Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979. Suður-Afríka: Stjómarflokkurinn tapar í kosningum — kjósendur virðast ekki hrif nir af hugmyndum um aukin réttindi svertingja Þjóðernissinnaflokkurinn í Suður-Afriku, sem þar fer með völd varð fyrir verulegu áfalli í tvennum aukakosningum, sem þar fóru fram í gærkvöldi. Frambjóðendur hans töp- uðu verulegu atkvæðamagni, þó svo að þeir héldu báðir velli. Úrslitin eru túlkuð þannig, að kjósendur hafi misst verulega trú á stjórnarflokkn- um við hneykslið sem Múlder upp- lýsingamálaráðherra fyrrum var pott- urinn og pannan í en varð meðal annars til þess að Vorster fyrrum for- sætisráðherra og forseti varð að segja af sér. Einnig er talið, að hugmyndir Pieters Botha núverandi forsætisráð- herra um breytingar á kynþáttalög- gjöfinni falli ekki í góðan jarðveg hjá hvítuni almenningi. Hinar nýju tillögur forsætisráð- herrans hafa aðeins verið kynntar i almennum orðum og hann hefur ekki látið neitt uppi um einstök atriði. Aftur á móti hefur Botha sagt, að Suður-Afríka yrði að horfast í augu við langvinna innanlandsstyrjöld ef ekki væri tekið meira tillit en nú er til hagsmuna allra þeirra sem í landinu búa. Hefur hann gefið í skyn, að jafnvel sé rétt að afhenda svertingj- um, sem eru átján milljónir af tuttugu og þrem milljónum íbúa landsins, meiri landsvæði. Þá innan hinna svonefndu sjálfstjórnarsvæða þeirra. Andstæðingar frambjóðenda Þjóðernissinnaflokksins voru úr hægri sinnuðum flokki í öðru kjör- dæminu, sem hneigist til enn harðari stefnu í kynþáttamálum en Þjóðar- flokkurinn í öðru tilvikinu. Í hinu kjördæminu var frambjóðandinn úr Frjálslynda flokknum. AÐ KÍKJA FYRIR HORNIÐ Ekki fer milli mála að vissara er að líta varlega fyrir horn og þá ekki sízt þegar menn eiga í stríði, eins og þessir hermenn Kúrda i íran sem sjást á myndinni að ofan. Heimildum ber ekki saman um hvort nefnd þeirra sem er í Teheran til að reyna að finna leið til að koma á vopnahléi í bar- dögum milli Kúrda og stjórnarhersins i vesturhéruðum landsins, hafi tekizt að ná samkomulagi. Innanríkisráðherra írans. sagði í gærkvöldi að samkomulag hefði tekizt en leiðtogar samtaka Kúrda sögðu að samkomulagsgrundvöllur sá sem ráðherrann sagði frá væri fjarstæðukenndur og útilokað að nefnd Kúrda hefði gengið að hon- um. Meðal annars var sagt að Kúrdar hefðu fallizt á að leyfa írönskum her- mönnum að fara inn í borgina Mahabad og taka að sér yfirstjórn allra öryggismála. Einnig var sagt að leiðtogar Kúrda yrðu ekki sóttir til saka fyrir verk sín í andstöðunni við stjórn Khomeinis. Sá síðastnefndi hefur aftur á móti lagzt gegn öllum samkomulagsumleitunum við Kúrda. Ekki er kunnugt um nein átök i Kúr- distan síðasta sólarhringinn. Erlendar fréttir Tíð salmonellu sýking í brezkum sjúkrahúsum Kona dó á sjúkrahúsi í Englandi úr þeim sjúkdómi, sem salmonella- bakteríur valda. Á sjúkrahúsi þessu í Sandwell, West-Midlands, Bretlandi, hefur í verulegum mæli orðið vart sjúk- leika sem talinn er salmonellu-sýking. Er þetta níunda dauðsfallið í þessum mánuði, sem stafar beinlínis af matar- eitrun, sem komið hefur upp á sex sjúkrahúsum i Englandi. Playboy eykur við veldi sitt Playboy fyrirtækið bandaríska hefur keypt stærsta spilavítið í London. Er það þá orðið mesta fyrirtæki sinnar tegundar i Bretlandi. Kennir El Cor- dobes barnið Bandariskur lögmaður er kominn til Madrid á Spáni til að sækja þar mál á hendur nautabananum