Dagblaðið - 21.07.1979, Síða 11

Dagblaðið - 21.07.1979, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1979. I I | 11 íran: Fennir óðfluga í spor keisarans —nánast aðeins gjaldmiðillinn sem enn ber mynd hans sex mánuðum eftir aðhaim hrökklaðist frá vöidum tímenningarnir höfðu verið hand- teknir þar til aðrir félagar þeirra höfðu tekið við hlutverkum þeirra í sérnefndinni. Enginn þeirra mun aftur á móti vera þekktur í Vestur- Evrópu. Charta 77 var yfirlýsmg þar sern því var mótmælt að tékknesk yfir- völd brytu mannréttindaákvæði hins svonefnda Helsinkisamkomulags sem einnig fjallaði um öryggismál Evrópu og slökun á spennu í sam- skiptum austurs og vesturs. Charta 77 var fyrst lagt fram árið 1977. Síðan þá hafa um það bil eitt þúsund Tékkar ritað nöfn sín undir yfirlýsinguna. Flestir þeirra hafa tapað atvinnu sinni og á ýmsan hátt verið hrelldir í kjölfar þess verknaðar. Sex mánuðum eftir að fyrrverandi íranskeisari hvarf frá landi sínu og hélt í það, sem hann sjálfur kallaði fremur langt orlof, hefur orðstír hans og vegur í íran farið hraðminnkandi. Fólk, sem áður sýndi honum mikla virðingu gerir nú lítið úr keisaranum á allan hátt. í grein í blaðinu International Herald Tribune nýlega er sagt að stjórnvöld hafi kannað hverjar hafi verið taldar eignir keisarans og síðan dreift þeim á meðal fólks að nokkru leyti. Nafn hans og orðstír er skipulega troðið niður í svaðið. Höllum er áður töldust í eigu keis arans og fjölskyldu hans er breytt í söfn eða húsrými fyrir almenning. Fyrrum fylgismenn keisarans og aðstoðarmenn eru eltir uppi einn af öðrum og dregnir fyrir lög og dóm. Ekkert á að verða eftir, sem ber nafn gamla keisarans. Margir íranir telja keisarann hreinan og beinan glæpamann, sem eigi að fara með sem slíkan. Opinber- lega er keisarinn aftur á móti hreirtlega ekki til í íran. Hann er ör- sjaldan nefndur á nafn opinberlega og þá einvörðungu með miklum viðbjóði og fyrirlitningu. Styttur og minnismerki, af og um keisarann hafa verið fjarlægð. Hið mikilfenglega grafhýsi sem hann lét gera í Perseopolis verður skóli í fram- tíðinni. Aðalgatan í Teheran höfuðborg landsins, sem nefnd var í höfuðið á keisaranum er nú nefnd Mossadek breiðgata. Er það til heiðurs Mossadek, sem var forsætis- ráðherra árið 1953. Var hann einn helzti andstæðingur keisarans. Vildi þjóðnýta olíuvinnsluna. Var það ekki fyrr en Bandaríkjamenn komu keis- aranum til hjálpar sem hann treysti sér til að koma aftur heim úr stuttri údegð, en þá var Mossadek fallinn. Sjóður sá, sem hafði umsjón með öllum eigum keisarans hefur nú fengið nýtt nafn og mjög mikilfeng- legur garður í Teheran heitir nú Garður þjóðarinnar en ekki Garður konungs konunganna. Enn er andlit keisarans á gjald- miðli landsins og frímerkjum. Þaðan hverfur það aftur á móti um leið og nýjar útgáfur koma úr prentsölunum og myntmótunum. } höll keisarans við Teheran dveljast nú ungir menn úr andstöðusveitunum gegn honum. öll merki um hann hafa verið fjar- lægð af krúnudjásnunum, sem höfð eru til sýnis. Þess er nú vandlega gætt að strika yfir orðið keisaraveldi, þegar tollverðir stimpla í vegabréf ferða- manna, sem fara inn og út úr landinu. ,,Ef keisarinn hefði aðeins gætt þess, að hugsa aðeins ofurlítið um hina fátæku, þá hefði l'óik ekki snnizt svona hatrammlega gegn honum,” er haft eftir einum landa hans, sem menntaður er á Vesturlöndum. „Hann gat aftur á móti aðeins hugsað í stórum framkvæmdum og stórum tölum,” heldur maðurinn á- fram.,,Stjóm keisarans var aldrei neitt annað og meira en stjórn fá- menns sérréttindahóps. Ég tel að þú mundir raunveruiega eiga erfitt með að finna neinn, sem í raun og sannleika óskar þess að keisarinn snúi aftur heim til írans.” Draumur hans um að fá tækifæri til