Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.10.1979, Qupperneq 14

Dagblaðið - 01.10.1979, Qupperneq 14
14 frjálst'áháð iagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. FramkvæmdaatjóH: Sveinn R. Ey)ólfsson. RKstjórí: Jónas Kristjánsson. RrtstjómarfuNtnji: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjómar: Jóhannes Reykdai. Fréttastjóri: ómar Vaidimarsson. (þróttir: HaUur Sfmonarson. Menning: Aðaisteinn Ingótfsson. Aðstoöarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít: Asgrimur Pálsson. Blaðamenn: Anna BJamason, Asgeir Tómasson, AtH Stainarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdótt- ir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, óiefur Geirsson, Sigurður Sverrisson. Hönnun: Guðjón H. Páisson, Hflmar Karísson. Ljósmyndk: Ami Páfl Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Httröur VHhjáimsson, Ragnar Th. Sigurös- son, Sveinn Þovmóðsson. Skrífstofustjóri: ólafur Eyjólfsson. GjakJkeri: Práinn ÞorieHsson. Sttkistjóri: Ingvar Sveinsson. DreHing- arstjóri: Már E.M. Haldórsson. Ritstjóm Siöumúia 12. Afgreiðsla, áskrHtadefld, auglýsingar og skrifstofur Þverhotti 11. Aðabfmi blaösins er 27022 (10 línur). Setning og umbrot: Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda- og pltttugerö: HUmir hf., Sfðumúla 12. Prentun: Arvakur hf., SkeHunni 10. Áskriftarverð á mánuöi kr. 4000. Verö I lausasöiu kr. 200 eintakið. Boð ogbönn eru tilills Fólk hefur áreiðanlega gott af því að fara snemma að sofa. ,,Morgunstund gefur gull í mund”, segir i gömlu mál- tæki. Hitt er svo enn áreiðanlegra, að hið opinbera á ekki að reyna að hafa vit fyrir fólki með valdboði, hvorki í þessu efni né öðrum hliðstæðum efnum. Nú eru liðnir rúmir tveir mánuðir síðan Steingrímur Hermannsson dómsmálaráðherra lét rýmka opnunar- tíma veitingahúsa og skemmtistaða. Mega menn nú vera þar til klukkan þrjú á nóttu. Þetta skref til aukins frjálsræðis virðist ekki hafa valdið neinum sérstökum vandamálum. Nætursamkvæmi eru mjög vinsæl og séríslenzk fyrirbæri. Þau hafa hingað til verið haldin í heimahús- um íbúðahverfa, svefndrukknum nágrönnum til mikils ónæðis. Það er í allra þágu, að næturlífsfólki sé gefinn kostur á veizlum í þar til gerðu húsnæði, langt frá sof- andi fólki. Ekkert ætti í rauninni að vera því til fyrirstöðu, að skemmtistaðir, veitingahús, vínstofur, ölkrár og kaffi- hús séu opin meðan veitingamanni og gestum hans þóknast. Það er vandséð, að hið opinbera eigi ein- hverju uppeldishlutverki að gegna á þessu sviði. í Vestur-Berlín ríkir þetta frjálsræði. Þar hefur eng- inn ama af því, þótt sumar krár séu opnar til morguns, enda er drukkið fólk fremur sjaldséð þar í borg. Ætli það séu ekki einmitt bönnin, sem helzt framkalla spill- inguna? Vestur-Þjóðverjar eru snjallir á fleiri sviðum. Þeir hirða lítt um verkföll, en hafa samt þjóða hæst laun, stytztan vinnudag og lengst sumarfrí. Þeir hafa nær enga verðbólgu og eiga traustasta efnahag í heimi. Athyglisvert er, að þar í landi er vín, sterkur bjór og áfengi selt í matvöruverzlunum innan um mjólk og barnamat. Enda segja margir, að sum önnur vara í slíkum búðum sé jafn hættuleg, svo sem tóbak og sykur. Yfírvöld þar í landi telja sig hins vegar ekki eiga að hafa vit fyrir fólki með valdboði, hvorki í neyzlu áfengra drykkja, tóbaks né sykurs. Þess vegna má selja þessar vörur eins og aðrar vörur. Samt er áfengisbölið í Vestur-Þýzkalandi minna í sniðum en áfengisbölið á íslandi. Til skamms tíma voru áfengisvarnir á íslandi í höndum bannstefnumanna. Auðvitað voru þær varnir stundum lítils virði og oftar neikvæðar. Það er ekki fyrr en til sögurtnar koma menn, andvígir boðum og bönnum, en fylgjandi fræðslu og hælismeðferð, að eitthvað fór að ganga gegn bölinu. Frjálslyndisskref Steingríms er virðingarverð viður- kenning á breyttum hugsunarhætti. Auðvitað gengu bannmenn af göflunum, en voru friðaðir með banni við hádegisdrykkju á vínbörum veitingahúsa. Þetta er afar fallega hugsað, því að auðvitað eiga menn ekki að drekka sterka drykki í hádeginu. Þar af leiðandi hafa áhugamenn um þessa hádegis- drykkju aðra útvegi. Bannið hefur ekkert hagnýtt gildi, fremur en aðrar slíkar tilraunir hins opinbera til að hafa vit fyrir fólki með valdboði. Hvítasykursát íslendinga er með endemum og flýtir að minnsta kosti jafnmörgum í gröfina og ofneyzla áfengis gerir. Samt er leyft að selja sykur að vild. Og við skulum rétt nefna tóbakið, sem sennilega er skæð- ast af þessu öllu, en fæst alls staðar. í öllum þessum efnum eru fræðsla og upplýsinga- miðlun til góðs, en boð og bönn til ills. Hið opinbera á því að hætta afskiptum af sölu áfengis og skemmtana- lífi, en snúa sér í þess stað með fræðslu að rótum áfengisbölsins. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1979. Sovétmenn ráða verðþróuninni á gullmarkaðinum V —segir einn sérf ræðinga f jármálablaðsins The Financial Times—þeir hafa hækkað heimsmarkaðsverðið með kaupum og sölum á gulli undanfama mánuði Sovétríkin, sem um skeið hafa verið annað mesta gullframleiðsluriki heims — á eftir Suður-Afriku — hafa notið góðs af mikilli hækkun verðs á gulli á undanförnum mánuðum. Þess eru einnig merki að Sovétmenn hafi bæði keypt og selt gull á alþjóða- mörkuðum til þess að ýta enn frekar undir verðhækkanir. Þessu er haldið fram í grein í brezka fjármálablaðinu The Financial Times. Að sögn vestrænna sérfræðinga á sviði gullframleiðslu vinna Sovét- menn rúmlega fjögur hundruð tonn af gulli á ári hverju. Vegna stöðugt aukins fjölda gullnáma, sem teknar eru til vinnslu og aukinnar tækni við vinnslunna vex gullframleiðslan stöðugt þar eystra. Að sögn lætur nærri að tekjur Sovétmanna af gull- sölu nemi jafnvirði þess hveitis og korns sem þeir verða að flytja inn frá Vesturlöndum. Nokkuð er siðan Sovétstjórnin hóf að selja gull á alþjóða- mörkuðum á Vesturlöndum. í fyrra munu Sovétmenn hafa selt um það bil sama magn og unnið var þá úr jörðu. Mestallt fór það um gullmarkaði í Sviss en einnig í minna mæli um Hong Kong. Mikil leynd hvílir yfir gullsölu Sovétmanna, enda skiljanlegt að þeir vilji láta lítið bera á því að sjálf stjórn kommúnista, i þessu forusturíki þeirra, sé á kafi i spákaupmennsku með gull á musterum kapítalistanna og arð- ræningja heimsins. Alþjóðafjármála- menn hafa lögum verið kallaðir það í þeirra hópi. Vitað er þó að verulegt magn af sovézku gulli hefur verið selt í Saudi Arabíu á undanförnum mánuðum. Vegna þessa hafa gullsölur þeirra á venjubundnum mörkuðum, eins og i í hvert sinn sem bliku dregur á loft i alþjóðafjármálum bregða margir fjármagnseigendur við og kaupa gull þvi reynslan sýnir að það er öruggasta eignin. JAN MAYEN ERÍSLENZK Forsaga Norðmenn glata tækifærinu Þessa dagana er verið að afla endanlegra upplýsinga og leggja lin- urnar í sambandi við endanlega af- stöðu og stefnumörkun íslands gagn- vart Jan Mayen. i fyrstu samninga- viðræðum okkar við Norðmenn mátti engu muna að við glötuðum rétti okkar til Jan Mayen nú á næstu árum: í bezta tilfelli hefðum við staðið uppi með erfitt deilumál, illsækjanlegt skv. alþjóðalögum, þar sem við hefðum verið búnir að sam- þykkja lögsögulegan rétt Norðmanna til Jan Mayen. Fram hjá þessu slysi forðuðu okkur góðir menn á síðustu stundu. En einnig kom þar til óskiljanleg frekja Norðmanna sem skildu ekki að raunverulega stóð þeim meginatriði málsins til boða, viðurkenning íslands á lögsögulegum rétti Norðmanna á Jan Mayen, en frekjan blindaði þá svo að tækifærið gekk þeim úr greipum. Hér eftir fá Norðmenn aldrei viðurkenndan af íslendingum lögsögulegan rétt yfir Jan Mayen. Ný gögn koma íslandi til góða Eftir að fyrstu samningaviðræð- urnar voru yfirstaðnar með því að Norðmenn ruku heim nánast, án þess að kveðja, myndaðist tóm til gagna- söfnunar. Ekki þurfti lengi að leita i Þjóðskjalasafni áður en pakki kom fram merktur Jan Mayen I. Pakki þessi hafði að geyma ein verðmæt- ustu skjöl sem til eru í islenzka lýðveldinu í dag, í mörgu tilliti séð. Skjöl þessi bera glöggan vott stórhug og framsýni þriggja íslenzkra stjórn- málaskörunga, þeirra Jóns Magnús- sonar, Jóns Þorlákssonar og Tryggva Þórhallssonar, en þessir menn eru forsvarar íslands á þeim tima er Norðmenn gera tilraun til að eigna sér þessa óbyggðu eyju á íslenzka landgrunninu, Jan Mayen. Mikil- vægast er þó svarbréf Jóns Þorláks- sonaT forsætisráðherra sem er svar- bréf vegna tilkynningar norsku ríkis- stjómarinnar að norska veðurstofan haft numið land á Jan Mayen 1924, eingöngu lítið land kringum veður- stofuhúsið. 5. mai 1926 tilkynnir sendiherra Noregs i Kaupmannahöfn danska utanríkisráðuneytinu að land- námið nái til allrar eyjarinnar. Þessum aðförum svarar Jón Þorláks- son í bréfi 27. júlí, 1927. Bendir hann þá fyrst á að ísland sé næsti nágranni Jan Mayen, sem sé að Jan Mayen sé á islenzku hafsvæði en ekki norsku. Bendir Jón Þorláksson einnig á að ísland eigi vissra hagsmuna aðgæta i sambandi við eyjuna, t.d. hafi verið

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.