Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. 9 Svipazt um ísundlauginni íHverageröi: „Þetta er paradísin okkar” — fór fyrst í sund 80 áraTgamail en syndir nú daglega, 83 ára „Ég var 80 ára gamall þegar ég steig fæti í fyrsta sinn ofan í sundlaug,” sagði Hjörleifur Guðmundsson, 83 ára gamall öldungur, sem DB-menn hittu i útisundlauginni í Hveragerði er þeir voru á ferð um Suðurland einn sól- skinsdag fyrir skömmu. Sundlaugin í Hveragerði er ein stærsta útisundlaug landsins, 50 metra löng. Sundlaugarvörðurinn Hanna Maria Pétursdóttir, sem er að læra guðfræði við Háskóla íslands, sagði í samtali við blaðamann DB að mjög mikið væri um að aðkomufólk kæmi í laugina og oft kæmu útlendir ferða- mannahópar þangað og fengju sér sundsprett i lauginni í hinu fallega um- hverfi i Hveragerði. Hjörleifur Guðmundsson, sem nú Sundlaugarvörðurinn, Hanna Maria Pétursdóttir guðfræðinemi, naut þess að sitja i sólinni. syndir daglega í lauginni, er vistmaður á elliheimilinu að Ási í Hveragerði. Hann sagðist hafa fengið slag fyrir nokkrum árum og orðið máttlaus á öðrum fæti. Hjörleifur sagði að eftir að hann fór að stunda sundið væri líðan hans allt önnur. ,,Ég væri ekki það sem ég er núna ef ég hefði ekki byrjað á þessari vitleysu,” sagði hann. Sigríður Þorláksdóttir úr Kópavogi var líka hin ánægðasta í lauginni með rúmlega tveggja ára gömlum syni sinum, Jóni Þór Guðjónssyni. „Þetta er paradísin okkar,” sagði hún um laugina. Aðrir sundlaugargestir sem DB- menn ræddu við tóku mjög í sama streng um ágæti sundlaugarinnar. Flestir reyndust þeir aðkomumenn í Hveragerði. - GAJ Jón Þór Guöjónsson er eitthvað hikandi við aö hoppa til mömmu sinnar, Sigriðar Þorláksdóttur, en hann lét sig nú samt hafa það á endanum. „Eg væri ekki það sem ég er núna ef ég hefði ekki lent í þessari vitleysu,” segir Hjör- leifur Guðmundsson, 83 ára. DB-myndir Ragnar Th. „Við erum núna í Olfusborgum, og við þræðum sundlaugarnar. I gær vorum við í sundi a lrafnssi >g nú hér. Báðar laugarnar eru mjög góðar,” sagði Kristinn Bjari .,- son sem þarna ei ásamt syni sínum Þorsteini sem er að verða 3 ára. Fjör að færast í fasteignaviðskiptin: Enginn auðtekinn skyndi- gróði í fasteignasölunni — hún er puð ogvinna, segir Jón Arason, lögmaðurog fasteignasali „Þess eru dæmi að einstakar ibúðir hafa hækkað i verði um allt að 60%, þegar miðað er við síðastliðið eitt ár. Einkum á þetta við um minni ibúðir, tveggja og þriggja herbergja, sem eru hlutfallslega dýrastar,” sagði Jón Arason lögmaður, sem rekur Fasteignaval í Garðastræti 45, er fréttamaður spurði hann hvernig kaupin gerðust á fasteignamarkaðn um á höfuðborgarsvæðinu. „Þessa dagana er að aukast hreyf- ingin í fasteignaviðskiptunum," sagði Jón. í því sambandi kvað hann árstímann hafa nokkur áhrif. „Sumarbyggingar húsa eru nú að byrja að skila sér á fasteignamark- aðinn og eiga eftir að gera það í auknum mæli næstu mánuöi,” sagði Jón Arason. Keðjuverkandi markaður „Allar hreyfingar á þessum mark- aði eru keðjuverkandi. Langflestir