Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 15
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. 15 HEBE—HBISWIPPMillfH 11 liM—EB—M1 nSHH TEITUR VAR El í NÁÐINNI — þrír nýlidar í íslenzka landsliðshópnum gegn Hollandi Teilur Þórðarson mun ekki leika gegn Hollendingum í landsleiknum nk. miðvikudag. Ekkert hefur verið við hann rælt og landsliðsnefndin hefur ekki talið ástæðu til að nota hann. Þrátt fyrir að Teitur sé í sænskum blöðum talinn einn allra hættulegasti framherjinn þar i landi sá landsliðs- nefndin ekki ástæðu til að kalla hann heim i landsleikinn og hafa þó ýmsir leikmcnn verið kallaðir heim til þess eins að sitja á varamannabekknum. Á blaðamannafundi, sem landsliðsnefnd boðaði til i hádeginu í gær, var 15 manna hópur tilkynntur fyrir landsleik- inn gegn Hollandi. Hann er þannig skipaður: Ársæll Sveinsson, ÍBV, Þorsteinn Bjarnason, La Louviere, Árni Sveinsson, ÍA, Dýri Guðmudnsson, Val, .lóhannes Eðvaklsson, Celtic, Magnús Bergs, Val, Martcinn Geirsson, Fram, Örn Óskarsson, ÍBV, Atli Eðvaldsson, Val, Hörður Hilmarsson, Val, Guömundur Þorbjörnsson, Val, Karl Þórðarson, La Louviere, Pétur Pétursson, Feyenoord, Sigurlás Þorleifsson, Víkingi, Tómas Pálsson, ÍBV. Sextándi maðurinn í hópnum hefur enn ekki verið valinn en valið er á milli Guðgeirs Leifssonar og Trausta Har- aldssonar, Fram. Guðgeir er sem kunn- ugt er atvinnumaður með bandaríska liðinu Edmonton Drillers. Þrír nýliðar Þrír nýliðar eru i íslenzka hópnum að þessu sinni. Það eru þeir Ársæll Sveins- son, Sigurlás Þorleifsson og Magnús Bergs og segjast verður alveg eins og er og með fullri virðingu fyrir Magnúsi Bergs, að val hans kemur mjög á óvart. Val landsliðsins er greinilega hugsað með varnarleik í huga og allar likur eru á að dr. Yuri llitschev noti liðsstilling- una 5—3—2. Það er vonlaust mál að ætla sér að sækja gull i greipar Hol- lcndinga og þvi verður að kappkosta að leggja alla áherzlu á vörnina en með þessari uppstillingu þarf vart við þvi að búast að fsland skori mark. Liðið, sem leikur gegn Hollandi, liggur nokkuð Ijóst fyrir. Þorsteinn Óvænt úrslit víðast hvar — í enska deildabikamum í gærkvöld Knglandsmeistarar I.iverpool sluppu með skrekkinn í gærkvöld er þeir fóru yfir Mersey-ána og léku við 4. deildarlið Tranmerc Rovers. Jafntefli varð, 0—0, að viðstöddum rúmlega 18.000 áhorfendum — met hjá Tran- mere. Liverpool sótti án afláts allan leikinn cn snilldarmarkvarzla Dickie Johnson i marki Tranmere hélt smá- liðinu á floti. Á lokamínútu leiksins varð Ray Clemence siðan að taka fram sparihanzkana lil að verja skalla frá Tommy O'Neil, sem var í dauðafæri. Fjöldinn allur af lcikjum var í enska deildabikarnum i gærkvöld og víðast urðu óvænt úrslit. Nú er i fyrsta skipti leikið heima og heiman i 2. umferðinni og kemur það mörgum af slærri liðun- um vafalitið til góða cftir að hafa verið í basli mcð ncðrideildarliðin í fyrri leiknum. Úrslitin i gær urðu, sem hér segir: Blackburn-Nottingham ■ Forest 1 — 1 Hirsthmann Útvarps-og sjónvarpsloftnet fyrir litsjónvarpstæki," magnarakerfi og tilheyrandi' loftnetsefni. Ódýr loftnet