Dagblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979.
13
Barbara Cartland:
HEFUR SELT 266 JÓMFRÚR
Barbara Cartland liggur í bleikum
silkisófa og les fyrir. Á viku getur hún
samið bók sem vís er til að slá í gegn. 10
þúsund orð á dag er textinn og sá texti
er hreint ekki gefins. 267. bókin er í
smíðum.
Barbara Cartland er ennþá, þrátt
fyrir að hún sé orðin 78 ára, fögur
kona. Með sín safírbláu augu og ljósu
hárlokkana er hún eins og gulli slegin
postulínsbrúða með öll kílóin á réttum
stað. Og hún hefur sko efni á því.
Bækur hennar fylla orðið fjöldann
allan af bókahillum og bókasöfnum.
Hvert orð sem hrýtur af lituðum vörum
hennar til ótal ritara sem hún hefur í
þjónustu sinni er seinna lesið af millj-
ónum manna um allan heim, aðallega
konum. En frægir menn eins og hinn
látni Mountbatten lávarður og Sadat
Egyptalandsforseti eru líka á meðal
þeirra. Barbara segir ánægð að þar senv
söguhetjar hennar séu alltaf hreinar
meyjar falli þær í góðan jarðveg hjá
aröbum.
Á síðasta ári seldust hvorki meira né
minna en 120 milljón eintök af bókum
Barböru. Þessi eintök fóru um allan
heim, nema til Kína, sem hún býst fast-
lega við að færist inn á landakort
hennará næstaári.
Og NBC-sjónvarpsstöðin bandariska
hyggst einmitt i þessum mánuði sýna
myndina Logi ástarinnar sem gerð var
eftir sögu Cartland. Myndin kostaði
heil milljón pund (8—9 hundruð
milljónir íslenzkra króna).
Að slá í gegn
Ef myndin slær í gegn eins og búizt
er við er áætlað að taka fleiri myndir
eftir sögum Cartland. Barbara er auð-
vitað alsæl en hún var í byrjun ekki svo
ánægð með túlkun Bandaríkjamanna á
efni sögunnar. í 60 ár hafa allar sögu-
hetjur hennar verið jómfrúr fram á
brúökaupsnóttina. En það var ekki nóg
fyrir Kanann. Sjónvarpsstöðin sendi
Barböru bréf þar sem spurt var að því
hvort ekki væri i lagi að láta sjást eitt-
hvað aðeins meira en mömmukoss í
endinn. Barbara, sem telur sig sjálf-
skipaðan verndara fegurðar og hreysti,
brást ókvæða við. Hún tók þegar í stað
hina hljóðfráu Concorde-þotu vestur
til þess að fylgjast með því að ekkert
dónalegt yrði nú gert við söguna
hennar.
Eldri sonur hennar slóst í för með
henni og reyndi að telja hana á að sam-
þykkja breytinguna. í Bandaríkjunum
yrði alltaf að vera örlitið kynlíf i bland
ef einhver ætti að horfa á kvikmyndir.
En sú gamla var hörð. „Ég hef skapað
266 jómfrúr og prýða þær bókahillur
um allan heim. Færi ein þeirra nú að
gera eitthvað dónalegt hryndi allt Cart-
landveldið,” sagði hún.
Rómantík
en ekki losti
Barbara óð inn í upptökusalinn eins
og bleikt stormský með hvítum minka-
bryddingum og sagði Ieikstjóranum að
það sem hahn fengi frá sér væri sko
hrein og klár gamaidags rómantík en
enginn losti. Stúlkurnar i myndinni
ættu að vera eins og nýútsprungnar
rósir á vordegi og hún vildi sko ekki að
fólk æti hvort annað meðan það kysst-
ist. Bandaríkjamenn göptu.
Barbara fékk vilja sínum framgengt
og í Eldi ástarinnar er ekkert gróft.