sem selja hafa í huga að kaupa ann- að, ýmist stærra eða minna, annars staðar o.s.frv. Nokkur samdráttur hefur orðið í ibúða- og húsabyggingum á síðast- liðnu einu ári," sagði Jón. „Auk þess hefur óvissa í þróun verðlags- og efnahagsmála ekki verið minni að undanförnu en löngum áður. Óvissan veldur þvi ævinlega að menn halda að sér höndum í fasteignaviðskipt- um, enda þótt þeir hafi í raun ætlað að hefjast handa um kaup eða sölu. Framboð og eftirspurn ráða ævin- lega nokkru um fasteignaverð. Jón Arason: Hæpin fullyrðing að fasteignasalar sprengi upp fasteigna- verðið. Myndin af fasteignaverði á sennilega eftir að skýrast verulega á næst- unni,” sagði Jón Arason. Fáir tolla lengi — Hvað viltu segja um þá lífseigu staðhæfingu að fasteignasalar sprengi upp verð á fasteignum? „Það er hæpin staðhæfing að ekki sé meira sagt,” sagði Jón Arason. „Þess kunna að þekkjast einhver dæmi, en þaðeru undantekningar. Eftir þau liðlega 15 ár sem ég hef verið i fasteignaviðskiptum eru ekki margir þeir sömu og voru þegar ég byrjaði. Margir hafa reynt við þetta í þeirri trú að auðtekinn sé skyndi- gróði á þessu sviði. Menn komast fljótt að þvi að svo er ekki og leggja þá upp laupana eftir bitra og stund- um dýrkeypta reynslu. Fasteignasala er puð og vinna. Þegar sannleikurinn rennur upp fyrir þeim hafa þeir stundum gripið til óheppilegra viðskiptahátta. Þeir taka að gylla vonir fólks með þvi að nefna óraunhæft verð og allt of hátt þegar ráðgjafar er leitað. Þetta hefur ekki áhrif á raunveru- legt ogendanlegt verð fasteignar. Slik ráðgjöf ber þvi ekki tilætlaðan árangur og hefur aðeins erfiðleika fyrir umbjóðendur i l'ðr með sér,” sagði Jón Arason. Aldrei of mikið aðhald Hann vildi í þessu sambandi geta þess sem hann taldi skoðun hinna grónari i faginu. Hún væri sú að aldrei væri of mikið aðhald að þeim sem stunduðu fasteignaviðskipti. Vandaðir viðskiptahættir væru alger forsenda fyrir umboðsmennsku í fasteignaviðskiptum. Æði oft væri verið að fjalla um næstum aleigu fólks. Það yrði því að gera afdráttar- lausar kröfur til þeirra sem trúað er fyrir svo miklum hagsmunum ein- staklinga. „Þvi miður hefur maður sé slæleg- an frágang samninga um fasteigna- viðskipti á fimmtán ára starfsfcrli og stundunr hryggilegan,” sagði Jón. Hann bætti við: „Ég hefi lagt að fólki mínu að gefa fasteignasala einkaumboð i fasteignaviðskiptum. að minnsta kosti fyrsl'um sinn. Það hlifir fólki við talsvérðu ónæði og firrir fólk mismunandi raunhæfum ráðleggingum. .1 á. ég er ekki í vafa um að nú eru að fara af stað niciri hreyt'ingar i fast- cignaviðskiptum en verið hal'a um talsvert skcið,” sagði .lón Arason lögmaður og fasteignasali að lokum. ' - BS 5NANAUST JOAVEGI Ö6 R ÍSBT Fr. t! Fasteignaumboðið Pðsthússtræti 13 simi 14975 Maimir Láruuon 76609 27750 V 27750 ! sVaSTEIOKJl; ' HtTSIÐ ta-klarWrS ! ,„33 «660 iAOALFASTEIGNASALAH ^ wntaf' ^ J Vesturgötu 17, 3. h»ð, fasteigna Ihölun HÚSEIGMIR ---&SKIP g4433

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.