Dagblaðið - 06.06.1979, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979.
óskast
„ERnn AÐ BN-
ANGRA SÝKIUNN”
— segir Sigurður Sigurðarson, Keldum um fósturlát íám sem mikið hefur
borið á að undanf örnu
„Ég er ekki viss um aö það sé meira
um fósturlát í ám en undanfarin ár.
Þaö er alltaf dálítið um þetta,” sagöi
Sigurður Sigurðarson á KeldumerDag-
blaðið hafði samband við hann vegna
frétta af nokkrum bændum sem hafa
orðið fyrir umtalsverðu fjárhagstjóni
vegna þess að kindur þeirra hafa látið
lömbum. Hafa einstaka bændur orðið
fyrir milljónatjóni af þessum sökum.
Sigurður sagði að erfiðlega hefði
gengið að einangra sýkilinn sem væri
valdur að þessu en það væri einkum
þrennt sem ylli fósturláti ánna: 1)
fósturlátssýkill, 2) heysýklar, 3)
Hvanneyrarveiki. Sigurður sagði að
helzt væri hægt að ráðleggja bændum
að einangra kindurnar þegar fósturlát
byrja, þ.e. að taka frá þær kindur sem
létu lömbum, hafa samband við dýra-
lækni og senda strax fóstur og hildir til
þeirra á Keldum og gefast ekki upp þótt
ekki tækist að einangra sýkilinn í fyrsta
skipti. Sigurður sagði að erfitt væri að
ráða við fósturlát vegna þess að þegar
færi að bera á því væru fóstur í öðrum
ám þegar dauð eða líflítil.
Sigurður sagði að sjaldgæft væri að
smitandi fósturlát gerði usla ár eftir ár
á sama bæ, þar sem mótstaða mynd-
aðist í stofninum, en þess gæti hins
vegar orðið vart á nágrannabæjunum
vegna samgangs eða jafnvel sölu. Hann
sagði að stundum hefði verið reynt að
gefa lyf í fóðri eða jafnvel sprauta allan
hópinn og stundum virtist draga eitt-
hvað úr þessu við það en það væri alls
ekki algilt.
-GAJ
„BÆNDUR EIGA RÉTT Á
ALLT AÐ 75% BÓTUM”
— segir Magnús Guðjónsson, Bjargráðasjóði
„Bændur eiga kost á fyrirgreiðslu
hjá Bjargráðasjóði í tilfellum sem þess-
um. Þar er bæði um að ræða styrki og
vaxtalaus lán. Tjónið verður þó aldrei
bætt 100% en bætur geta farið upp í
75% ef um mikið tjón er að ræða,”
sagði Magnús Guðjónsson hjá Bjarg-
ráðasjóði er DB hafði samband við
hann vegna frétta af milljónatjóni ein-
stakra bænda vegna fósturláts í ám.
Magnús sagði að þess væru dæmi að
300 ær hefðu látið lömbum á einu og
sama býlinu. í slíkum tilfellum skipti
tjónið milljónum. Þegar tjón bænda
næmi 1,5 milljón eða meira ættu þeir
rétt á 75% bótum, 50% vaxtalausu láni
og 25% styrk. Hann sagði að á undan-
förnum árum hefði borið geysilega
mikið á þessu en hann gæti ekki sagt
um hversu mikið væri um þetta í ár þar
sem umsóknir til Bjargráðasjóðs væru
ekki teknar að berast. Hann hefði hins
vegar heyrt fréttir af mjög miklu tjóni á
einstöku bæjum. - GAJ
til starfa við sjúkrahúsið á Patreksfirði
vegna afleysinga yfir sumartímann.
Upplýsingar gefnar á sýsluskrifstofunni
Patreksfirði.
Sjúkrahús Patreksfjarðar.
Fiskvinnsluskólinn
Umsóknarfrestur nýrra nemenda er til 10. júní nk.
Inntökuskilyrði eru:
1. FISKIÐNAÐARMANNSNÁM:
Nemandi skal hafa lokið námi á fiskvinnslu-
braut l við fjölbrautaskóla, eftir grunnskóla-
próf, eða tekið 10. bekk á viðskiptakjörsviði
við framhaldsdeildir gagnfræðaskóla. Þeir sem
eru 25 ára eða eldri og hafa stundað störf við
fiskiðnað, í a.m.k. 5 ár, geta fyrst um sinn sótt
um fiskiðnaðarmannsnám, „öldungadeild”, án
þess að þurfa að nema þær almennu náms-
greinar sem annars er krafist af yngri
nemendum.
