Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 40

Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 40
Dagskráin fer aö þynn- ast ummiöjan mánuö — ef ekki kemur til aukið fé „Enn sem komið er hafa stjórn- völd ekki svarað okkur nema í fjöl- miðlum,” sagði Ólafur R. Einarsson, formaður Útvarpsráðs, í viðtali við DB um þær miklu umræður sem spunnizt hafa um bágan fjárhag ríkisfjölmiðlanna og þá sérstaklega hljóðvarpsins. „Við eigum samt von á því, að málið verði rætt núna á næstu tveimur vikum, en ef ekkert verður að gert, má búast við að áhrifa fjárskortsins fari að gæta í endaðan maí.” Ólafur sagði að Ijóst væri að ríkis- fjölmiðlarnir hefðu fengið til ráðstöf- unar sömu krónutölu og jafnvel lægri en í fyrra og það gætu allir sagt sér að hrykki hvergi nærri til. Verðbólgan hefði tekið sinn skerf og framleiðsla útvarps og sjónvarpsefnis yrði æ kostnaðarsamari. Það var haft eftir Ólafi í Helgar- póstinum, um helgina, að honum hefði fundizt það ósmekklegt, að framkvæmdastjóri hljóðvarps, Guðmundur Jónsson, hefði útvarpað þætti sínum Óperukynningu í stað þáttarins í vikulokin er sá þáttur féll niður fyrri laugardag: ,,Ég vil engu bæta við það, ég er búinn að skjóta á það. Hins vegar er það min skoðun, að þegar tækni- menn útvarps leggja niður vinnu til að mótmæla algjörlega óviðeigandi vinnuaðstöðu og vinnuálagi, eigi þess að sjást merki í dagskránni”, sagði Ólafur. -HP. Prjónað á barnaári Frísandi af vilja prjónar Skjóni með ungan indíána á bakinu. Þessi indíáni er að því leyti ólíkur þeim einu sönnu að hann er íslenzks þjóð- ernis. Skjóni og strákur voru eitt afþeim atriðum sem Hestamannafélagið Fákur bauð upp á ti/sýn- is og skemmtunar / gœr, í tilefni barnaárs. DB-mynd Sv. ÞormJDS. frjálst, áháð daghlað MÁNUDAGUR 30. APRÍL1979. Stendur á lokafram- kvæmdum við flugvöll íLandeyjum: Hefði borgað sig á einum degi „Lokaframkvæmdin, til að fá þennan völl við Bakka í Landeyjum samþykktan, hefði borgað sig á einum degi, því flug milli Eyja og hans tekur ekki nema fimm mínútur í stað 15 minútna til Hellu,” sagði Bjarni Jónas- son, flugmaður í Vestmannaeyjum í viðtali við DB í morgun. Bjarni hefur lagt útfyrir þeim framkvæmdum, sem fyrir eru. Flugvél hans og vél frá Vængjum mynduðu loftbrú milli Hellu og Eyja á föstudag og fluttu m.a. út mikið af kærkominni mjólkurvöru. Áætlaður flutningskostnaður með að aka mjólk- inni frá Selfossi til Hellu og fljúga henni þaðan til Eyja, er um 45 krónur á líterinn og greiðir bæjarsjóður Vest- mannaeyja þann kostnað fyrst um sinn. Snemma í morgun var ekki flugfært í Eyjum, en Bjarni hugðist hefja flug jafnskjótt ogveðurgengið niður. -GS. Söluskattur á gasolíu felldur niður Söluskattur á gasolíu verður senni- lega lagður niður. Auknar tekjur ríkisins vegna hækkunar á bensíni og olíu munu fara til að hækka olíustyrki, afnema söluskatt á gasolíu og greiða kostnað við ráðgjafarþjónustu og aðrar aðgerðir til orkusparnaðar. Þetta kom fram í viðtali DB við Svavar Gestsson viðskiptaráðherra í morgun. Bensínlítrinn hækkar til fulls í samræmi við erlendar hækkanir. Frá málinu átti annars að ganga á ríkis- stjórnarfundi, sem hófst skömmu fyrir hádegið. -HH. Sorphaugarnir Selfossi: A.m.k. tvö tonn á dag — af úrgangi frá sláturhúsunum „Stórgripaslátrun er hér daglegá; þannig að nauðsynlegt er að aka úrgangi á sorphaugana á hverjum degi”, sagði Sigurður Guðmundsson