Dagblaðið - 21.07.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JÚLl 1979.
DB á ne ytendamarkaði
.... ' *
unmm
samkeppni í
Hveragerði:
„öll samkeppni er mjög góð, sér-
staklega fyrir neytendur, sem nú geta
fengið tómata og agúrkur á mun
lægra verði en áður. Þrátt fyrir þetta
lága verð náum við sömu sölu og
jafnvel betri,” sagði Bragi Einarsson
í Eden i Hveragerði í samtali viö
neytendasíðuna. — Þeir tveir aðilar
sem hafa verið einna umsvifamestir í
grænmetissölu í Hveragerði, Bragi í
Eden og Páll Michaelsen hafa
lækkað verð á tómötum, agúrkum og
blómum eftir tilkomu markaðarins
og er nú svo komið að þeir eru
komnir niður fyrir markaðsverðið
með verð á II. flokks tómötum. Er
kg. selt núna um helgina á 900 kr.
Bragi gengur meira að segja lengra,
því Hann hefur lækkað I. flokk um
100 kr. um helgar. I. flokkur hefur
verið á sama verði eða 1200 kr. á
öllum sölustöðunum. II. flokkur
kostar hins vegar 1000 kr. á
markaðinum.
Tómataverðið undir
„markaðsverði”
— um helgar. II. flokkur
núá900kr.
verðið. Þá selst meira magn og allir
græða, bæði neytendur og seljendur.
Áður en þessi háttur komst á söluna
varð að aka stórum hluta framleiösl-
unnar á haugana um háuppskerutim-
ann, og enginn fékk neitt, hvorki
framleiðendur né neytendur!
í leiðinni má þó benda á að ekki
getur talizt hagkvæmt, fjárhagslega,
fyrir neytendur úr Reykjavík að aka
beinlínis austur í Hveragerði til þess
að kaupa sér þessar ódýru afurðir,
þvi benzínverðið er orðið það hátt.
Samkvæmt útreikningum FÍB eyðir
meðal fólksbíll um 10 lítrum á
hundrað km, en það er einmitt um
það bil vegalengdin í Hveragerði og
til baka aftur. Má því bæta rúmlcga
3000 kr. kostnaði við, ef farið er
gagngert austur til innkaupanna. En
ef menn eiga hvort eð er leið um
,,tómata”- og blómabæinn Hvera-
gerði borgar sig að gera innkaupin í
leiðinni.
í gær kostuöu tómatarnir 1390 kr. i Blómavali, en á útimarkaöinum ó Lækjartorgi kostuðu þeir 1280 kr. og gúrk-
urnar i II. verðflokki 790 kr. DB-mynd Ámi Páll.
Gúrkurnar eru einnig á mjög hag-
stæðu verði fyrir neytendur, þær
kosta 2-300 kr. á markaðinum, 200
kr. hjá Páli en 250kr. í Eden.
Þá má fá mjög ódýrar pottaplönt-
ur á öllum þessum stöðum. Sagði
Páll að hann seldi allar sinar potta-
plöntur á heildsöluverði, allt niður í
550 kr. Hins vegar er algengt verð
1550 kr.
í Eden má fá 6-8 stk. af rósum í
búnti á 600 kr. Fyrir utan potta-
plöntur á „góðu” verði.
Þarna sannast svo sannarlega það
sem haldið hefur verið fram í DB að
útkoman verði hagstæðari hjá
öllum aðilum með því að lækka
Verðið
í Reykjavík
Þess má geta að tómatakíló kostaði
í gær í Blómavali í Sigtúni 1390 kr. I.
flokkur, II. verðflokkur á agúrkum
var 675 kr. kg. (rúml. tvær gúrkur). í
Víði í Starmýri kostaði I. flokkur af
tómötum 1280 kr. og gúrkurnar 975
kr. kg., en það var I. flokkur. í
Matardeildinni i Hafnarstræti
kostaði kg. af I. fl. tómötum 12651
kr., og gúrkur 1035 kr., en í SS í
Austurveri kostaði kg af tómötum
1566 kr. og 1031 kr. agúrkukílóið
hvorutveggja I. flokkur.
-A.Bj.
Frá Vistheimilinu
Sólborg, Akureyri
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur framlengist til 27. júlí.