að taka við völdum aftur einn góðan veðurdag virðist vera fjar- stæðukenndur eins og málum er háttað núna. Fregnir sem borizt hafa um ofsóknir og pyntingar á valda- tíma hans hafa svipt hann öllum stuðningi og samúð. Ekkert virðist vera eftir af þeirri virðingu sem hann naut fyrr á árum. Jafnvel þeir, sem eru andvígir stjórn hinna trúföstu múhameðs- trúarleiðtoga, hafa snúizt gegn keisaranum. i Útfluttar landbúnaðarfurðir árið 1978, verð í milljónum d. króna. Fob verð útfl.bætur samt. fyrir úr FEOGA útflutning Smjör 1234 537 1771 Ostar 1691 455 2146 Aðrar mjólkurvörur 756 692 1446 Niöurs. kjöt 2144 164 2308 Nautakjöt 2406 409 2815 Alifuglakjöt 425 43 468 Korn 1152 524 1676 Sykur 469 296 765 Fræ 512 0 512 Minkaskinn 662 0 622 Aðrar vörur 2171 208 2379 Samtals 18.296 4222 22518 norskum bændum er greitt fyrir kjöt- ið. Þannig mætti tína til nokkur dæmi. Þetta skilja ekki „Konurnar úr vesturbænum” sem skrifa í Dag- blaðið eftir að Velvakandi gafst upp á þeim. Ef Danir væru ekki í Efna- hagsbandalagi Evrópu, þá væri danskur landbúnaður í rústum og framleiddi lítið meira en fyrir innan- landsmar kaðinn. Á siðastliðnu ári var 1/3 út- flutningstekna Dana fyrir land- búnaðarafurðir. Ef ísland hefði gengið í EBE væri ekki rifist um út- flutningsbætur, því þær kæmu úr landbúnaðarsjóði EBE-landanna. Trúlega fengjust hér á landi danskir kjúklingar og jafnvel svínakjöt, en íslenskir bændur gætu framleitt áhyggjulaust mjólk og kjöt, sem þeim væri tryggt fullt verð fyrir, eftir ýmsum leiðum. Danskur land- búnaður og EBE A síðastliðnum árum fluttu Danir út landbúnaðarafurðir fyrir 18.3 millj- arða danskra kr., útflutningsbætur námu 4.2 milljörðum danskra kr. Þannig að heildartekjur af út- flutningum voru 22.5 milljarðar danskra króna. Útflutningsbæturnar voru greiddar úr landbúnaðarsjóði EBE (FEOGA). Til fróðleiks fyrir lesendur Dagblaðsins er hér birt tafla, sem sýnir útflutning Dana á síðastliðnu ári og greiðslur út- flutningsbóta með einstökum afurðunt. Mikill hluti útflutnings Dana fer til landa innan EBE og þá fyrst og fremst til Englands. Væru þeir utan bandalagsins hefðu útflutningsbætur verið langtum meiri og eins og áður er sagt er ótrúlegt að Danir hefðu getið haldið uppi þetta mikilli fram- leiðslu. Það má nefna, að á siðast- liðnu ári hefðu Danir fengið um 4 krónur danskar fyrir hvert kg. af smjöri.sem þeir seldu til Englands, hefðu þeir ekki verið í EBE, en í fyrra seldu þó Danir smjörið þangað fyrir kr. 19hvertkg. Sameiginleg landbúnaðarstefna Upp úr árinu 1960 var samþykkt sameiginleg stefna í landbúnaði í EBE-löndunum. Það er eina sam- eiginlega heildarstefnan innan sam- takanna. Hún er í sjálfu sér einföld, það er að framleiða nægileg matvæli og að neytendur greiði verð, sem tryggir bændum sambærilegar tekjur og öðrum stéttum. Vegna samtrygg- ingar og ábyrgðar á lágmarksverði hefur skapast verulegt vandamál vegna umframframleiðslu á mjólk og sykri. Þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til að draga úr framleiðslu þessara afurða, þá hefur það ekki tekist. Það þarf engan að undra þótt Ola gangi hjá okkur að haga framleiðslunni í samræmi við markaðsaðstæður á hverjum tíma. Rétt er að geta þess að heildarverðmæti landbúnaðarfram- leiðslu Dana reiknað á verði til bænda, var á síðastliðnu ári 28.530 milljónir danskar. Útflutningsbætur námu 15.5% af þessari upphæð. Hér á landi mega útflutningsbætur ekki fara fram úr 10% af verðmæti land- búnaðarframleiðslunnar. Umframframleiðsla, bændaforystan og stjórnmálin Það er undarleg árátta, sem komið hefur fram hjá einstaka mönnum upp á siðkastið, að vilja endilega kenna forystumönnum bænda og leiðbein- ingaþjónustunni hvernig komið er í íslenskum landbúnaði. Þ.e.a.s. að út- flutningsbætur