og gód. Áratuga reynsla. Hcildsala Smásala. Sendum 1 póstkröfu. Radíóvirkinn Týsgötu 1 - Sími 10450 Derby-Middlesbrough 0-1 Ipswich-Coventry City 0—1 Leeds-Arsenal 1 — 1 Ipswich-Coventry 0-1 Peterboro-Blackpool 0-0 Reading-Mansfield 4—3 Stockport-Crystal Palace 1 — 1 Stoke-Swansea 1 — 1 Sunderland-Newcastle 2-2 Tottenham-Manchester U. 2—1 Tranmere-Liverpool 0—0 Larry Lloyd skoraði fyrir Forest á 53. mín. en fyrirliði Blackburn, Tony Parkes jafnaði metin á lokamínútunni. Derby tapar enn 0—1 þrátt fyrir að eiga allan leikinn. Sama sagan var i Ipswich, þar sem hcimaliðið réð alveg gangi leiksins. Gestirnir náðu hins veg- ar að skora einu sinni og það var nóg. Frank Stapleton náöi forystu fyrir Arsenal á 50. min. en Byron Stevenson jafnaði sex minútum síðar fyrir Leeds. Mick Flanagan skoraði sitt fyrsta mark lyrir Crystal Palace gegn Stockport og Palace ætti að vera öruggt áfram — á heimaleikinn eftir. Swansea hefur byrjað mjög vel á keppnistímabilinu og i gærkvöldi mátti Stoke þakka fyrir jafntefli gegn John Toshack og Co. John Mahoney skoraði fyrir Swansea, en hann lék áður með Stoke, en var siðan seldur til Middlesbrough. Denis Smith jafnaði metin fyrir Stoke seint i leiknum. Tottenham vann óvæntan sigur yfir Manchester United. John Pratt og Glenn Hoddles skoruðu fyrir Spurs í fyrri hálfleik en Mick Thomas minnkaði muninn fyrir United i þeim siðari. Skozki deildabikarinn var einnig á dagskrá í gærkvöldi og þar urðu helztu úrslitin þessi: Clyde-Rangers Cowdenbeath-Dundee Falkirk-Celtic Meadowbank-Aberdeen 1—2 1—4 1—2 0-5 Bjamason verður í markinu, þrátt fyrir að hann hafi ekki verið talinn nógu góður í vor þegar hann var i toppæf- ingu. Undarlegt val þetta. Ekki svo að skilja að Þorsteinn sé ekki nógu góður — hann hefur sýnt mjög góða leiki með landsliðinu. Örn Öskarsson verður hægri bakvörður, eða þá Trausti Har- aldsson, verði hann valinn í hópinn. Árni Sveinsson verður vinstra megin og Jóhannes Eðvaldsson verður „sweep- er”. Fyrir framan hann á miðj- unni leika þeir Dýri Guðmundsson og Marteinn Geirsson. Karl eða Guðgeir verður hægra megin á miðj- unni og auk þess verða þar þeir Guðmundur Þorbjörnsson og Atli Eðvaldsson. Framherjar verða þeir Pétur Pétursson og Sigurlás Þorleifs- V'ðþurfutn á einum kraftmiklum manni að halda, sem geiur verið stöð- ugur ógnvaldur varnarinnar og gefur henni aldrei frið. Teitur er einmitt sá maður er þarna vantar. Kemur fjarvera hans úr landsliðshópnum mjög á óvart einkum og sér í lagi eftir hina frábæru frammistöðu hans gegn Sviss í vor. Aðeins einn maður i landsliðshópnum gæti hugsanlega tekið stöðu Teits og það er Tómas Pálsson, ÍBV. Tómas er mikill dugnaðarforkur en hefur þvi miður ekki sýnt góða leiki með lands- liöinu í þau skipti sem hann hefur fengið tækifæri. Hann er þó mun reyndari og þroskaðri leikmaður nú en siðast er hann lék með landsliðinu og verði hann með gegn Hollandi gæti hann hugsanlega fyllt upp i skarðTeits. Skarð í vörninni önnur staða í liðinu, sem á eftir að valda vandræðum, er staða hægri bak- varðar. í hópnum eru aðeins tveir menn, sem leika þá