Dagblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979. Hestaþing Mána verður haldjð á Mánagrund við Garðveg 9. og 10. júní. - Dagskrá: Laugardagur 9. júní, kl. 14.00 A og B flokkar dæmdir — Unglingar fæddir '65 og yngri. Unglingar fæddir '61—'64. Töltkeppni, gæðingaskeið. Sunnudagur 10. júní kl. 14. Kappreiðar 800 m brokk 250 m skeið 250 m unghrossahlaup 350 m stökk 800 m stökk Úrslit í keppnisgreinum, dómum lýst. Þátttaka og skráning keppnishrossa í síma 92-1343 fyrir 8. júní. Hestamannafélagið Máni Suðurnesjum. Til sölu fjallabíll GMC árg. 1977, rally wagoon, 11 farþega með framdrifi, 8 cylindra, sjálfskiptur, vökva- stýri, toppgrind og ný dekk. Borgartúni 24, sími 28255. Sauðárkrökskaupsstaður óskar eftir að ráða félagsmálastjóra Starfið felst í yfirumsjón með og uppbyggingu á starfsemi kaupstaðarins á sviði félagsmála, svo sem öldrunarþjónustu, heimilishjálp, dag- vistun barna, íþróttamálum, tómstunda- málum og fleira. Umsóknir þar sem fram 1 kemur greinargott yfirlit um menntun og fyrri störf skulu sendar bæjarstjóranum. Frekari upplýsingar veitir bæjarstjórinn í síma 95- 5133. Styrkir til háskólanáms í Alþýðulýðveldinu Kína Stjórnvöld í Alþýðulýðveldinu Kina bjóða fram tvo styrki handa Islendingum til háskóla náms í Kina háskólaárið 1979—80. Styrkirnir eru ætlaðir stúdentum til háskólanáms i allt aö fjögur til fimm ár í kinverskri tungu, bókmenntum, sögu, heimspeki, vísindum, verkfræði. læknisfræði, eða kandidötum til eins árs framhaldsnáms í kínverskri tungu, bókmenntum, sögu og hcimspeki. Umsóknum um styrkina skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 30. júni nk. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 30. mai 1979. Hrossaræktardeild Ölfushrepps, Þorlðkshöfn Tekið verður við hryssum undir Hrafn 583 frá Arnarnesi í girðingu Hrossa-, ræktardeildar Ölfus 20. júní nk. Hafið samband við Halldór Guðmundsson, Hjarðarbóli Ölfusi. Sími heima 99-4178, vinnusími 99-1692. Pólland: Páfitilheima- borgar sinnar hefur ekki sparað stórar yf irlýsingar í heimsókn sinni og hvetur kaþólikka til að krefjast aukins trúf relsins Jóhannes Páll páfi, sem hefur vakiö athygli fyrir skorinoröar yfir- lýsingar í opinberri ferð sinni um fæðingarland sitt, Pólland, mun koma til borgarinnar Krakov í dag en þar er páfi fæddur fyrir 59 árum. í Krakov var hann erkibiskup undir nafninu Karol Wojtyla í samfleytt fjórtán ár, áður en hann tók við em- bætti páfaíRóm. Það verður stór stund fyrir Jóhannes Pál að koma aftur til Krakov, borgarinnar þar sem hann ólst upp og þjónaði síðan eftir að hann hafði tekið vígsiu. Æðstu menn kirkjunnar í borginni eru meðal hans nánustu vina. Vel gæti farið svo að páfi fengi aldrei aftur tækifæri til að líta fæðingarbæ sinn augum. Þess er beðið með eftirvæntingu hvort Jóhannes Páll muni láta frá sér fara frekari yfirlýsingar um stöðu kaþólsku kirkjunnar i Póllandi. Hann hefur verið skorinorður í. ræðum sínum hingað ti! og hvatt til baráttu fyrir auknu trúfrelsi í ríkjum kommúnismans í Austur-Evrópu. Hvatti hann leiðtoga kirkjunnar í Póllandi til að krefjast slíks af hinum kommúnísku leiðtogum landsins. Pólska kirkjan, en