Dagblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979.
Símstjórinn
Reykjavík:
Hafsteinn Þorsteinsson, símstjóri í
Reykjavik, skrifar:
í blaði yðar 27. ágúst >.I. kvartar
Ólafur Baldvinsson, Lundahólum 6,
um samskipti sín við starfsmenn Sim-
stöðvarinnar vegna bilunar á síma-
númeri hans i framhaldi af flutningi á
símanum frá Asparfelli að Lunda-
hólum 6, 10. mai sl. Þar sem hér
gætir nokkurs misskilnings óska ég
eftir að eftirfarandi verði birt í blaði
yðar, sem fyrst:
1. Ólafur hafði samband við skrif-
stofustjórann 22. ágtst vegna
reiknings fyrir flutning símans, sem
OLAFUR SKULDAÐI
3 SÍMAREIKNINGA
gefinn var út 1. júlí sl. og óskaði
hann eftir afslætti á reikningnum,
þar sem síminn hefði verið bilaður í
heilan mánuð eftir að flutningurinn
var framkvæmdur 10. maí sl.
Skrifstofustjórinn kvaðst þurfa að
kynna sér málið og fáskýrslu frá yfir-
manni Bilanatilkynninga05.
Nokkrum dögum síðar kom
Ólafur á fund skrifstofustjórans og
var honum þá skýrt frá, að sam-
kvæmt upplýsingum frá Bílanatil-
kynningum hafí fyrst verið kvartað
til þeirra 29. maí sl. og hefði verið
gert við símann samdægurs.
Ólafur kvaðst hins vegar hafa
kvartað um bilunina við þá deild sem
sá um flutninginn en starfsmenn
deildarinnar minnast þess ekki, enda
langt um liðið síðan verkið var fram-
kvæmt.
Skrifstofustjórinn taldi þó ekki á-
stæðu til að rengja frásögn Ólafs um
að hann hefði kvartað yfir truflunum
á símanum fljótlega eftir flutninginn.
Með hliðsjón af því tjáði hann
Ólafi að til greina kæmi að fella
niður afnotagjald af símanum tíma-
bilið 10. til 29. maí, í samræmi við
heimild í Gjaldskrá og reglum fyrir
símaþjónustu, XIII. kafli, 1.6., þar
sem segir:
„Bili símabúnaður, ber þegar í
stað að tilkynna það viðkomandi
stöðvarstjóra, er sér um að gallarnir
verði lagfærðir svo fljótt sem unnt
er.
Póstur og sími ber ekki ábyrgð á
þvi, þótt síminn verði ónothæfur um
stund. Verði óþarfur dráttur á
viðgerð símans má krefjast endur-
greiðslu á afnotagjaldi í hlutfalli við
þann tíma, er síminn er ónothæfur,
ef sambandsslitin eru meira en 10
sólarhringaráári.”
2. Að símanum hafi verið lokað
vegna flutningsreikningsins eingöngu
er ekki rétt. Ólafur átti vangreidda
þrjá reikninga, tvo útgefna I. júlí sl.
annar fyrir símskeyti og símtöl og
hinn fyrir umræddan flutning og
priðji reikningurinn var fyrir afnota-
gjald og símtöl útgefinn I. ágúst sl.
Símum í Breiðholtshverfi með
gjaldfallnar skuldir var almennt
lokað 22. ágúst sl., en ekki aðeins
símaólafs.
Afsláttur af afnotagjaldi af sima
Ólafs fyrir tímabilið 10. til 29. maí sl.
hefur verið reiknaður út og verður
færður honum til tekna.
Ferðasaga f rá Mallorka
Badd'ir |eSenda
Þórhallur Þorgeirsson skrifar:
Þann 22. ágúst keypti ég mér far-
miða til Mallorka með ferðaskrifstof-
unni Úrval. Ekkert stóðst af því sem
lofað var af ferðaskrifstofunni.
