Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. MMBIAÐIB 'jtgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjón: Sveiitn R. Eyjótfsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson. Rit'.«jómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítsljómar Jóhannos Reykdal. Fréttastjí rí: Ómar Valdimarsson. !{>róttir Hallur Simonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfréttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Rr»ai Sigurðsson, Dóra Stefénsdótt- ir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson. Hönnun: Guðjón H. Pólsson. Hilmar Karisson. Ljósmyndir: Ami Péll Jóhannsson, Bjamloifur Bjamlerfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Sveinn Þormóösson. * Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorlerfsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing arstjórf: Már E.M. HaHdórsson. Ritstiórn Síðumúla 12. Afgreiösla, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverhohi 11. Aðalsimi hlaðsins er 27022 (10 línur). Setninb og umbrot Dagbla^ið hf., Siðumúla 12. Mynda og plötugerö: Hilmrr hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skerfunni 10. Verð I lausasöki: 180 krónur. Verð I áskrift Innanlands: 3500 krónur. > Torfan er ekki friöuö Bernhöftstorfa hefur ekki verið friðuð, þótt menn ímyndi sér annað. Yfirlýsing Ragnars Arnalds mennta- málaráðherra um svokallaða friðun hennar felur í sér fyrirvara, sem getur hæglega eytt málinu. Fyrirvarinn er sá, að alþingi veiti fé til endurnýjunar Torfunnar, ella verði friðunar- ákvörðunin endurskoðuð. Alþingi á sem sagt eftir að fjalla um málið eða trassa umfjöllun. Þrátt fyrir viljayfirlýsingu menntamálaráðherra getur alþingi afgreitt málið á annan veg, til dæmis af- greitt það alls ekki. Fjárveitinguna má láta daga uppi eins og hver önnur þingmál. Vitað er, að meðal þingmanna eru ýmsir harðir and- stæðingar Bernhöftstorfu. Þar er í forustu Ólafur Jó- hannesson forsætisráðherra, sem hefur notað húseig- andavald til að láta húsin grotna niður. Alveg er óvíst, að stuðningsmenn Torfunnar séu svo öflugir á alþingi, að þeir geti beitt sér gegn öðrum eins skriðdreka og Ólafí Jóhannessyni, fanatískum and- stæðingi Torfunnar. Flest bendir til þess, að Ólafur muni beita sér af hörku gegn endurreisn Bernhöftstorfu. Ummæli hans að undanförnu benda til, að honum sé umhugað um að beygja Ragnar í máli þessu. Ólafur segir blákalt, að það sé misskilningur Ragnars, að meirihluti sé í ríkisstjórninni fyrir friðun Torfunnar. Þessi ósvífna yfirlýsing er mjög í stíl Ólafs. Ráðherrarnir Benedikt Gröndal, Hjörleifur Gutt- ormsson, Kjartan Jóhannsson, Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson hafa allir lýst opinberlega stuðningi við friðun. Og þetta eru fímm ráðherrar af níu. Ólafur segir líka blákalt, að Ragnar hafí farið út fyrir verksvið sitt með friðun Torfunnar. Hún heyri undir forsætisráðuneytið. Samt segja húsafriðunarlög, að menntamálaráðherra ákveði friðun húsa. Það er einkar athyglisvert, hversu frjálslega for- sætisráðherrann umgengst staðreyndir. Hann horfir framhjá opinberum yfirlýsingum samráðherra sinna og framhjá nýlegum lögum um húsafriðun. Þetta minnir á, er Ólafur ákvað skyndilega að gerast harðlínumaður í Jan Mayen málinu og lét málgagn sitt ráðast að fyrri harðlínumönnum fyrir að vera of linir í málinu. Kannski er hann farinn að lesa Mein Kampf. Allan áttunda áratuginn hefur Ólafur Jóhannesson ráðið ferðinni í málum Bernhöftstorfu. Hann lét reka leigjendur út og taka rafmagn og hita af húsunum, svo að þau grotnuðu fyrr niður. Þessi stefna hófst á fyrra forsætisráðherraskeiði Ólafs og hélt áfram á því tímabili, er hann leyfði Geir Hallgrímssyni að vera forsætisráðherra að nafninu til. Það