Dagblaðið - 21.07.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1979.
— syndur i danska sjonvarpinu
Danska sjónvarpið sýnir um þessar
mundir enskan poppmyndaflokk í sex
þáttum, en þessi myndaflokkur hefur
verið geysivinsæll í Englandi.
Það er hinn vinsæli enski plötu-
snúður Kenny Everett sem kynnir ný og
gömul popp- og rokklög á sinn ein-
stæða hátt í þessum þáttum.
Hver þáttur býður upp á nýja gesti,
m.a. Cliff Richard, David Essex, Kate
Bush, Leo Sayer, hljómsveitina Thin
Lizzy ásamt mörgum fleiri þekktum
nöfnum.
V__________________________________
Á milli atriða koma síðan smágrín-
þættir þar sem heilsað er upp á helztu
stjörnur heimsins. Kenny Everett er 33
ára. Hann varð fyrst vinsæll sem plötu-
snúður í lítilli sjóræningjastöð sem er á
skipi í Norðursjó.
Eftir það fékk hann sinn eigin út-
varpsþátt í BBC og seinna starfaði
hann hjá einkaútvarpsstöð sem rekin er
fyrir auglýsingatekjur.
Sífellt er hann að auka vinsældir
sínar og ekki sízt með þessum sjón-
varpsþáttum, sem við getum að ein-
Hinn vinsæli plötusnúður Kenny Ever-
ett.
hverju leyti líkt við Skonrok(k) Þor-
geirs Ástvaldssonar.
Unga fólkið hér á landi tæki þessum
myndaflokki sannarlega fegins hendi
og gætum við þar tekið Dani okkur til
fyrirmyndar.
- ELA
J
Nína Sveinsdóttir fer með eitt auka-
hlutverk.
FRAMHALDSLEIKRIT
—útvarp kl. 13,20 á morgun:
Síðasti þáttur
Hrafnhettu
Á morgun kl. 13.20 verður fluttur
fjórði og jafnframt síðasti þáttur fram-
haldsleikritsins um Hrafnhettu eftir
Guðmund Daníelsson. Nefnist hann A
heimsenda.
Leikstjóri er Klemens Jónsson og
með aðalhlutverkin fara Helga Bach-
mann, Arnar Jónsson og Margrét Guð-
mundsdóttir.
í þriðja þætti gerðist það helzt að
Hrafnhettu finnst Níels Fuhrmann
hafa svikið sig, en Þorleifur Arason
reynir að hugga hana.
Þær Karen Hólm og Hrafnhetta eiga
langt samtal um Níels og skilja engar
vinkonur. Fuhrmann fer til íslands, en
Hrafnhetta eltir hann þangað því að
hún telur sig enn eiga heimtingu á að
hann kvænist sér.
Leikritið á morgun tekur 67 minútur
i flutningi.
- EI.A
UMRÆUiÞÁTTUR
— útvar^kl. 19,25
annað kvöld:
Eru fjölmiðlar
fjórði armur
ríkisvaldsins?
Helga Bachmann fer með hlutverk
Hrafnhcttu.
Helgi Skúlason er sögumaður í leikrit-
inu.
Annað kvöld kl. 19.25 verður annar
umræðuþáttanna, þar sem alþingis-
menn stjórna umræðum, en þeir verða
alls fjórir.
í þetta sinn er það alþingismaðurinn
Ólafur Ragnar Grímsson sem stýrir
þættinum og hefur hann sett fram
spurninguna: Eru fjölmiðlar fjórði
armur ríkisvaldsins?
Þeir sem þátt taka í umræðunum að
þessu sinni eru Jónas Kristjánsson rit-
stjóri, Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur, Halldór Halldórsson blaða-
maður, Eiður Guðnason alþingismaður
og Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur.
Þátturinn tekur rúma klukkustund í
Ólafur Ragnar Grimsson stjórnar um
ræðuþælti í útvarpi annað kvöld.
