Dagblaðið - 06.06.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979.
9
Flugtíminná
kr. 15.500:
Flugnemamir gefast
upp á dým tímunum
— stof na Flugklúbbinn hf. og hyggjast flytja inn þrjár kennsluf lugvélar
mm
Mk
Flugáhugamenn liafa stofnað með
sér félagsskap eða klúbb sem hlotið
hefur nafnið Flugklúbburinn hf. Þessi
hópur hefur nú ákveðið að festa kaup á
þremur flugvélum frá Svíþjóð og verða
þær notaðar hérlendis til flugkennslu.
Hluthafar í Flugklúbbnum hf. eru.nú
61 og leggur hver og einn fram 300 þús-
und krónur til flugvélakaupanna.
Félagarnir eru bæði flugkennarar og
flugnemar sem á þennan hátt hyggjast
gera flugnámið ódýrara. Undanfarið
hefur gætt töluverðrar óánægju með
hve hver flugtími er dýr en hann kostar
nú 15.500 krónur. Með stofnun hins
nýja klúbbs telja félagarnir sig geta
lækkað verð hvers tíma um 4—5
þúsund krónur.
Dagblaðið ræddi við tvo aðstand-
endur Flugklúbbsins hf., þá Árna
Bjarnason flugnema og Jörgen
Moestrup flugkennara, sem einnig er í
stjóm klúbbsins. Það kom fram i máli
Árna að fyrirhugað er að kaupa tvær
Cessna 152 vélar og eina Piper Arrow-
vél. Allar eru vélarnar eins hreyfils,
Cessnavélamar taka tvo menn, en
Pipervélin fjóra. Hún er búin upp-
draganlegum hjólum, skiptiskrúfu og
fullkomnum blindflugsbúnaði og
verður notuð til blindflugskennslu.
Vélarnar eru keyptar notaðar frá Sví-
þjóð en á þann hátt fást vélarnar mjög
fljótlega og verður flogið heim. Kann-
að var hvort unnt væri að kaupa nýjar
vélar frá Bandaríkjunum en afgreiðslu-
tími var of langur.
Stefnt er að þvi að Flugklúbburinn
veiti mönnum bæði verklegt og bóklegt
fiugnám. Jörgen Moestrup sagði að
Loftferðaeftirlitið hefði veitt öll um-
beðin vilyrði fyrir rekstur þennan.
Hann sagði að slíkir klúbbar væru við
lýði á öllum Norðurlöndum. Hver sem
er getur gerzt hluthafi en klúbbfélagar
stunda flugið flestir sem sport fremur
en atvinnu.
Flugnám er dýrt tómstundagaman en
með tilkomu klúbbsins á að reyna að
stunda þetta nám og tómstundaiðju á
ódýrari hátt.
Fomiaður stjórnar Flugklúbbsins hf.
er Kári Jónsson.
- JH
Grindin við þjóðveginn fyrir austan Selfoss sem væntanlega bíður þess að þjóna
sem gripahús i framtiðinni.
DB-myndir Bjarnleifur.
Gripahús fram-
tíðarinnar?
Buckminster Fuller heitir banda-
rískur arkitekt sem getið hefur sér
heimsfrægð fyrir allsérstæðan bygg-
ingarmáta, á þá leið að byggingarnar
eru settar saman úr eintómum þríhyrn-
ingum. Veldur þetta því að hægt er að
raða þríhyrningunum saman í geysi-
stórar byggingar án þess að til komi
nokkur stoð eða súla í byggingunni.
Getur þetta komið sér vel í skemmum
eða öðrum byggingum þar sem þörf er
á miklu rúmi án þess að því sé skipt
niður með súlum.
Fyrir nokkrum árum var reist bygg-
ing eftir hugmyndum hans á Háskóla-
lóðinni. Sú bygging var síðan flutt
austur í sveitir að bænum Eystri-
Hellum og þjónaði þar sem gæsa- og
andakofi þar til í vetur er húsið varð
fyrir miklum skemmdum af völdum
ótíðarinnar í vor. Til stendur að byggja
húsið upp að nýju nú í sumar svo það
geti gegnt sínu hlutverki áfram.
Fleiri þríhyrningahús
á Suðurlandi?
Er DB-menn voru á ferð um Suður-
landið nýlega rákust þeir á aðra grínd í
Buckminster-Fuller stílnum, hálf-
byggða. Lá hún á hliðinni við þjóðveg-
inn skammt fyrir austan Selfoss. E.t.v.
er þessi byggingarstíll að ryðja sér rúms
fyrir austan fjall, en hann hefur ekki
ennþá náð neinni útbreiðslu svo heitið
geti annars staðar á landinu. Hins
vegar er vafalítið að þessi byggingar-
máti getur hentað viða hér á landi.
-BH
Kópavogur:
Fyrirhuguð ný sundlaug á Rútstúni
Formaður bæjarráðs Kópavogs hana um 40 milljónir króna. Þegar ráðizt verður í þessar fram-
lagði nýlega fram kostnaðaráætlun Það er áhugamál Kópavogsbúa að kvæmdir á Rútstúni þarf að öllum
um gerð plastsundlaugar á Rútstúni, bæta sundaðstöðu í bænum en þar líkindum að fjölga starfsliði þannig
við hlið núverandi sundlaugar í sem um nokkuð dýra framkvæmd er að efalaust kemur töluverður kostn-
Kópavogi. Laug þessi er áætluð að ræða þykir ólíklegt að ráðizt verði aður til viðbótar kostnaðinum við
11x25 að stærð og kostnaður við íþessaframkvæmdáþessuári. sundlaugargerðina. -JH
Gripið simann
Seriðgóð
kaup
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld