Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. Bílasýning Kvartmíluklúbbsins Benni botnaði jeppa- búrið upp stígann Kvartmíluklúbburinn hélt árlega bílasýningu sína nú um páskana. Allt frá stofnun klúbbsins fyrir um fjórum árum hafa verið haldnar bíla- sýningar, þar sem félagar klúbbsins hafasýnt almenningi farartæki sín. Fyrsta sýning Kvartmíluklúbbsins var haldin í porti Austurbæjarbarna- skólans vorið 1976. Var sú sýning opnuð kl. 2 sýningardaginn og stóð í þrjár klukkustundir. Komu um sjö hundruð manns á sýninguna. Önnur sýningin var haldin við Bila- sögu Guðfinns bak við Hótel Esju og var hún að hluta tii inni. Opnunar- tími hennar var' aðeins lengri og komuhátt á annað þúsund manns til að skoða hana, þrátt fyrir að sýning- ardagurinn væri aðeins einn. Þriðja sýningin var haldin um páskana vorið 1978 og að þessu sinni var ákveðið að halda sýninguna inni svo að veður gæti ekki spillt sýningunni. Var Laugardalshöllin tekin á ieigu og sýningin haldin í þrjá daga. Voru fengnir bílar víðs vegar af landinu á þá sýningu og komu um 10 þúsund manns til að skoða hana. Má þakka það þeirri sýningu að unnt var að malbika kvartmílubrautina í Kapeliuhrauni síðastiiðið haust. Fjórða sýningin var síðan haldin nú um síðastliðna páska eins og fyrr sagði. Var hún að þessu sinni haldin í Sýningahöllinni við Bíldshöfða og var sýningardögunum fjölgað úr þremur í sex. Reyndi stjórn Kvart- míluklúbbsins að gera allt til að sýningin yrði sem best. Var bílum safnað saman víða af landinu en auk þess var fluttur inn til landsins sér- smíðaður kvartmílubíll frá Svíþjóð. Það fór einnig svo sem við var búizt, sýningargestum fjölgaði og að þessu sinni komu um 20 þúsund manns, börn og fullorðnir, að sjá sýninguna. Svo sem við er að búast þurfti sýning þcssi mikinn undirbúning og enn meiri vinnu yfir sjálfan sýningar- tímann. Það hefði orðið lítið úr sýningunni ef ekki hefði komið til allur sá fjöldi áhugamanna sem vann kauplaust á sýningunni og fyrir hana til að gera sýninguna sem bezta. Sýningin var á báðum hæðum Sýningahallarinnar. Niðri voru allir fólksbílarnir en þeir voru 50 talsins. Á efri hæðinni voru mótorhjólin, jepparnir, leiktækin, bilabrautin og plastmódelsamtökin, sem sýndu módel af bílum. Ekki var um margar leiðir að velja til að koma hjólunum og jeppunum upp á efri hæðina en sú auðveldasta, stiginn, var valin. Var gaman að fylgjast með jeppagæjunum meðan þeir keyrðu upp. Læddust þeir allir í lága drifinu upp stigann, nema Benedikt Eyjólfs- son. Hann fékk það verkefni að koma 350 kúbika jeppanum hans Ólafs Ólafssonar upp stigann. Botnaði hann jeppabúrið og vippaði sér upp á efri hæðina með öll hjólin á lofti. Hefur hann sjálfsagt verið með hugann í einhverri jeppakeppninni en eins og menn muna sigraði Benedikt í fimm jeppakeppnum síðastliðið sumar. Birgir Jónsson á verklegasta kvartmílubílinn sem var á sýningunni. Bíll Birgis er Holy Smoke Monsan hans Pústmanns. \ Oddur Ólafsson átti athyglisverðasta bílinn að þessu sinni en Oddur bjó bílinn sinn til úrgömlum jeppa og Corvair. Þegar Kvartmíluklúbburinn hélt aðra bilasýningu sína gaf Jón Garðarsson í versluninni Úr og klukkur klúbbnum þrjá farandbikara sem hafa verið veittir á bílasýningum siðan og eru það sýningargestir sem ákveða hverjir hljóta þá hverju sinni. Aðgöngumiðinn er jafnframt at- kvæðaseðill og geta sýningargestir þar kosið fallegasta bílinn, athyglis- verðasta bílinn og verklegasta kvart- mílubílinn á sýningunni. Það var mikið verk að telja öil at- kvæðin en þegar því var lokið kom í ljós hvaða bílar höfðu orðið hlut- skarpastir. f keppninni um fallegasta bílinn lenti Eyjólfur Sverrisson í þriðja sæti en bíll hans er Pontiac Trans Am. Annar varð Vilhjálmur Ástráðsson en hann á ’55 Ford, bláan að lit og er það án efa fallegasti og best með farni gamli bíliinn á íslandi og þótt víðar væri leitað. í fyrsta sæti lenti Gylfi Pálsson, en hann á fallegasta bílinn á íslandi, Chevrolet Corvette árg. 1977. Margir athyglisverðir bílar voru á sýningunni en í þriðja sæti varð Birgir Jónsson með svörtu Monzuna. í öðru sæti varð Vilhjálmur Ástráðs- son, aftur með ’55 Fordinn, en í fyrsta sæti varð Oddur Ólafsson. Mátti með sanni segja að hann á athyglisverðasta bílinn á íslandi i dag. Billinn hans er samansettur úr tveimur öðrum. Eru það Willys jeppi og Chevrolet Corvair. Setti hann Corvair boddíið á jeppagrindina og má segja að Oddur sé „upp á annarri hæð” þegar hann keyrir um fjöll og firnindi. Að lokum kusu sýningargestir verklegasta kvartmílubílinn á sýningunni, en það mun þá vera sá bíll er þeir telja sigurstranglegastan í kvartmílunni. i þriðja sæti þar lenti Benedikt Eyjólfsson með 455 Pontiac jeppann ógurlega, en hann vann fimm jeppakeppnir af af sex á jeppanum síðastliðið sumar. í öðru sæti varð Örvar Sigurðsson formaður Kvartmíluklúbbsins með 454 Camaróinn, en hann var valinn verk- legasti kvartmílubíllinn í fyrra. í fyrsta sæti varð síðan Birgir Jóns- son,en bíll hans er 302 kúbika Chevrolet Monza. Er þar með kominn Pústmanns Monzan fræga í nýju lakki og með auknum búnaði. Verður gaman að fylgjast með hversu sannspáir sýningargestir hafa verið þegar keppnir hefjast á kvart- mílubrautinni í Kapelluhrauni. Jóhann Kristjánsson. Bíleigendur fcngu frjálsar hendur mcð uppsetningu bíla sinna og sýndu þeir margir hverjir mikla hugmyndaauðgi. DB-myndir Jóhann Kristjánsson. Sýningargestum þótti Corvettan hans Gylfa Pálssonar vera fallegasti bíllinn á sýningunni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.