Við tveir keyptum saman íbúð og
átti hún auðvitað vera tilbúin við
komuna. En íbúðin var ekki tilbúin
fyrr en eftir tvo sólarhringa.
Ég fékk nýrnastein i þvagrás á
leiðinni til Mallorka og er slíkt ekki
nýlunda að ég fái þann kvilla. Var ég
fluttur á spítala daginn eftir komuna
til Mallorka og steinninn fjarlægður
þá um kvöldið.
Morguninn eftir símaði farar-
stjórinn i mig á spitalann og sagði
að ég hefði sofið vel um nóttina. Eg
hafði á orði að hér hefði ég ekkert að
gera lengur og óskaði eftir að verða
sóttur þá þegar. Þvi var lofað, en
ekki gert. „Gleymdi” ferðaskrif-
stofan mér i vikutima. Þaðan fór ég
ekki inn í ibúðina, sem ég hafði greitt
fyrir, heldur á yfirfullt hótel af
Þjóðverium.
í samtali er ég átti við farar-
stjórann morguninn eftir að ég kom
á spitalann, sagði hann mér að ég
væri vel fjáður af gjaldeyri. Taldi ég
það mitt mál en ckki hennar. Seinna
varð ég þess visari að fararstjórinn,
frú Halldóra, hafði sagt þetta starfs-
fólkinu. Neyddist ég til þess að lána
starfskonu ferðaskrifstofunnar 5000
peseta. Þess skal getið að það var
ekki gert af frjálsum vilja. Einnig'
skal þess getið að ég var rændur í
anddyri hótelsins af starfskonu, 50
dollurum. En þeir voru mér sendir til
baka í nafnlausu umslagi seinna.
Ég hef gengið á fund Steins Lárus-
sonar, forstjóra Úrvals, og tjáði
honum að ég vildi ræða málið. Brást
hann illa við. Ég krefst fullra skaða-
bóta frá ferðaskrifstofunni.
Matthías gleymdi að færa út í200 mflur
Sigurður Jónsson, Asparfelli 2,
skrifar:
Mjög hafa verið básúnaðar
tillögur Ólafs Ragnars og Matthiasar
Bjamasonar í Jan Mayen málinu, en
aðrar tillögur hafa verið ófrægðar i
æsifréttastíl. Nú hefur hins vegar
komið á daginn, að sjálfur Matthías
Bjarnason hafði „gleymt” að „færa
út” í 200 mílur í átt til Jan Mayen i
ráðherratíð sinni, og varð Kjartan
Jóhannsson að hafa snör handtök nú
i sumar til þess að bjarga málinu að
því leyti. — Næst gerist það, að
kommar (ÓRG og Ragnar Arnalds)
koma með helmingaskiptatillögur um
hafsbotninn, og getur sú tillaga
þeirra orðið okkur dýrkeypt áður en
lýkur.
Ætli það hafi nú ekki veriðsvo, að
tillögur þeirra Benedikts Gröndals
og Kjartans Jóhannssonar í Jan
Mayen málinu hafi verið þær
hyggilegustu, þótt ekki væru þær
settar fram með froðufellandi hávaða
og gauragangi? Margir telja, að þær
hafi verið settar fram með vitund
Geirs Hallgrimssonar og með sam-
þykki Ólafs Jóhannessonar.
SPARIFJÁREIGENDUR
Áfangahækkun vaxta á leið til verðtryggingar
<six^
Frá og með
1. september
verða innlánsvextir
sem hér segir:
mánaða vaxtaaukareikningar 39,5%
mánaða vaxtaaukareikningar 32,5%
mánaða sparisjóðsbsekur 29,5%
mánaða sparisjóðsbækur 28,0%
Almennar sparisjóðsbækur 27,0%
Ávísanareikningar 1 1 ,o%
Hlaupareikningar 11 ,o%
Næstu vaxtabreytingar verða 1. des. 1979 og 1. mars 1980
Innlánsviðskipti leið til lánsviðskipta
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA