Dagblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979.
kom ofanritaður með 8 v. í næstsíð-
ustu umferð hafði ég svart gegn
Razuvajev og var augljóst að sigur
varð að vinnast ef ég ætti að eygja
möguleika í 1. sætið. Jafnteflistilboð
andstæðingsins fyrir skákina fékk því
litinn hljómgrunn. Ekki leið þó á
löngu áður en mér snerist hugur.
Skákin fór yfir í ankannalegan farveg
og kunni ég illa við stöðu mína.
Þegar tímahrak var svo yfirvofandi
þótti mér hyggilegast að bjóða sættir
og var vel tekið í þá málaleitan af
hálfu andstæðingsins. Þar með hafði
Razuvajev sama sem tryggt sér sigur
á mótinu þvi Filip var honum lítil
ógnun. Tékkneski stórmeistarinn,
sem er á sextugsaldri, býr yfir mikilli
reynslu og þekkir sín takmörk vel. í
seinni hluta mótsins tók hann því upp
á því að gerast ærið friðsamur og
sætta sig við 2. sætið.
í síðustu umferð gerði Razuvajev
stutt jafntefli við Adamski (Póllandi)
og Filip við Schinzel (Póllandi).
Hörkubarátta var hins vegar i skák
ofanritaðs við a-þýska stórmeistar-
ann Knaak. Báðir lentu í geigvænlegu
tímahraki og tókst hvorugum að hafa
tölu á leikjafjöldanum. Stórmeistar-
inn reyndist sterkari á svellinu í tíma-
hrakinu og í biðstöðunni hafði hann
greinilega stöðuyfirburði. Eftir að
tekið var til við skákina að nýju kom
næsta tímahrak til sögunnar. Meðan
á því stóð tókst ofanrituðum að tapa
þremur (!) peðum og skákinni þar
með. Lokastaðan á mótinu varð þvi
þessi:
1. Razuvajev (Sovétríkin) 10 v. af 15
mögulegum.
2. Filip (Tékkóslóvakía) 9 1/2 v.
3. —5. Knaak (A-Þýskaland), Jansa
(Tékkóslóvakia) og Farago Ung-
verjaland) 9 v.
6.-8. Bielczyk (Pólland), Jón L.
Árnason og Timoschenko (Sovétrík-
in) 8 1/2 v.
9.—11. Spassov, Spiridonov (báðir
Búlgaríu) og Adamski (Pólland) 8 v.
12. Planinc (Júgóslavía) 6 v.
13. Schinzel (Pólland) 5 1/2 v.
14. Pokojowczyk (Pólland) 5 v.
15. Kruszinski (Póiland) 4 v.
16. Borkowski (Pólland) 3 1/2 v.
Stigahæsti alþjóðlegi meistarinn i
heiminum, Timoschenko, (Elo-stig:
2530) átti ekki láni að fagna á mót-
inu. Með sigri í tveimur síðustu skák-
unum tókst honum þó að fleyta sér
upp í viðunandi sæti. Skák hans gegn
pólska alþjóðameistaranum Poko-
jowczyk fékk fegurðarverðlaun:
Hvítt: Pokojowczyk
Svart: Timoschenko
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6.g4
Keres-árásin, eitt hvassasta vopn
hvíts gegn þeirri uppbyggingu sem
svartur velur.
6. — Rc6 7. g5 Rd7 8. Be3 a6 9. h4
Be7 10. Dd2 Rxd4 11. Dxd4 0-0 12. 0-
0-0 b5 13. Hgl Hb8!
Mun sterkara en 13. — Bb7 sem
áðúr hefur veríð reynt.
14. h5 b4 15. Rd5
Athyglisverður leikur en eins og
framhaldið leiðir í ljós á svartur ekki
i vandræðum með að bægja hætt-
unni frá. Leikur eins og 15. Re2
fellur hins vegar ekki í kramið hjá
hvítum.
15. — exd5 16. h6 Re5 17. f4 Dc7 18.
exd5
Ekki 18. fxe5 dxe5 19. Dxd5 Be6
'o.s.frv. Textaleikurinn hefur þó þann
annmarka að hvítreitabiskup svarts
verður stórveldi.