heimsfræga E1 Cordobes. Kona ein vestra heldur því fram að nautabaninn sé faðir að eins árs gömlu barni hennar. Davíð herðir enn á sér Fregnir af fellibylnum Davið, sem fer hamförum í Karabiska hafinu eru óljósar þar sem samband hefur rofnað við þau svæði í Dominika og Martin- ique sem orðið hafa fyrir barðinu á honum. Vitað er þó að tré rifnuðu þar upp með rótum, símastaurar fóru um koll auk annarra skemmda. Veður- fræðingar segja að Davíð eigi enn eftir að herða á sér og skora á allt fólk að reyna að koma sér í öruggt skjól. í morgun var fellibylurinn að koma yfir Jómfrúareyjaf og Puerto Rico. Tító fékk kulda- legar móttökur Titó forseti Júgóslaviu kom i gær- kvöldi til Kúbu en þar hefst ráðstefna hinna svonefndu hlutlausu ríkja eftir næstu helgi. í dag hefjast viðræður hans og Castrós þjóðarleiðtoga á Kúbu um viðfangsefni ráðstefnunnar. Að sögn l'réttamanna var Titó tekið kurteislega en kuldalega þegar hann sté út úr flugvél sinni á flug- vellinum við Havana. Er þetta í fyrsta skipti sem hann kemur til Kúbu. Þar var Castró mættur í gær. Hann kyssti Titó á báðar kinnar en til þess var tekið að venjubundið faðm- lag að loknum kossunum féll niður. Kúba og Júgóslavía eru bæði áhrifamikil í hópi hinna hlutlausu ríkja. í samtökunum eru nú áttatíu ríki þriðja heimsins. Mörg málefni verða tekin til umræðu á fundinum í næstu viku. Vitað er að miklar deilur munu standa um hverjir verða eigi fulltrúar Kampútseu. Er þar um að ræða þá, sem taldir eru ráða þar ríkjum í augnablikinu eða fulltrúa Pol Pots, sem réði þar áður en stundar nú skæruhernað gegn núverandi stjórn- völdum. Annað atriði verður að likindum nokkuð umdeilt en það eru tillögur Kúbu um nýja skilgreiningu á hvaða riki hafa skuli aðild að samtökum hinna hlutlausu. Er talið að hug- myndir Kúbu muni verða sumum fulltrúanna erfiður biti í háls. Vilja Kúbumenn halla sér enn meir en gert hefur verið að Sovétríkjunum. MORÐINGJAR MOUNTBATT- r r ÞAR SEM RIGNIR HANDSPRENGJUM ENS ENN TALDIR AIRLANDI Ciífurleg leit stendur stöðugt yfir að morðingjum Mountbattens lávarðar og að sögn yfirvalda í írska lýðveldinu eru þau bjartsýn á að takast muni að hafa hendur í hári þeirra innan skamms. Ekki er þó búizt við að neinn verði handtekinn strax í dag að því er aðstoðarforsætisráðherra írlands, George Colley, sagði við fréttamenn í gærkvöldi. Hann sagði að yfirvöld teldu sig vita bæði hverjir hefðu framið verknaðinn og að þeir væru enn innan landamæra irska lýðveldisins. Ríkis- stjórn landsins telur morðin á Mount- batten lávarði og þeim þremur, sem með honum voru í bátnum, þegar hann sprakk i loft upp ámánudaginn var mikið áfall fyrir sig og hefur heitið hverjum þeim sem upplýst getur málið mikilli þóknun. Stjórnin í Washington skoraði enn einu sinni á ísrael að hætta árásum sinum á Líbanon og sagði einnig að palestínskir skæruliðar ættu að hætta árásum sínum á ísraela og banda- menn þeirra í Líbanon hina svo- nefndu kristnu hægri menn. Sam- kvæmt heimildum í Tel Aviv hafa þrjátíu skæruliðar fallið í loftárásum ísraela undanfarna tíu daga. Hann mun ekki vera í þeirri tölu maðurinn á myndinni hér að ofan, sem verið er að grafa upp úr húsarústum eftir eina loftárásina. Honum koma hvorki að gagni góð orð deiluaðila né annarra þvi hann var steindauður er að var komið enda ekki við því að búast að menn lifi af þegar heilu húsþökin' falla ofan á þá.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.