Á írlandi
NBC-sjónvarpsstöðin eyddi hvorki
meira né minna en 15 hundruð dollur-
um í það eitt að taka upp atriði i kast-
ala á írlandi þar sem sagan átti að ger-
ast. Sagan segir frá stúlku sem trúlofuð
er greifa. Hún heldur til Parisar að
kaupa sér föt. Þar hittir hún ungt ljóð-
skáld og verður ástfangin upp fyrir
haus þegar hann kemur henni til
hjálpar er hún hefur dottið niður
tröppur að neðanjarðarlest og fótbrot-
ið sig. Ljóðskáldið vill hafa við hana
kynmök en fær það vitaskuld ekki í
sögu eftir Cartland.
Hann biður hana þá afsökunar og
segist elska hana og allt fellur í ljúfa löð
þar til stúlkunni ungu er rænt til þess
að nota hana sem jómfrú við svarta-
galdur. Rétt þegar leggja á kvenhetjuna
á fórnaraltarið, vitaskuld þó ekki
nakta, kemur svo skáldið hennar ríð-
andi og bjargar henni. í leiðinni skýtur
hann niður hið öfuga krossmark djöf-
ulsins og það fellur í höfuð æðstapresti
safnaðarins og verður honum að bana.
NBC-menn dáðu þennan hluta.
Stúlkan heldur þá heim til Englands
á ný og tilkynnir greifanum sínum að
hún geti því miður ekki gifzt honum.
Rétt í þvi er tilkynnt koma yngri bróður
greifans og er þar kominn skáldjöfur-
inn frá París. Greifinn segir bróður
sínum að hann sjálfur sé að dauða
kominn og muni hann því (sá yngri)
erfa allar eigurnar og þær eru ekkert
smáræði. Og elskendurnir ungu fallast
í faðma og kyssast, en afar laust, og
myndinendaráþví. NBC-menn grétu.
Fyrsta myndin
Þessi mynd NBC er sú fyrsta sem
gerð er eftir sögu eftir Cartland. Til
stóð að gera eina með Douglas Fair-
banks yngra fyrir mörgum árum en
stríðið kom í veg fyrir þá áætlun. Og
eftir það vildi enginn rómantík lengur
heldur vildu menn fá að sjá eitthvað
meira.
En núna a þessum dögum kláms og
hryllings virðist Barbara vera góð sölu-
vara. Hvers vegna? „Ég veiti fólki
rómantíska leið til flótta frá raunveru-
Barbara 1933. Fögur eins og ein af söguhetjum hennar (litla myndin). Enn er hún fögur þó árin séu orðin 78 (stærri myndin).
leikanum. Ég veiti því allt sem það
hefur nokkurn tíma langað í,” segir
hinn fagri höfundur.
, ,FóIk er orðið dauðleitt á klámi, það
er ekkert nýtt í því lengur. Ungar
stúlkur dreymir mun frekar um vel
klædda menn en nakta, þeir nöktu eru
svo ósköp lítið spennandi. ”
Sjálf er Barbara mikill aðdáandi fag-
urra klæða. Bleikt er hennar uppáhald
og fari hún út fyrir dyr ber hún sólhlíf í
stíl við kjólinn sinn. Hún gerir sitt til
þess að halda í ímynd hinna fögru,
óspjölluðu meyja og þó að Bandaríkja-
menn hafi við útgáfuna á Loga ástar-
innar breytt kápunni á bókinni í djarf-
ari átt tekur hún það ekki nærri sér. í
stað kápunnar þar sem unga stúlkan og
maðurinn sjást í fullri stærð og tals-
verðri fjarlægð hvort frá öðru er komin
önnur þar sem eingöngu sjást andlit og
þau talsvert nálægt hvort öðru. Er það
ekki klám?
„Nei, vitaskuld ekki. Þau varla
snertast með nefjunum og munnur
stúlkunnar er lokaður,” segir hinn
tæplega áttræði höfundur.
— Þýtt úr Daily Express. / DS
unnwaf
kllMtoll a.ai.k. é kvéMla
'HIjOMÍAVIXIIR
HAFNARSTRÆTI slml 12717