meginhluti, þjóðarinnar játar kaþólska trú, hefur lengi krafizt viðurkenningar stjóm- valda, aðgangs að fjölmiðlum og leyfis til fleiri kirkjubygginga. Hefur ríkisvaldið verið tregt til að veita slíkt. Nicaragua: Önnur stærsta borgin í höndum mm m m — sendimanni f rá Guatamala rænt af OCVff fIJff fIO ftCV skæruliðum í Managua Skæruliðar sandinista voru sagðir stærstu borg Nicaragua, í gærkvöldi. ráða lögum og lofum í Leon, næst- Þar mun þó hafa verið barizt nokkuð. Þjóðvarðliðar Somoza einræðisherra i Nicaragua standa nú 1 ströngu i baráttu sinni gegn skæruliðum, sem virðast eiga hylli flests fóiks i landinu. Hernaðarráðgjafa sendiráðs Guata- mata í Managua, höfuðborginni, var rænt í gær af skæruliðum. Er talið að með því hafi þeir viljað vara varnar- samtök Mið-Ameríkuríkjanna við því að blanda sér í baráttu þeirra gegn einræðisstjórn Somoza hershöfðingja og forseta landsins sem sandinistar vilja steypa af stóli. Margir flóttamenn hafa komið frá Nicaragua yfir til nágrannaríkisins Honduras og hefur stjórnin þar tekið við þeim, þó svo að talið sé að hún sé ekki hrifin af þróun mála í Nicaragua. Að sögn þeirra sem rætt hafa við flóttamenn, sem sagðir eru um það bil tólf hundruð hingað til, eru flestir þeirra stuðningsmenn sandinista. Virðist svo með flesta landsmenn í Nicaragua. í það minnsta er allsherjar- verkfall það sem boðað var fyrir tveim sólarhringum að undirlagi skæruliða, sagt nær algjört og allt athafnalíf í Managua og öðrum borgum landsins lamað. Virðist svo sem andstaðan gegn Somoza einræðisherra aukist stöðugt. Ætt hans hefur verið við völd síðan árið 1933 og þá lengst af í skjóli banda- rískra aðila. Eru bardagar nú og and- staöan sögð mun harðari en í septem- ber síðastliðnum, þegar sandinistar létu síðast að sér kveða. Þá tókst þjóðvarðliði Somoza forseta að lokum að kæfa tilraunir skæruliða. Kaupmannahöfn: Hommar í hungurverk- fall til stuðnings, félögum sínum í Iran Þrátt fyrir loforð stjómar Khom- einis í íran er enn haldið áfram að taka kynvillinga þar af lífi. Síðast bárust fregnir af slíku á sunnudaginn er tveir þeirra voru líflátnir fyrir þær sakir einar að aðhyllast eigið kyn. Danskir kynvillingar hafa ákveðið að gangast fyrir hungurvöku, félög- um sínum í íran til stuðnings. Á mánudaginn var mótmælastaða þeirra við íranska sendiráðið i Kaupmannahöfn. Ætluðu sumir félaga í samtökum kynvillinga að dvelja við sendiráðið í einn sólarhring samfleytt án þess aö neyta vatns né matar. Samtökin 1948, sem eru félags- skapur kynvilltra karla og kvenna í Danmörku, segjast ekki aðeins vilja mótmæla meðferð íranskra yfirvalda á kynvillingum, einnig sé mótmælt hinni nýju stefnu stjómvalda eystra þar á konum og réttindum þeirra. Segja forsvarsmenn dönsku samtak- anna, að samkvæmt sjónarmiðum hinna nýju múhameðsku yfirvalda í íran sé konan nánast eign karl- manna, án nokkurra réttinda. Khom- eini hefur lýst þvi yfir að konur i íran eigi að taka aftur upp hinn hefð- bundna svarta búning og andlits- blæju. Talið er að tugir kynvillinga hafi verið teknir af lífi í fran síðan hin nýju stjómvöld tóku þar við völdum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.