verkstjóri í stórgripaslátrun hjá Slátur- „Húsasorpið ekki betra” „Það er nú ekki aðallega úrgangurinn frá sláturhúsunum sem fólk hér á Selfossi kvartar undan,” sagði Vilhjálmur Baldursson, starfsmaður SS á Selfossi. „Það er húsasorpið sem er öllu verra. Bréfadrasl alls konar fýkur stöðugt frá haugun- um og yftr bæinn. Þetta þarf maður að vera að hreinsa af girðingum og fara með aftur á haugana. Bæjaryfirvöld virðast ekki láta urða sorpið nægilega títt, þannig að draslið fýkur til og frá. Þó ber að taka fram að ástandið á haug- unum hefur batnað frá því sem áður var. Áður var sorpið brennt og þá barst fnykurinn oftlega yfir bæ- inn, mönnum til lítillar gleði.” __________________ JH. félagi Suðurlands á Selfossi í samtali við fréttamann DB. Eins og DB greindi frá á föstudag er ástand á sorphaugum Selfoss vægast sagt bágborið vegna mikils úrgangs sem berst frásláturhúsunum á Selfossi. „Það má reikna með þvi að um tvö tonn af stórgripaúrgangi sé fluttur á haugana hvern meðaldag”, sagði Sigurður. „Þá er átt við hein og innmat allan. Reikna má með því að daglega sé slátrað hér um 20—25 kálfum og öðru einsafkúmognautum.Þámá gera ráð fyrir þvi að um 40—50 svínum sé slátrað á dag. Þetta margfaldast síðan í haustslátrun sauðfjár. Þessi úrgangur er þó ekki eingöngu frá SS, því einnig kemur hluti frá Sláturhúsinu Höfn á Selfossi.” -JH. Samtökin hætta skipu- lögðu flokksstarfi —Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á landsf undi Landsfundur Samtakanna ákvað um helgina með öllum greiddum atkvæðum, aö hætt skyldi skipu- lögðu starfi á vegum flokksins. >x Þó skuli landsfundur kvaddur shman fyrir næstu kosningar og þá ákveðið mvð' /tBHti til ríkjandi aðstæðna á þeim tíma, hvort boðið verður fram í kosningunum eða ekki. „Framtíðin verður að skera úr um það,” sagði Magnús Torfi Ólafsson, formaður Samtakanna, þegar DB spurði hann, hvort Samtökin væru aö lognast út af. „Af okkar hálfu er, verið að draga rökréttar ályktanir af kosningaúrsiitunum,” sagði Magnús. „Landsfundur mun svo ákveða fyrir kosningar, hvort grundvöllur verði fyrir kosningaþátttöku og frekari baráttu.” Magnús sagði aö sumum fulltrúum hefði þótt miður, að starfið yrði tak- markað eins og ályktunin kveður á um, en samstaða hefði orðið að lok- um. Landsfundurinn sagði að ekki hefði skapazt nein ný pólitísk skilyrði fyrir starfi flokksins eftir kosning- arnar. Félagsmenn Samtakanna á stöðum, þar sem flokkurinn fékk kosna bæjarfulltrúa eða hrepps- nefndarmenn, eru hvattir til að „halda hópinn”. Æðstu forystumenn flokksins fengu yfirumsjón yfir eigum flokks- ins, þangað til annað verður ákveðið. -HH. Bátsþjófs leitað á Akranesi Bát var stolið úr Akraneshöfn aðfaranótt sunnudags og skilað þangað skemmdum upp úr sjö á sunnudags- morgun. Er nú þjófsins leitað, þvi talsverðar skemmdir voru unnar á bátnum. Báturinn heitir Sædís AK 6 og er 2,5 tonns frambyggður plastbátur, hvítur að neðan og rauður að ofan. Á honum er m.a. radarmastur. Sást maður sigla inn til Akraness á honum og var ekki nánar hugað að því menn töldu þar eigandann á ferð. Svo var ekki og eru allir sem upplýsingar geta gefið beðnir að hafa samband við Akraneslögregl- unar. Báturinn var brotinn upp, mæla- borðið sprengt upp og tengt saman. Við það hafa orðið skemmdir á vél m.a. startari ogalternatorónýttir.A^

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.