góða, sem Ragnar Arnalds menntamálaráð- herra hefur nú gert í málinu, er að höggva á hnút deilna um, hvort hann eða borgarstjórn ætti að hafa for- göngu um friðun. Friðunaratlagan getur því hafizt. Og það er enn ekki um seinan. Þór Magnússon þjóðminjavörður hefur sagt, að seint fari húsin í Torfunni svo illa, að þeim mætti ekki bjarga. Friðunarmenn verða nú að snúa sér að alþingi. Þar dugir ekki að ná meirihluta góðviljaðra þingmanna. Þar dugir aðeins yfirgnæfandi meirihluti, svo að Ólafi takist ekki að svæfa málið. Le ’íósið er þjóðminjavarðar: ,,í þessum hús- um . . 'isaheildinni allri ofan Lækjargötunnar á þjóðin ) merkastan byggingararf í kaupstað á ís- landi . . u er svo komið, að í rauninni er engin slík núsaheild v húsaröð til frá þvi um miðja síðustu öld ncma þessi ema.” f ...... Valkostir sovézkra kvenna: Þátttaka í /ífs- gæðakapp- hlaupinu eða bameignir —en þeim fækkar ört í kjölfar aukinna réttinda kvenna þvert á áætlanir stjórnvalda Hjónin Vasya og Galina Tarasov hagslegu vandamáli, þar sem Sovét- vinna í sömu matvöruverzluninni í ríkin sjá fram á stóraukna þörf miðborg Moskvu. Þau búa i þægi- vinnuafls í náinni framtíð, en ekki legri íbúð byggðri á félagslegum verður gengið lengra í að lokka kven- grundvelli líkt og verkamannabústað- fólk á vinnumarkaðinn en nú, og irnir hér, í suðurhluta Moskvu. Það fólksfjölgun er hættulega hæg, að tekur þau á aðra klukkustund að komast í vinnu daglega og álíka tíma til baka. Á það bætist svo staða í bið- röðum í verzlunum til að kaupa nauðsynjar. Þau eru að safna fyrir bíl, sem þau þurfa að greiða álíka háu verði og á íslandi og þurfa ef til vill að bíða lengi eftir, þegar þau hafa safnað nægilegu fé. Galina á engin börn, enda segist hún hreinlega ekki hafa tíma til þess og vera dauðuppgefm á hverju kvöldi. Dæmi Galinu er ekkert eins- dæmi í Sovétríkjunum, þar standa konur frammi fyrir einföldum og hörðum kostum: Annaðhvort frama eða barneignum. Þessir þættir fara ekki saman nema með miklum erfið- leikum. Og þar sem flestar sovézkar konur vinna til að skapa sér betra viður- kemur fram árekstur á milli þjóð- væri, eru þær nú orðnar nær helm- félagslegra og menningarlegra sjón- ingur starfandi fólks í Sovétríkjun- armiða annars vegar og hins vegar um. Af ofangreindum ástæðum leiðir timabundinna hagfræðilegra mark- það af sér að fjölgun er orðin innan miða. við eitt prósent. Kynferðismismunun Breytt staða konunnar Samt rfkjandi fœkkar fseðingum Þrátt fyrir allt eru sovézkar konur Fækkandi barnsfæðingar eru ekki ánægðar með stöðu sína. Sem aðeins ein hlið þróunar í kjölfar dæmi má nefna að þrátt fyrir ótvíræð breyttrar stöðu konunnar í Sovétríkj- fyrirmæli um algert jafnrétti í stjórn- unum. Jafnréttisbarátta þeirra hefur arskránni frá 1977, er innan við einnig kollvarpað hinni hefðbundnu helmingur sovézkra kvenlækna i fjölskyldu og slagorð stjórnvalda: .toppstöðum’, þótt 69% allra lækna „hin gullna helmingaregla” virkar séu kvenmenn. Þá eru stjórnmálin illa á marga karlmenn. enn í höndum karlmanna, því aðeins Þá er þessi þróun að verða að þjóð- 24,7% flokksmeðlima í sovézka mati sumra hagfræðinga þar í landi. I umfjöllun Sovétmanna um málið Sovézkar konur hafa frá fornu fari átt einna greiðasta leið til frama I listum. Mvndin er af hinni þekktu ballettdans- mey Maya Plisctskaya. kommúnistaflokknum eru konur. Og aðeins átta af 287 miðstjórnarmönn- um eru konur. Framundir það síðasta hafa karl- menn verið ótvíræðir húsbændur á heimilum sínum og konur aðallega unnið húsverk. í skoðanakönnun í vor, sem fjölskyldumálaráðið gekkst fyrir, varð verulega vart við að karl- mönnum vefðist tunga um tönn þegar spurt var um húsbóndann á

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.