stöðu, örn Óskars- son og Magnús Bergs. örn er mun fljótari en Magnús og veröur að öllum likindum valinn en hætt er við að hann verði í vandræðum með kantmanninn hollenzka, Tahamata, sem bókstaflega tætti i sig argentinsku vörnina í FIFA- leiknum i vor. Hraði hans er geysi- legur og aðeins Trausti Haraldsson ætti möguleika í hann. Magnús er alltof seinn og Órn varla nógu snöggur. Alls hafa 28 leikmenn verið valdir i þá fjóra landsleiki sem hafa verið á dagskrá í sumar. Vissulega er það veik- leikamerki að geta ekki haldið sama kjarnanum yfir heilt sumar. Englend- ingar undir stjórn Ron Greenwood hafa tekið upp þá stefnu að hafa sem minnstar breytingar á liði sinu á milli leikja og það hefur gefið betri árangur þar i landi en náðst hefur i mörg ár. Miklar breytingar Sex leikmenn sem léku gegn Sviss verða ekki með núna. Það eru þeir Þorsteinn Ólafsson, Janus Guðlaugs- son, Ásgeir Sigurvinsson, Arnór Guðjohnsen, Teitur Þórðarson og Trausti Haraldsson. Sem fyrr segir eru þó líkur á að Trausti komi í hópinn. Þeir Arnór og Ásgeir eiga ekki heiman- gengt og Janus er meiddur — væri annars sjálfkjörinn í landsliðið. Pétur Ormslev var mjög til umræðu á fundinum i gær og að sögn landsliðs- nefndar komi hann sterklega til álita í landsliðið. Að mati undirritaðs á hann mun frekar heima í 16 manna hóp en þeir Sigurlás og Tómas. Að sjálfsögðu sýnist sitt hverjum en Pétur sýndi góðan leik gegn V-Þjóðverjum i vor og hefur átt mjög jafna leiki með Fram i sumar. Að sögn landsliðsþjálfarans passar Pétur ekki inn í leikkerfið og það gerir Teitur ekki heldur. Satt að segja virðist þetta landslið ■ ekki liklegt lil afreka en hafa ber i huga þá staðreynd að íslenzk landslið hafa alla jafna sýnt beztu leikina þegar sem minnstu hefur verið búizt við af þeim. Við skulum vona að svo verði einnig að þessu sinni. -SSv. Diðrik Olafsson svifur hér á eftir knettinum eins og köttur, cn hann fór vfir eins og svo oft I leiknum. DB-mynd Bj. Bj. Mark Helga var eini Ijósi punkturinn —í afar slökum leik þegar Víkingur vann Hauka 3-0 Það var augljóst á leik beggja liða i gær- kvöld að ekkert var i húfi fyrir Viking eða Hauka. Haukarnir kolfallnir i aðra deildina og Vikingar vonlitlir um UEFA sæti. Leikurinn bar þvi öll merki leiða og áhuga- leysis og var litt spennandi á að horfa fyrir þá fáu áhorfendur, sem lögðu leið sina á völlinn. Ekki spillti þó veðrið fyrir. Blanka- logn og glampandi sólskin. Vikingur sigraði 3—0 eftir aö hafa leitt 1—0 í leikhléi. Eftir tækifærum var þetta sanngjarn sigur en Haukarnir áttu oft á tiðum lítið minna í leiknum úti á vellinum. Þegar hins vegar dró nær vitateig Vikinganna fór allt i vitleysu. Strax á 5. minútu kom fyrsta ntark leiksins. Var þar að verki ungur nýliði í Víkingi, Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem skoraði eftir að Haukum hafði mistekizt að hreinsa frá eftir hornspyrnu. Skömmu siðar komst Sigurlás einn i gegn en lét verja frá sér og 10 min. fyrir hlé komst Helgi Helgason einn inn fyrir — bókstaflega la'^oaði í gegn- um vörnina — en örn sýndi snör viðbrögð er hann kom í veg fyrir