skuli ekki duga lengur „Þetta er álíka harkalegt og Alþingi hefði ákveðið að halda 80 þúsund krónum eftir- af mánaðarlaunum verkamanna, sem aldrei fengist bætt.” til að jafna útflutningsreikninginn. Ráðunautar telja það skyldu sína að leiðbeina bændum hverjum og einum þannig, að þeir fái, sem mestan nettóhagnað, annað geta þeir ekki gert. Ekki þarf það endilega að leiða til stækkunar búa eða meira magns afurða. Megináherslu hafa ráðu- nautar lagt á, að hver gripur skili, sem mestum arði. Ég minnist þess ekki að ráðunautar hafi rekið áróður fyrir stækkun búa, þeir hafa fyrst og fremst lagt áherslu á aukna hagræð- ingu og bættar afurðir. Þannig þjóna þeir bændum og neytendum sam- tímis. Þeir sem hafa verið nefndir forystumenn bænda, eru allir kosnir af bændum, til að gegna trúnaðar- störfum. Ef þessir menn komast í andstöðu við stéttina, þá eru þeir ekki lengur í forystu, svo einfalt er nú það mál. Vandamál landbúnaðarins eru eðlilega rædd á fundum bænda og þar hafa fyrir löngu komið fram óskir um að Framleiðsluráð fengi heimild til víðtækari stjórnunarað- gerða en verið hefur. Það hefur strandað á Alþingi. Það hefur ekki fengist meirihluti meðal Alþingis- manna til að koma á t.d. fóðurbætis- skatti, sem talið er að geti verið einn þáttur til stjómunar á framleiðsi- unni. Þeir gleðjast yf ir kjaraskerðingunni Ekkert hefur glatt andstæðinga landbúnaðarins jafnmikið og þegar nokkrir alþingismenn komu í veg fyrir að afgreidd væri lánsheimild til Framleiðsluráðs. Það ntá vel vera að heppilegra hefði reynst að fara ein- hverja aðra leið til að koma í veg fyrir tekjuskerðingu bænda og að land- búnaðarráðherra hefði átt að ræða við þingmenn Sjálfstæðisflokksins og reyna að fá þá til liðs við sig um góða lausn á málinu. Trúlega hafa ýmsar leiðir verið kannaðar, en ekki reynst samstaða um neina þeirra. Vandinn sem steðjar að land- búnaðinum er ekki bændum að kenna, þeir hafa ekki lagst á móti þvi að draga úr framleiðslunni. Yfirlýst stefna og samþykkt af bændasam- tökunum, er að draga skuli úr fram- leiðslunni á næstu fimm árum, svo útflutningur á landbúnaðarafurðum minnki verulega. Það þótti því ekki óeðlilegt að komið yrði á móts við bændur á þessu ári með því að tryggja þeim fullt verð fyrir meiri afurðir en innanlandssalan og út- flutningsbótatryggingin nægði fyrir. Samkvæmt áætlun Framleiðslu- ráðs er nú haldið eftir af greiðslum til bænda, sem nemur 190 kr. af hverju kg af dilkakjöti, 90 kr. af kjöti af fullorðnu og 10 kr. af hverjum mjólkurlítra. Samkvæmt þessu verður tekjuskerðing bónda með jafnmikla framleiðslu og gert er ráð fyrir í verðlagsgrundvellinum, 962 þúsund kr. Þetta er álíka harkalegt og Alþingi hefði ákveðið að halda 80 þúsund krónum eftir af mánaðar- launum verkamanna, sem aldrei fengist bætt. Þar sem bændur höfðu samþykkt að draga úr framleiðsl- unni, þá var það engin ofrausn þótt eitthvað hefði verið komið á móts við þá með þvi að auka útflutningsbæt- urnar í ár. Það hryggir eflaust einhvern að nú skuli vera þó nokkur söluaukning á landbúnaðarafurðum innanlands. Þannig að þörfin fyrir útflutnings- bætur verður nokkru minni en gert hafði verið ráð fyrir. Auk þess hefur tíðarfarið í vor og sumar valdið veru- legum samdrætti í mjólkurfram- leiðslunni. Þetta tvennt stuðlar að þvi að lækka má verðjöfnunargjaldið nokkuð. 1 staðinn verða bændur fyrir tekjuskerðingu vegna óhagstæðrar veðráttu. Gera má ráð fyrir verulegri fækkun búfjár í haust svo ekki þarf að gripa til harkalegra aðgerða til að stuðla að samdrætti í framleiðslunni. Það er von mín að „konurnar” tvær fyrir austan, Jónas og Reynir geti tekið gleðisínaáný. Agnar Guðnason blaðafulltrúi landbúnaðarins. /

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.