Dagblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979. 7 OLAFUR GEIR Erlendar fréttir REUTER Las Vegas: Karpovteflir einvígi við Brown Heimsmeistarinn í skák Ana- toly Karpov frá Sovétríkjunum hefur samþykkt að leika gegn bandaríska stórmeistaranum Walter Brown einvígi i borginni Las Vegas í Nevada í september næstkomandi. Samkvæmt Reuterskeyti virðist hér aðeins um eina skák á að ræða og á sigur- vegarinn að hljóta alla vinnings- |upphæðina, fimmtíu þúsund dollara eða jafnvirði átján millj- óna íslenzkra króna. Anatole Karpov, sem er tutt- ugu og átta ára að aldri, gekk i hjónaband á laugardaginn var. Brúðurin heitir Irina og er frá Moskvu. í viðureignummilli Karpovsog Walter Brown hefur hinn fyrr- nefndi ekki tapað til þessa. Brown, sem varð Bandaríkja- meistari árin 1974, 1975 og 1977 hefur tapað þrisvar fyrir heims- meistaranum en níu sinnum hefur orðið jafntefli í viðureign kapp- anna. í einvíginu á hvor keppandi að hafa eina klukkustund til um- hugsunar. Bandaríkin: Úrskurði um stöðvun DC-10 þotna hnekkt Bandarísk flugmálayfirvöld tilkynntu í morgun að hnekkt hefði verið úrskurði dómara um að allar ÐC-10 farþegaþotur í bandarískri eigu ættu að hætta flugi þar til annað yrði ákveðið. Dómarinn taldi sig þurfa fullvissu um að þoturnar væru öruggar til flugs áður en hann gæti leyft flug þeirra. Úrskurðinn kvað hann upp að kröfu samtaka banda- rískra flugfarþega. Mál þetta kemur í kjölfar flugslyssins í Chi- cago á dögunum, er DC-10 þota fórst og með henni 273 farþegar. Eru gallar í búnaði þotunnar tald- ir hafa valdið slysinu. Ítalía: Óvissaeftir ósigur kommúnista Óvissuástand er í itölskum stjórnmálum eftir að komm- únistaflokkur landsins tapaði i þingkosningunum sem fóru þar fram um helgina. Talið er að Andreotti leiðtogi Kristilegra demókrata verði áfram við völd en hann stjórnar bráðabirgða- stjórn Ítalíu. Kristilegir demó- kratar eru enn stærsti flokkur landsins og hlutu 38,3% at- kvæða. Kommúnistar fengu 30,4% atkvæða og töpuðu 4% og fengu 27 þingmönnum færra en í kosningunum 1976. Sigurvegarar í kosningunum eru einkum litlir miðflokkar. Stjórnarskipti íbyltingu Yfirmenn í flugher Ghana til- kynntu í gærkvöldi að þeir hefðu nú öll völd í landinu eftir upp- reisn gegn fyrri herforingjastjórn. Foringi hinnar nýju stjórnar er Jerry Rawlings. Er hann for- maður tíu manna byltingarráðs. Belfast: Ráðherra lofar að- gerðum til að hindra misbeitingu lögreglu Humphrey Atkins hinn nýskipaði Norður-írlandsmálaráðherra í stjóm Margrétar ' Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, lofaði í gær skjótum aðgerðum til að koma i veg fyrir illa meðferð lögreglunnar á föngum. Er þá átt við þá sem grunaðir eru um að taka þátt í skemmdarverkum á vegum írska lýð- veldishersins, eða annarra þeirra öfgaafla, sem standa fyrir hryðju- verkum áNorður-írlandi. Atkins ráðherra lofaði þessu á fundi með lögregluyfirvöldum á Norður-írlandi og tók ennfremur fram að aðgerðirnar væru ekki eingöngu til verndar þeim, sem teldu sig hljóta illa meðferð lögreglu eða hermanna. Lögreglumenn sem yrðu fyrir óréttmætum ásökunum borgara mundu einiiig njóta góðs af að- gerðunum. Við komandi aðgerðir mun, að sögn Humphrey Atkins, verða byggt á hinni svonefndu Bennetskýrslu en samkvæmt henni hafa lögreglumenn á Norður-írlandi orðið uppvísir að því að beita grunaða fanga ólögleg- um aðferðum við yfirheyrslur. Hann sagðist þó vilja taka fram að hann teldi höfuðorsökina