Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 3
DAGBLADID. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. 3 Ætlar dr. Kristján aðgefa kost á sér áfram? ff Hann gefi strax ákveðin svör” <|UAm(o Laugavegi 54 Lýðræðissinnaður borgari skrifar: Að undanförnu hafa farið fram nokkur blaðaskrif ásamt umræðum manna á milli um það, hvort forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, myndi gefa kost á endurkjöri sér til handa til síns virðulega embættis á komandi sumri. Ekki er óeðlilegt að almenningur ræði jafnforvitnilegt mál og það hvort núverandi forseti verður áfram i embætti eða hvort nú verður kosið, enda staðreynd að dr. Kristján Eld- járn hefur verið talaður til af for- mönnum tveggja stærstu stjórnmála- flokka landsins, þ.e. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum til framboðs síðast þegar kosning átti að fara að fara fram og varð hann við tilmælum um sjálfkjör þó það að ýmissa dómi sé brot á almennu lýðræði, þar sem eðli málsins samkvæmt ætti ævinlega að kjósa forsetann þótt aðeins einn sé í framboði, enda meiri styrkur fyrir forseta að kanna a.m.k. á 4 ára fresti, hvaða stuðnings hann nýtur hjá fólkinu í landinu, en ekki leitað um það efni eftir áliti „pólitikusa’ þó forsætisráðherrar séu eða for menn fjölntennra stjórnmálaflokka. Kosning forseta á hiklaust að spegla þjöðarviljann og þá ekki síður en prestskosningar en í þeim er kosið þó einn sé í boði, enda að sjálfsögðu gert til þess að kanna vilja fólksins þ.e. að fullnægja lýðræðinu. „Staðreynd að dr. Kristján Eldjárn hefur verið talaður til af formönnum tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins, þ.e. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins, til framboös siðast þegar kosning átti að fara fram og varð hann við tilmælum um sjálfkjör.” áform sín í sambandi við forsetaemb- ættið, en láti ekki „pólitikusa” ráða fyrir sig um ákvarðanir hvar í flokki sem þeir standa. Hringið í síma 27022 milli kl 13 og 15, eða skrifið Svörin vekja furðu Nú hafa blöð spurt dr. Kristján um það hvort hann muni gefa kost á endurkjöri sér til handa, auk þess sem nokkrir menn sem til greina koma hafa svarað blöðum og það að sjálfsögðu vegna þess, að almenning- ur i landinu vill um þessi mál vita og á raunar rétt að fá um þau réttar upp- lýsingar, a.m.k. ef farið er að reglum lýðræðis. Svar forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjarns, vekur því miður nokkra furðu. Hann lætur hafa eftir sér að hann muni tilkynna ákvörðun sina ekki seinna en um áramót, þ.e. fáum mánuðum áður en framboðs- frestur er úti. Mörgum þykir gæta nokkurs stærilætis i þessu svari, jafn- vel túlka sumir svarið með þeim hætti að almenningi komi það ekkert við hvort forseti fer í framboð eða ekki. Undirbúningur að forsetakosningu tekur mikinn tima, og eins vill fólkið fá að sjá og meta þá sem í boði verða en ekki láta „pólitíkusa” ráða fyrir sig hver verður þjóðhöfðingi landsins næsta kjörtímabil, eða að „pólitikus- ar" taki nú til að dekstra núverandi forseta til framboðs, sem að bestu manna yfirsýn er honum ógeðfellt og raunar hefur hann óbeint gefið í skyn að hann muni leggja niður embætti að loknu þessu kjörtímabili. Er það ekki, a.m.k. siðferðilegur réttur fólksins í landinu, að forseti sem kosinn er af almenningi virði hann þess að gefa skýr svör cn ekki hálfkveðna vísu. Svo mikið traust hafa íslendingar sýnt dr. Kristjáni Eldjárn, að þeir eiga það inni hjá honum að hann gefi strax ákveðin svör um framtíðar- Finnst þér Karl Bretaprins sætur? Helga Björnsdótlir afgreiðslumær: Nei, alls ekki, mér finnst hann Ijóturog vildi sko alls ekki vera gift honum. Aðalbjörg Karlsdóttir afgreiðslumær: Mér finnst hann ágætur, en ég mundi samt ekki vilja hann. Erna Lúðviksdóttir nemi: Alveg ágætur. Þó held ég að ég vildi ekki gift- ast hohym. Ég myndi ekki einu sinni hafa lyst á að kyssa hann. Erla Lúðviksdóttir nemi: Já, já, hann er ágætur. Ég myndi samt ekki vilja vera gift honum, ég held ég myndi heldur ekki vilja fara með honum út ef hann byði mér. Ragnar Bentsson nemi: Ég veit það nú ekki. Ætli hann sé ekki alveg ágætur. Þórir Hallgrimsson nemi: Net, pao finnst mér ekki. Ég hef nú bara séð. hann á myndum, hann er kannski alveg sæmilegur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.