18. — Bf5 19. Hg2 Hfc8 20. Hdd2
b3!
Svartur hefur greinilega hrifsað til
sín frumkvæðið. ,
21. axb3 Hxb3 22. Kdl
Nokkrar vel þekktar grafikkonur hengja upp afmælissýningu Islenskrar grafikur.
ARNIPALL
JÖHANNSSON.
AÐALSTEINN
INGOLFSSON
Hausar eru sömuleiðis á grafíksýningunni. Þessir eru eftir Ragnheiði Jónsdóttur.
JÓN L ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK
mátar auðvitað i tveimur með 31. —
Dh5 + 32. Kg3 Dh3.
30. —He3+!
Timoschenko gat ekki á sér setið
og skellti hróknum niður í borðið svo
giumdi í salnum. 31. Kxe3 er svarað
með 31. — Dd3 mát svo hvítur gafst
upp.
13. exd5 RxdS 14. Rf5 Dd7 15. Dh5
He8 16. Hael
Til gamans skulum við að lokum
renna yfir stystu vinningsskák móts-
ins sem sýnir svo ekki verður um
villst að stórmeisturunum getur orðið
illilega á í messunni. Skákin var tefld
i 9. umferð.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Planinc
Spænski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3
Annar möguleiki er 2. f4.
2. — Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0
b5 6. Bb3 Bb7 7. Rc3 Be7 8. d3 0-0 9.
Bd2 d6 10. Rd5 Rb8?!
Endurbót Planinc. Áður hefur
verið leikið 10. — Rd7 11. a4! og
hvítur náði betra tafli í skákinni
Geller-Dorfman, Skákþing Sovétríkj-
anna 1976.
11. Rxe7 + Dxe7 12. Rh4d5?
12. — Bc8 er e.t.v. besti leikurinn!
16. — Rc6?? 17. Dg4 og svartur gafsl
upp.
Hótanirnar eru 17. Dxg7 mat og
17. Rh6 + með drottningarvinningi. I
stað 16. — Rc6 gat svartur reynt 16.
— g6 17. Rh6+ Kg7, en eftir 18. Dh4
hefur hvítur yfirburðastöðu: t.d. 18.
— Rc6 19. Bxd5 Dxd5 20. Rf5 +!
gxf5 21. Bh6+ og hvitur mátar. Best
er því 18. — He6! en 19. Rg4 við-
heldur stöðuyfirburðum hvíts.
22. —Bf6! 23. cxb3
23. gxf6 er svarað með 23. — Rf3!
og svartur vinnur lið. Hvítur afræður
að þiggja hróksfórnina enda er ekki
auðvelt að sjá afleiðingarnar fyrir.
23. — Dcl + 24. Ke2 Rf3! 25. Db4
He8!
Kaldur og rólegur kemur svartur
hróknum i ákjósanlega vígstöðu.
Hótunin er 25. — Del + og mát i
næsta leik.
26. Kxf3 Dxfl + 27. Bf2 Dhl! 28.
Bgl Dh3+ 29. Hg3 Dfl + 30. Hf2
Eða 30. Bf2 Dhl+ 31. Hg2 og nú
er komin upp sama staða og áðan,
nema hvað svartur á leikinn! Hann
J
I
Sýningarnefnd Haustsýningar FlM samankomin. _________;_______________
Willys Overland '55.
Perkins dísilvél,
þungaskattsmælir,
læst drif, aflhemlar og
vökvastýri o.fl., o.fl.
Óryðgaður.
Uppl. í síma 40155.
KENNARI
Varnarliðið óskar að ráða kennara við barna-
skóla varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Um-
sækjendur hafi kennarapróf og starfsreynslu í
kennarastörfum. Kennslugreinar: íslenzk menn-
ing, saga, íslenzka og landafræði.
Mjög góð enskukunnátta, tala, lesa og skrifa
skilyrði.
Umsóknir sendist Ráðningarskrifstofu varnar-
máladeildar Keflavíkurflugvelli eigi síðar en 24.
sept. nk. (sími 92—1973).