Dagblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979. 13 róttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Sveinbjarnar Hákonarsonar liggur f netinu, án þess DB-mynd Hörður. i Svein- ■ sökktí igum rk á síðustu 4 mínútum nesvannKR3-l fyrir markið. Miðvörður KR skallaði frá marki en beint í fætuma á Sveinbirni, sem þakkaði fyrir sig og skaut gullfallegu viðstöðulausu skoti rétt innan vítateigs, sem hafnaði í KR-markinu án þess að Hreiðar kæmi neinum vörnum við. Fjórum mínútum síðar lék Sveinbjörn sama leikinn og skoraði fallegt mark eftir fyrirgjöf Kristjáns Olgeirssonar. Sveinbjöm átti mjög góðan leik hjá Skaga- mönnum, svo og Guðjón Þórðarson, sem er farinn að skila boltanum mjög vel frá sér, auk þess að vinna nær hvert einasta návígi sem hann lendir í. Kristján Olgeirsson og Árni Sveins voru einnig góðir en báðir hræöilega einfættir — Árni þó sér í lagi. Framlínan var slök en Andrés barð- ist vel að vanda er hann kom inn á. Hjá KR ber fyrst að nefna Birgi Guðjónsson, ætíð byggjandi upp og á sífelldri hreyfingu. Þá átti Vilhelm góðan leik svo og Sverrir, en er að verða óeðlilega grófur í leik sínum. Sæbjöm varamaður sýndi jákvæð tilþrif og sömu sögu er að segja um Jóstein, sem kom í stað Ottós. Hreiðar var mjög óömggur og landsliðsmið- herjinn Jón Oddsson var vart með í leiknum.SSv „Egeránægður með sigurinn” — sagði þjálfarí Skagamanna Klaus Jiírgen Hilbert „Ég er ánægflur með sigurinn en fjarri því að ég sé ánægflur mefl leikinn sjálfan,” sagfli hinn einkar geflfelldi þjálfari þeirra Skagamanna, Klaus Jiirgen HUbert, eftir leikinn i gærkvöldi. „Úrslitin voru mjög jákvæð fyrir okkur og það er alltaf gott að vinna sigur á útivelli, eins og við gerflum i kvöld.” „KR-liöið barðist mjög vel í leiknum, en okkur urðu þau mistök á að ætla aö reyna að „spila okkur inn í leikinn”. Slíkt er ekki hægt á íslandi. Þannig lékum við úti í Indónesíu með góðum árangri, þ.e. náðum fyrst yfirtökunum í spilinu og síðan kom baráttan. Hérna er þessu öfugt farið,” sagði Hilbert. „Nei, ég er alls ekki ánægður með framlínuna í leiknum hjá okkur — hún brást öðm fremur og framlínumenn okkar, þeir Matthías og Sigþór, réðu ekki við hlutverkið. Annars var ég ánægður með Sidda í fyrsta markinu — hann átti það alveg. Matthías er kannski ekki fljótur lengur, en hann er mjög góður af leikmanni á þessum aldri að vera.” ,,Ég er nokkuð bjartsýnn á sumarið, en enn sem komið er er engin heildarmynd komin á hlutina. Við þurfum að leggja hart að okkur í sumar — það bíður okkar erfið vinna,” sagði Hilbert í lokin. Enn kemur Þróttur á óvart! Þróttur frá Neskaupstafl kom mjög á óvart i gærkvöldi mefl þvi að sigra Þór frá Akureyri á sínum eigin heima- velli — 2—0 i mjög slökum og tilþrifa- litlum leik þar sem Þróttur hafði undir- töldn allt frá byrjun og vann afar sann- gjaman sigur. Staðan i hálfleik var 1— 0. Þórsarar áttu einhvern sinn allra slakasta dag I lengri tima í gær. Allt vantaði — meira að segja baráttuna, sem hefur svo oft einkennt liðið. Enda fór svo að sigur Þróttar var mjög öruggur. Þróttur sótti linnulitið allan fyrri hálfleikinn, án þess þó að skapa sér nein veruleg færi, en á 41. minútu uppskáru Þróttarar mark. Þórhallur Jónasson tók þá aukaspyrnu frá hægri og gaf vel fyrir markið þar sem Magnús Magnússon, mjög sterkur miðvörður Þróttar, fékk að skalla knöttinn óáreittur í markið — mjög fallegt mark Ihjá Magnúsi. ' í síðari hálfleik jafnaðist leikurinn talsvert og um tíma virtíst svo sem að Þróttarar væru að missa tökin á honum, en þeir tóku við sér á ný og náðu undirtökunum. Á 72. minútu var réttilega dæmd vítaspyma á Gunnar Austfjörð fyrir að bregða Erlendi jDavíðssyni inni í vítateig. Bjarni Jóhannsson skoraöi örugglega úr spyrnunni. Tveimur mín. fyrir leikslok munaði minnstu að Þróttur bættí við sínu þriðja marki en Björgúlfur Halldórsson komst einn í gegn eftir stungubolta. Varnarmenn Þórs töldu hann rangstæðan en sluppu með skrekkinn þar því skot hans fór rétt framhjá markinu. Af leikmönnum Þróttar ber fyrst að nefna þá Sigurberg Sigsteinsson og Erlend Davíðsson. Sigurbergur er geysiöruggur í vörninni og skallatækni hans er afar góð. Þá var Erlendur mjög hættulegur frammi. Magnús mjög sterkur miðvörður og í heildina barðist liðið mjög vel og átti sigurinn fyllilega skilið. Um lið Þórs er bezt að hafa sem fæst orð. Þar gekk ekkert upp — viljinn var ekki einu sinni fyrir hendi. -St.A. Fram—Þróttur í kvöld t kvöld Id. 20 leika á Laugardals- vellinum Fram og Þróttur — lið sem almennt er búizt vifl afl verfli i sitt í hvorum enda 1. deildarinnar í sumar. Frömurum er spáð mikilli velgengni á meflan Þrótti er spáð einu af neflstu sætunum. Þrátt fyrir afl aðeins tveir' leikir hafa verifl leiknir hjá liðunum til þessa má glöggt sjá að þessar spár munu afl miklu leyti rætast. Framarar hafa sýnt mjög góða leiki í vor á sama tíma og ekkert hefur gengið hjá Þrótti og liðsmórallinn ekki virkað upp á það bezta. í fyrra vann *Fram báða leikina gegn Þrótti — 4—1 og 1—0. Árið áður var Þróttur í 2. deild en 1976 léku Þróttarar í 1. deildinni og þá vann Fram einnig báða leikina.annan 6—0 oghinn 1—0. Ekki er mikil ástæða til að ætla annað en að Framarar fari með sigur af hólmi einnig í kvöld og skipi sér þar með í 1. og 2. sætí deildarinnar. Olivia hefur þan ilm sem hœfir þér bezt ’ v" Cj V\* ✓ n íf gSg&st&sS- / > i f •/ % * f 5 /Sr/ é 1 l ■- ,. $ V J f m v ww ff 5 ■'"'r m m m i ■ I: . < -................. HEILDVERZLUN: JÚLÍUS SVEINBJÖRNSSON LAUGAVEGI 26 - SÍMI 20480. EINKAUMBOÐ: PUSSYCAT VÖRURNAR ■Á"; .■1 mK: ÉÉIS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.