fyrir mörgum kvörtunum yfir illri hegðan norður-írsku lögreglunnar vera þá, að henni hefði gengið vel í baráttu sinni við skæruliða. Bennetskýrslan tæki einnig til þess að mjög erfitt væri um vik við að vinna gegn liðs- mönnum frska lýðveldishesins. Aldrei mætti þó slaka á, því að einn fangi sem hlyti illa meðferð væri ein- um fanga of mikið. Lögregla og herliö á Norður-írlandi eiga erfitt með að sanna hverjir eru félggar í írska lýðveldishernum og eru oft sökuð um harkalegar aðgerðir við leit sína að þeim. Ýmsir minnihlutahópar eins og til dæmis arabar og Kúrdar hafa snúizt gegn hinum nýju valdhöfum í íran. Á myndinni sést einn liðsmanna araba í borginni Khorramshahr en þar krefjast þeir meiri sjálfsstjórnar. Borgin er lielzta útflutnings- höfn írans. Mótmæla loftárásum íraka áKúrda íransstjórn hefur mótmælt harðlega árásum herflugvéla frá írak á nokkur þorp innan landamæra írans. Þær eru sagðar, hafa gert loftárásir á fjögur þorp Kúrda en þeir munu hafa flúið til íran eftir átök við írakskar hersveitir. Kúrdar hafa lengi verið helztu and- stæðingar stjómarinnar i írak. Hafa friðsamleg samskipti þar á milli verið fátíð á síðari árum. Krefjast Kúrdar sjálfræðis en þeir eru fjölmennir mjög í írak eins og fleiri ríkjum i þessum heimshluta. Keisarinn í íran hélt lengi vel hlífiskildi yfir þeim eða þar til fyrir um það bil þremur árum að hann sætt- ist við stjórn íraks og lofaði þá meðal annars að hætta stuðningi við Kúrda. Dró þá mjög úr frelsisbaráttu þeirra. Henni hefur aftur á móti vaxið fiskur um hrygg eftir uppreisnina gegn keis- aranum og óvissuna í íran í kjölfar hennar. fjórir af 350 íbúum hafa verið myrtir og fjórir í viðbót sloppið naumlega líf s Bærinn Scoresbysund á Grænlandi á að öllum Ukindum heimsmetið í morðum, miðað við höfðatölu. Á eins árs tímabili hafa fjögur morð verið framin þar, auk þess sem fjórir til viðbótar hafa verið sakaðir um morðtilraunir. Að mati kunnugra er ekki nema ein skýring á ósköpunum. Misnotkun áfengis. — Áfengið hefur auk manndrápa og tilrauna til slíks verið orsökin til margra árása, sem hafa valdið fólki varanlegri örorku og heilsutjóni. Engin löggæzla er í Scores- bysundi. Þar er aðeins einn fuUtrúi stjórnvalda á staðnum, nokkurs konar hreppstjóri, sem að sjálfsögðu má sín lítils við að halda uppi lögum og reglu, þegar áfengismisnotkunin er í hámarki. í viðtali við lögreglufuUtrúa í Nuuk (Godthaab), sem birt var í danska blaðinu Aktuelt, segir að síðastUðið ár hafi verið framin átján morð á Grænlandi. Hafi þau aldrei verið fleiri. íbúar landsins eru rétt tæplega fimmtíu þúsund. Svo virðist sem nokkuð hafi dregið úr þessarri óhugnanlegu þróun það sem liðiö er af þessu ári. ! viðtaUnu við lögreglufulltrúann kemur fram að morð eru talin hlut- fallslega mun fleiri í Grænlandi en í Danmörku. í fyrmefnda landinu eru þau eitt á hverja 2700 íbúa en aðeins eitt á hverja hundrað og fimmtíu þúsund íbúa í þvi síðarnefnda. Lögreglufulltrúinn i Nuuk telur í viðtalinu að frjálslegar reglur um meðferð áfengis í Scoresbysundi séu höfuðorsök þess hve margir verða þarmannsbani. Að sögn blaðsins Aktuelt er á- fengisvandinn í Grænlandi geig- vænlegur. í Jacobshavn eru bömin og unglingarnir sögð hafa tekið til sinna ráða. Hafi þau farið þess á leit að tekið verði fyrir áfengissölu á næstunni. Þá á að halda þar þrjár skemmtanir í tilefni hins alþjóðlega barnaárs.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.