu Landsbankans til rækjutogarakaupanna á Dalvík ,,Ég reikna með að þingmeirihluti sé fyrir þessari þingsályktunartillögu og býst við samþykkt hennar,’.’ sagði Stefán Jónsson alþingismaður (AB) í viðtali við DB. Samþykkt tillögunnar fæli í sér verulegt vantraust á Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra. Sjávarútvegsráðuneytið stöðvaði kaup Dalvíkinga á rækjutogara, þótt þeir hefðu meðmæli Landsbankans til kaupanna. í þingsályktunartillög- unni greinir að skorað skuli á rikis- stjórnina að veita Söltuanrfélagi Dal- víkur heimild til að kaupa rækjutog- ara til útgerðar á djúpslóð. Með þessu hyggjast flutningsmenn, sem eru úr öllum flokkum, yfirstiga and- spyrnu sjávarútvegsráðuneytisins og setja sjávarútvegsráðherra á hné sér. Jónas Haralz mælir með Dalvíkingum DB hefur orðið sér úti um bréf Jónasar H. Haralz, bankastjóra Landsbankans, til Svavars Gests- sonar viðskiptaráðherra vegna þessa máls. Þar segir: „í áliti starfshóps um lánareglur varðandi innflutning fiskiskipa er lagt til, að núverandi takmörkunum verði haldið. Eigi að síður er talið eðlilegt að leyfður verði innflutn- ingur tveggja sérhæfðra skipa, ann- ars til kolmunnaveiða en hins til rækjuveiða, með rýmri lánsheimild (80%). Það er skoðun bankastjórnar Landsbankans, að fallist rikisstjórnin á þessar tillögur, ætti Söllunarfélag Dalvikur hf. að sitja fyrir rækjutog- aranum. Þeir hafa verið brautryðj- cndur á þessu sviði og el'tir talsverða byrjunarörðugleika hafa vciðar Dal- borgar gengið mjög vel undanlarið ár. Rök eru fyrir þvi að mun auðveld- ara sé að reka fyrirtækið með tveinrur góðum skipunt i stað eins, jafnframt þvi sem þcir losnuðu við gamalt skip, Arnarborg, sem ckki er unnt að gera út með árangri. Lands- bankinn hefur stutt rækjuveiðar þcssa fyrirtækis, frá þvi ákveðið var að kaupa Dalborgu, og lelur fjár- hagslegan grundvöll vera fyrir hendi til kaupa nýja skipsins. Er bankinn reiðubúinn að gefa yfirlýsingu um að eigið framlag til kaupanna muni vera til staðari” - HII Stjórnarfrumvarp: Fleiri fá gjaldeyri sinn jafnóðum Afgreiðslum gjaldeyrisbankanna verður veitt rýmri heimildir en verið hefur til að afgreiða gjaldeyrisumsókn- ir jafnóðum eftir föstum reglum sam- kvæmt stjórnarfrumvarpi um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, sem kom fram í gær. Þyrfti þá afgreiðslan ekki að tefjast við það að bera verulegan hluta gjald- eyrisbeiðna undir sérstaka nefnd, svo sem verið hefur, segir i greinargerð með frumvarpinu. „Frumvarpið stefnir almennt séð i þá átt að liðka afgreiðslur og létta þar með undir i viðskiptalífinu með þvi að færa daglegar afgreiðslur i rikari mæli inn í gjaldeyrisviðskiptabankanna,” segir i greinargerðinni. „Jafnframt og á hinn bóginn er áfram beitt nauðsyn- legu aðhaldi og mörg ný ákvæði tekin mála og sérstaklcga gjaldeyriseftirlits- upp til að styrkja framkvæmd þessara ins,” segir þar. - HH nartfml OPIÐ KL. 9-9 Allar skreytingar unnar af fag- mönnum. Nag blla.tc.6l a.M.k. é kvöldia HiOMiAvixnn HAFNARSTkÆTI Slmi 12717 Finlux Litsjónvörp \Æ FISHER Hljómtæki Qcosiima Myndavélar TSiGmfl Linsur SUnPRK Flöss MAGNON Kvikmynda sýningavélar HOYfi Ljósmynda filterar MallorY Rafhlööur ZENITH ZORKI — KIEV MYNDAVÉLAR TEC SEKONIC Ljósmælar STEREO - FERÐAKASS- ETTUTÆKI MEÐ ÚTVARPI LW - MW - FM - SW. MEÐ 4 HÁTÖLURUM w audio technica Pickup Heyrnartól Astra Music Úivarpsklukkur AÐEINS KR. 102.000,- SJÓNVARPSBÚDIN BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099 refiecta Kvikmyndatöku Ijós og Sýningartjöld Do/imz Þrifætur GINO Ljósmynda töskur SPECTRUM Sjónvarps leiktæki SUPER ZENITH Sjónaukar

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.