2. FISKTÆKNANÁM:
Nemandi skal vera fiskiðnaðarmaður frá
skólanum og hann skal hafa lokið námi á fisk-
vinnslubraut 2 við fjölbrautaskóla. Einnig
geta stærðfræðideildarstúdentar tekið þetta
nám á tveimur árum og þeir sem lokið hafa
fiskvinnslubraut 1 geta lokið fisktæknanámi á
þremur árum.
Á það skal bent að mögulegt er að hefja nám
við skólann bæði á haustönn og vorönn.
Nánari upplýsingar í skólanum, Trönuhrauni
8 Hafnarfirði, sími 53544.
Skólasljóri.
Aðalfundur
Aðalfundur Hagtryggingar hf. árið 1979
verður haldinn að Hótel Holt (Þingholti) í
Reykjavík laugardaginn 9. júní og hefst kl.
14.00.
Dagskrá:
Adalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæða-
seðlar verða afhentir hluthöfum eða öðrum
með skriflegt umboð frá þeim í skrifstofu
félagsins að Suðurlandsbraut 10, Reykjavík,
dagana 6. til 9. júní á venjulegum skrifstofu-
tíma.
Stjórn HAGTRYGGINGÁR HF.
Greenpeacemenn hafa fjölda litilla gúmbáta til taks um borð í Rainbow Warrior. Hér má sjá þá á dekki með þvott
áhafnarinnar i forgrunni.
DB-myndir Árni Páll
Greenpeace-menn:
RANNSÓKN
HVALASTOFNSINS
— erallt og sumt sem við förum fram á
,,Greenpeace”-menn eru enn á ný
mættir til leiks á farkosti sínum, Rain-
bow Warrior, til að reyna að hindra
veiðar Hvals hf. Að þessu sinni eru þeir
betur úr garði gerðir en í fyrra og hafa
nýtt „leynivopn” um borð. Er leyni-
vopnið stærðar gúmbátur með trefja-
plastbotni. Gengur hann fyrir tveimur
utanborðsmótorum og á að geta náð
allt að 40 hnúta hraða. Er Greenpeace-
menn reynðu að hindra hvalveiðarnar í
fyrra háði þeim að þeir höfðu ekki við
hvalbátunum sem stungu þá hreinlega
af. Með hinum nýja farkosti vonast
Greenpeacemenn hins vegar til þess að
geta dregið úr hvalveiðunum um ca
20%.
„Ekki þyrfti að merkja nema u.þ.b.
200 hvali í viðbót til að vita með vissu
ástand hvalastofnsins,” sagði Allan
Thornton, fulltrúi Greenpeacesamtak-
anna. „Ef einum báta Hvals hf. væri
sett fyrir það verkefni í einn mánuð að
merkja hvali dygði það til að vita ná-
kvæmlega um stærð hvalastofnsins,”
sagði AUan.
Á næsta fundi Alþjóða hvalveiði-
ráðsins, sem haldinn verður í London í
júlímánuði nk., verður tekið fyrir og
ályktað um hvort banna eigi hvalveiðar
með öllu næstu tíu árin. Til að slíkt
bann hljóti samþykki þarf til þrjá
fjórðu hluta atkvæða og getur atkvæði
íslands ráðið þar úrsUtum.
„Hversu fráleitt sem það kann að
hljóma,” sagði Allan Thomton, „er
annar ráðgjafa íslenzku sendinefndar-
innar Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals hf„ og geta menn ímyndað sér
hversu hlutlausar upplýsingar hann
kann að veita.”
Um ásfand íslenzka hvalastofnsins er
mjög lítið vitað og alls ekki víst hvort
hann þolir þær veiðar sem nú fara
fram. Hins vegar vUja Greenpeace-
menn einfaldlega að nánari rannsókn
fari fram á stærð stofnsins. Leiði sUk
rannsókn í ljós að hvölunum sé óhætt
þá verði veiðum haldið áfram, ella
verði þeim hætt.
Greenpeacemenn munu, meðan þeir
dvelja hér á landi, reyna að ná taU af
sem flestum ráðamönnum og koma
þeim í skUning um að allt og sumt sem
þeir fara fram á sé að nánari rannsókn-
ir fari fram á hvalastofninum svo vitað
verði með vissu hvort óhætt sé að veiða
það magn sem nú er veitt árlega.
-BH
Fmlux
LITSJONVARPSTÆKI
20" Kr. 425.000.- með
22" Kr. 499.000.- sjóHvirkum
26" Kr. 549.000.- stöðvarveljara
SJONVARPSBÚÐIN
BORGARTUNI 18 REYKJAVIK SlMI 27099