HLUSTUNIN
ALLT N»UR
í 0,0% Á
SINFÓNÍUR
— en þættir íléttum dúr vinsælastir
Hagvangur hf. hefur nú skilað
öðrum hluta útvarpskönnunar sinnar
og náði könnunin til 365 manns sem
fæddir voru á tímabilinu 1.1. 1903 til
31.12. 1%0. Alls bárust 215 gild spurn-
ingaeyðublöð. Fyrsta könnunin var
gerð vikuna 19.—25. nóvember 1978
og annar hluti vikuna 13.—19. maí
1979.
Mun hærri svarprósenta var í öðrum
hlutanum og segir í skýrslu frá Hag-
vangi að hugsanlega séu þrjár ástæður
fyrir því.
Í fyrsta lagi var spurningaeyðublað-
inu breytt með tilliti til einföldunar. 1
öðru lagi var spurt um dagskrá sjón-
varpsins, en það var ekki gert í fyrri
hluta könnunarinnar. Og í þriðja Iagi
var reynt að kynna könnunina á
markvissan hátt í útvarpinu sjálfu.
Það kemur greinilega í ljós í könnun-
inni að varðandi sjónvarpsdagskrána
virðist mest horft á fréttir og fasta
framhaldsþætti. Á sama hátt er mikið
hlustað á fréttir og fréttaþætti i út-
varpi, en varðandi tónlistina virði'st
skiptast í tvö horn sem fyrr, segir í
skýrslunni. Mun minni hlustun er á'
„þyngri” tónlist heldur en tónlist af
„léttara” taginu.
1 skýrslunni segir að áberandi sé hve
hlustun er meiri á fimmtudagskvöldum
í útvarpi, þegar sjónvarps nýtur ekki
við.
Hvað varðar einstaka þætti virðast
framhaldsþættir hafa verið geysivin-
sælir, svo sem þátturinn Húsið á slétt-
unni, en 64,2% horfðu á þann þátt, en
til viðmiðunar má nefna að á fréttir
horfðu sama dag 67,4%.
í útvarpi er það áberandi hve mikil
hlustun virðistá fréttir og veðurfregnir,
en sinfóníur og konsertar margs konar
hafa allt niður í 0,0% hlustun. Má þar
t.d. nefna að 13. maí var fluttur i út-
varpi sembalkonsert og hafði sá þáttur
enga hlustun. 14. maí var tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands útvarpað
og voru 1,9% þeirra sem spurðir voru
sem hlustuðu.
Aftur á móti hafði þátturinn í viku-
lokin 62,8% hlustun og sömu sögu er
að segja um óskalagaþætti og hvers
kynspoppþætti.
Það sýnir sig því aftur í þessari út-
varpskönnun Hagvangs að breyta
mætti dagskránni til rauna, og ætti það
ekki að vera erfitt ef tekið er tillit til
þessara kannana.
- ELA
Diskóþáttur
með vinsælum
plötusnúð
UNGIR PENNAR — útvarp sunnudag kl. 17,20:
Úrslit í smásögukeppninni
Myndaflokkurínn Húsið á sléttunni naut gífurlegra vinsælda ef marka má útvarps-
könnun Hagvangs hf. Þess má geta að til eru 23 þættir í viðbót af Húsinu á sléttunni
og væri þvi ekki úr vegi fyrir sjónvarpið að reyna að fá þá þætti til sýningar næsta
vetur.
Útvarpskönnun Hagvangs, annar hluti: ^
• A morgun kl. 17.20 er á dagskrá út-
varpsins þátturinn Ungir pennar i um-
sjá Hörpu Jósefsdóttur Amin. í sam-
tali við DB sagði Harpa að þátturinn
væri nú farinn að taka við sér eftir að
hafa verið í efnishungri í fyrstunni.
Harpa hélt að smásögukeppni, sem
efnt hafði verið til í þættinum, hefði
dregið svo mikið að, en í þættinum á
morgun verða birt úrslit í keppninni.
Þátturinn er rúmlega klukkustundar
langur.
- ELA
Harpa Jósefsdótt-
ir Amin, umsjón-
armaður Ungra
penna.
DB-mynd Bj.Bj.