1. Sameinuð staöa framkvæmdastjóra og forstöðumanns.
I starfinu felst yfirstjórn stofnunarinnar. Umsækjandi
hafi uppeldisfræðilega menntun og einhverja reynslu í
stjórnunarstörfum.
2. Staða deildarstjóra. Starfið er fólgið í daglegri verk-
stjórn á deildum heimilisins og þátttöku i heildarstjórn
og skipulagningu stofnunarinnar.
Þroskaþjálfa- eða önnur hliðstæð menntun tilskilin.
Skriflegar umsóknir um stöður þessar sendist
stjórn Vistheimilisins Sólborgar í pósthólf 523,
602, Akureyri.
KVARTMÍLUÆFING
Sunnudaginn 22. júlí verður æfing í kvartmílu-
akstri á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni.
Þeir, sem hug hafa á að taka þátt í Miðsumars-
kvartmílukeppninni geta þá æft sig fyrir hana og
látið skrá sig í keppnina.
Brautin verður opin milli kl. 2 og 4.
Stjórnin.
Ólögmæt innheimta
Pósts og síma
Póstur og simi heldur áfram ólög-
mætum innheimtum sínum. Sigurður
Elíasson, Háaleitisbraut 60, hefur
skýrt DB frá þvi að honum hafi verið
sendur reikningur frá stofnuninni þar
sem honum er gert að greiða
ferðakostnað og vinnu vegna
flutnings á síma. Að auki á hann að
greiða flutningsgjald.
Sigríður Elíasson kvaðst ekki sjá
af hverju hann ætti að greiða Pósti
og sima ferðakostnað og vinnu fyrir
flutning sem hann hefði sjálfur fram-
kvæmt.
DB bar þetta undir Gísla
Jónsson, stjórnarmann i Neytenda-
samtökunum, sem rannsakað hefur
svipuð mál að undanförnu. Hann
kvað Sigurð einungis skyldugan til að
greiða flutningsgjald. Ferðakostnað
og vinnu mætti Póstur og sími ekki
innheimta þegar eigandi flytji síma
sinn sjálfur.
Má jafnframt benda á að póst og
símamálastjóri sjálfur er mjög
hlynntur því að sem flestir flytji
simtækin með sér sjálfir, þar sem
hægt er að korna því við. -G.M.
~~ 1 PÓST- OQ SlMAMÁLASTOFNUNIN j Sfmstjórlnn 1 Reykjavlk
Háaleltisbraut 60 105
FYLGISKJAL MEÐ REIKNINGI 04 617
79 Kr.
/5 Flutningsgjald 27.500
— GJaldskrárhakkun maí, Jiíní.Jdlí 1.600
Afnotagjald ágdstmánuð. 3.100
Ferðakostnaður 4.000
Vinna 1.700
37.900
Söluskattur 20% af kr.32.200 6.440
Reykjavfk. 1/? 19 79 44.340
Símasnúran kostar “
— enásett
500 kr. metrinn ——
Hérna er nokkuð skrautlegur
reikningur fyrir 6 metra símasnúru.
Metrinn kostar 500 kr., en þar sem
símnotendur geta ekki sjálfir komið
snúrunni á tólið verður í rauninni að
greiða 1550 kr. fyrir metrann —
Símnotandinn sem átti þennan
reikning átti heima i Breiðholtinu, en
símamenn höfðu nokkra daga til
umráða til að koma með snúruna
þannig að hægur vandi hefði verið að
safna nokkrum verkefnum saman
og fara eina ferð í Breiðholtið.
Sennilega hefur það einnig verið
gert — og allir sem fengu einhverja
þjónustu í Breiðholtinu þennan
ákveðna dag hafa þurft að greiða
4000 kr. í ferðakostnað. — Þeir hafa
þá „gert það gott” 16, maí sl. síma-
mennirnir sem unnu í Breiðholtinu og
geftð góðan pening í kassann hjá
Pósti og síma.
-A.Bj.
2«^/ i
9 79 Kr.
6/5 1 stk. snvlra 6 metrar 3.000
V inna , ,
Ferðakostnaður , , 4.000
8.700
Söluskattur 20% af kr. 3.000 600
Reykjavík,...... 1/7 19 .79. 9.300