mark. Knötturinn fór i stöngog út. Kristján Kristjánsson fékk upplagt færi til að jafna metin á 37. mín., en klúðraði klaufalega. Rétt fyrir leikhlé bjargaði Daniel Gunnarsson frá marki eftir skalla Sigurlásar. Síðari hálfleikurinn var mun skárri en allt spil vantaði þó á köflum og var mest um hugsunarlausar sendingar. Einkum voru Haukarnir skæðir með að senda knöttinn frá sér án þess að lita við og finna næsta sam- herja. Kristján var oft óvaldaður á vinstri kantinum en fékk sárasjaldan knöttinn. Þá það gerðist skapaði hann yfirleitt mikla hættu. Björn Svavarsson hægöi leikinn alltof mikið niður með því að stöðva sóknirnar og Staðan í 1. deild Staðan í 1. deildinni að leik Vikings og Hauka loknum er nú þessi: Valur 15 8 4 .3 30- -17 20 Vestmannacyjar 15 8 4 3 24- -11 20 Akrancs 15 8 3 4 24- -15 19 KR 15 7 4 4 23- -21 18 Víkingur 16 6 4 6 26- -23 16 Keflavík 15 5 6 4 19- -16 16 Fram 15 3 8 4 22- -20 i4 Þróttur 15 5 4 6 19- -25 14 KA 15 3 4 8 17- -30 10 Haukar 16 1 3 12 10- -36 5 Markahæstu menn: mörk Sigurlás Þorleifsson, Víkingi 10 Atli Eðvaldsson, Val 8 Sveinbjörn Hákonarsson, Akranesi 7 PéturOrmslev, Fram 7 jafnvel leika til baka eins og hann gerði oft. Boltinn var ekki látinn vinna. Þessi lýsing getur allt eins átt við Viking en sóknir þeirra voru þó mun beittari og hvað eftir annjð fengu þeir ágæt færi til að skora en klúðruðu öllu á klaufalegan hátt. í upphafi siðari hálfleiks fengu þeir Lárus og Sigurlás báðir færi til að skora áður en Vignir Þorláksson, vinstri bakvörður, fékk bezta færi Haukanna i leiknum. Hann komst óvænt einn inn fyrir en lét Diörik verja frá ster. Vel gert hjá Diðrik. Síðan fékk Sigurlás dauðafæri en skaut i hliðarnetið og Valur Helgason bjargaði á linu hjá Haukunum áður en Helgi Helgason skoraði annað mark leiks'ns og jafnframt það fallegasta. Hann fann engan samherja rétt utan vítateigs og lét þrumuskot riða af. sem hafnaði i horninu á Haukamarkinu án þess að Erni Bjanasyni tækist að verja, þrátt fyrir góða tilburði. Þriðja mark Vikings kom 5. mín. siðar. Magnús Þorvaldsson komst inn í sendingu gaf strax fram á Sigurlás Þorleifsson sem var á auðum sjó. Hann komst inn i vitateig, hristi þar af sér varnarmann og sendi knöttinn i netið. Lokakaflann gáfu Vikingarnir tveimur ungum nýliðum tækifæri og stóðu þeir sig þokkalega þann tíma, sem þeir voru inni á. Beztir hjá Vikingi voru Helgi Helgason, Ómar Torfason og Lárus Guðmundsson. Hjá Haukum Daniel Gunnarsson og Kristján Kristjánsson. -SSv. Glæsilegt met hjá Guðrúnu — þeytti kringlunni yf ir 50 metra Guörún Ingólfsdóttir settl i gærkvöld nýtt glæsilegt met i kringlukasti er hún þeytti kringlunni 50.88 metra á innanfélagsmóti hjá Ármanni i gærkvöld. Kastseria Guðrúnar var mjög góð. Fyrsta kastið mældist 45.44 T’”' Guðrún Ingólfsdóttir. km, þá kom ógilt kast, síðan tvivegis i röð 45,90 m, síðan metkastið og loks ógilt aftur. Gamla metið var 46.60 metrar og það er svo sannariega ekki á hverjum degi, sem kastmet eru bætt um rúma fjóra metra i einu. Árangur Guðrúnar sýnir það að hún gæti kastaö 55—60 metra i hagstæðum vindi. Þá setti Sigurborg