Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
15
ifl
ÖRUGGARI - ENDINGARBETRI
arar. Það var einn angi hennar sem
síðan hafði talsverð áhrif á íslenska
myndlistarmenn um 1950, gegnum
París. Þessi sýning í Guggenheim-
safninu nýtur sjálfsagt ekki mikillar
hylli hjá almenningi, bæði sökum
hins óvenjulega efniviðar og'
huglægrar afstöðu myndlistar-
mannanna, en fyrir fræðimenn og
sérstaka áhugamenn, er hún mikils
virði. Henni lýkur svo á næstunni eða
6. maí.
í Museum of Modern Art var hins
vegar ys og þys um páskana og var
helsta aðdráttaraflið snotur sýning á
23 málverkum eftir Edward Munch
sem ekki þarf að fjölyrða um fyrir
íslendinga. Einnig höfðu margir
áhuga á tylft lágmynda eftir Frank
Stella, sem eru formyndir
(maquettur) að stærri verkum. Það er
nær engin leið að geta sér til um það
hvað Stella er að fara um þessar
mundir, svo mikill hrærigrautur er
myndlist hans. Væntanlega fæst úr
því skorið á næstu árum hvað vakir
fyrir honum.
Bjórglas í
Skúlptúr-
garðinum
Báðar þessar sýningar voru að
enda og stóð til að opna sýningu á
gjöf Jamcs Thrall Soby til safnsins
en hann var í forsvari fyrir
M.O.M.A. hér fyrr á árum og átti
mjög gott safn nútímamyndlistar.
En þeir sem ekki hirða um sýningar-
vafstur safnsins geta ávallt reikað um
og skoðað þau frábæru verk sem þar
er að finna — helztu perlur
kúbismans, fauvismans, súrrealisma,
dada og amerískrar myndlistar.
Síðan er upplagt að fá sér kaffi eða
bjórglas úti í skúlptúrgarðinum.
Whitneysafnið getur hins vegar
ekki státað af miklu safni og leggur
mest upp úr því að setja upp viða-
miklar yfirlitssýningar á bandarísk-
um listamönnum. Fram að 10. júní
stendur þar yfir sýning á verkum Cy
Twombly sem er að mínu viti einn
merkasti listmálari Bandaríkjamanna
í dag þótt hann sé búsettur í Róm.
Útundan í USA
Twombly hefur lengi staðið utan
við menningarpólitík í heimalandi
sínu og hefur því e.t.v. orðið
útundan. En nú er úr þeirri ávöntun
bætt því sýningin er myndarleg og er
fylgt úr hlaði með ritsmið eftir
franska heimspekinginn Roland
Barthes. Twombly er fæddur árið
1928 í Virgíníufylki og gekk ungur
m.a. í Svartafjallsskólann (Black
Mountain College) sem var lengi
útungunarstöð fyrir framsækna lista-
menn. Þar kynntist hann m.a. Robert
Motherwell og Frans Kline en meðal
þeirra sem kenndu við skóla þennan
voru Josef Albers, skáldið Charles
Olson, Buckminster Fuller, John
Cage, Merce Cunningham dansari
o.fl. Um 1950 hóf Twombly nám við
Art Students League í New York,
ferðaðist siðan vítt og breitt um
Evrópu og Afríku en settist að í Róm
árið 1957 þar sem hann hefur orðið
fyrir miklum áhrifum af siðmenningu
Miðjarðarhafslanda.
Á skólatöf lu
Það er erfitt i stuttu máli að lýsa
myndlist Twomblys. Það tekur
tímann sinn að læra að meta hann og
suma rekur í rogastans yfir málverk-
um sem virðast eins og útkrotuð tafla
í skólastofu með setningum á víð og
dreif, klunnalegum flatarmálsteikn-
ingum, tölustöfum o.s.frv. Að
upplagi er Twombly sambland af
afstrakt ' expressjónista og lista-
skrifara (calligraphic artist) og með
hið fyrra að bakhjarli tekur hann
ýmsa áhættu með stór, næstum
Innanhúss í Guggenheim safninu.
Þar stendur yfir sýning á
konstrúktifum lágmyndum.
m
Bandag Hjólbarðasólun h.f. Dugguvogi 2 - Sími 84111
alhvít eða grá málverk og ofan í þau
fer Twombly með blýanti eða svart-
krit, teiknar eða krotar léttilega.
„Skriftin” samanstendur af eins
konar óræðum skilaboðum til áhorf-
enda, minnispunktum, endur-
minningum, talnaröðum og ekki síst
slitrum úr griskum goðsögnum.
Roland Barthes ræðir sérstaklega
áhuga Twomblys á grískri menningu
og heimspeki og hvernig hann
kemur fram í verkunum og einkar-
lega er Barthes umhugað um að
tengja málverkin og ýmis þau hugtök
sem Grikkir notuðu yfir leikverk og
leiksýningu: pragma eða staðreynd-
ina, tilviljunina (tyche), útkomuna
(telos) viðbrigði (apodeston) og fram-
kvæmd (drama).
Gegnsýrð sól
En kunni áhorfandinn ekki að
meta þessa hlið á málverkum
Twomblys þá er alltént hægt að
beygja sig undir þokka þeirra. Þau er
gegnsýrð sól, tíbrá, værð og munúð
sem stundum minnir mann bæði á
veggmyndir í Pompei og Tiepolo.
Yfirlitssýningin á verkum Cy
Twombly í Whitneysafninu stendur
til 10. júní. En það er einnig nóg að
gera annars staðar i bænum. Hafi
menn tíma til þess að rölta um SoHo
(sem er skammstöfun á „South of
Houston Street”) og kannski mið-
borgina líka er upplagt að bregða sér
i hin mörgu galleri sem þar blómstra.
Þar getur fólk séð nær öll viðhorf í
myndlistum. Franska listakonan
Niki de Saint Phalle sýnir í Gimpel
1040 Madison Ave., til 23. maí,
málarinn Sam Francis er í Davidson-
galleríinu, 43 E. 78 St. til 5. júní,
Ellsworth Kelly sýnir málverk i
Helman við 13 E. 75 St. til 31. maí
Jules Olitski sýnir í Knoedler, 19 E.
70 St, Tony Smith, Minimal mynd-
smiðurinn góðkunni, sýnir verk í
Space, 32 E 57 St., og Popplistar-
frömuðurinn Tom Wcsselmann sýnir
i Janis á 6 W. 57 St. Á West
Broadway, Spring Street, Greene
Street og Wooster Street má svo
finna conceptlist, videó, umhverfis-
list og annað í þá veru. En menn
verða að gefa sér drjúgan tíma og
fara ekki geyst í skoðunina.
KELLY fólksbíladekk eru viðurkennd um allan heim fyrir
frábær gæði og einstaka endingu.
Á kvartmílu- og kappakstursbrautum nota sérfræðingarnir
og atvinnumennirnir KELLY dekk og segir það allt sem segja
þarf um gæði þeirra.
KELLY hjólbarðar eru fáanlegir á flestar gerðir fólksbíla
og jeppa.
Með KELLY verða hjólbarðarnir öruggari og endingarbetri.
UMFELGUN Á AUGNABLIKI
Á hinu nýja umfelgunarverkstæði okkar að Dugguvogi 2
leggjum við áherslu á lipra og hraða þjónustu.
Ný dekk, sóluð dekk, viðgerðarþjónusta og umfelgun.
Öruggir menn - augnabliks bið og málið er afgreitt á þægi-
legan og traustan hátt.
Velkominn á nýjan stað með þjónustu í sérflokki.
HfW
TYRE COMPANY LIMITED