Dagblaðið - 21.07.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 21.07.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐID. LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1979. 15 „Þessi torfœrukeppni var ein sú erfiöasta keppni sem ég hef tekið þátt I, ” sagði sigurvegarinn í torfœrukeppni Bilaklúhbs 'Akureyrar, sem haldin var laugardaginn 14. júll slðastliðinn. Sigur- vegarinn var Benedikt Eyjólfsson, en hann hcfur, eins ogflestir vita, tekið þútt I flestum torfærukeppnum, sem haldnar hafa verið á Islandi og unnið fleiri þeirra en nokkur annar. Hann œtti þvl að vita um h vað hann er að tala. Torfœrukeppnin var haldin í svokölluðum Bœjarkrúsum, gömlum malarnámum, sem eru rétt við Akureyri. Bilaklúbbur Akureyrar hefur farið þess á leit við bœjarstjórnina að klúbburinn fái þetta svæði til afnota og hyggjast þeir Bílaklúbbsmenn koma þar upp ýmiskonar akstursiþróttabrautum þar. Einkum hafa þeir áhuga á að byggja kvartmílubraut og rallycross braut. Torfærukeppni Bílaklúbbsins var jvo sem fyrr sagði mjög erftð, en í hana mættu 5 keppendur og voru þeir komnir víðs vegar að af landinu. Þrautirnar sem lagðar voru fyrir keppendurnar voru sjö talsins og voru þær svo sem við var að búast mismunandi erfðar. Fyrsta þrautin var hringlaga tima- braut og voru á henni ýmsar hindranir, svo sem börð og sandhólar, sem Finnbogason sem ók Willys með 283 kúbika Chevrolet vél. Einar Ingvarsson sem keppti á Renegade með 304 kúbika AMC vél. Einar kom frá Borgarnesi til að taka þátt i keppninni. Sýndi hann mikla lipurð við stjórn jeppans og keppnishörku og mun hann verða and- stæðingum sínum skeinuhættur ef hann Jóhann A V tekur þátt i fleiri torfœrukeppnum. Þriðji keppandinn sem komst yfir vatnið var Benedikt Eyjólfsson. Fimmta brautin lá einnig yfir fyrr- nefnt vatn en var styttri en sú fyrri. Bragi Finnbogason var sá eini sem komst hana á enda. Sjötta brautin var nokkuð löng, en jarðvegurinn í henni var mest mold og torf. Þegar hér var komið sögu voru einungis þrir keppendur eftir i keppninni, þeir Benni, Einar og Bragi, en þeim tókst öllum að komast moldar- brautina. keppendurnir þurftu að fara yfir. Flestir keppendanna geystust í hana meira af kappi en forsjálni enda fór það svo að tveir þeirra löskuðu bila sina svo að þeir urðu að notast við afturdrifið það sem eftir var keppninnar. Halldór Jóhannes- son keppti á Bronco með 302 kúbika vél og braut hann öxul í framdrifinu og Guðmundur Gunnarsson, sem keppti á Willys með 318 kúbika Chrysler vél, braut hjöruliðskross við framdrifið og setti viftuspaðann i vatnskassann. Bene- dikt Eyjólfsson náði besta tímanum í brautinni enda þótl hann hefði hlift Svarta torfærutröllinu og keyrt rólega. minnugur þess er hann beygði hásinguna og braut öxul i torfæru- keppninni á Hellu í vor. Önnur torfæran var dekkjagryfja og komust allir þátttakendurnir yfir hana, nema Guðmundur Gunnarsson og hefur hann vantað þar framdrifið sem varð óvirkt í tímabrautinni. Þriðja torfæran var frekar stutt brekka með háu barði i endann. Reyndist barðið keppendum erfitt og tókst aðeins einum þeirra, Benna, að komast upp það. Naut hann þar krafts Pontiac vélarinnar, en að þessu sinni var hann með 455 kúbika vélina í jeppanum. Fjórða brautin lá yfir stóran poll eða stöðuvatn. Þurfti þar að aka yfir vatnið, yfir sandhól sem var á þvi miðju. Síðan þurfti að taka 90 gráðu beygju til að komast upp úr vatninu. Þremur keppendanna tókst að komast þessa braut á enda en það voru Bragi Sjöunda brautin lá eftir lítilli á og var hún mjög krókólt. Þá voru einnig i henni tveir djúpir hylir sem voru erfiðir einkum vegna þess að kveikjurnar i jeppunum vildu blotna. Urðu keppendur að beita öllum hestöfiunum sem þeir höfðu yfir að ráða í ánni og sögðu fróðir menn að Benni hefði örugglega botnað þann svarta í ánni, en hann komst lengst í þessari braut. Úrslitin i keppninni urðu þau að Benedikt vann svo sem fyrr sagði en hann fékk 1800 stig. Annar varð Bragi Finnbogason en hann fékk 1710 stig. I þriðja sæti varð siðan Einar Ingvarsson og hlaut hann I320stig. Næsta keppni sem Bilakiúbbur Akureyrar heldur verður Islands- meistaramótið i sandspyrnu og verður það að öllum likindum um miðjan ágúst. Kvartmíluklúbburinn hefur jafnan séð um að halda Islandsmeistaramótið í sandspyrnu, en þar sem kvartmílingar verða æði uppteknir við að halda keppnir á kvartmílubrautinni munu Akureyringarnir taka að sér að halda sandspyrnukeppnina. Jafnan hefur verið mikið samstarf og gott milli Kvartmílu- klúbbsins og Bílaklúbbs Akureyrar. Von er á að sumir af sprækari sand- spyrnubílum sunnlendinga muni halda norður I sandinn og má þar t.d. nefna Benna á Svarta torfærutröllinu og Finnbjörn Kristjánsson á Volvo kryppunnifrægu. Jóhann Kristjánsson. Guðmundur Gunnarsson braut framdrifið ítfmmbmaiiuú I upphafi keppninnar. Varð hann að notast við afturdrifið það sem eftir var keppninnar og greinilegt var að hann hlifðijeppanum hvergi. DB-mynd Olafur Alfreðsson. Þrátt fyrir sólskinið var keppnin „mjög blaut" en margar þrautimar lágu um vatn. Bleyttu kveikjumar I bilunum sig oft og urðu af þvl nokkrar tafir. Hér bröltir Bragi Finnbogason upp úr einu vatninu. DB-mynd Ölafur A Ifreðsson. Tlmabrautin var mjög erfið yfirferðar og gekk á ýmsu þegar keppendumir þjöstnuðust hana. Einar Ingvarsson ryost hér upp eitt barðið I brautinni. DB-mynd Olafúr Alfreðsson. Þessi brekka sýnist ekki vera mjög brött á myndinni en erþað eigi að slður. Sigurvegarinn I keppninni, Benedikt Eyjólfsson, var sá eini sem komst upp hana og hér sést hann í henni með allt I botni. DB-mynd Ólafitr Alfreðsson. c Þjónusta Þjónusta * &\\x; k J ; j Garðaúðun Tek að mér úðun trjágarða. Pant- anir í síma 20266 á daginn og 83708 á kvöldin Hjörtur Hauksson skrúðgarðyrkjumeistari Garðaúðun Sími 15928 Brandur Gíslason garðyrkjumaflur BÓLSTRUNIN MIÐSTRÆTI 5 Viðgerðir og klæðningar. Falleg og vönduð áklæði Sími 21440, heimasími 15507.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.