Guðmundsdóttir einnig met í 400 metra grindahlaupi — hljóp á 61,6 sek. en eldra metið var í 61,7 sek. sett á Kalott keppninni fyrr í sumar. Telpnasveit Ármanns setti í gær nýtt met í 4 x 100 metra hlaupi og hljóp á 53,6 sek. en eldra metið var 54,3 sek. Frábært veður var til keppni í gær- kvöld — blankalogn og sólskin. Pólverjar unnu Pólverjar unnu Rúmena 3—0 í vináttu- landsleik sem fram fór í Varsjá í gærkvöld. Grzegorz Lato skoraði á 31. mín., Trelecki á 76. mín. og Boniek á 84. mín. Áhorfendur voru aðeins 10.000. Þá léku Danir og Finnar vináttulandsleik í Helsinki og lauk honum 0—0. Danska unglingalandsliðiö sigraði síðan það finnska i Kokkola 2—0 í gærkvöld. Fimmta mark Péturs! „Það var hreint ferlegt að tapa stigi gegn þessu liði,” sagði Pétur Pétursson í morgun er við höfðum samband við hann. Pétur var greinilega ekki ánægður með jafnteflið gegn Maastricht, en það lið er enn án sigurs i úrvalsdeildinni hollenzku. „Við pressuðum allan leikinn en ekkeri gekk. Siðan skoruðu þeir þvert gegn gangi leiksins en síðan tókst mér að jafna eftir góðan undirbúning Danans Ivan Nielsen — þurfti ekki annað en ýta boltanum yfir linuna. Við fengum mörg færi og t.d. komumst við — égog Jan Peters — einir í gegn en mark- vörðurinn varði skot hans. Auk þess fengum við þrjú dauðafæri sem ekki nýttust.” Pétur helur nú skorao fimm mörk i 35. tbl. 41. árg. 30. ágúst 1979. fjórum leikjum með Feyenoord og greinilegt er að hann er eitt stærsta nafnið í hollenzkri knattspyrnu. Excelsior, liðið sem Árni Sveinsson lék með í fyrra, notaði tækifærið og skauzt í efsta sætið með stórgóðum sigri yfir Haarlem á útivelli, 5—1. Annars urðu úrslitin Hollandi í gærkvöld: þessi í Go Ahead Eagles-NAC Breda 4—0 Arnhem-Ajax 1 — 1 Haarlem-Excelsior 1—5 AZ ’67-Sparta 2—1 Utrecht-Den Haag 0—0 Feyenoord-Maastricht 1 — 1 Roda-PSV Eindhoven 1—3 Twente-NEC Nijmegen 2—1 Willem II—PECZwolIe 1 — 1 Staðan að 4 umferðum loknum er Go Ahead 4 2 0 2 7—4 4 þessi: Utrecht 4 12 1 3—4 4 Excelsior 4 3 10 10—3 7 Willem II 4 12 1 3—4 4 Feyenoord 4 2 2 0 7—3 6 Roda 4 112 4—5 3 Ajax 4 2 2 0 6—4 6 Maastricht 4 0 3 1 4-5 3 AZ ’67 4 3 0 1 6—4 6 Sparta 4 10 3 5—5 2 PSV Eindhoven 4 2 11 9—5 5 NEC Nijmegen 4 10 3 4—7 2 Den Haag 4 2 11 3—2 5 PEC Zwolle 4 0 2 2 1—4 2 Vitesse Arnhem 4 2 11 4—4 5 NAC Breda 4 0 13 2—8 1 Twente 4 2 11 3—4 5 Haarlem 4 0 13 4—12 1 Hartford til Everton Everton keypti í gærkvöld Asa Hartford frá Nottingham Forest fyrir 400.000 sterlingspund og kemur sala þessi geysilega á óvart því Forest keypti Hartford fyrir aðeins tveimur mán- uðum frá Manchester City og þá á 500.000 pund. Það er ekki verðbólgan í Englandi. Hartford átti afl gangast nn<ti- .101,1. . -.urkMildi en afl henni loldnni '<úi /■ »ifl undirritun Verö kr. 850. KjóHinn fyrir haustbrúðina mm Astm spyr ekki að aldri, nýr greinaflokkur. * ,Þrýsting tek ég ekki nærri mér." Rætt við Kjartan Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra. Aó endurnýja borðstofuborð og fjóra stóla P/akal ELLEA NÝ FRAMHALDSSAGA: HVERS VEGNA MORD? »•3 9*

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.